Þjóðviljinn - 05.03.1982, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 05.03.1982, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. mars 1982 Aðalfundur Verzlunarbanka íslands hf. verður haldinn i Súlnasal Hótel Sögu, laugar- daginn 13. marz 1982 og hefst kl. 14.00 Dagskrá: 1. Aðalíundarstörf skv. 18 grein samþykktar fyrir bankann. 2. Tillaga um útgáfu Jöfnunarhlutabréfa. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra i afgreiðslu aðal- bankans Bankastrætiö, miðvikudaginn 10. marz, fimmtudaginn 11. marz og föstu- daginn 12. marz 1982 kl. 9.15—16.00 alla daga. Bankaráð Verzlunarbanka íslands hf. PéturO. Nikulásson, formaður. Atvinna Stjórn Rannsóknarstofu mjólkuriðnaðar- ins óskar að ráða starfsmann til að veita forstöðu rannsóknarstofu, er hafi sem aðalverkefni efna- og júgurbólgurann- sóknir fyrir mjólkursamlögin og naut- griparæktarfélögin i landinu. Æskilegt er, að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, berist til Ólafs E. Stefánssonar, Búnaðarfélagi íslands, Bændahöllinni, fyrir 14. marz 1982. Garðabær og nagremu Starfsfólk vantar i heimilishjálpina i Garðabæ. Upplýsingar i sima 45022. Félagsmálaráð Garðabæjar. Aðalfundur prentsmiðju Þjóðviljans verður haldinn þriðjudaginn 9. mars kl. 18 að Grettisgötu 3. Fundarefni: Prentun Þjóðviljans og venjuleg aðalfundarstörf. Þessi fundur er haldinn samkv. 16. gr. fé- lagssamþykktar, en aðalfundurinn 1. mars ’82 varð ekki ályktunarhæfur. Stjórnin FRAMLEIÐUM BRAUÐKÆLA ÖL- OG GOSDRYKKJAKÆ LA og önnur frysti- og kælitæki sími 50473 SÍroBlvmrh Reykjavíkurvegi 25 Hafnarfirði • Blikkiðjan Ásgarði 7/ Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 Upplýslnga- herferð SAL Llfeyrissjóöalán, ellillfeyrir, örorkullfeyrir, verötryggður llf- eyrir, makalifeyrir, barnallfeyr- irog umsjónarnefnd eftirlauna — hvað skyldi þetta allt vera? Upp- lýsingar um það má m.a. fá I bæklingi, sem Samband al- mennra lifeyrissjóöa hefur látið prenta I fimmtiu þúsund eintök- um og er nú I óðaönn við að dreifa til launafólks og atvinnurekenda innan þeirra sjóöa sem eiga aöild að Sambandi almennra lifeyris- sjóða. Talsmenn sambandsins segjast hafa orðið varir við að talsvert margir búa ekki yfir nægilega mikilli vitneskju um sinn lifeýris- sjóð og þau réttindi, sem menn geta sótt þangað. Þvi hefur Sam- bandið komið á þessari upplýs- ingarherferð. Upplýsingabæklingunum verð- ur dreift á velflesta vinnustaði. Einnig má nálgast hann á skrif- stofu Sambands almennra lifeyr- issjóða að Suðurlandsbraut 30. Siminn þar er 84977. Eftirtaldir sjóðir eiga aðild að Sambandinu: Lifeyrissjóður ASB og BSFl, lifsj. byggingamanna, llfsj. Dagsbrdnar og Framsókn- ar.lfsj. Félags garðyrkjumanna, lfsj. Landssambands vörubif- reiöastjóra, lfsj. Málm- og skipa- smiða, lfsj. Nótar, lfsj. rafiðnað- armanna, lfsj. verksmiðjufólks, lfsj. Vesturlands, lfsj. Bolungar- vikur, lfsj. Vestfirðinga, lfsj. verkamanna, Hvammstanga, lfsj. stéttarfélaga i Skagafirði, lfsj. Iðju á Akureyri, lfsj. Samein- ing, lfsj. trésmiða á Akrueyri, lfsj. Björg, lfsj. Austurlands, lfsj. Vestmannaeyja, lfsj. Rangæinga, lfsj. verkalýðsfélaga á Suður- landi, lfsj. verkalýðsfélaga á Suð- urnesjum, lfsj. verkafólks i Grindavik og lfsj. Hlifar og Framtiðarinnar. Bílbeltfn og slysin Umferðarráð hetur látið frá sér fara bráða- birgðaskráningu um- ferðarslysa fyrir árið 1981 ásamt samanburðar- skýrslum við fyrri ár. í bréfi umferðarráðs kem- ur fram, að á árinu 1981 slösuðust ,,aðeins" 260 menn alvarlega, og er það lægsta tala frá því skilgreining su er nú er notuð um hvað beri að telja alvarleg meiðsli, var tekin upp. Umferðarráð vill ekki benda á neina einhlita skýringu á þessari fækkun, en telur n.v. fullvíst, að aukin notkun bilbelta á árinu eigi hér einhvern hlut að máli. / Ymsu er ábótavant Sjúkraflutningar á íslandi: segir í skýrslu sem Eggert Ásgeirsson hefur unnið fyrir landlækni Ct er komin skýrsla sem Egg ert Asgeirsson hefur unnið fyrii landlækni um sjúkraflutninga héi á landi. f skýrslunni eru tillögui um fyrirkomulag sjúkraflutn inga, sem lið i bráðaþjónustii landsmanna og niðurstöður könn unar á fyrirkomulagi sjúkraflutn inga á hinum ýmsu stöðum i landi. Þá kemur og fram i skýrslunni, að ýmsu er ábótavanl i sjúkraflutningum hér á landi t skýrslunni kemur fram að sjúkraflutningum er sinnt á meginhluta landsins, en hins- vegar er fyrirkomulag allt og rekstur mjög mismunandi milli byggða. Yfirleítt er sérþjálfun sjúkraflutningamanna ekki nægi- lega vel sinnt og bifreiðar ekki búnar tækjum svo sem æskilegt væri. Bent er á að með bættu skipulagi, markvissri þjálfun starfsmanna og sjúkraflutn- ingum sem búnir séu við hæfi megi bjarga mannslifum. Þá er bent á nauðsyn þess að samræma rekstur og vinna að heildarskipu- lagi sjúkraflutninga sem lið i bráðaþjönustu sem uppfylli viss- ar lágmarkskröfur um landið allt. Kúbuvinir f jölmenna til Havana A sameiginlegum fundi Vináttufélaga Norðurlandanna og Kúbu sem haldinn var i Helsinki 20.-21. febrúar s.l. var ákveðið að senda stærri hóp til Kúbu en nokkru sinni fyrr á kom- andi sumri eða 220-230 manns. Félögin hafa staðið fyrir sam- eiginlegum hópferðum i 12 ár og er tilgangur þeirra að efla sam- stöðu og skilning meö kúbönsku byltingunni á Norðurlöndum. Is- lenski hópurinn mun verða stærri en nokkru sinni fyrr þetta áriö eða 25-30 manns. Fundurinn i Helsinki ályktaði að stuðningur við kúbönsku bylt- inguna væri mikilvægari nú en nokkru sinni vegna yfirgangs Bandarikjanna á Karibahafinu og i Mið-Ameriku og þess mikla hættuástands sem skapast hefði i þessum heimshluta af þeim sök- um. Enn er möguleiki fyrir þá sem áhuga hafa aö sækja um þátttöku i ferðinni 23.6.-24.7. n.k. Kostnað- ur er áætlaður 8000 kr. Umsóknir sendist til Vináttufélags Islands og Kúbu pósthólf 318 Reykjavik. Rannsóknastofnun vitundarinnar: Námskeið í mars Geir Viðar Villijálmsson, sál- fræðingur, er leiðbeinandi á náinskeiðum nú i mars, á vegum Kannsóknastofnunar vitundarinnar. Þar verður J fjallað um leiðir til þess að efla I skynjun á sálarlifinu, losun ■ spennu I mannlegum sam- I skiptum og samskipti sálarlifs L’ við likama og samfélag. Fólk sem hefur sótt námskeið áður hefur tækifæri á þátttöku sérstöku námskeiði og einnig er fyrirhugaður hópur fyrir hjón og sambýlisfólk. Þeir sem áhuga hal'a á að skrá sig á þessi námskeið þurfa að hafa samband við Geir Viðar á Hótel Loftleiðum en þar verða námskeiðin haldin. ,1 (Fréttatilkynning) J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.