Þjóðviljinn - 06.01.1982, Side 5

Þjóðviljinn - 06.01.1982, Side 5
Miðvikudagur 6. janúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Borgarastríð yfirvofandi í Guatemala Frásögn þessi er eftir sænskan ferðamann sem nú dvelst i Guate- mala. Frásögnin birtist i Dagens Nyheter 2. janúar s.l. Höfundur lætur ekki nafns sins getið af öryggisástæðum. Greinin er hér endursögð og stytt. Sá sem býr i Guatemala i dag kemst ekki hjá þvi að vera minntur á borgarastyrjöldina sem rikir i landinu á hverjum degi. Ef kveikt er á sjónvarpinu má sjá teiknimyndir, þar sem börn eru hrædd með hinum ógn- vekjandi kommúnistaófrekjum, sem lifa i sagnaskóginum. 1 morgunblöðunum má daglega telja frásagnir af 10-15 pólitiskum morðum. Yfir jólahátiðina voru 90 manns felldir i Guatemala City og yfir 300 úti á landsbyggðinni. Venjulega er auðvelt að átta sig á hver fremur morðin. Almenn- ingur veit, að það er rikisstjórnin sem drepur flesta. Rétt fyrir jólin var rektor háskólans i Guate- mala City skotinn til bana af stuðningshópi rikisstjórnarinnar sem kallar sig „Alþýðlega and- spyrnan”. Helstu fórnarlömb morðöldunnar eru fátækir bænd- ur og landbúnaðarverkamenn annars vegar og kennarar, prestar, blaðamenn og læknar hins vegar. Skólabókardæmi Yfirmaður hersins i Guate- mala, Benedicto Lucas Garcia, tilkynnti nokkrum vikum fyrir jól, að sóknarlota skæruliöanna i \ landinu hefði runnið út i sandinn. Herforinginn er bróðir Romeo Lucas Garcia, sem er forseti landsins. Um svipað leyti bera mexikanskar og aðrar mið-Amerikanskar fréttastofur þær fréttir, að skæruliöar berjist nú i nær öllum 22 fylkjum lands- ins. Guatemala er nú skólabókar- dæmi um hernaðareinræði þar sem öll helstu mannréttindi hafa verið afnumin. Viö siðustu kosningar i landinu tóku 80% þeirra sem voru á kjörskrá ekki þátt i kosningunni, og Lucas for- seti, sem var „sigurvegari” kosninganna var kjörinn með 6% atkvæða. Samkvæmt tölum Amnesty International eiga 2% ibúa 72% af jarðnæðinu. A fjárlögum rikisins er jafn miklu fé veitt til hersins og til rafmagns-, gas- og vatnsveitu samanlagt. Meira fé er varið til hersins en til heilsugæslu. s 60 af hundraði skólaskyldra barna ganga ekki i skóla. Vopnuð andspyma A siðustu 10'árum hefur vaxiö fram hreyfing skæruliða i landinu Kona af maya-kynstofni með barnabörn sin. Hún býr i bænum Zet, hálftima keyrslu frá Guate- mala City og tilheyrir þeim meirihluta þjóðarinnar, sem veit- ir nú skæruliðasveitunum aukinn stuðning. sem hefur jafnt og þétt aukið og eflt baráttu sina. Nú eru það fjórar skæruliðahreyfingar sem mynda andspyrnuna i landinu. Það er „Fátækraherinn”, EGP, Byltingarsamtök vopnaðrar alþýðu, ORPA, „Uppreisnarher- deildin” FAR, og „Verkamanna- flokkur Guatemala”, PGT. Astæðurnar fyrir þessari skipt- ingu andspyrnuhreyfingarinnar eru fyrst og fremst sögulegs eðlis en ekki málefnaágreiningur. Þeir sem mynda skæruliöaflokkana eru fyrst og fremst hinir svo köll- uöu „naturales”, það er að segja afkomendur maya-indiánanna, en þeir munu skiptast i um tuttugu ættflokka. Talið er aö fjöldi skæruliöa nú sé á milli 3 og 6 þúsund, en herinn mun hafa á að skipa 15-20 þús. mönnum, auk lögreglusveita og hersveita, sem reknar eru af einkaaðilum. Nú er barist á öllu svæöinu frá landa- mærum Mexikó til Guatemala City og norður i hið viðáttumikla Petén fylki. Á árinu 1981 voru skæruliðar virkir einnig i höfuð- borginni, og ekki er langt siðan ráðist var á þinghúsiö. Samtök verkamanna og námsmanna Auk hinna vopnuðu „fram- varöarsveita” eru i landinu hátt i eitt hundrað samtök iðnaðar- og landbúnaöarverkamanna og um 40 námsmannasamtök, og öll þessi félög mynda saman „Lýö- ræöislegu fylkinguna gegn kúg- uninni”, FDCR, sem er hinn póli- tiski armur andspyrnu- hreyfingarinnar i landinu. Taliö er að fjölmiðlar greini einungis frá helming þeirra hryðjuverka, sem framin eru i landinu. Oft er sagt að fórnar- lömbin beri merki pyntinga, og algengt er að sagt er að morð- ingjarnir hafi verið „óþekktir vopnaðir menn”. Þá þykjast menn vita, að um leigumorðingja rikisstjórnarinnar hafi veriö aö ræða. Túristar flýjaland Ein mikilvægasta tekjulind rikisins hefur til skamms tima veriö ferðamannaþjónusta. Borgarastyrjöldin i landinu hefur nú gert það aö verkum, að ferða- mönnum fækkaróðum, enda ekki hættulaust að ferðast um Guate- mala. Yfir helmingur ibúa Guatemala er af maya-indiánakynstofni. Þeir eiga sér rikar heföir i háttum og siðum og háþróaðan listiðnað. Þaö hefur veriö hlutskipti þess- ara indiána að selja sinn háþró- aða listiönaö til ferðamanna fyrir gjafverö. Skæruliðarnir eru nú á- sakaðir fyrir það af andstæðing- um sinum, að þeir séu að ráöast af lifsbjörg þessa fólks með þvi aö fæla burt ferðamennina. Skæru- liöarnir segja hins vegar að maya-indiánarnir lifi á þvi að selja sina eigin menningu vegna þess að stjórnvöld veiti þeim enga valkosti. Ef „los naturales” væri veittur aögangur að landinu til þess að rækta þær matjurtir, sem nauösynlegar eru og nú eru flutt- ar inn, þyrftu þeir ekki að selja vefnað sinn og menningu til ferðamannanna á jafn lágu veröi og nú er. Landeigendur I Guate- mala nota hins vegar landið til einhæfrar ræktunar til út- flutnings: bananar, kaffi, sykur- reyr og bómull eru helstu út- flutningsvörurnar. Skæruliðahreyfingarnar halda þvi fram, að meirihluti þjóðar- innar hafi nú ákveðið að gera það eina sem til lengdar geti bætt lifs- afkomu fólksins: hefja hina vopn- uöu baráttu gegn kúguninni. Viöskiptaþvinganir Reagans: Fá daufar undirtektir í Evrópu Skömmu fyrir áramótin lýsti Ronald Reagan þvi yfir að I Bandarikin myndu gripa til * rcfsiaðgerða gagnvart Sovét- I rikjunum vegna ábyrgðar I þcirra á herlögunum, sem nú I ríkja I Póllandi. Akvörðun þessi * vakti þegar i stað andstöðu hjá öðrum NATO-rikjum i Evrópu, enda virðast aðgerðir þessar I miðast fyrst og fremst að þvi að * torvelda framkvæmdá gassölu- samningnum mikla sem nokkur Vestur-Evrópuríki geröu við I Sovétrikin I nóvember s.I. | Refsiáætlun Reagans gagn- vart Sovétrikjunum er I sjö liðum: 1. Tekið skal fyrir allt l flug Aeroflot til Bandarikjanna. ■ 2. Skrifstofum viðskiptafulltrúa I Sovétrikjanna i Bandarikjunum skal lokað. 3. Útgáfa eða endur- | nýjun útflutningsleyfa á raf- ■ tækjabúnaði tölvum og öðrum I flóknum tækjabúnaði skal [ stöðvuð. 4. Viðræðum um nýjan langtimaviðskiptasamning skal > frestað. 5. Viðræðum um nýjan I sjóferðasamning á milli land- anna skal hætt og nýjar reglur I skulu settar um lendingarleyfi > sovéskra skipa i Bandariskum I höfnum. 6. Sérstaktleyfi þarf til útfhitnings á tækjabúnaöi til | oliu-og gasvinnslu til Sovétrikj- > anna og timabundið bann lagt I við Utgáfu slikra leyfa. 7. Samingur landanna um sam- skipti verði ekki endurnýjaður. Reynt að i hindra gassölu Athyglisvert er að viðskipta- bann þetta tekur ekki til land- búnaðarafurða en þær nema 70% af útflutningi Bandarikj- anna til Sovétrikjanna. Sam- kvæmt upplýsingum frá banda- riskum stjórnvöldum mun viðskiptabannið ná til um það bil 8 af hundraði af árlegum út- flutningi Bandarikjanna til Sovétrikjanna sem nemur 3,7 miljörðum dollara. Það atriði sem mestu máli skiptir i þessum „refsiað- gerðum” Reagans er bannið á útfhitningi háþróaðs iðnvarn- ings og bitnar það sérstaklega á Caterpillar-bíla og dráttarvéla- verksmiðjunum sem hafa orðið að hætta framleiðslu á háþró- uðum dráttarvélum sem nota átti við lagningu gasleiðslunnar miklu frá Siberiu til Vestur- Evrópu. Hafa verksmiöjurnar nú orðið að senda 1400 verka- menn i fri. Bandarikjastjórn fór fram á það við bandalagsriki sin að ganga ekki inn í þessi viðskipti, en sem vænta mátti brugðust þau dauflega við þeim tflmæl- um, þar sem aðgerö þessi er greinilega ekki til þess ætluð fyrst og fremst að hafa áhrif á gang mála i Póllandi heldur að torvelda framkvæmd þess mikla viðskiptasamnings sem nokkur V-Evrópuriki hafa gert um kaup á gasi frá Siberiu, en Bandarikin hafa frá upphafi verið þessum við6kiptum and- snúin. Gasleiðslan sem á að færa 6 V-Evrópurikjum þriðj- ung gasneyslu þeirra og um það bil 5% af allri orkuneyslunni er 4.800 km löng og á að kosta 15 miljarða dollara. Fulltrúi Ruhr- gas, sem gert hefur samning um árleg kaup á 10,5 miljörðum rúmmetra af jarögasi frá Sovét- rikjunum til Vestur-Þýskalands á næstu 25 árum sagði að samningur þessi væri gerður á milli Vesturevrópurikja og Sovétrikjanna og kæmi Banda- rikjunum ekkert við. Hann sagði að refsiaðgerðirnar myndu ekki hafa áhrif á fram- kvæmd samningsins. Fulltrúar Caterpillar-sam- steypunnar hafa haldið þvi fram, að bannið verði áhrifa- laust nema V-Þjóðverjar og Japanir taki þátt i þvi og selji ekki tækjabúnað til lagningar leiðslunnar. Augljóst er að þessi lönd munu ekki taka þátt i þessu banni, enda hverjum manni ljóst, að aðgerð þessi er svo fjarri þvi að þjóna yfirlýstu markmiði sinu, sem frekast má vera. Skiptar skoðanir Skoðanir munu þó vera skipt- ar meðal leiðtoga NATO-rikj- anna i Evrópu á aðgerðum Reagans. Þannig hefur Marga- ret Thatcher opinskátt hvatt vesturevrópskar rikisstjómir til þessað styðja aðgerðir Reagans gegn Sovétrikjunum og Pól- landi. Þá hefur Claude Cheys- son utannkisráðherra Frakk- lands lýst yfir stuðningi við stefnu Reagans i þessu máli, og gagnrýni hefur gætt á afstööu vestur-þýsku st jórnarinnar bæðiinnan frönsku stjórnarinn- ar og meðal stjórnarand- stöðunnar. Mitterand Frakk- landsforseti hefur hins vegar ekki tekið beina afstööu i málinu til þessa, þar sem skiptar skoðanir eru um málið innan frönsku stjórnarinnar. Helmuth Schmidt kanslari Vestur-Þýskalands er nú i Washington og fyrstu yfir- lýsingar frá fundum hans með Reagan herma aö ekki sé um al- varlegan ágreining að ræða. Svo > virðist sem þessi yfirlýsing feli I einfaldlega i sér að V-Þjóðverj- I ar muni ekki taka opinberlega ] afstöðu gegn aðgerðum Banda- ! rikjastjórnar, en að þeir muni I jafnframtekkitaka þátt i þeim. I ■ Viðskiptabann á Bandaríkin? ! Það verður að teljast ótrúleg I skammsýni, að halda þvi fram að lýöræði verði komið á i rikj- I um Austur-Evrópu með vald- 1 beitingu eða þvingunum gagn- ' vart Sovétrikjunum. Slik af- staða lokarleiðum tilmálamiðl- I ana og afvopnunar og eykur á I striöshættuna. Hins vegar leiðir J stefna Reagans hugann að þvi að hæglega mætti beita þessu sama vopni gegn Bandarikjun- * um meö sömu rökum: herfor- ' ingjastjómin i Tyrklandi sem nýlega hefur krafist dauðadóms yfir 51 verkalýðsleiðtoga nýtur I dyggilegs stuðnings Bandarikj- ! anna. Sömuleiðis harðstjórnin i E1 Salvador og Guatemala. I Væri kannski eðlilegt að setja ' viðskiptabann á Bandarikin og ! lendingarbann á bandariskar flugvélar til þess að aflétta þeim hörm ung um ? Æ „Eg lagði minn vinning nú bata inn á vaxtaaukareikning r r A- • / A / •>■■ -V- I r Nú á ég góðan varasjóð ef eitthvað kemur upp á ” Vinningshafi íHHÍ r ■••*•••■ ■■■■■■■■ • ••• ••■• ■ ■■■ ■••■■ ••••• • ••• • ••• •■••••■• •■•••••■ • ••• • ••• • •••• ••■* ■■•■ ■■■■• ■■■■■ J HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS hefur vinninginn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.