Þjóðviljinn - 14.01.1982, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. janúar 1982
ALÞVOUBANDALAG1Ð
Þorrablót— Húsavík
Þorrablót Alþýðubandalagsins á Húsavik verður haldið laugardaginn
23. janúar og hefst með borðhaldi kl. 19.30.Húsið opnaö kl. 19.00.
DAGSKRA: 1) Samkoman sett — Freyr Bjarnason.
2) Alþingismennirnir Guðrún Helgadóttir og Helgi Seljan skemmta
með söng og spjalli.
3) Visnasöngur Helga Bjarna og Villa Baldurs.
4) Sigurður Hallmarsson stjórnar fjöldasöng.Veislustjóri er Freyr
Bjarnason. Bragi Siddi og Kalli sjá um fjörið. Félagar úr kjördæminu
eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Miðapantanir i sima:
41139 — 41761 og 41743 e.kl. 17.00. —Alþýðubandalagsfélagið Húsavik
Alþýðubandalagið Akureyri
Alþýðubandalagið Akureyri auglýsir almennan félagsfund fimmtudag-
inn 14. þessa mánaðarkl. 20.30 i Lárusarhúsi. Fjallað verður um skipu-
lagningu kosningastarfs um forvalsreglur og Húsavikurráðstefnu 23.
og 24. janúar. Mætum vel og stundvislega. —Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Þorrablót Alþýöubandalagsins á Akranesi verður haldiö I Rein laugar-
daginn 23. janúar. Nánar auglýst siðar. — Stjórnin.
Vopnafjörður: Almennur fundur
Hjörleifur Guttormsson iðnaöarráðherra verður
á almennum fundi á Vopnafirði i kvöld, fimmtu-
daginn 14. janúar kl. 20.30. Allir velkomnir. —
Alþýðubandalagið
Hjörleifur
Alþýðubandalagiðá Akureyri
Arshátiðin verður föstudaginn 22. janúar i Alþýðuhúsinu. Afar vönduð
skemmtiskrá. Nánar auglýst i Norðurlandi þann 19. Vinsamlegast til-
kynnið þátttöku til Óttars i sima 21264 eða Ragnheiðar i sima 23397.
Alþýðubandalagið Kef lavik
Alþýðubandalagið i Keflavik heldur almennan félagsfund i Tjarnar-
lundi mánudaginn 18. janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Undirbúningur starfs fyrir kosningar. 2) Inntaka nýrra félaga. 3)
önnur mál.
Opinber stofnun
óskar eftir aö taka á leigu skrifstofuhús-
næði sem næst miðborginni 60-80 fer-
metra (nettó) helst frá 1. febr. n.k.
Tilboð sendist sem fyrst auglýsingadeild
Þjóðviljans merkt leiguhúsnæði óskast
• Blikkiðjan
Ásgarði 1. Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468
Blaðberi óskast
sem fyrst i eftirtalið hverfi:
Sólvallagata.
DJOBVIUINN
Slðumúla 6 s. 81333.
I
NÓV.
AUKUM ORYGGI
[VETRARAKSTRI
NOTUM ÖKULJÓSIN
ALLAN IFEBR
SÓLARHRINGINN
FERÐAR
Rauði
krossinn
heiðrar
braut-
ryðj-
endur
1 desembermánuði sl. var hát-
iðlegt haldið 15 ára afmæli
Kvennadeildar Reykjavikur-
deildar Rauða kross tslands. Við
það tækifæri voru heiöraðar tvær
konur, frú Ragnheiður
Guðmundsdóttir, læknir og frú
Sigriður Thoroddsen.
Ragnheiður Guömundsdóttir
átti hugmyndina að stofnun sjálf-
boðadeildar, (kvennadeildar),
innan Reykjavikurdeildarinnar.
Hafði kynnst sliku fyrirkomulagi
i Englandi og viðar erlendis.
Undir forystu Ragnheiöar stofn-
uðu 150 konur kvennadeildina, en
innan hennar hefur farið fram
viðtækasta og þróttmesta sjálf-
boðaliðsstarf, sem unnið hefur
verið innan Rauða kross Islands.
Ragnheiður hefur og átt frum-
kvæði á öðrum sviðum i starfi
Rauða krossins, svo sem heim-
sendingu máltiða og
heimsóknarþjónustu. Hún hefur
og sýnt menntun heilbrigðisstétta
mikinn áhuga og braut fyrst upp á
hugmyndinni um sjúkraliðanám
hérlendis. Ragnheiður var i
stjórn Reykjavikurdeildar i 20 ár,
þar af formaður i 8 ár og átti um
árabil sæti i stjórn Rauöa kross
Islands.
Sigriður Thoroddsen var einn af
brautryðjendum um skipulagt
sjálfboðastarf innan Rauða
krossins. Hún átti drjúgan þátt I
stofnun Kvennadeildar, sem
fyrsti formaður hennar. Hún hef-
ur ætið siðan unnið ötullega að
vexti deildarinnar og var i stjórn
hennar allt fram til ársins 1979.
Hún átti einnig sæti i stjórn
Reykjavikurdeildarinnar um
langt árabil.
— mhg.
Leiðrétting
I Þjóðviljanum i gær var skýrt
frá þvi að lokið væri gerð aðal-
kjarasamnings hjúkrunar-
fræðinga, en það var ofsagt;
aðeins er lokið gerð samnings i
Reykjavik. Samningum á Akur-
eyri er ólokið.
v.: Olafur Mixa, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Unnur Sch. Thor-
steinsson, formaður Kvennadeildar Reykjavikurdeildarinnar.
Ólafur Mixa, formaður Rauða kross tslands sæmir Sigriði Thoroddsen
silfurmerki félagsins.
—MFA------------------------------------
Félagsmálaskóli alþýðu
1. önn Félagsmálaskóla alþýðu verður í ölfus-
borgum 14.—27. febrúar 1982.
Námsefni m.a.: Félags- og fundarstörf, ræðu-
mennska, framsögn, hópefli, vinnuréttur,
vinnuvernd, skipulag, stefna og starfshættir
ASi,saga verkalýðshreyfingarinnar, vísitölur
og kjararannsóknir. Auk þess menningardag-
skrár og listkynningar.
Aðeins félagsmenn aðildarfélaga ASí eiga
rétt á skólavist.
Hámarksf jöldi á önninni er 24 þátttakendur.
UmsóknL-um skólavist þarf að berast skrif-
stofu MFA Grensásvegi 16, s. 84233 fyrir 4. fe-
brúar n.k.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu MFA,
sími 84233.
MENNINGAR- OG
FRÆÐSLUSAMBAND ALÞÝÐU
Vilborg Jóhannes Sveinn Einar Karl Ulfar Þorbjörn
! Ráðstefna um
| Þjóðviljann
Alfheiður
Iútgáfufélag Þjóðviljans
boðar til ráðstefnu um málefni
Þjóöviljans laugardaginn 16.
a janúar i sal Starfsmannafélags-
Iins Sóknar að Freyjugötu 27 I
Reykjavik. Ráðstefnan hefst kl.
10 og er gert ráð fyrir að henni
ljúki siðdegis. Ráðstefnan er
Iopin öllum stuðningsmönnum
Þjóðviljans.
Ráðstefnustjóri:
. Vilborg Harðardóttir.
I Ráðstefnuritarar:
■ Jóhannes Harðarson,
I Sveinn Kristinsson.
Dagskrá:
Setning: Svavar Gestsson, for-
maður Útgáfufélags Þjóðvilj-
ans.
Stuttar framsöguræður:
Einar Karl Haraldsson, úlfar
Þormóðsson, Þorbjörn Guð-
mundsson.
Að loknum framsöguræðum,
verða almennar umræður.
Hádegisverðarhlé um kl. 12.30.
Kl. 14 hefst ráðstefnan að nýju
með þvi að skipt verður i tvo
umræðuhópa. 1 hópi 1 verður
rætt um rekstur blaðsins og i
hópi 2 um ritstjórnarstefnu
Þjóðviljans.
Umræðustjóri i hópi 1. Ragnar
Arnason.
Umræðustjóri ihópi 2. Alfheiður
Ingadóttir.
Að lokinni hópvinnu verður
gerð grein fyrir niðurstöðum
umræðuhópa. Ráðstefnan lýkur
meö almennri umræðu og yfir-
liti ráðstefnustjóra um þau
meginatriði sem fram koma.
Otgáfufélag
Þjóðviljans