Þjóðviljinn - 09.01.1982, Blaðsíða 15
Helgin 9.—10. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Kvikmyndahátíð hefst um mánaðamótin
einkum i upphafi myndarinnar.
Þeir, sem hafa áhuga á a5 sjá
kvikmyndatæknibrellur njóta sin
óspart, hafa vissulega ómælt
gaman af „Stjörnustrið II”.
Sömu aðalpersónur mæta á-
horfendum og i fyrri myndinni:
Logi geimgengill, Hans Óli, Lilja
prinsessa og hinn vondi Svart-
höfði. Að ógleymdum vélmennun-
um Sé-Þrjúpéó og Errtvö-Détvö.
Og sagan segir áfram frá baráttu
Loga geimgengils og vina hans
við hið vonda keisaradæmi — en
Svarthöfði er fulltrúi þess.
Þess ber reyndar að geta, að sá,
sem hefur ekki séð fyrri myndina
og kannast litt við hana, geldur
þess að nokkru. Margt i sögu-
þræði hinnar seinni er með þeim
hætti að beinlinis er gert ráð fyrir
þvi að áhorfendur hafi barið þá
fyrri augum. En það má reyndar
bæta sér upp með þvi að lesa pró-
grammið og hreinlega geta i þær
eyður sem upp kunna að koma að
öðru leyti.
Það fer nefnilega þrátt fyrir allt
litið fyrir eiginlegum söguþræði:
mestan part er myndin gerð
kringum tæknibrellurnar, og alls
kyns hugmyndir fá greinilega að
njóta sin þar. Handritshöfundar
sveifla sér óragir fram og aftur
milli alls kyns gamalkunnrá fyr-
irbæra úr bókmenntum og öðrum
skáldskap og flétta það svo bar-
áttunni milli góðs og ills: upp-
reisnarmannanna góðu og keis-
aradæmisins vonda. Það fer
minna fyrir þvi hvers vegna gott
er gott og vont vont.
Til hægðarauka fyrir áhorfend-
ur er auk þess þannig búið um
hnútana, að litir búninga.og tón-
list undirstrikar svo ekki verður
um villst, hvenær hið vonda eða
góða er á ferðinni hverju sinni.
En hvað sem þvi liður, þá má
hafa bærilega skemmtan af
„Stjörnustriði II”. Hún verður
aldrei langdregin eða leiðinleg*,
allri kunnáttu nútimans eða svo
gott sem hefur verið beitt til að
njóta megi myndarinnar á sem
fyrirhafnarminnstan hátt án þess
að velta vöngum yfir hvers vegna
og hvernig hlutirnir gerast. Og
undir lokin er ekki loku skotið fyr-
ir að gera megi enn eina kvik-
myndina um stjörnustriðið, ef
þessi gengur vel i fólk og fleiri
tæknibrellur lita dagsins ljós.
—jsj.
lokin, ef vera mætti aö tækist að
gera aðra mynd um Hveil-Geira
og hin æsispennandi ævintýri
hans I geimnum.
Ekki verður svo skrifað um
myndina um Hvell-Geira (og
svipaö er að segja um „Stjörnu-
strið II”) að ekki sé minnst á
ákveðin viðhorf, sem fram koma i
myndinni.
Kannski er helst til langt
gengið að segja að viss innræting
sé á feröinni, og þó. Það er nefni-
lega dálitið makalaust að sjá,
hversu auðvelt það þrátt fyrir allt
er fyrir jarðarbúa að eiga sam-
skipti við geimverur. Þær eru
nefnilega eins og við i útliti,
hreyfa sig eins og við, tala ensku
eins og aðalpersónurnar i mynd-
inni ( hvort sem um er að ræða
hirð Mings eða fljúgandi góðlát-
lega menn, sem geta gert árás á
geimskip eins og mýflugnasveim-
ur) en eru auk þess breyskari en
jarðarbúar en alls ekki eins
snjallir. Né eins góðir.
Ég efast reyndar um, aö það
hafi vakað fyrir þeim er gerðu
Hvell-Geira að innræta áhorfend-
um myndarinnar einhverjar sér-
stakar skoðanir um hugsanlega
ábúendur geimsins. Fyrir þeim
hefur greinilega aðeins vakað að
búa til æsispennandi ævintýra-
kvikmynd með spennandi og
hraðri atburðarás. Kvikmynd,
sem hver sem er og þó kannski
einkum yngri kynslóðin gæti haft
gaman af þá stund sem myndin er
á hvita tjaldinu. En jafnvel ævin-
týrin, hversu græskulaus sem þau
kunna að virðast við fyrstu sýn,
geta oft og einatt leynt á sér og
haft að geyma miður þokkalegan
boðskap.
Engu að siður má skemmta sér
bærilega við að fylgjast með
Hvell-Geira; afþreyingargildið er
látiö sitja i fyrirrúmi, og ef þess
er gætt að taka hana ekki hátið-
lega, geta eflaust margir notið
Hvell-Geira i rikum mæli.
—jsj.
Kvikmyndahátíðin 1982 verður
haldin um næstu mánaðamót i
Regnboganum í Reykjavik og
verða þar sýndar um 30 myndir
frá 15 löndum. Hátiðin mun hefj-
ast 30. janúar og standa til 7. febr-
úar.
Að venju verða margar for-
vitnilegai; myndir á boðstólnum
og að þessu sinni verða þau ný-
mæli tekin upp, að 6 myndanna
verða sýndar með íslenskum
skýringartexta en ekki enskum,
þannig að kvikmyndahátið er nú
ekki lengur aðeins fyrir þá sem
kunna erlend tungumál.
Meðal forvitnilegra mynda,
sem á boðstólnum eru má nefna
þessar:
Járnmaðurinneftir pólska leik-
stjórinn Andrzej Waida, en
margir munu minnast mynda
hans um Marmaramanninn og
Hljóipsveitarstjórann, sem sýnd-
ar voru á fyrri kvikmyndahátið-
um. Járnmaðurinn er ný mynd
sem fjallar um Samstöðu, hin
óháðu verkalýðssamtök Pólverja.
Myndin hlaut 1. verðlaun i Cannes
1981.
Fljótt, fljótt, eftir spánska leik-
stjórann Carlos Saura. Margir
munu minnast myndarinnar
Hrafninn sem sýnd var eftir
Saura á siðustu hátið. Þessi mynd
hlaut 1. verðlaun á kvikmyndahá-
tiðinni i Berlin 1981.
Lif leikbrúðanna eftir Ingmar
Bergman. Mynd þessa gerði
Bergman á meðan hann var bú-
settur i Þýskalandi. Allar þessar
myndir verða sýndar með is-
lenskum texta.
Stalker eftir sovéska leikstjór-
ann Tarkovski verður einn af
feitu bitunum fyrir sælkera i
kvikmyndalistinni, viðfræg
mynd, sem mikill fengur er i.
Snjór eftir Juliette Berto og
Jean Henri Roger var önnur
tveggja framlaga Frakka á kvik-
myndahátiðinni i Cannes i vor, og
munu höfundar hennar koma sem
sérstakir gestir kvikmyndahátiö-
arinnar. Mynd þessi fjallar um
Pigalle-hverfið i Paris þar sem
höfundarnir búa.
Tulipaa.finnsk mynd, sem var
eina framlag Norðurlanda á há-
tiðinni i Cannes i vor. Höfundarn-
ir, Pirjo Honkasalo og Pekka
Lehto verða einnig gestir kvik-
myndahátiðarinnar.
Margar aðrar girnilegar kvik-
myndirverða á boðstólnum, með-
al annars nýleg mynd frá Kina og
verða þeim gerð nánari skil i
blaðinu siðar.
-ólg.