Þjóðviljinn - 14.01.1982, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 14. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Björn S.
JV • 1 Stefánsson
dr. scient.
!■ VM skrifar
Lífskjör
þjóðarhmar
og fjölgun
Ýmsir hafa áhyggjur af þvi að
allmargir Islendingar hafa und-
anfariB flust búferlum tilNorBur-
landa og ekki skilað sér til baka.
Þykir sumum sem flótti hafi
brostiB íliBið og óttastum framtiB
þjóðarinnar, ef svo haldi fram
sem horfir. Þjtíðviljinn varði
heilliopnu undir þetta mál hinn 5.
þ.m. með viðtali við Stefán ólafs-
son mannfélagsfræðing, þar sem
hann les ýmislegt úr skýrslum
Hagstofunnar um búferlaflutn-
inga og getur sér til um orsakim-
ar. Er þar um að ræða tilgátur
sem kunnar eru Ur almennri um-
ræðu á við og dreif, en eru hér að-
gengilegar á einum stað. Tilgát-
urnar eru studdar tíbeinum heim-
ildum, en kunna þó að reynast
réttar, eins langt og þær ná, þeg-
ar þær hafa verið staðreyndar
með beinum athugunum á högum
þess ftílks sem hefur flutt.
1 tilefni af viðtalinu er ástæða
til að skýra málið i almennu sam-
hengi með skilningi mannfélags-
fræðinnar. Vil ég gera grein fyrir
þvi, eftir löng kynni af Norð-
mönnum og Svlum og samneyti
við fræðimenn áþessu sviðiftílks-
flutninga.
Flestir hafa undanfarið flust
búferlum til SviþjóðanFlutningar
Isiendinga þangað eru þó eins og
örsmá kvisl i miklum straumi
fólksflutninga um Evrópu siðustu
áratugi. Þetta eru fólksflutningar
i kjölfar iðnvæðingar. Sveita-
menn flytjast þangað sem kaupin
gerast betri en heima fyrir. Þess-
ir fólksflutningar voru bundnir
við þjóðlöndin, eftir að Norður-
Amerika lokaðist aö mestu, en
siðustu tvo - þrjá áratugina hafa
sveitamenn Júgóslaviu, Grikk-
lands, Tyrklands, Marokkó, Ind-
lands og Pakistan og fleiri landa
flykkst til iðnrikja Vestur-Evr-
ópu.
Hvað einkennir sveitamenn-
ina? Þeir eru sjálfbjarga og fé-
lagslyndir og ættræknir meö öra
viðkomu. Fyrstu kynsltíðinni
vegnar vel, hún hefur góða heim-
anfylgju, hefur alist upp við holl
skilyrði og hefur stoð af ættingj-
um og sveitungum heima og
heiman. Hún þarf lítið að leita til
geðdeilda félagsmálastofnana
borganna, þó að hún vinni litils
metin störf sem innlendir snið-
ganga. Næstu kynslóð vegnar að
sama skapi illa. Hún elst upp við
óholl skilyrði og þolir þvi upp-
komin jafnlitiö og foreldrarnir
þoldu mikið.
Sveitamenn i þessum skilningi
geta eins verið frá fjölmennum
þorpum, en framleiðsluhættir eru
i smáum stil og mikil ábyrgð á
hendi heimilanna um framfæri og
uppeldi, menn byggja yfir sig
sjálfir og bera ábyrgð á húsun
sinum og framleiBslutækjum.
Flestir eru á einhvern hátt virkir
þjóðfélagsþegnar. Starfsmenntun
eftir þörfum framleiðslu i stórum
stil er hins vegar takmörkuð.
Uppkomnir Islendingar, og þar
með taldir Reykvikingar, eru
sveitamenn i þessum skilningi,
bornirsaman við Svia. íslending-
ar hafa þó miklu betri starfs-
menntun en aðrar þjóðflutninga-
þjóðir.
Hvað einkennir svo þjóðfélag
sem tekur við erlendum þjóðum,
eins og Svi'þjóð? Þar eru margir
littsjálfbjarga og K'tið félagslynd-
ir, en njóta margs konar fyrir-
greiðslu og afgreiöslu eftir föst-
um reglum. Tiltölulega margir
eru óvirkir þjóðfélagsþegnar —er
mdnuö þátttaka i störfum eða
fólk er keypt til þess aö draga sig
úr starfi (atvinnulausir og hvers
konar bótaþegar). Heldur illt er
milli kynslóða og viðkoma er svo
hæg, að þegnum Sviarikis hefði
þegar fækkaö stórlega, ef ekki
hefðu komið til innflytjendur sem
fjölgar að sið sveitamanna.
Framtið Sviþjóðar kann aö
vera borgiö með þessum innflutn-
ingi, slikt hefur áður gerst i sögu
mannkynsins. Milljónir sveita-
fóiks viða um heim vildu leita
þangað, ef kostur væri, og fylla i
skörð hnignandi þjtíöar. Þau ráð
sem bent er á hér á landi til að
menn freistist ekki af sænskum
lifskjörum og flytjist búferlum, er
að taka sem flest eftir Svi'um og
bjóða hér sem likust lifskjör.
Raunar er fyrirsjáanlegt hlut-
skipti þorra hinna yngstu tslend-
inga þegar að litlu leyti hlutskipti
sveitamannsins i hinni viðtæku
merkingu sem hér er notuð.
Tvennt greinir þó þjóðfélögin
helst, eins og komið er. Hér á
landi eru miklu fleiri virkir þjóð-
félagsþegnar og hér standa
margir fyrir byggingu eigin hús-
næðis og viðhaldi. Þar er um átak
i lifi fólks aö ræða sem laðar fram
fjölhæfni og reynir á og styrkir
samheldni ættmenna og önnur
perstínuleg sambönd.
Stefnt er að þvi af ráðandi öfl-
um að eyða þessum mismun
varðandi húsbyggingar, og öldr-
unarráð nkisins vill venja þjóð-
ina við þá tilhugsun að hlutskipti
gamals fólks hér veröi líkt og i
Vestur-Evrópu sem óvirkir þegn-
ar (skv. nýlegu útvarpsviðtali við
formann ráðsins). Hvað sem rétt
kann að gera i þeim efnum i ein-
stökum atriöum og þegar
skammter litið, er meö sliku ver-
ið að styrkja einkenni þess þjóð-
félags sem endurnýjar sig ekki
sjálft og þegar eru oröin sterk.
Munurinn á Sviþjóð og Islandi er
sá, að Islendingar geta miklu sið-
ur bætt upp eigin hnignun með
innflutningi fólks af öörum þjóð-
um, þó að þær búi flestar við
naumari kost — til þess er landið
of litið aðlaðandi útlendingum.
Björn S. Stefánsson
4 JlVcWWarJ^c uJL.
Tilkynning tii þeirra
sem hyggja á prófnám
Eftirfarandi prófnámsdeildir hefjast um
miðjan janúar.
AÐFARANAM
farið yfir námsefni 1. og 2. bekkjar gagn-
fræðanáms.
FORNÁM
igildi grunnskóladeildar.
FORSKÓLI SJtJKRALIÐA
1. önn framhaldsskólastig.
Þeir sem hug hafa á að taka þátt i ofan-
greindu námi, mæti fimmtudaginn 14.
janúar kl. 19:30 i stofu 6 Miðbæjarskóla.
Námsflokkar Reykjavikur, simi 12992,
Fyrir 30 kr. á mánuði áttu kost á
ríflegum glaðningi sem getur
gerbreytt fjárhagsstöðu þinni.
Hafðu þessar staðreyndir í huga:
Allar þær 136 milljónir sem HHl
greiðirí vinninga íáreru
skattfrjálsar.
Milljónin sem getur lent á
trompmiðanum er það líka.
Ekkert annað happdrætti
hefur hærra vinnigshlutfall.
Vinningaskrá:
9 @ 200.000- 1.800.000-
9 — 50.000,- 450.000,-
9 — 30.000- 270.000,-
198 — 20.000,- 3.960.000,-
1.053 — 7.500- 7.897.500-
27.198 — 1.500- 40.797 000,-
106.074 ' 750,- 79.555.500-
134.550 134.730.000-
•450 — 3.000- 1.350.000,-
135.000 136.080.000,-
Vinningar eru 135 þúsund talsins.
Allt I þeinhörðum peningum.
hú þarft ekki að hafa fjármálavit til að
reikna út að það er svo sannarlega
tilvinnandi að spila með
Freistaðu gæfunnar!
r
■■■■■■■■ ■■•■■ ■ •
• ■■• • ••
• ■■• • ii
■ ■■■■ • •••• • ■•
•■•••••• ■■•■• • •
• ••• • ••• • •••• • ••
• ■■■ L ■•■• ■■•■§■ • ■■ A
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
hefur vinninginn