Þjóðviljinn - 20.02.1982, Page 21
Laugardagur 20. fébrúar 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 21
IVlenntasetrið Laugar i Suður-Þingeyjarsýslu. Þar hittast samvinnu-
menn i sumar.
Samvinnuhreyflngin á Islandi:
100 ára
landnám
Þann 20. febrúar n.k. eru 100
ár liðin frá þvi að Kaupfélag
Þingeyinga var stofnað að Þverá
i Laxárdal. Verður þess merki-
lega landnáms samvinnuhreyf-
ingarinnar á isiandi að vonum
minnst með mörgum hætti. Sér-
stök samstarfsnefnd Kaupfélags
Þingeyinga og Sambands Isl.
samvinnufélaga mun sjá um af-
mælishaldið. Er hún skipuð eftir-
töldum mönnum: Frá Kaupfélagi
Þingeyinga: Böðvar Jónsson,
bóndi á Gautlöndum, Finnur
Kristjánsson, safnvörður á Húsa-
vík og Hreiðar Karlsson, kaupfé-
lagsstjóri á Húsavik. Frá Sam-
bandi isl. samvinnufélaga: Hauk-
ur Ingibergsson, fyrrv. skóla-
stjóri, Hjalti Pálsson, framkvstj.
og Kjartan P. Kartansson fram-
kvstj. Formaöur nefndarinnar er
Finnur Kristjánsson en fram-
kvæmdastjóri Haukur Ingibergs-
son. Veröur hér á eftir stuttlega
drepið á það, sem til stendur að
gera i tilefni afmælisins.
Hannað hefur verið sérstakt
merki, sem samvinnuhreyfingin
mun nota á afmælisárinu. A þvi
eru eftirfarandi einkunnarorð:
„MATTUR HINNA MÖGRU”
táknræn fyrir eðli samvinnu-
hreyfingarinnar, tilgang og starf
á íslandi í 100 ár.
Þá hafa kaupfélögin i hyggju að
fagna afmælinu meö þvi að hafa
„opið hús”, hvert á sinu félags-
svæöi, á afmælisdaginn 20. febrú-
ar.
Kaupfélag Þingeyinga mun
halda stjórnarfund á „ættaróðal-
inu” Þverá i Laxárdal. Siðar um
daginn tekur félagið á móti gest-
um á Hótel Húsavik. Um kvöldið
heldur starfsmannafélagið árs-
hátið sina.
Aö svo búnu verður afmæl-
ishaldinu frestað til 18. júni i vor.
Þá hefst annar þáttur þess með
alalfundi Sambandsins, sem
haldinn verður á Húsavik 18. og
19. júni. Þar er m.a. gert ráð fyrir
að afgreiða nýja stefnuskrá sam-
vinnuhreyfingarinnar, sem veriö
hefur i undirbúningi i eitt og hálft
ár og margir lagt þar hönd aö
verki. Hinn 20. júni veröur svo
aldarafmælisins minnst með
hátiöarsamkomu að Laugum i
Suðurþingeyjarsýslu.
Unnið verður að ýmsum sér-
stökum verkefnum á afmælisár-
inu og munu þau jöfnum höndum
snerta fortiö, nútiö og framtið.
A þá við að nefna það fyrst, aö
áformað er aö færa „vöggustofu”
Kaupfélags Þingeyinga, fyrstu
verslunarhús þess, i upprunalegt
horf og búa þau svo sem kostur er
gömlum verslunaráhöldum.
Jafnframt þvi, sem húsin verða
þannig einskonar safn, sem
minnir á bernskuárin, verður
mannlifi nútimans ætluð þar vist.
Frá 1. mai til 15. júni munu
starfsmenn og stjórnendur sam-
vinnufyrirtækja vitt og breitt um
land, vinna aö snyrtingu og fegr-
un vinnustaða, utan húss sem inn-
an. Er sú starfsemi skipulögð af
Landssambandi Isl. samvinnu-
starfsmanna og samstarfsnefnd-
inni um afmælishaldið.
Þá munu kaupfélögin, Sam-
bandið og ýmis samstarfsfyrir-
tæki verða með margvislegt og
fjölbreytt tilboö af vörum og
þjónustu i formi lækkaðs vöru-
verös, aukinnar þjónustu o.fl. Til
dæmis mun Kaffibrennsla Akur-
eyrar gefa 40 aura til Fram-
kvæmdasjóös aldraðra, af hverju
kaffikilói, sem selt er frá 20.
febrúar til 20. mars. og einnig i
desembermánuði.
Gert verður sérstakt átak til aö
auka og bæta tengsl samvinnu-
hreyfingarinnar viö almenning.
I undirbúningi er gerö kvik-
myndar- eða videómyndar um
samvinnuhreyfinguna, skipulag
hennar, stefnu og stör/'.út mun
koma bók Andrésar Kristjáns-
sonar, þar sem rakin er 100 ára
saga Kaupfélags Þingeyinga.
Póstur og simi gefur út frimerki
að verögildi 10.00 kr. A frimerk-
inu verður mynd af fyrstu verls-
unarhúsum Kaupfélagsins á
Húsavik.
Loks er að nefna alþjóðlega
fundi samvinnumanna, sem
verða hér á afmælisárinu. Þann
5.-7. mai verður hér fundur
norrænna fræðslufulltrúa. Aðal-
fundur Nordisk Andelsforbund
verður 21. júni. Fundur norrænna
samvinnuskóla 23.-26 júni. Aðal-
fundur Alþjóða samvinnubank-
ans 24.-27. júní. Fundur kvenna-
nefndar Alþjóðasamvinnusam-
bandsins 5.-6. júli.
—mhg
MATTUR HINNA MORGU
UNIFLO
UNIFLO
SI'AKIM BBANDSIOI
VINCMII MOtOKSwlD
SÚP£« PKIMIJM
tfARLR BRÆNDSTOF
•««£ MOTOKSLID
ÍWfR PREMIUM
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Sjávarafurðadeild
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200
Útgerðar-
og verkunarvörur
Höfum fyrirliggjandi fiskumbúðir, veiðarfæri til línu-, neta- og togveiða. Loðnu-,
rækju- og síldarflokkunarvélar. Fiskþvottavélar, slægingarvélar, sjálfvirkar bindi-
vélar og fjölbreytt úrval tækja og áhalda til fiskverkunar.
Erum innflytjendur á salti, striga, hjallaefni o.fl. Leitið nánari upplýsinga.
Kynnist viðskiptunum af eígin raun.