Þjóðviljinn - 14.01.1982, Page 12

Þjóðviljinn - 14.01.1982, Page 12
12 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. janúar 1982 fffi Auglýsing um iasteignagjöld Lokið er álagningu fasteignagjalda i Reykjavik 1982, og hafa álagningarseðlar verið sendir út ásamt giróseðlum vegna 1. greiðslu gjaldanna. Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janú- ar, 1. mars og 15. april. Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni i Reykjavik, en einnig er hægt að greiða giróseðlana i næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi. Fasteignagjaldadeild Reykjavikurborg- ar, Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, simar 18000 og 10190. Athygli er vakin á þvi, að Framtalsnefnd Reykjavikur mun tilkynna elli- og örorku- lifeyrisþegum, sem fá lækkun eða niður- fellingu fasteignaskatta skv. heimild i 3. mgr. 5. gr. laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga og samþykkt borgarráðs um notkun þeirrar heimildar. Borgarstjórinn i Reykjavik, 12. janúar 1982. Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa starf yfirtækniteiknara laust til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un, aldur og fyrri störf sendist starfs- mannastjóra fyrir 30. janúar nk. Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 118 105 Reykjavik. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir desember mánuð er 15. janúar. Ber þá að skila skattinum tii innheimtumanna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið, 11. janúar 1982. V aí nslevsus t randarhreppur óskar að ráða verkstjóra. Umsóknum um starfið ber að skila til skrifstofu Vatnsleysustrandarhrepps Vog- um fyrir 1. febrúar n.k. Sveitarstjóri. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða LOFTSKEYTAMANN/SÍMRITARA til starfa á ÍSAFIRÐI Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild, Reykjavik og umdæm- isstjóra ísafirði. Kópavogsleikhúsið hefur nú hafið að nýju sýningar á leikriti Andrésar Indriðasonar, „Aidrei er friður”, en leikritið var frumsýnt 14. nóv. s.l. Leikstjóri er höfundurinn, en leikmynd gerði Gunnar Bjarnason. Myndin er úr sýningunni. Ný hljómsveit treður upp: BODIES á Borginni : Hljómsveitin Bodies heldur sína fyrstu tónleika á nýju ári á Hótel Borg næstkomandi fimmtu- dag, þann 14. jan. Asamt Bodies mun hljómsveitin Jonee-Jonee koma fram. Þetta er i fyrsta sinn, sem þess- ar tvær hljómsveitir koma fram saman á tónleikum. Bodies skipa gitarleikararnir Mike og Danny Pollock, bassaleikarinn RUnar Erlingsson og trommuleikarinn Magnús Stefánsson. Jonee-Jonee skipa svo Bergsteinn Björgúlfs- son trommur, Heimir Barðason bassi og Þorvar Hafsteinsson söngur. Báðar þessar hljómsveit- ir munu bjóða upp á margs konar nýjungar i prógrammi si'nu, sem vafalaust eiga eftir að koma fólki á óvart. Verulegur verðmunur á filmum: Mismunurinn að meðaltali 45,1 prósent Verðlagsstofnun hefur gcrt at- hugun á verðiá Ijósmyndafilmum og framköllunarþjónustu á stór- Reykjavikursvæðinu. t þeirri at- hugun kemur fram mikill verð- niunur á filmum: i sjö tilvikum af niu reyndust Kodak-filmur dýr- astar, en Fuji-filmur voru ódýr- astar i sjö tilvikum. Mismunur á hæsta og lægsta verði var hvorki meira né minna en 45,1 prósent. Taflan hér að neðan sýnir ljós- lega verðmuninn, en hiín kemur frá Verðlagsstofnun. Verslanim- ar, sem stofnunin kannaði verð hjá, voru þessar: Amatörversl- unin, Filmur og vélar, Fókus, Fótohúsið, Gevafoto, Glögg- mynd, Hans Petersen, Ljós- myndaþjónustan, Myndahúsið og Týli. 1 tilkynningu Verðlagsstofn- unarinnar segir, að stofnunin leggi að sjálfsögðu engan dóm á gæði filmutegundanna. Munur á hæstji of» AGFA 1) FlJJl KODAK SAKIJRA IjegsU verÖ) 110/12 mynda, 100 ASA 32,- (1) 25,- (1) 36,70 (4) 46,8% 110/24 mynda, 100 ASA 31,50 l (1) 36,15 (7) 51,70 (7) 41,- (1) 64,1% 126/12 mynda, 100 ASA 34,- (1) 27,50 (2) 38,35 (3) 39,5% 126/24 mynda, 100 ASA 38,- (4) 52,75 (4) 38,8% 135/12 mynda, 100 ASA 30,- (1) 30,75 (2) 41,- (5) 36,7% 135/24 mynda, 100 ASA 39,40 1 (5) 38,85 (7) 53,25 (8) 43,- (1) 37,1% 135/36 mynda, 100 ASA 58,- (2) 51,- (5) 68,85 (6) 54,- (1) 35,0% 135/24 mynda, 400 ASA 67,35 ■ (3) 44,60 (5) 63,55 (7) 51,0% 135/36 mynda, 400 ASA 90,- (4) 58,15 (3) 80,45 (5) 54,8% Tölur í sviga sýna í hve mörgum verslunum hver filma fannst. 1) Agfa-filmur eru 80 ASA, í stað 100 ASA Níundu áskriftar- tónleikar Sinfóniunnar Bandarískur stjórnandi og norsk söngkona Hljómsveitarstjórinn á niundu áskriftartónleikum Sinfóniu- hljómsveitarinnar n.k. fimmtu- dag er Bandarikjamaðurinn Gil- bert I. Levine, en einsöngvari á tónleikunum er Edith Thaliaug, sem kemur i veikindaforföllum Ortrum Wenkel. A efnisskrá eru verk eftir Mo- zart, Mahler og Schubert. Gilbert I. Levine er fæddur árið 1948 i New York. Hann lærði i Bandarikjunum og Paris og hefur m.a. stjórnað i við Royal Opera House, Govent Garden og London Philharmonic Orchestra. Hann varð framkvæmdastjóri og hljómsveitarstjóri Norwalk Sym- phony Orchestra 1974 og hefur siðan stjórnað ýmsum hljóm- sveitum I Evrópu og Ameriku. Edith Thallaug er fædd i Osló og var fyrst leikkona við norska Þjóðleikhúsið en fór siðan að syngja og flutti til Sviþjóðar þar sem hún söng við óperuna i Gautaborg og konunglegu óper- una i Stokkhólmi. Hún hefur m.a. sungið Carmen, Amneris, Octa- vian og Eboli. Verk Mozarts á tónleikunum á fimmtudagskvöld er Forleikur að óperunni Don Giovanni en siðan verður flutt Kindertotenlieder eftir Mahler og Sinfónia nr. 9 i C-dúr eftir Schu- bert. V iðbótar- rannsóknir um uppruna húsdýra Dr. Stefán Aðalsteinsson í kvöld, fimmtudaginn 14. janúar, flytur dr. Stefán Aðal- steinsson erindiá vegum islenska mannfræðiféiagsins um uppruna húsdýra á islandi með hliðsjón af crfða- og menningartengslum við nágrannalönd. Eins og kunnugt er hcfur dr. Stefán áður fjallað um niðurstöður a rannsóknum sinum og annarra á þessu sviði, en mun i þessu erindi einnig skýra frá nýjum viðbótarrann- sóknum sem m.a. snerta tengsl. við fjármarkað á islandi og i ná- grannalöndum. Undanfarin fimm ár hefur dr. Stefán verið i tengslum við er- lenda sérfræðinga sem fást við rannsóknir á búf járflutningum vikinga. Tengjast þessar rann- sóknir þvf m.a. vandamálinu um uppruna Islendinga. Erindið verður haldið i stofu nr. 301 I Ámagarði og hefst kl. 20.30. öll- um er heimill aðgangur. — ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.