Þjóðviljinn - 14.01.1982, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. janúar 1982
UOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ölafsson.
Fréttastjóri: Álfhéiður ingadóttir.
'úmsjónarmaöur sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamr ín: Auður Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Öskar
Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
iþrótta- og skákfréttamaöur: Helgi Ólafsson.
útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir-Guðjón Sveinbjörnsson.
I.jósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriöur Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guovaröardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
HUsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn:Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttír, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: SíðumUla 6,
Reykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Merkilegar yfirlýsingar
• Tvær yfirlýsingar eru merkilegar i dagblöð-
unum i gær og fyrradag. Aðra sem er meiriháttar
er að finna i forystugrein Alþýðublaðsins en hina
sem er minniháttar getur að lita i leiðara Dag-
blaðsins & Visis. Samanlagt draga þær upp eink-
ar skýra mynd af þvi um hvað borgarstjórnar-
kosningar i vor snúast.
• Ellert B. Schram orðar i sinum leiðara það
sem flestum er raunar fullljóst, að fyrir Sjálf-
stæðismenn sé það gifurlega mikilvægt að endur-
heimta meirihlutann i borginni, ekki sist eftir þá
lægð sem flokkurinn hefur verið i undanfarin ár.
„Það yrði ótvirætt merki nýrrar sóknar og sam-
einingar”, segir hann.
• í Alþýðublaðinu segir Jón Baldvin Hanni-
balsson: ,,En jafnvel þótt Sjálfstæðisflokknum
mistakist að endurheimta hreinan meirihluta i
borgarstjórn er eitt vist. Næsti borgarstjórnar-
meirihluti verður ekki undir forystu Alþýðu-
bandalagsins og trúlega heldur ekki með aðild
þess.”
• Þessar yfirlýsingar sýna að kosningarnar i
vor snúast um það hvort ihaldsöflin ná aftur
viðspyrnu til þess að öðlast undirtökin i stjórn-
málunum, eða hvort félagsleg umbótastefna
verður áfram við lýði i lands- og sveitarstjórnar-
málum. Þær sýna jafnframt að eina aflið sem
getur sundrað ihaldssókninni og stöðvað hana er
Alþýðubandalagið. Yfirlýsing Jóns Baldvins
Hannibalssonar sannar að hvenær sem er getur
sprengjuliðið náð yfirhendinni i Alþýðuflokknum
og hlaupið út og suður. Samstarf Alþýðubanda-
lagsins, Framsóknarflokksins og Alþýðuflokks-
ins i borgarstjórn hefur i megindráttum gengið
vel á kjörtimabilinu, og það litla sem á hefur
bjátað hefur stafað af innanflokksátökum hjá
krötum. Það er skoðun Alþýðubandalagsins að
hiklaust beri að halda þessu samstarfi áfram sé
þess nokkur kostur. Enda þótt i röðum Alþýðu-
flokksmanna séu ýmsir sem vilja spilla þvL ber
félagshyggjufólki i meirihlutaflokkunum að
leggja alla áherslu á að félagsleg sjónarmið verði
áfram ráðandi i stjórn Reykjavikurborgar.
Flokkarnir þrir sem að meirihlutanum standa
unnu sér traust borgarbúa með ábyrgu samstarfi
meðan þeir voru i minnihluta, og það væru
pólitisk afglöp að rjúfa það.
• Alþýðubandalagið vann stóran sigur i siðustu
borgarstjórnarkosningum og felldi ihaldið eftir
áratuga valdasetu þess. Komi það ekki sterkt út
úr kosningunum í vor er engin trygging fyrir því
að myndaður verði meirihluti félagshyggjuafla,
jafnvel þótt kostur væri á. Það liggur Ijóst fyrir
að Alþýðubandalagið mun eindregið og óhikað
ganga til kosninga i Reykjavik með það að höfuð-
markmiði að fylkja vinstri sinnum saman um
stjórn borgarinnar. Alþýðubandalagið hefur
starfað með Framsóknarflokknum og Alþýðu-
flokknum á jafnréttisgrundvelli, enda þótt það sé
þeirra öfiugast að fulltrúatölu i borgarstjórn. Það
mun áfram einbeita sér að því að tryggja slika
vinstri samstöðu félagshyggjufólks gegn ihaldinu
i Reykjavík. * — ekh.
Úr öllum
stéttum, —
en flestir...
,,En í leiðréttingarskyni
skal þess getið að málefna-
nefndir Sjálfstæðisflokksins
eru nú 17 talsins og eiga i
þeim sæti tæplega 200 menn
úröllumstéttum og viðs veg-
ar að af landinu.
Formenn málefnanefnd-
anna 17 eru einnig úr öllum
stéttum þjóðfélagsins. Af
þeim eru 8 opinberir starfs-
menn, þar með taldir 2
prófessorar, 1 læknir, 1
bæjarstjóri og 1 aðstoðar-
bankastjóri. Þeir 9 málefna-
nefndarformenn sem þá eru
ótaldir eru allir annaðhvort
sjálfstæðir at-Vinnurekendur
eða starfsmenn sjálfstæðra
atvinnurekenda.
Framvegis vona ég að þeir
sem skrifa hér i blaðið eða
annars staðar um nefndir og
ráð Sjálfstæðisflokksins afli
sér réttra upplýsinga um
jafneinfalda og auðupplýsta
hluti og Ásgeir H. Eiriksson
fór rangt með hér i blaðinu
þann 7. þ.m.
Reykjavík, 8. j anúar 1982,
Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri”.
(DV f gær)
Svo bregðast
krosstré. . .
..Ragnheiður hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Ég tek heils hugar undir
orð þess sem segist vera
orðinn dauðleiður á Morgun-
vöku útvarpsins. Mér finnst
hún beinlinis sálardrepandi
og mál sé að linni. Þeir ættu
sem að henni standa að
hrista svolítið upp i sálar-
tetrinu og sjá hver árangur-
inn yrði. Tæplega getur þetta
versnað”. . . ...
(Velvakandi í
Mogganum igær).
j Það er
I ekkert að
j marka orðið
„Áhittber þó að lita að orð
| fá oft gagnstæða merkingu
við hina upprunalegu i hug-
um og orðfæri fólks. Þannig
er orðið , .alþýðulýðveldi ” i
mæltu máli dagsins i dag
ekki heiti eða skilgreining
lýðréttindarikis, heldur hins
gagnstæða rikis þar sem al-
i;æði kommúnismans mótar
þjóðfélagsgerðina (með til-
heyrandi réttindastöðu t.d.
pólsks almennings). Arftaki
Kom múnist aflokks Islands
(siðar Sósialistaflokks)
nefnir sig og „Alþýðubanda-
lag”. Þar er hin „gagn-
stæða” merking enn á ferð.
Þannig eru tvær hliðar á
þessu máli eins og ýmsum
öðrum . (Staksteinar
Moggans igær)
klrippt
Frá
Annexiunni...
Ritstjórinn á leifum krata-
kálfsins stigur dansinn hart að
vanda i leiðurum sinum. Jón
Baldvin á vanda til að teygja
arma sina langt yfir til höfuð-
bólsins i skrifúm sinum og það
hlýtur að vera spurning um
tima hversu lengi hann þjónar á
annexiunni Ur þessu. Þess sjást
h'ka merki að miðkratar og
vinstri séu búnir að fá nóg af
pólitik Jóns. Það er farið að slá i
linuna og þeir sem aðhyllast
lifssýn þeirra Thatcher, Reag-
ans og Hallgrimssonar ættu i
Jón Baldvin. Siglir
heim á höfuðbólið.
hraðbyri
bókstaflegri merkingu að taka
sérbólfestu á þeim bæjum,sagði
einn vinstri kratinn og taldi
samtimis að Jón hefði flýttfyrir
endanlegum dauðdaga Alþýðu-
blaðsins með skrifum sinum.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. Sendi
honum tóninn.
Endurheimt
meirihluta
I leiðara segir Jón nýverið:
„Jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkn-
um mistakist að endurheimta
hreinan meirihluta i borgar-
stjórn ereitt vist. Næsti borgar-
stjórnarmeirihluti verður ekki
undir forystu Alþýðubandalags-
ins og trúlega heldur ekki með
aðild þess.”
1 ljósi þess að Alþýðuflokkur-
inn, sem gerir þennan ritstjóra
út, á aðild að meirihluta borgar-
stjórnar og að eftir hálfrar ald-
arofurveldi ihaldsins iReykja-
vik tókst hinum flokkunum
sameinuðum að fella það, þá
eru skrif ritstjórans óneitanlega
dálitið skondin. Það er þvi ekki
að undra þótt Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins sendi ritstjóra sinum
tóninn i Timanum i gær: „Al-
þýðubandalagiö, Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur, sem
sameiginlega myndar þann
meirihluta sem nU fer með völd
i borginni, vinna saman að
stjórn hennar i anda jafnréttis.
Það er enginn einn flokkur öðr-
um fremri. Samstarf þessara
þriggja flokka i borgarstjórn
hefur gengið nokkuð vel og bet-
ur en þegar þessir þrir flokkar
hafa starfað saman i rikis-
stjórn”. Mogginn gerir ummæli
Jóns Baldvins að sinum i Stak-
steinum i gær.
Kandídat
ihaldsins?
Það gerir einnig Ellert
Schram mágur hans i leiðara
Vi'sis i' gær en hann veit ekki
hvaðhanneraðgera.Þetta gæti
nefnilega flýtt fyrir þvi að þeir
mágar eigist við i öðrum slag.
Um þingsæti hjá ihaldinu i
næstuþingkosningum. Menn sjá
fyrir sér hamaganginn þegar
Jón freistar gæfunnar á höfuð-
bólinu og enginn verður hissa
þegar hann verður tilkynntur i
næsta prófkjöri hjá ihaldinu. I
rauninni hefði ritstjórinn átt að
taka þátt i slagnum hjá ihaldinu
i prófkjörinu til borgarstjórnar
—þá hefði glundroðinn iborgar-
stjórnarflokki ihaldsins náð þvi
að verða stöðugt ástand og si-
fellt.
Sér er nú hver
samstaðan
Mogginn gerir mikið úr þvi i
leiðara f gær að meðal Nató-
rlkjanna riki alger samstaða
um afstöðuna til atburðanna i
Póllandi og viðbrögð við þeim.
Þetta eru að sjálfsögðu örg-
ustu öfugmæli einsog fréttir
bera með sér. Bandarikjastjórn
vill nota þetta tækifæri til að
klekkja á Rússum með þvi t.d.
að takmarka útflutning á mat-
vöru og tæknigóssi til Sovétrikj-
anna og Póllands. Evrópurikin
hafa brugðist öndvert við, með
kristilegum bróðurkærleika i
þvi efni að gefa hungruðum mat,
og hvað varðar samskiptin við
Sovétri"kin, þá hafa margir
stjórnmálaleiðtogar lýst yfir
efasemdum sinum um réttmæti
refsiaðgerða.
Staðreyndin er nefnilega sú,
að Sovétrikin eru eitt mikilvæg-
asta viðskiptaland margra
þessara rikja, sem telja sig
standa i nógu alvarlegri kreppu
heima fyrir þó ekki sé verið að
skapa frekari erfiðleika af
þessu tagi. Þau eiga einfaldlega
alltof mikið undir vinsamlegum
samskiptum við Sovétrikin
komið til að þora að auka á
óvissu. Buddan er nefnilega við-
ar húsbóndi en á Mogga.
Þetta er einnig ástæðan fyrir
þvi hversu linkuleg viðbrögð
ýmissa sósialdemókrataflokka
og rikisstjórna undir þeirra
handleiðslu voru þegar herlögin
voru sett i Póllandi. Tilamynda
standa Vestur-Þjóðverjar og
Sovét i einum stórkostlegustu
framkvæmdum sem sögur fara
af um þessar mundir sem er
gasleiðslan frá Siberiu til
Þýskalands. Þó ekki væri um
fleiri sameiginlegar fram-
kvæmdir og viðskipti þessara
þjóða að ræða, þá er augljóst
að þeim er ekki i rriun að standa
aö jafn harkalegum refsiað-
gerðum og þeim sem Reagan
stjórnin vill beita. Það er lika
haft eftir talsmanni þeirrar
stjórnar að honum findist yfir-
lýsing italska kommúnista-
flokksins af þessu tilefni vera
afdráttarlausari en viðbrögð
þýskra krata.
— óg
•9 skorrið