Þjóðviljinn - 01.04.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.04.1982, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 1. april 1982 ÞJóDVILJINN — SÍÐA 11 íþróttír (2 íþróttir g] íþróttir g Góð staða Liver- pool og Ipswich Liverpool og Ipswich standa nú mjög vel aö vigi i 1. deild ensku knattspyrnunnar. t fyrrakvöld unnu þau góöa sigra, Liverpool vann Birmingham 3:1 og Ipswich vann Brighton, einnig 3:1. Þau eru nú i ööru og þriöja sæti 1. deildar meö 57 stig hvort eftir 30 leiki en Southampton er efst meö 58 stig eftir 33 leiki. Ian Rush 2 og Terry McDermott skoruöu mörk Liverpool en Mick Harford svar- aöi fyrir Birmingham. Alan Brazil skoraöi tvö mörk fyrir Ips- wich og John Wark eitt, Mick Robinson fyrir Brighton. Huddersfield-Newport ... ... 2:0 Lincoln-Burnley ... 1:1 Oxford-Gillingham ... 1:1 4. deild Colchester-Crewe ... 1:1 Hartlepool-Rochedale .... ... 1:1 Heref ord-Bournem ... 1:2 Scunthorpe-Stockport .... ... 0:0 Sheff. Utd.-Bradford C ... ... 1:1 Wigan-Blackpool ... 2:1 tirslit i gærkvöldi og kvöld: fyrra- 1. deild Aston Villa-V.B.A ... 2:1 Ipswich-Brighton ... 3:1 Liverpool-Birmingham .. ... 3:1 Swansea-West Ham ... 0:1 2. deild Cardiff-Grimsby ... 2:1 Luton-Orient ... 2:0 Newcastle-Cr. Palace .... ... 0:0 Shrewsbury-Leicester ... ... 1:1 3. deild Chester-Wimbledon ... 1:1 Fran^ois Van der Elst skoraöi sigurmark West Ham i Swansea. Andy King náöi forystunni fyrir WBA en Gary Shaw og Peter Withe tryggöu Aston Villa sigur. Dave Clement látinn Dave Clement, sem lengi var bakvörður hjá QPR og lék fimm landsleiki fyrir England á árunum 1976—77, fannst i gær stunginn til bana i ibúö ættingja sins i London. Lögreglan telur aö hann hafi sjálfur ráöiö sér bana. Clement lék lengst af meö QPR en siöan meö Fulham, Bolton og Wimbledon og þótti einn besti bakvöröur i ensku knattspyrn- unni um árabil. —vs Fyrsti landsleikur Jóns Kr. Gíslasonar — þegar körfuknattleikslandslið íslands og Englands mætast í Höllinni annað kvöld Þeir tólf leikmenn sem leika fyrsta landsleikinn gegn Eng- lendingum i körfuknattleik annaö kvöld voru útnefndir i gærkvöldi. Landsliöshópurinn er skipaöur 14 leikmönnum svo tveir hvila i hverjum leik. Þeir Hjörtur Odds- son, IR, og Viöar Vignisson, IBK, hvila annaö kvöld og er þá lands- liöiö skipaö eftirtöldum leik- mönnum; landsleikir innan sviga: Jón Sigurösson KR (107), Torfi Magnússon Val (67), Simon Ölafsson Fram (57), Rikharður Hrafnkelsson Val (51), Jónas Jó- hannesson Njarövik (49), Kristj- án Agústsson Val (41), Guösteinn Ingimarsson Fram (22), Valur Ingimundarson Njarðvik (15), Axel Nikulásson IBK (7), Jón Steingrimsson Val (5), Pálmar Sigurðsson Haukum (3) og Jón Kr. Gislason IBK (0). Jónas leik- ur þvi sinn 50. landsleik en Jón Kr. sinn fyrsta. Fyrsti landsleikurinn i þessari tslandsferð Englendinganna verður i Laugardalshöllinni ann- aö kvöld, föstudagskvöld, og hefst kl. 19. Sá annar i rööinni veröur i Borgarnesi kl. 14 á laugardag og sá þriðji og siöasti i Keflavik á sunnudag kl. 14. — VS FRAM varö i gærkvöldi bikarmeistari i handknattleik kvenna er liöiö sigraöi 1R i Laugardalshöllinni ineö 19 mörkunt gegn 9 i úrslitaleik. A þessari mynd Þrastar, nemanda úr MA sem er i starfskynningu á Þjóöviljanum þessa dagana, er eitt marka Fram I uppsiglingu. Valsmenn flengdu bíkarmeístarana! Valur sigraöi Þrótt i bikar- keppni IISÍ i Laugardalshöllinni i gærkveldi meö markatölunni 28:17. i hálfleik var staöan 15:8 fyrir Val. Nú eru bikarmeistarar Þróttar úr leik og Valsmenn koinnir i 4-liöa úrslit i keppninni. Þróttur byrjaði leikinn með þvi að skora fyrsta markið en Vals- menn svöruðu fljótt með 4 mörk- um og héldu siðan forystunni, það sem eftir var af leiknum. Eftir hálfleik tóku Þróttarar sig á og minnkuðu muninn um nokkur mörk. Valsmenn létu þó það ekki á sig fá, og skoruöu siðan hvert markið á fætur öðru. Þorbjörn Guðmundsson stóð sig með af- brigöum vel i þessum leik, skor- aði langflest mörkin fyrir Val en þau voru 8. Friörik Jóhannsson var lika mjög góöur, sérstaklega i siðari hálfleik, en hann skoraöi 5 mörk. Þorlákur Kjartansson markmaður stóð sig mjög vel varði hvert skotið á fætur öðru. Sigurður Sveinsson Þrótti, skoraði flest mörkin fyrir Þrótt, 5, og var hann tvimælalaust besti ’eikmaður þeirra. Leikurinn var frekar slappur i fyrri hálfleik en varð betri i seinni hálfleik. Hagnhiidur og Steinunn Asgeirsdætur.nemendur í starfskynningu. Blika-stúlkur til Danmerkur Islandsmeistarar Breiða- bliks i kvennaknattspyrnu fara til Danmerkur um hvita- sunnuna og taka þar þátt i alþjóðlegu móti. Þar verða meðal þátttakenda Danmerk- urmeistararnir i kvennaknatt- spyrnu og lið frá Noregi, Bandaríkjunum, Hollandi, Póllandi og Portúgal. —VS .J eitt og annað...eitt og aimað... eitt og annað... ; Fyrsta mark Asgeirs Asgeir Sigurvinsson skoraöi sitt fyrsta mark fyrir lið sitt, vestur- þýska knattspyrnustórveldiö Bayern Munchen, i fyrrakvöld er Bayern sigraöi Nurnberg 3-0 á útivelli i deildakeppninni. Asgeir lék I staö hins fræga Paul Breitner á miöjunni, átti mjög góöan leik og skoraöi þriöja markiö á laglegan hátt. Bayern er nú efst I V-Þýskalandi meö 36 stig, Köln hefur 34 og Hamburger 33. Reykjavikurmótið að hef j- ast... Reykjavikurmótiö i knatt- spyrnu hefst á laugardaginn kemur kl. 14 meö leik Vfkings og KR á Melavellinum. Ármann og Fylkir leika á mánudag kl. 18.30 og Valur og Fram á þriöjudag á sama tfma. Núverandi Reykja- víkurmeistarar eru Fylkismenn. „Bráöabaninn” svokallaöi, sem notaöur var til reynslu i mótinu i fyrra, hefur veriö lagöur niöur en áfram veröur gefiö aukastig þvi liöi sem skorar þrjú mörk eöa fleiri i leik. kvennaf lokki veröur I fyrsta ...lika Og nú veröur i fyrsta sínn haldiö Reykjavikurmót i kvenna- knattspyrnu utanhúss. Þaö hefst á sumardaginn fyrsta, fimmtu- daginn 22. april, meö leik Vals og Leiknis á Melavelli kl. 16. „ Mini',-knattspyrna A siöastliönu sumri geröi Knattspyrnuráö Reykjavikur til- raun meö nokkur mót I svonefndri mini-knattspyrnu fyrir 10 ára og yngri. Þar er leikiö þvert á venju- legan knattspyrnuvöll meö sjö leikmönnum i liöi. Sú tilraun þótti takast þaö vel aö slíkum mótum veröur haldiö áfram fyrir þann aldurshóp. Hér er örugglega um rétta stefnu aö ræöa i málefnum yngstu flokkanna þar sem knatt- spyrnuvöllur i fullri stærö meö 2,40 m háum og 7 m breiöum mörkum er ekki raunhæfur fyrir þá yngstu sem eru aö stiga sin fyrstu skref á knattspyrnuferl- inum Fimm KR-ingar i ung- lingalandsliðinu Unglingalandsliöshópur I körfuknattleik, skipaöur leik- mönnum fæddum 1965' og 1966, var valinn fyrir skömmu.og eru i honum 20 leikmenn. Þeir eru þessir: Birgir Mikaelsson, Jó- hannes Kristbjörnsson, Matthias Einarsson, ólafur Guömundsson og Páll Kolbeinsson úr KR. Eyþór Arnason, Henning Henningsson og Kristinn Kristinsson úr Haukum, Björn Zoéga, Einar ólafsson og Tómas Holton úr Val; Lárus Thorlacius og Þorkell Andrésson úr Fram; Hrannar Hólm og Jón Ben Einarsson úr Keflavik, Björn Axelsson og Jó- hann Bjarnason úr Skallagrimi; Björn Steffensen, IR; Isak Tómasson, Njarövik og Jóhann Sigurösson, Þór Akureyri. Æfingar þessa hóps undir stjórn Einars Bollasonar miöast viö Noröurlandamótiö i Danmörku i janúar á næsta ári og til undir- búnings fyrir þaö er áætlaö aö fara i keppnisferö til Irlands eöa Hollands i nóvember. Aö sögn Einars er hér um geysiefnilega árganga aö ræöa sem mikils má búast viö af i framtiöinni. Innanhússmeistaramót i sundi 2.—4. apríl Innanhússmeistaramót Islands i sundi veröur haldiö i Sundhöll Reykjavikur um næstu helgi, dagana 2.—4. april. Hátt á 200 keppendur eru skráöir til keppni i samtals .24 greinum. Skráningar eru um 360. og er þetta eitt fjöl- mennasta sundmót, sem haldiö hefur veriö hérlendis. Þátttak- endur eru frá 12 sundfélögum eöa deildum á 10 stööum. Keppendur eru nú i fyrsta skipti á sliku móti frá Bolungarvlk og Isafiröi a.m.k. um langt árabil. Akveöiö hefur veriö aö taka þátt I Noröurkollumótinu, sem haldiö veröur i bænum Kemi i Finnlandi 17.-18. aprll, og munu úrslit á mótinu nú geta ráöiö vali keppenda á þaö mót. Aö undan- förnu hefur hópur 15—17 sund- manna æft sem landsliöshópur fyrir Noröurkollumótiö. Víkingar sigruðu í þremur f lokkum Keppni er nú lokiö i öllum yngri flokkum, nema 2. flokki karla á Islandsmótinu i handknattleik. Orslitaumferöirnar fóru fram um siöustu helgi og i efstu sætum flokkanna uröu eftirtalin félög: 2. flokkur kvenna: 1. Vikingur 2. IR, 3. KR. 3. flokkur karla: 1. Valur, 2. Vik- ingur, 3. HK. 3. flokkur kvenna: 1. Vikingur, 2. 1R, 3. Haukar. 4. flokkur karla: 1. Vikingur, 2. KR, 3. Haukar. 5. flokkur karla: 1. KR,2. KA, 3. Fylkir. Vikingar hafa þvi komiö best út i yngri flokkunum, sigraö i þremur þeirra. Úrslitakeppnin i 2. fiokki fer fram i tveimur hlutum. Fyrri um- feröin veröur leikin I Hafnarfiröi um næstu helgi, 2.-4. april, en sú siöari I Vestmannaeyjum dagana 16.—18. april. F — VS oe annað • aa

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.