Þjóðviljinn - 11.12.1981, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. desember 1981
UOWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
btgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Kitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraidsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjórí: Álfheiður Ingadóttir.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Óskar
Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
iþrótta- og skákfréttamaöur: Helgi Ólafsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir-Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriður Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: Guörún Gúðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
innheimtumenn:Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Sföumúla 6,
Reykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Verjum samningana
• I þeirri ríkisstjórn sem nú situr hefur samstarf
yfirleitt verið gott, og góður samstarfsandi ríkjandi.
Þessu var ólíkt farið í ríkisstjórn Ölafs Jóhannesson-
ar, sem hér sat 1978—1979 þar sem menn urðu að sitja
undir vopnum allan tímann vegna stöðugra sprengju-
tilburða kratanna innan stjórnarinnar og í f jölmiðl-
um.
q Allt það sprengjufár kratabroddanna kom þeim
að lokum sjálfum í koll, — þeir sprengdu sjálfa sig í
loft upp og hafa ekki borið sitt barr síðan.
• Auðvitað hafa fjöldamörg deilumál komið upp
innan núverandi ríkisstjórnar, en menn hafa sýnt
vilja til að leysa þau. Menn hafa varast að hlaupa með
deilumál í fjölmiðla á frumstigi. Fyrst hafa málin
verið sett í nefnd og reynt að jafna ágreininginn og
býsna oft hef ur tekist að f inna samkomulagsleið. Með
þessum hætti verður að vinna, eigi ein ríkisstjórn að
geta orðið farsæl.
• Á þetta er minnst hér til aðvörunar vegna þess að í
gær lætur Tómas Árnason, viðskiptaráðherra sig hafa
það, að veitast í málgagni Framsóknarf lokksins með
mjög ómaklegum hætti að samstarfsaðilum sínum í
ríkisstjórn.
• Tómas Árnason heldur því fram, að innan ríkis-
stjórnarinnar hafi ekki náðst samkomulag um ein-
hverjar tillögur hans um frekari aðgerðir gegn verð-
bólgu fyrr á þessu ári. Þessu er ekki hægt að láta
ómótmælt. Við könnumst ekki við, að nokkrum tillög-
um frá Tómasi Árnasyni um ráðstafanir gegn verð-
bólgu hafi verið hafnað innan ríkisstjórnarinnar nú í
haust eða vetur — nema ef nefna á kvak einstakra
Framsóknarmanna um skerðingu verðbóta á almenn-
um launum.
• Við ætlum reyndar ekki að munnhöggvast við
Tómas Árnason um þau ef ni svo f ráleitt sem það er að
heimta nú stríð við verkalýðshreyf inguna um nýgerða
kjarasamninga hennar. Og það er reyndar rétt að taka
skýrt fram, að enn sem komið er, þá hefur Fram-
sóknarf lokkurinn sem slíkur ekki haft uppi neinar til-
lögur um að hrófla við forsendum nýgerðara kjara-
samninga. Hitt kann stundum að vera nauðsynlegt að
gera greinarmun á Tómasi Árnasyni og Framsóknar-
f lokknum.
• l glímunni við verðbólguna eru verkefnin mörg.
Sum þau veigamestu eru í höndum viðskiptaráðu-
neytisins, þar á meðal allt sem snýr að innf lutnings-
versluninni og bönkunum. Ætli menn að halda verð-
bólgunni í skef jum á næsta ári, þá þarf ekki síst að
grípa á þessum þáttum, vaxtamálunum, sjóðum
Seðlabankans, innflutningsversluninni og viðskipta-
lífinu yfirleitt. Á miklu veltur að innan ríkisstjórnar-
innar takist góð samvinna í þeim ef num um skref sem
um munar.
Áfram Tómas
Tómas Árnason vill halda I
I niðurtalningunni áfram: I
' „Niðurtalningin felst ■
J annars í þvi öllu i senn aö I
I lækka skatta og vexti, skeröa I
verðbætur á laun, verölag til I
1 bænda og fiskverð, gæta ■
J mikils aðhalds i verðlags- I
I málum, peninga- og fjár- I
I málum og skrá gengi krón- I
1 unnar þannig að hægt sé aö ■
J reka útflutningsatvinnuveg- I
I ina.” Fint. Það er búið að I
I „skeröa verðbætur á laun” I
■ meö þvi að ölafslögin taka ■
| gildi um áramót, eftir að *
, hafa verið óvirk, sl. ár. Þau J
■ skerða verðbætur 1. mars I
I n.k. Og þá er að snúa sér að I
I öllu hinu, Tómas! Og ekki •
, gleyma endurskipulagningu J
i innflutningsverslunarinnar!
:Áfengisböliö :
I ekki nýtt
„Islendingar kalla það ■
■ ekki óhreinindi, þó að eitt- I
I hvað af hárum sé I mat, og I
| jafnvel þótt lýs fylgi með, I
, enda er þetta lúsug þjóð. ■
• Komist þeir i öl, drekka þeir I
■ meðan eitthvaö er aö hafa, I
I og svoþaulsetnir eru þeir við I
, drykkinn, að húsfreyjurnar 1
■ verða að hafa kollur til taks, I
I ef til þeirra þarfa að gripa, I
I þvi að íslendingar að I
I drykkju gefa sér ekki tima til ■
■ þess að standa upp og vikja
I sér frá.”— tJr bók Gories I
I Peerse — Hamborg 1561, og I
, öldinni sextándu sem Iðunn
gefur út.
Rimaö á
• Takist að færa verðlagið niður, þá dregur sjálf-
krafa úr verðbótagreiðslum á laun, en verðbólgan
verður aldrei læknuð í stríði við verkalýðshreyfing-
una.
• ( viðtali, sem Þjóðviljinn átti við Svavar Gestsson,
formann Alþýðubandalagsins vegna ummæla Tómas-
ar, segir Svavar m.a.:
• „Ég tel þetta viðtal við Tómas Árnason gefa al-
ranga mynd af staðreyndum efnahagsmálanna og
það er mjög alvarlegt að ritari Framsóknarflokksins
skuli stíga fram á sviðið með þessum hætti þar sem
núverandi ríkisstjórn hefur jafnan reynt að leysa
skoðanaágreining á vettvangi ríkisstjórnarinnar
sjálfrar en ekki með blaðaskrifum". í viðtalinu við
Þjóðviljann, sem birt er í dag ber Svavar Gestsson til
baka þá fullyrðingu Tómasar, að tillögum hans um
frekari aðgerðir gegn verðbólgunni hafi verið hafnað
innan ríkisstjórnarinnar. Svavar minnir á að nú sé
unnið að mótun tillagna um efnahagsmál og verð-
bólguvandann í nefnd þriggja ráðherra, en þeir eru
Gunnar Thoroddsen, Svavar Gestsson og Steingrímur
Hermannsson.
• i þessu viðtali við Svavar er enn einu sinni tekið
fram, aðaf hálfu Alþýðubandalagsins geti ekki verið
á dagskrá að hrófla við forsendum nýgerðra kjara-
samninga Alþýðusambandsins. Jafnframt minnir
Svavar á, að ríkisstjórnin verði hins vegar að ráða
fram úr vanda efnahagsmálanna i samræmi við
stjórnarsáttmálann og í samvinnu við verkalýðs-
hreyfinguna. k.
16, öld
„Þótt sálmar Guðbrands
biskups taki yfirleitt fram
þeim sálmum þeirra biskupa
þriggja, sem gefið hafa út
sálma- eða söngbækur, fer
þvi fjarri, að þeir uppfylli
þær kröfur sem hann sjálfur
setur fram i formála sinum.
Margir eru sálmarnir
skothendir mjög, og viða eru
i þeim rimleysur, mállýti,
áherzlubrengl og báglegt
orðafar. Til dæmis rimar þar
„trúlofuð” á móti „Davið”
og „sins” á móti „mann-
kynsins.”
— tlr sömu bók.
Lúðvik Jösepsson
1 samtalsbók ólafs Ragnars-
sonar og Gunnars Thoroddsen
er m.a. f jallað um þjóðstjórnar-
viðræður Geirs Hallgrimssonar
i janúar 1980, sem að sögn
Gunnars voru aðeins yfirvarp
þvi i' raun hafi Geir byrjað á að
fiska eftir samstarfi við Ltóvik
Jósepsson og Alþýðubanda-
lagið. „Vinnubrögð þau sem
Geir Hallgrimsson hafði við til-
raunir sinar, þóttu i meira lagi
óvenjuleg og voru gagnrýnd
bæði af flokksbræðrum hans og
áhrifamönnum i öðrum
flokkum. Hann hafði tekið við
umboðinu 28. desember, en hóf
ekki formlegar viðræður við
hina flokkana fyrr en 8. janúar,
og þá „könnunarviðræður” en
ekki stjórnarmyndunarvið-
ræður.
Ég minnist þess, að reyndur
þingmaður sagði við mig um
þetta leyti, að það væri eins-
dæmi að maður, sem hefði haft
umboð forseta til stjórnar-
myndunar i hálfa aðra viku,
hefði enn ekki lagt fram drög að
málefnasamningi þeirrar
stjómar, sem hann hefði hug á
að mynda, eða hafið formlegar
stjómarmyndunarviðræður.
Gunnar Thoroddsen
Dulatfullu
drögin
En svo gerðist það á fundinum
8. janúar með formönnum
flokkanna, að Geir lagði fram
drög, sem hann tók þó skýrt
fram, að væru hvorki sin né
komin frá þingflokki eða mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins.
Þegar i ljós kom, aö enginn
fannst faðirinn að þessum
dularfullu drögum, skrifaði
Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri
Timans, forystugrein blað sitt
og kallaði þetta „tiilögur Mr.
X” Isamræmi við kunnar leyni-
lögreglusögur.
Mörgum þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins likaði illa ýmis-
legt i þessum tillögum. Þar var
meðal annars gengið i gegn
mikilvægu grundvallaratriði i
stefnu Sjálfstæðisflokksins:
Gert var ráð fyrir, að rfkis-
sjóður yrði með verulegum
haila á árinu 1980. Það hafði
alltaf verið stefna flokksins, að
rikisbúskapur skyldi vera halla-
iaus.
Eftir fund flokksformanna,
sem ég gat um hér á undan voru
settir tveir menn frá hverjum
flokki til þess að ræða og skoða
nánar þetta plagg „Mr. X”.
Vaföist tunga
um tönn
Hér látum við staðar num® i
beinni tilvitnun úr bókinni
Gunnar Thoroddsen og spillum
ekki ánægju væntanlegra les-
enda með þvi að ljósta upp hver
sé ,,Mr. X” að mati Gunnars
Thoroddsen. Hinsvegar fær
klippari ekki staðist að minnast
á forkostulegt atriði sem dr.
Gunnar heldur til haga i þessari
frásögn, og ber striðni Sighvats
Björgvinssonar jafn gott vitni
og ráðaleysi Sjálfstæðisflokks-
ins á þessum tima. ÞeirK jartan
og Sighvatur, sem voru full-
trúar Alþýðuflokksins i
umræðum um hið „dularfulla
blóm i draumi”formanns Sjálf-
stæöisftokksins spurðu fulltnia
Sjálfstæðisflokksins, hvort
Sjálfstæðisflokkurinn væri til-
búinn að fallast á drög Mr. X, ef
Alþýðuflokkurinn samþykkti
þau af sinni hálfu. Fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins varðist þá
tunga um tönn.segir Gunnar, og
Kváðust ekki geta svarað því.
Dr. Gunnar segir að þingmenn
hafi hent gaman að þessu og
fundist furðulega staðið að þess-
ari svonefndu „stjornarmynd-
unar”-tilraun.
Finnst Mr, X?
Þannig er sagan af Mr. X. En
þó að hann komist á kreik og
finnist kringum næstu áramót
er ekki vist að það stoði. Efna-
hagstillögur hans gætu stuðlað
að enn meiri klofningi i röðum
Sjálfstæðismanna.
—ekh
klíppt
Lýst eftir Mr, X
Þórarinn Þórarinsson rit-
stjóri Timans gerist andstæð-
ingi sínum hjálplegur i' neyð og
lýsir eftir Mr. X og biður hann
að hafa tafarlaust samband við
formann eöa varaformann
Sjálfstæðisflokksins.Augljóstsé
aö Sjálfstæðisflokkurinn þurfi
nú ekki siður á Mr. X að halda
en i ársbyrjun 1980, þegar hann
leysti vanda Geirs Hallgrims-
sonar. Sjálfstæðisflokkurinn
geti ekki haldið áfram að ræða
efnahagsmál nema að hafa til-
lögur, en það geti hinsvegar
verið Sjálfstæðisflokknum til af-
sökunar að hann viti ekki hver
dularfulli maðurinn var, sem
lagði tillögurnar i lófa Geirs
Hallgrimssonar.
Geir Ilallgrimsson
Einsdœmi i
vinnubrögðum
09 skoríð