Þjóðviljinn - 20.02.1982, Síða 1
SUNNUOAGS 56
_ _ ^ ^miTR
DIODVIUINN
BLAðlÐ
SIÐUR
Helgin 20.-21.
febrúar 1982
—41.-2. tbl. 47. árg.
Samvinnu-
hreyfmgin
á íslandi
hundrað ára
Verð kr. 9.00
„Þegar miklar
hugsjónir rætast.
Erlendur Einarsson
tók við starfi forst.ióra
Sambands isl. sam-
vinnufélaga 1. janúar
1955. Vilhjálmur Þór
hafði þá gengt þvi frá
ársbyrjun 1946, er hann
tók við af Sigurði Krist-
inssyni. Erlendur hefur
þannig verið forstjóri
Sambandsins i meira en
aldarfjórðung og getur
að sjálfsögðu margt
fróðlegt sagt frá þeim
ferli. Fara verður þó
með Töndum i örstuttu
blaðaviðtali, en við byr j-
uðum á þvi að spyrja
Erlend um nám hans og
störf áður en hann varð
forstjóri.
Eftir aö ég lauk námi i Sam-
vinnuskólanum vorið 1941 hóf ég
störf i Landsbanka Islands. Ég
starfaði þar til vors 1946, að
undanskilinni námsdvöl i
Bandarikjunum 1944 og 1945, en
þar starfaði ég I National City
Bank jafnhliða þvi' sem ég
stnndaði nám i American Insti-
tute of Banking. Hinn 1. mai' 1946
hóf ég siðan störf hjá Samband-
inu, en tók svo við starfi
framkvæmdastjöra Samvinnu-
trygginga l.september það ár, og
starfaði sem framkvæmdastjóri
þeirra þar til ég tók við starfi for-
stjóra Sambandsins.
— Hvernig varð þér við þegar
þú varst beðinn að taka að þér
starfið?
Alltaf að koma
manni á óvart
Að taka við forstjórastarfi
Sambandsins var fært fyrst i tal
við mig vorið 1954. Ég dreg ekki
dul á það að ég var i fyrstu tregur
til þess að játast þvi að taka viö
svo ábyrgðarmiklu starfi, enda
var ég aðeins 33 ára gamall og
mér fannst ég bæði of ungur og
ekki hafa nægilega reynslu til að
gegna svo viðamiklu starfi. Þess
utan leið mér vel i Samvinnu-
tryggingum enda gekk starfsemi
þess fyrirtækis mjög vel
starfið fannst mér mjög
viöráöanlegt. En alltkom þó fyrir
ekki, enda var lagt hart að mér
að koma til starfa hjá Samband-
Rœtt við Erlend Einarsson, forstjóra Sambands íslenskra samvinnufélaga