Þjóðviljinn - 11.12.1981, Síða 14

Þjóðviljinn - 11.12.1981, Síða 14
14 SÍDA r- ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. desember 1981 Cr kennslustund I öldungadeild Menntaskólans viö Hamrahliö. Ljósm. —eik Aldís Guðmundsdóttir, kennari skrifar: Stöðvast öldunga- deildimar? Þvi miður er á þessari stundu útlit fyrir að svo verði. Astæðan fyrir þvi er sú að deilur hafa risið um launagreiðslur til kennara i framhaldsskólum þar sem öldungadeildir eru starfræktar. Kennarar I nýstofnuðum öldungadeildum, sem flestar eru utan Reykjavikur, hafa ekki notið sömu kjara og starfsbræður þeirra i Menntaskólanum við Hamrahliö og á Akureyri. Til að jafna þann mun hefur fjármála- ráöherra sagt upp eldri samningi og gert nýjan við stjórn og hags- munanefnd Hins islenska kennarafélags sem miðar að þvi að lækka laun fastráðinna kennara frá þvi sem verið hefur. Þessum samningi og gerræðis- legum vinnubrögðum stjórnar og hagsmunanefndar H.I.K. hafa kennarar allra framhaldsskól- anna mótmælt enda var samning- urinn undirritaður án samráös við féiagsmenn og i algerri and- stööu við allar fyrri ályktanir þeirra. Kennarar viðurkenna ekki slikan samning og munu ekki ráða sig til starfa við öldunga- deildir á grundvelli hans. En hver er þörfin fyrir öldunga- deildir? Fyrsta öldungadeildin tók til starfa i Menntaskólanum við Hamrahlið árið 1972 og varð hún strax mjög vinsæl, á annað hundrað nemendur létu skrá sig i hana þegar i upphafi. Búist var við að smátt og smátt dærgi úr fjölda nema, vinsældirnar væru mestar fyrst meðan verið væri að fullnægja þörfum eldra fólks sem ekki hafði haft tækifæri til menntunar i æsku. En reyndin hefur orðið önnur, nemendum fjölgar með hverju árinu og nú er svo komið að öldungadeildir eru starfræktar við átta framhalds- skóla, vitt og breitt um landið. A þessu hausti eru hátt i tvö þúsund nemendur við nám i öldunga- deildum, sú fjölmennasta með 680 nemendur og þær fámennustu með um lOOnemendur. Sem dæmi má nefna að öldungadeild Fjöl- brautaskólans á Selfossi, sem tók við að smátt og smátt drægi Ur til starfa á þessu hausti, er 101 nemandi. Ef svipaður fjöldi inn- ritast næstu ár má gera ráð fyrir um 3-400 nemendum við deildina aðf jórum árum liðnum. Af þessu eina dæmi má sjá að þörfin fyrir nám af þessu tagi er engu minni úti á landsbyggðinni en i Reykja- vik. Aðrar landsbyggðadeildir eru á Akranesi, Akureyri, Isa- firði, Sauðárkróki og Suður- nesjum. Auk áðurgreindra deilda varstofnuð öldungadeild við Fjöl- brautaskólann i Breiðholti við siðustu áramót og eru 366 nem- endur i henni nú í haust. 1 öllum þessum skólum hafa kennarar undirritað yfirlýsingu um að þeir taki ekki að sér störf i öldungadeild á grundvelli þess samnings sem undirritaður var 6. nóv. siðastliðinn þvert ofan i vilja þeirra. Frá 1976-1980 var i gildi samningur um launagreiðslur til fastráðinna kennara I öldunga- deildum M.H. og M.A. þar sem hver kennslustund i öldungadeild teist iafngilda 1.6 kennslustund- Félagsfundur verður haldinn i Vörubilstjórafélaginu Þrótti laugardaginn 12. desember 1981 kl. 2. e.h. Fundarefni: 1. Tillaga um kjör heiðursfélaga. 2. Samningarnir. 3. Önnur mál. Stjornin Pipulagningamenn Vantar pipulagningarmenn i vinnu. Mikil vinna. Stálafi svf. Smiðshöfða 6 Simi 85955. um í almennri menntaskóla- kennslu. Eftir að öldungadeildum fjölgaði i dreifbýli sagði fjár- málaráðherra þessum samningi upp og virðist sem mönnum hafi siðan ýmist verið greidd laun eftir honum (t.d. gildir það um kennara i M.H.) eða þeim hafi verið greidd lægri laun (einkum I dreifbýli). Hér er komið að kjarna þeirra deilna sem risið hafa milli fjár- málaráöuneytis og kennara. Ráðuneytið telur ófært að greiða kennurum i dreifbýli, sem oft hafa færri nemendur, sömu laun og starfsbræörum þeirra i M.H. og M.A. Við slikt geta kennarar ekki sætt sig þvi þar með er verið að mismuna þeim kennurum sem ráða sig til starfa I dreifbýlinu, oft við erfiðar aðstæður. Auk þess eru kennarar sem reynslu hafa af öldungadeildarkennslu sammála um að stærð hópa hefur fjarska litil áhrif á vinnu kennarans (fyrir utan verkefnayfirferð en sú vinna er greidd sérstaklega). Sömuleiðis er það regla að hópar eru stærstir i byrjunaráföngum kennslugreina, áföngum sem flestir nemendur þurfa að taka. Eftir þvi sem lengra er komið i námsgrein fækkar nemendum en undirbúningsvinna kennarans eykst. Margvisleg rök má færa að þvi að öldungadeildarkennsla sé met- in hærra við launagreiðslur en dagskólakennsla og þarf vart að tiunda þau hér. Þó má benda á nokkur atriði: óþægilegan vinnu- tima (kvöld- og helgarkennsla), færri kennslustundir i hverri námsgrein i öldungadeild (1 á móti 2 i dagskóla) sem krefst mun meiri skipulagsvinnu og verk- efnagerðar af kennarans hálfu, oftast þurfa kennarar að gera sér aukaferð vegna örfárra kennslu- stunda og loks þarf að hafa i huga að öldungar gera mun meiri kröf- ur til kennara bæði vegna þess að þeir hafa misjafnan undirbúning og vegna hinnar hröðu yfirferðar. A þessari stundu virðast öld- ungadeildamálin komin i algjöra sjálfheldu og ef ekkert verður að gert er fyrirsjáanlegt aö engar öldungadeildir verði starfandi eftir áramótin 1981-82. Það þarf vart að lýsa þvi hvilikan vanda þetta skapar þeim nemendum sem stundaö hafa nám i öldunga- deildum og eru sumir komnir að námslokum. Lausn málsins hlýt- ur hins vegar að feiast i þvi i) að ailir öldungadeildakennarar fái sömu laun fyrir sina vinnu, ii) að launakjör veröi ekki lakari en i samningnum frá 1976 og iii) að hópastæöir hafi ekki áhrif á launagreiðslur. Að endingu vil ég beina þeirri spurningu til fjármálaráöherra og yfirstjórnar menntamála hvort það sé raunverulegur á- setningur þeirra að menntunar- þörf þessa stóra hóps manna verði ekki fullnægt? Reykjavik 3. des. 1981 Aldis Guðmundsdóttir kennariíM.H. Kveðja til horfins fculltrúa íslenskrar bændamenningar lón Elnarsson Fæddur Fæddur 12.10. 1892 — Dáinn 21.11. 1981 Laugardaginn 21. nóvember fór Jón Einarsson, fyrrum böndi á Kálfsskinni á Árskógsströnd gegnum hliðið miili lifs og dauða, sem við þurfum öll aö eanga. Ekki voru kynni min af Jóni það náinaðég fái með vissu dæmt um hve þungbær þessi siðustu spor hans voru en hef litla ástæðu til að ætla að þau væru honum þyngri en lúins manns til hvildar eftir góðan dag. Starfsævin var löng. Jón var fæddur 12. okt. 1892. A ytra borði mun æviskeið hans litt hafa verið frábrugðið þvi sem gerðist meðal þúsunda annarra samferðamanna frá þessum tima. Þeir gátu i byrjun lifshlaups sins ekki sett markið hærra en svo, að verða færir um að útvega þeim, er væru i þeirra forsjá, lifsnauð- synjar, sem dygðu tilað halda lifi og koma ungviði til þroska. Töldu það enda blessun mikla að vera þó færir um það jafnhliða þvi', að afla sér hlýhugar og virðingar annara i þeirri verðmætaskap- andi sveit, sem þjóðin öll á lif sitt að þakka. Það tökst honum lika og mun þjóðinni gott að kynnast og draga íærdóma af lifi og starfi þeirra karla og kvenna sem háðu linnulaust og miskunnarlaust ii'fs- ■ strið fyrir framtið þjóðarinnar, i sönnustu merkingu þess orðs,—og i upphafi með tvær hendur tómar. Og þvi fyrr sem við skiljum og metum baráttu þessa fólks, þvi betra, þvi fyrr en varir getur sá ti'mikomið á ný að hver sá, sem á brýnustu lifsnauð- synjar fyrir sig og sina tryggar eitthvað inn i framtiðina, megi telja sig sælan. Þetta var mark- mið alls þorra manna fæddra á Islandi og er enn hjá yfirgnæfandi meirihluta alls mannkyns. Óttinn við að reynast ekki fær um að standast þetta lifspróf hefur verið svipa á alla þá, sem færir voru Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir nóvem- bermánuð er 15. desember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikis- sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið, 8. desember 1981. um að bera ábyrgð áður fyrr og er enn þá á besta hluta mannkyns- ins. Jón Einarsson lagði sig allan fram við að standast þetta próf frá æsku til elli. Honum tókst með tveim eigin- konum að samherjum, að lyfta fjölskyldu úr örbirgðarstöðu á kotum i' góðbændastöðu, ávinna sér traust og álit samfélags sins, verða elskaður og virtur ættfaðir, vera tekinn til fyrirmyndar af sinum mörgu afkomendum, geta dáið i þeirri vissu að hafa aldrei, vitandi vits, brugðist trúnaðar- trausti nokkurs manns. Hvaða lifssigur betri getur nokkur maður unnið hér á jörðu? EinarPetersen. fff FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR \ |P Vonarstræti 4 - Sími 25500 Félagsstarf aldraðra í Reykjavik Arlegur jólafagnaöur verður haldinn á Hótel Sögu n.k. laugardag, 12.12. kl. 14.00 á Hótel Sögu. Fjölbreytt dagskrá Veitingar Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar .• Blikkiðjan Asgarfti 7, Garöabæ önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö. SÍMI 53468

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.