Þjóðviljinn - 06.01.1982, Síða 16
múmu/m I Aöalsfmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn hlaðsins f þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrót Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Miðvikudagur 6. janúar 1982. 8jZ85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaösins I slma 81663. Blaðaprent hefur slma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Nær 500 konur missa
atvinnuna í Reykjavík
sagði Þórunn
Valdimarsdóttir
— Þetta er auðvitað iskyggi-
legt ástand og hryllilegt til þess
að vita að kauptrygging verka-
fólks skuli ekki ná lengra en
þetta, sagði Þórunn Valdimars-
dóttir formaður Verkakvenna-
félagsins Framsóknar er rætt
var viö hana á skrifstofu félags-
ins i gær.
Þórunn sagði aö nærri 500
konur i Framsókn missi nú at-
vinnu sina, þegar fiskvinnslan
stöðvist. Hún sagði að mikið
hefði verið hringt til skrifstof-
unnar si'ðustu daga og spurst
fyrir um rétt verkakvenna nú
þegar til stöðvunar kemur.
Sagðist Þórunn vilja hvetja fé-
lagskonur i Framsókn til þess
að láta skrá sig atvinnulausar,
sama dag og þær missa vinn-
una. Væri þá alveg sama hvort
þær ynnu aðeins hálfan daginn
eða annarskonar hlutastarf,
þær ættu rétt á atvinnuleysis-
bótum,svofremi sem þær hefðu
unnið 425 klst. i dagvinnu á sl.
ári.
Ef miðað er við fullar bætur,
atvinnuleysisbætur sem eru 253
kr. á dag, hvað missa konur i
frystihúsum sem vinna i bónus
mikiö kaup við það aö fara á at-
vinnuleysisbætur?
Þórunn sagöi að um það væri
deilt hver væri meðal bónus i
frystihúsunum og því engin
nákvæm tala til. Sagðist hún
geta trúað að hann væri á milli
35% og 45% ofan á dagv-innu-
tekjur, og væri það því meðal
skerðing á launum frystihúsa-
kvenna við að fara á atvinnu-
leysisbætur. —S.dór
Gunnar Þorkelsson t.v. og Friðjón Þórarinsson biða eftir að láta
skrá sig atvinnulausa f gær. (Ljósm. gel—)
Maður er svona að sagði Aslaug
* , • Pálsdóttir hjá
kanna vctt sinn Ráðnmgarstofu
Mikil aukning í atvinnu-
leysisskráningu
sögðu Gunnar Þorkelsson og Friójón
Þórarinsson, sem voru að láta skrá sig
atvinnulausa
Tveir menn biöu eftir að kom-
ast að á Ráöningastofu Reykj-
avíkurborgar til að láta skrá sig
atvinnulausa er tiðindamenn
Þjóðviljans voru þar á ferð I
gær.
Annar þeirra Gunnar Þor-
kelsson, sagðist hafa verið byrj-
aöur aö vinna hjá BÚR en verið
sagt upp fyrir áramótin og hefði
hann orðið að hætta strax, þar
sem hann var nýbyrjaður hjá
fyrirtækinu, en hefði annars
veriö i skóla sl. ár.
Maður er svona að kanna rétt
sinn i þessu máli, en ég á ekki
rétt á fullum atvinnuleysis-
bótum, sagði Gunnar.
Friðjón er vélstjóri og hefur
verið til sjós, sagöist hann lika
vera að kanna málin, þvi þótt
Vélstjórafélagiö hefði boöað
verkfall hjá vélstjórum á fiski-
skipum, væri það félag allra
vélstjóra, lika þeirra sem vinna
i landi, en hjá þeim er ekki hafið
verkfall.
Eins og annarsstaðar er sagt
frá i blaðinu i dag, er búist við
þvi að i dag og kannski einkan-
lega á morgun verði mikið um
að vera við atvinnuleysisskrán-
ingu hjá Ráðningastofu Reykja-
vikurborgar.
—Sdór
Reykjavikur
Þaö hefur verið ansi mikiö að
gera hjá okkur i gær og i dag,
mun meira en vanalega, sagði
Aslaug Pálsdóttir, sem vinnur
við atvinnuleysisskráningu hjá
Ráöningastofu Reykjavikur-
borgar, er tiðindamenn Þjóð-
viljans litu þar við i gær.
Aslaug sagði að á mánu-
daginn hefðu 53 konur og 26
karlar látið skrá sig atvinnu-
lausa og sennilega yrði talan
svipuð fyrir daginn i dag
(þriðjudag). Ekki væri þetta þó
allt fólk úr fiskvinnslunni, þvi að
i þessum hópi væru konur, sem
unniö hefðu hjá saumastofu
Solidó, sem er hætt störfum og
eins væru i hópnum 28 flug-
freyjur, sem hefði verið sagt
upp hjá Flugleiðum. Áslaug
Aslaug Pálsdóttir. (Ljósm. —gel—)
sagðist eiga von á þvi að fólkið
úr fiskvinnslunni, sem sagt
hefur verið upp störfum kæmi i
dag, miðvikudag, og á morgun
og mætti þá gera ráð fyrir hol-
skeflu.
Aðspurð um það hvort fólk
sem kemur til aö láta skrásetja
sig, væri frótt um rétt sinn i
þessum málum sagði Aslaug að
svo virtist vera. Fólk fengi upp-
lýsingar um rétt sinn, bæði hjá
trúnaðarmönnum á vinnustað
og svo að sjálfsögðu hjá við-
komandi verkalýösfélagi, ef til
þessara aðila er leitað og svo
virtist sem flestir gerðu það.
—S.dór
Arni Björnsson
Guðrún Helgadóttir
Margrét Björnsdóttir
Ævar Kjartansson
Opið hús klukkan hálf níu í kvöld
Grettisgötu
Þrettándagleði á
Alþýðubandalagið i Reykjavik efnir til gleðinnar
— Eitt er vist, meðlætiö kemur
á óvart, meö kaffinu, sagði
Margrét Björnsdóttir einn um-
sjónarmanna opins húss kl. 20.30 I
kvöld. Opiö hús er haldið i risinu
að Grettisgötu 3. I fyrravetur
voru haidin slik opin hús mánað-
arlega á Grettisgötunni og er
meiningin að halda áfram á
þessum vetri meö byrjun á
þrettándakvöldi, sagði Margrét.
— Umsjónarmenn eru auk
mln þau Arni Björnsson, Ævar
Kjartansson og Guörún Helga-
dóttir. Arni mun segja frá jóla-
haldi að fornu og nýju, og Guðrún
og Ævar ætla aö lesa uppúr bók-
um. Þarverður sittaf hverjutagi
tengt jólum og þrettánda.
— 1 góðri stemningu er sjálf-
sagt að taka lagið en auk þess er
boöið uppá ilmandi kaffi og með-
lætið kemur úr herbúðum stjórn-
armanna Alþýöubandalagsins I
Reykjavik. Hvað það nú verður,
veitenginn enn ... —óg
Fulltrúastarf
húsnæðisdeildar
Félags-
málastofnunar:
Ráðningín
kærð til Jafn-
réttisráðs
Ráðning fulltrúa við húsnæðis-
deild Félagsmálastofnunar
Reykjavikurborgar hefur veriö
kærð til Jafnréttisráös. Hafa þau
Guðrún Helgadóttir borgarfull-
trúi, Þorbjörn Broddason fulltrúi
i félagsmálaráði og Birna
Þórðardóttir, er var ein umsækj-
enda um fulltrúastarfið farið þess
á leit við ráðið, að það kanni hvort
lög um jafnrétti karla og kvenna
hafi veriö brotin með ráðningu i
starfið.
Guðrún Helgadóttir og Þor-
björn Broddason telja að með þvi
að hafna Birnu hafi hæfasti um-
sækjandinn ekki veriö ráðinn.
Telja þau ennfremur aö fram hafi
komið i ræöum sumra borgarfull-
trúa yfirlýsingar, sem stangist á
við jafnréttislögin.
Jafnréttisráö hefur vegna
þessa óskað eftir starfslýsingu
varðandi fulltrúastarfið og einnig
eftir bókuðum umræðum um
málið.