Þjóðviljinn - 09.01.1982, Page 18

Þjóðviljinn - 09.01.1982, Page 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.—10. janúar 1982. * Ný bandarísk kvikmynd með Katharine Hepburn og Henry og Jane Fonda vekur mikla athygli Kate og Jane: Tvær kynslóöir stjörnuleikara Hepburnog Fonda: Kvikmyndaleikferill þeirra spannar samanlagt 95 ár. Samt er þetta í fyrsta skipti sem þau leika saman i kvikmynd. Á GULLTJÖRNINNI Sennilega hefur fátt fólk verið dáð meira hér í heimi en gömlu kvik- myndastjörnurnar, sem fram komu á fyrri hluta þessarar aldar, en eru nú óðum að safnast til feðra sinna. Nýlega var frum- sýnd í Bandaríkjunum kvikmyndin On Golden Pond og eru aðalhlut- verkin i höndum tveggja aldinna stjarna sem aldrei hafa leikið saman í kvikmynd áður, þó að merkilegt virðist. Þetta eru þau Henry Fonda og Katharine Hepburn. Samanlagður starfsaldur þeirra fyrir framan kvikmyndavélarnar er 95 ár og tala kvikmyndanna sem þau hafa leikið í er 129 og eru þá ekki taldar með fjölmargar sjón- varpskvikmyndir. Hann er 77 ára, en hún er 75 ára. Kvikmyndin On Golden Pond eða Á gulltjörn hefur vakið mikla athygli og fengið lofsamlega dóma. Talið er líklegt að hún safni að sér Óskarsverðlaunum. Er dauðinn nálgast On Golden Pond fjallar um sambúð gamalla hjóna sem reyna aö finna lifi sinu sóma- samlegan stað er dauöinn færist nær. Handrit myndarinnar er eftir rithöfundinn Ernest Thompson en Mark Rydell er leikstjóri. Fá þeir báðir lof fyrir verk sitt. Gagnrýnendur tala um þroskaöa og djúpa mann- lifslýsingu, án þess að verið sé að prédika eitt eða neitt. Sögupersónur eru Norman Thayer, prófessorá eftirlaunum og kona hans Ethel. Þau eru oröin einmana i elli sinni og allir nánir vinir eru horfnir út i busk- ann. Eina barn þeirra, Chelsea, varð ósátt við föður sinn þegar á unga aldri og kemur nú orðið nær aldrei heim. Chelsea, sem leikin er af Jane Fonda, dóttur Henrys, er fráskilin kona á fimmtugsaldri, barnlaus og er einnig að reyna að átta sig á sinu lifi. Kvikmyndin gerist á einu sumri i sumarhúsi við gullna tjörn og rikir þar draumkennd, fögur birta. Norman Thager er að verða áttræöur og umhugs- unin um háan aldur þjáir hann. Hann getur ekki hugsað um annað en dauðann. „Geturðu ekki hugsað um neitt annað?”, spyr Ethel kona hans og hann svarar: „Ekkert sem er jafn áhugavert”. I svari hans er biturleiki og visdómur eins og i flestu öðru sem hann segir. Norman Thayer er orðinn gleyminn og er hættur að geta gert einföldustu hluti, en Ethel kona hans reynir stöðugt að örva hann. Ung var hún gefin honum og hún ætlar aö standa við hlið hans þar til yfir lýkur. Eitt sinn kemur hann skelfingu lostinn heim eftir að hafa mis- tekist að tina ber af trjám og villst i kjarrinu við hliðina á sumarhúsinu og þá segir hún að hann sé „riddari sinn i skinandi herklæðum”. Seint um sumarið kemur dótt- irin i heimsókn ásamt elskhuga sinum og 13 ára gömlum syni hans. Það er heimsókn sem hinn aldurhnigni prófessor hefur siður en svo hlakkað til en hann verður að finna henni stað i lifi sinu eins og öðrum staðreynd- um. Hér verður ekki nánar farið út i efnisþráð myndarinnar sem leikin er á sterkan og sannfær- I andi hátt og væmnislaust en þess i stað fjallað litillega um gömlu stjörnurnar Katharine Hepburn og Henry Fonda, sem eru meðal fárra af sinni kynslóð sem enn eru á lifi og hafa ekki látið deigan siga i kvikmynda- leiknum. Þau hafa leikið með 4 eða 5 kynslóðum kvikmynda- leikara og ferill hvors um sig spannar hálfa öld. Þó að Katharine Hepburn og Henry Fonda hafi aldrei leikiö saman áður i kvikmynd er margt likt með þeim, bæði bak- grunnur þeirra, ferill og skap- ferli. Þau eru bæði af fjölskyld- um með djúpar rætur i bandariskum hefðum og hafa jí hlutverkum sinum verið tákn um bandariska bjartsýni og frjálslyndi. Hún er ástriðufull, gáfuð kona sem gengur beint aö Hamingjusöm kvikmyndafjöl- skylda stillir sér upp. hlutunum og nær þvi sem hún hefur ætlað sér en hann er feimni, þrjóski einfarinn. Hennar leið var breið og bein Katharine Hepburn er dóttir skurðiæknis i Hartford i Connecticut á Nýja Englandi, en móðir hennar var kven- réttindakona sem baröist fyrir takmörkun barneigna. Sjálf segist hún vera alinjupp i þeim anda að afsakanir' voru ekki teknar til greina. „Mér var kennt að tala bemL út og for- eldrar minir vildu aö deilumál yrðu rökrædd á heimilinu. Til- finningu mina fyrir raunveru- leikanum hef ég frá þeim”, seg- ir hún. Hún var fyrirmyndar- nemandi og 24 ára gömul fékk hún aðalhlutverk i kvikmynd og lék á móti John Barrymore. Það var kvikmyndin A Bill of Divorcement sem George Cukor Henry Fonda, feimni einfarinn. Hér er hann ásamt Cagney f Mister Ro- bcrts en til hiiðar í hlutverki slnu I Þrúgum reiðinnar. Katharine Hepburn lék harðar, framsæknar konur. Hér er hún ásamt Tracy í Women of the Year. Til hliðar í The Phila- delphia Story.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.