Þjóðviljinn - 09.01.1982, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 09.01.1982, Qupperneq 14
14.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9—10. janúar 1982 Jólamyndir kvikmyndahúsanna eru enn á dagskrá, og eins og vera ber, er þá boðið upp á betra cn tíðkast, fengnar nýrri myndir og enn giæsilegri en á siðustu jólum. Það verður þó að segjast eins og er, að heldur finnst mér afraksturinn það sem af er frekar rýr. Myndirnar eru ósköp ferskar og nýjar, ekki vantar það; en þær myndir sem ég hef enn komist til aðsjá eru allar fremur innihaidslitiar, þótt,ekki sé hægt að kvarta undan hugmynda- skorti i kvikmyndabrellugerð. Að minnsla kosti ekki þegar geimferðamyndirnar eiga i hlut. Hins vegar má vel kvarta undan skorti á hug- myndaauðgi þegar innihald skrautumbúðanna er annars vegar, þótt framleiðendur t.d. geim- myndanna hafi eflaust ekki ætlað sér annað en að búa til „best gerðu afþreyingu ársins”. Það hefur þeim tekist — en þegar kemur að úr- vinnslu efnisins, þegar reynir á handritshöfund að leiða efni sitt til lykta á þokkalega skynsam- lega visu, fatast honum flugið og hann visar til næstu myndar um sama fyrirbæri. Þannig má auðvilað þéna allnokkra peninga og likiega skapa sér sæmilega tryggan áhorfendahóp. En ófrumlegt er það. Tæknibrellumar njóta sín Jakob Jónsson skrifar Kvikmynd: Stjörnustriö II <The Empire strikes back) Leikstjóri: Irvin Kershner Handrit: Leigh Brackett og Lawrence Kasdan Tóniist: John Williams í aðalhlutverkum: Mark Hamill, Harrison Ford, Carrie Fisher, Billy Dee Williams, Anthony Daniels, David Prowse o.fl. Sýningarstaður: Nýja bió. Eins og flestum mun kunnugt er kvikmyndin „The Empire strikes back" framhald kvik- myndarinnar ,,Star Wars", sem var aðstand- endum sínum góð gull- náma. ,,Star Wars", eða „Stjörnustríð", hlaut met- aðsókn og vakti mikla hrifningu fyrir margs kon- ar tæknibrellur, sem voru býsna hugvitsamlegar. Ekki man ég betur en að sýnd hafi verið i sjónvarpinu heimilda- mynd um framleiftslu þeirrar kvikmyndar, þar sem var meftal annars sýnt, hvernig margar þessara brellna eru gerftar — þær byggja aft visu á gömlum grunni, þar sem er noktun litilla módela, en þegar nútima rafeindatækni er komin i spilift ásamt meft þeim möguleikum sem grafisk kvik- myndagerft veitir, verftur árang- urinn hreint ótrúlegur. Auftvitaft er svipuftum tækni- brögftum beitt i „The Empire strikes back”, sem hefur einfald- lega verift nefnd „Stjörnustrift II” á islensku. Og árangurinn af öll- um tæknibrellunum er hreint á- gætur, og áhrifin verfta ekki minni vegna hraftans, sem gætir, LPláiI •r p l WfflBm 1 $ - f lÉE w * IBBp* mr m i W Á ; W 'iífí - Wm !• nHHI' Kl 1 **** ” ^{flfl Oti i geimnum lenda Hvell-Geiri og félagar hans I hinum æsilegustu ævintýrum, þeirra á meðal tilbrigði af bandarískum fótbolta. Ekki stóðu geim,,verurnar” sig neittsérstaklega hraustlega. ■v- Jarðar- búar bestir í geimi hér? Kvikmynd: Hvell-Geiri (Flash Gordon) Leikstjóri: Mike Hodges Handrit: Lorenzo Semple jr. Tónlist: Hljómsveitin Queen. Meftal leikenda: Sam J. Jones, Melody Anderson, Topol, Max von Sydow, Orella Muti o.fl. Sýningarstaöur: Tónabió. Hvell-Geiri er fyrir löngu orðin vel þekkt teiknimyndapersóna, og það var þvi ekki lengur spurning um hvort, heldur hvenær yrði gerð kvik- mynd um þessa vinsælu fígúru. Rétt eins og um Súpermann og ýmsa f leiri í þeim fjölskrúðuga hóp of- urmenna og góðmenna, sem bandaríski teikni- myndaheimurinn býður lesendum (eða skyldi mað- ur kannski segja skoðend- um) sínum upp á. Hvell-Geiri er fjarska laglegur og ljóshærftur drengur frá New York, þekkt stjarna i bandarisk- um fótbolta og hvers manns hug- ljúfi. Hann kynnist forkunnarfag- urri ungri stúlku, Dale, og þau lenda i æsilegri flugferö saman, sem endar vegna vefturofsa meft nauftlendingu ofaná hús vlsinda- manns, sem almennt er álitinn geggjaður. Hann heldur þvi nefnilega staftfastlega fram, aö veöurofsinn, og margar aftrar náttúruhamfarir, sem orftift hafa aft undanförnu, eigi rætur aö rekja til lifandi vera úti i hinum mikla geimi — og vift áhorfendur fáum aft vita i upphafi myndar- innar, aö visindamafturinn geggj- aöi hefur alveg á réttu aö standa. En hann hefur smiftaö eina mikla eldflaug og ætlar til fundar vift hinar lifandi verur i þeirri flaug. En sá er galli á flauginni, aft tvo þarf til aö stjórna henni. Og meft þvi aft þau hafa nauftlent i húsinu hans, tælir hann þau Hvell-Geira og Dale um borö og þau komast um siftir öll þrjú heilu og höldnu til plánetu langt i fjarska, þar sem hinn vondi Ming (Max von Sydow) ræftur rikjum meft ógr.un- um og ofbeldi. Hann nær þeim á sitt vald. Þau eru þó ekki á þeim buxunum aft gefa neitt eftir, enda heföi þá ekki veriö hægt að gera neina kvikmynd um Hvell-Geira og vini hans og raunir þeirra i geimnum. Eins og i stjörnustriftsmyndun- um er hér á ferftinni baráttan milli hins gófta og hins illa. Og þaft er ekki, fremur en i „Stjörnustriö II”, gefin nein meiriháttar skýr- ing á þvi hvers vegna hift gófta er svona óskaplega gott og hift illa svona hræöilega illt. Ming geim- höfftingi er bara svona vondur. Baráttan milli góðs og ills fer fram á margvislegan hátt. Hér skylmast þeir Logi geimgengill og hinn vondi Svarthöfði með miklum ljósasverðum i „Stjörnustrið II”. svo einfalt er þaft — og sakir göf- uglyndis sins tekst góöu mönnun- um aft vinna nokkra undirsáta hans á sitt band. Og dóttir hans, Aura, fellur umsvifalaust fyrir fegurö og glæsileik hins vel gerfta iþróttamanns. frá New York. Eftir japl og jaml ber auövitaft hiö gófta sigur úr býtum, eins og vera ber — efta aft minnsta kosti um stundarsakir, eins og gefiö er svo hugvitssamlega i skyn undir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.