Þjóðviljinn - 01.04.1982, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 01.04.1982, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. april 1982 Jónas Ingimundarson og Gunnar Björnsson leika saman á sföustu Há skólatónleikum vetrarins. Síðustu Háskólatónleikarnir í vetur: Tónskáld sólkonungsins 15. og siöustu Háskólatónleikar vetrarins veröa i hádeginu á morgun, föstudaginn 2. apríl, i Norræna húsinu. Sr. Gunnar Björnsson úr Bolungarvik og Jón- as Ingimundarson leika saman á selló og pianó 3 verk frá 18. og jafnvel 17. öid. í fyrsta lagi er verk eftir franska tónskáldiö Marin Marais (1656 - 1728). Sá hefur nú spilað i Versölum, þvi aö hann var viólu- leikari viöhiröLúövíks 14. og 15. i hvorki meira né minna en 42 ár (1685 - 1727). 1 ööru lagi er sónata eftir einn af ensku Eccles eöa Eagles tón- listarfjöiskyldunni, Henry Eccles (1670 - 1742). Hann var fiölari viö hirö Vilhjálms 3. 1689- 1715, en fór þá til Frakklands. Loks eru 12 tilbrigði eftir Beet- hovenum stef úr óratóriunni Júd- as Makkabeus eftir IlSndel.sam- in 1796. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30, standa i rúmlega hálfa klukku- stund, eru öllum opnir fyrir 20 - 30 kr. eftir standi. Búvörudeild SÍS: Minnkandi útflutningur Heildarsala Búvörudeildar StSnam um 412,9 milj. á siöasta ári. Er það um 21,6% aukning frá árinu áöur. Skiptist þetta þannig, aö útflutningur var 182,0 milj., innanlandssala 195,6 milj. og sala Kjötiönaöarstöövar 35,3 milj. Þessar upplýsingar komu fram á ársfundi Samstarfs- nefndar Búvörudeildar, sem ný- lega var haldinn. Fundinn sóttu fulltrúar frá öllum afurðasölu- félögunum auk fulltrúa starf- andi bænda. A fundinum gáfu þeir skýrslur um starfsemi lið- ins árs Ólafur Sverrisson, kaup- félagsstjóri og formaður Sam- starfsnefndarinnar og Agnar Tryggvason, framkv.stj. Bú- vörudeildar. Verulegur samdráttur varð á útflutningi milli áranna 1980 og 1981, eöa úr 8576 lestum fyrra árið i 6740 lestir hið siöara. Sölu- aukning deildarinnar náði ekki meðallagi og stafar af tvennu: minnkuðum útflutningi á kjöti og osti og sölusamningar i ýms- um greinum hafa fallið misjafn- lega á tvö undanfarin ár. Kindakjötsframleiðslan sl. haustnam 14.200 lestum. Þar af voru um 74% hjá sláturhúsum innan vébanda Sambandsins. Aukning frá fyrra ári var um 5%. Þorskanet frá Portúgal Portdgalir munu kaupa af • okkur saltfisk I ár fyrir um 1 I miljarö kr. Vilji er fyrir þvi hér I á landi aö auka á móti innflutn- , ing frá Portúgal og munu Sam- ■ bandið og Landssamb. isl. út- I vegsmanna flytja inn töluvert af portúgölskum þorskanctum. , Aðsögn Guömundar Ibsen hjá • Sjávarafurðadeild hafa þessir | aðilar snúið sér til fyrirtækis i I Oporto, sem nú hefur tekið upp . framleiðslu á þorskanetum fyr- I ir Islendinga, i töluveröum mæli og m.a. endurnýjað vélakost sinn að verulegum hluta af þeim sökum. Sambandið hóf raunar sölu á portúgölsku netunum i fyrra vetur. Þóttu þau gefast vel svo aö búast má við aukinni sölu i ár. Engan toll þarf að greiða af ■ þessum netum þar sem Portú- gal er EFTA-land. Trúlegt er talið að SIS og LtO muni selja um 25 þús. net frá Portúgal i ár. Hingað til höfum við einkum keypt þorskanet frá Japan og Suður-Kóreu en siðari árin einn- ig frá Taiwan og litils háttar frá Hong-Kong og Kina. — mhg Vegna landbúnaðarframtalsins: LEIÐBEININGARIT út er komið leiöbeiningarit fyrir bændur vegna landbúnað- arframtaisins. Er þaö KetiII A. Hannesson, hagfræöiráöunaut- ur Búnaöarfélags tslands sem tekiö hefur ritiö saman. I skýringum sinum tekur Ket- ill fyrir imyndað bú. Er það blandað: 19kýr, 200 ær, 20 hross og 35 hænur. Talsverð fjárfest- ing var á búinu á árinu. Bæði hafa hjónin tekjur af annarri at- vinnu. Búið er látið koma vel út til að sýna leiðir til lækkunar á skattskyldum tekjum. Bæklingur þessi er önnur út- gáfa á leiðbeiningum fyrir bændur vegna framtals. Nokkr- ar breytingar hafa orðið á fram- talseyðublöðum og hefur þvi orðið að miða leiöbeiningarnar við það. Þá eru dæmin og ein- faldari en áður. Það ætti þvi að vera tiltölulega auðvelt að telja rétt fram fyrir þá, sem notfæra sér þessar leiðbeiningar. Bæklingurinn fæst hjá Bún- aðarfélagi Islands og nokkrum kaupfélögum viðsvegar um landið og svo hjá útgefandan- um. — mhg Fyrsta íslenska kvikmyndin í ,,Dolbý stereó” frumsýnd um páskana: Um páskana verður stór- atburður í íslenska popp- heiminum og einnig í ís- lenskri kvikmyndagerð. Þá verður frumsýnd i Tóna- bíói kvikmyndin Rokk í Reykjavík, en vinnsla hennar er nú á lokastigi. Ekkert hefur verið til Úr kvikmyndinni: Bjarni í Sjálfsfróun á fullu. Rokk sparað til að gera myndina sem best úr garði og verður þetta t.d. fyrsta ís- lenska kvikmyndin sem tekin er í Dolby-stereó. Hvorki meira né minna en 24 tima efni var tekiö upp og er nú búið að klippa það niður i tæpa tvo tima. Tólf kvikmyndatökumenn, bæði innlendir og erlendir, lögöu hönd á plóginn og til þess að ' tryggja gæði klippingarinnar var fengin aðstoð frá Englandi og Bandarikjunum. Tónlistin var tekin upp I átta rásir og stjórnaði Stúdió Þursabit upptökunni. Hljóðblöndunin var i höndum Al- an Snelling hjá Anvil-Road Studi-* os I London en til gamans má geta aö sömu aöilar sáu um hljóðið fyrir myndirnar „Star Wars”, „The Empire Strikes Back” og „Flash Gordon” svo að hér eru ekki neinir aukvisar á ferð. Upptökur fóru fram á um 30 stöðum viðs vegar á Stór-Reykja- vikursvæðinu, á konsertum, i æf- ingahúsum og viðar. í myndinni koma fram allar helstu rokk- hljómsveitir okkar og má þar 1 Reykj avík nefna Baraflokkinn, Start, Grýl- urnar, Egó Bubba Morthens, Þursaflokkinn, Frikryk, Q4U, Þey, Tappa Tikarrass, Bodies, Mogo Homo, Bruna BB. Spilafifl, Sjálfsfróun, Vonbrigði, Jonee Jonee, Purrk Pillnikk, Fræbbbl- ana o.fl. Framleiðandi myndarinnar Rokk i Reykjavik er Hugrenn- ingur sf. en eigendur þess eru Ari Kristinsson, Friðrik Þór Frið- riksson, Jón Karl Helgason og Þorgeir Gunnarsson. Þess má geta aö fyrirtækið hefur gert eina kvikmynd áður. Það er Eld- smiðurinn, sem sýnd var i Sjón- varpinu nýlega og fékk góða dóma. — GFr I j Lögin úr myndinni Rokk í Reykjavík: ! Tvöföld plata væntanleg j Um páskana veröur langþráö mynd um rokk I Reykjavik frumsýnd I Tónabió. En þaö veröur ekki bara kvikmyndin, heldur er nú einnig væntanleg tvöföld hljómplata meö upp- runalegri tónlist úr henni. Þær hljómsveitir sem eiga lög á plötunni eru: Þeyr, Ego, Fræbbblarnir, Purrkur Pill- r.ikk, Q4U, Bodies, Baraflokkur- inn, Grýlurnar, Jonee Jonee, Sjálfsfróun, Tappi Tikarrass, Þursaflokkurinn, Mogo Homo. Friðryk, Spilafifl, Start, Von- brigði, Bruni BB, og Sveinbjörn Beinteinsson rimnaskáld. Má búast við að skífur þessar verði góður þverskurður af Rokktónlist á Islandi i dag og verði ennfremur merkur safn- gripur er fram liða stundir. Út- ■ gefandi er Hugrenningur sf. Er góði gæiim góður eða má löggan gera hvað sem er? Kvikmynd: The Seven-ups Leikstjóri: Philip D’Antoni Handrit: Albert Ruben og Alexander Jacobs Kvikmyndataka: Urs Furrer Meöal leikenda: Roy Scheider, Tony Lo Biancho, Victor Arnold, Ken Kercheval. Sýningarstaöur: Nýja bió. Þaö er býsna algengt viöhorf i þeim bandarisku kvikmyndum, sem hér eru best sýndar, aö góöi gæinn megi drepa vonda gæjann, af þvi vondi gæinn átti þaö svo sannarlcga skiliö. Hann var nefnilega svo svakalega vondur. Og liklega falla flestir kvik- myndahúsagestir i sömu gryfju og ég, þegar þeir horfa á myndir á borö viö The Seven-Ups (vel á minnst: var ekki hægt aö Islenska heiti myndarinnar?) aö taka viö þessu viöhorfi (og reyndar mörg- um öörum) sem góöri og gildri vöru. Ef viö geröum þaö ekki, nytum viö ekki myndarinnar og spenningurinn, sem hiýtur aö vera aöal myndarinnar og aö- dráttaraf! færi fyrir bi. Og þá væri nú litiö gaman aö fara i bió. Meira að segja ómerkilegustu spennumyndir verða þannig aö höfða til okkar áhorfendanna á einhvern veg, til þess aö við get- um tekiö viö myndinni eins og til er ætlast, að öðrum kosti þætti okkurmyndin hlægileg eöa leiöin- leg. En ég verð aö segja það alveg eins og er, að ég naut alls ekki myndarinnar The Seven-Ups á þennan hátt. Og vantar þó ekkert I söguþráðinn til að gera hana spennandi: lögreglumaðurinn Buddy reynir að klófesta okurlán- ara og notfærir sér æskuvináttu viö mafiósa nokkurn — sem aftur skyni aö drepa vonda bófann meö köldu blóöi — en góöa löggan hef- ur auövitaö góöan málstaö aö verja — ekki satt? á móti misnotar sér trúnaöar- traust löggunnar til að klekkja á felögum sinum hinum mafiósun- um. Málið fer i einn allsherjar hnút, sem veldur góðu löggunni talsverðum heilabrotum — en upp komast svik um siðir, og allir bóf- arnir fá makleg málagjöld, sendi- tikur æskuvinarins, mafiósans eru drepnar, og hann sjálfur hlýt- ur enn verri örlög. Þetta gæti sem sagt orðið geysispennandi. Hvað er þá aö? Góða löggan heyrir til harðsvír- aðri deild innan lögreglunnar, sem heitir The Seven-Ups. Deild- in sú kallar nú ekki allt ömmu sina, eins og gefur að skilja, og beitir hinum margvislegustu brögðum til að ná i alls kyns stór- glæpamenn og veita þeim makleg málagjöld. Góðu löggurnar hika ekki við að skjóta á vondu bófana og drepa þá án dóms og laga ef þurfa þykir — og ég er alls ekki reiðubúinn aö kyngja sliku. Ég er ekki ýkja hrifinn af þvi að löggan hagi sér eins og ótindur glæpon, hversu góður sem málstaður hennar kann að vera og þaö jafn- vel þótt aöeins sé um kvikmynd að ræða! Þegar þar við bætist að kvik- myndin The Seven-Ups er ekkert óskaplega góð, leikurinn langt fyrir neöan meöallag, tónlistin truflandi (en ætti, vel að merkja að ýta undir þá spennu, sem verið er aö reyna aö magna fram af öll- um lifs og sálar kröftum) — ja, þá er varla nema von að ég hafi orðið fyrir vonbrigöum. — jsj.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.