Þjóðviljinn - 01.04.1982, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. aprll 1982
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið i Hafn
Hvert ber að stefna?
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði
heldur opinn fund i Gaflinum
Dalshrauni 13, mánudaginn 5.
april kl. 20.30. Fluttar verða stutt-
ar framsöguræður um eftirtalin
efni:
tþróttamál — Æskulýösmál —
Skólamál — Menntamál
Kristinn Þorsteinsson nemi: Al-
menningsiþróttir — keppnis-
iþróttir.
Magnús Jón Árnason kennari:
Hvernig er búið að unglingum i
Hafnarfirði?
Gunnlaugur R. Jónsson kennari:
Aðstaða skólanna i Hafnarfirði.
Sigrún Guðjónsdóttir myndlistar-
maður: Er Hafnarfjörður menn-
ingarbær?
Að framsöguræðum loknum verð-
ur skipt upp i fjóra umræðuhópa.
Umræðustjórar verða Sigurður
Kristjánsson fulltrúi, Guðmundur
Rúnar Arnason, nemi, Hólmfrið-
ur Arnadóttir talkennari, og
Hulda Runólfsdóttir kennari.
Fundarstjóri verður Ægir Sigur-
geirsson kennari.
Hafnfirðingar f jölmennið og takið
þátt i að móta stefnuna.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsfundur verður i Eiðsvallagötu 18 fimmtudaginn 1. april kl. 21.00.
Þar verða óformlegar umræður um stjórnmál út frá spurningunni
„hvað vilt þú og hvers vegna”. Einnig skoðanaskipti um stjórnmál al-
mennt og merkingu orðtaka þeim viðvikjandi. Hittumst heil.
Stjórnin.
AB Selfoss og nágrennis
Opið hús verður að Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardaginn 3. april kl. 2 e.h.
Dagskrá:
Gamanmál, Sigurgeir H. Friöþjófsson.
7
Kaffiveitingar.
Félagsmenn og stuðningsmenn eru hvattir til aö f jölmenna.
Stjórnin
Aðalfundur 1. deildar Alþýðubandalagsins i
Reykjavik (vesturbæjardeild)
Aðalfundur 1. deildar Alþýðubandalagsins I Reykjavik verður haldinn
fimmtudaginn 1. april ki. 20:30 aö Grettisgötu 3.
Ilagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf
2) Undirbúníngur borgarstjórnarkosninga. Olfar Þormóösson
kosningastjóri ABR
Mætum öll.
Stjórn 1. deildar ABR
Miðstjórnarfundur
Fundur verður haldinn i miöstjórn Alþýöubandalagsins föstudaginn 2.
og laugardaginn 3. april n.k. og hefst hann fyrri daginn kl. 17.00 I sal
starfsmannafélagsins Sóknar að Freyjugötu 27.
Dagskrá:
1. Stjórnmálaviöhorfið.
2. Skýrsla flokksstarfsnefndar.
3. Onnur mál.
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum
Aiþýðubandalagið á Egilsstöðum hefur opnað kosningaskrifstofu að
Tjarnarlöndum 14. Verður skrifstofan opin fyrst um sinn mánudags-,
þriöjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 20.30 til kl. 22.30. Stuðnings-
menn G-listans eru hvattir til að koma til starfa á áðurnefndum tima.
(Kosningasimi auglýstur siðar).
Kostningastjórn.
Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nærsveitum
Félagsfundur verður haldinn laugardaginn 3. april kl. 16.00 að Kveld-
úlfsgötu 25.
Fundarefni:
1. Framboöslisti lagður fram.
2. Starfshópar um dagvistar-, öldrunar- og húsnæðismál skila af sér.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Onnur mál.
Stjórnin.
Lögmenn
Aðalfundur Lögmannafélags Islands
verður haldinn i Átthagasal Hótel Sögu á
morgun, föstudaginn 2. april 1982, og hefst
kl. 13.30.
Árshóf félagsins verður haldið að kvöldi
sama dags á sama stað og hefst kl. 19.00
Stjórnin.
Óiöf syngur
n pp/ / /
Safn a ny
Næstu sýningar á Sigaunabar-
óninum eftir Jóhann Strauss
vcrða n.k. föstudags- og laugar-
dagskvöld, 2. og 3. aprll kl. 20.00.
Veröa þá sýningarnar orðnar 37.
Olöf Kolbrún Harðardóttir er
nú komin úr söngferðalagi sinu til
Bandarikjanna og syngur aftur
hlutverk sigaunastúlkunnar
Saffiar. A meðan ölöf Kolbrún
var vestra söng þýska sópran-
söngkonan Dorothee Furstenberg
hlutverk Saffiar, við feiknagóðar
undirtektir áheyrenda.
Sigaunabaróninn var frum-
sýndur 9. jan. sl. Siðan hafa verið
35 sýningar, ávallt fyrir fullu
húsi.
Hljómsveitarstjóri sýningar-
innar er Páll P. Pálsson.
— mhg
Slær vopnin
Framhald af bls. 1
tillögu fylgi á Alþingi, sagði
Garðar ennfremur.
Jón Helgason alþingismaður
sagði aö það væri rétt að á hlut-
hafafundi i fyrra i Jarðefnaiðnaði
h.f. hefði verið samþykkt að reisa
verksmiðjuna án þátttöku rikis-
ins ef nægjanlegt hlutafé fengist.
Það hefði hinsvegar ekki fengist.
„Auk þess þyrftum við að njóta
þeirrar fyrirgreiðslu, sem er i
lögunum um steinullarverk-
smiðju, öðruvisi gætum við aldrei
reist verksmiðjuna,” sagði Jón.
—S.dór
Fréttamyndír
Framhald af bls. 16
keypt ísienskt efni og eru Kröflu-
eldar gott dæmi, en myndir frá
atburðum við Kröflu voru sendar
til u.þ.b. 70 landa.
Kostnaður við fréttasending-
arnarnemur eitthvað um 160 þús.
krónur á mánuði. Bróðurpartur
þeirrar upphæðar rennur til
Skyggnis.
— hól.
Klofningur
Framhald af 16. siðu.
þannig á þvi að Blönduvirkjun
yröi ekki að veruleika. Hjör-
leifur Guttormsson sagði
hinar nýju tillögur Eyjólfs
ekki vera beint vel til þess
fallnar að flýta fyrir sam-
komulagi. Eyjólfur væri að
leggja til að haldiö yrði út I
óvissuna við Blönduvirkjun.
Visaði hann ásökunum Eyjólfs
um aö hann væri að spilla
samkomulagi til föðurhús-
anna.
— óg
DREGINN ÚT 6. APRIL
Húseign að eigin vali fyrir 700.000." krónur.
Langstærsti vinningur á einn miða hérlendis.
Happdrætti
QG
Nú má enginn gleyma að endurnyja!
ViNNUEFTIRLIT RÍKISINS
Sfðumúla 13, 105 Reykjavík. Sími 82970
LAUSAR STÖÐUR
Lausar eru til umsóknar neðan-
greindar stöður við Vinnueftirlit ríkis-
ins:
UMDÆMISEFTIRUTSMAÐURi
Á SUÐURLANDI
með aðsetri sem næst miðsvæðis í umdæminu.
Umdæmið nær yfir Árnes-, Rangárvalla- og
Vestur- Skaftafellssýslur.
Krafist er staðgóðrar tæknimenntunar a.m.k.
vélstjóra IV. stigs með sveinspróf eða jafn-
gildrar menntunar auk starfsreynslu.
UMDÆMISEFTIRLITS
MAÐUR Á REYKJANESI
með aðsetri sem næst miðsvæðis í umdæminu.
Umdæmið er GuIIbringusýsla, Grindavík,
Keflavik og Njarðvíkur. Krafist er staðgóðrar
tæknimenntunar a.m.k. vélstjóra IV. stigs
með sveinsprófi eða jafngildrar menntunar
auk starfsreynslu.
Umdæmiseftirlitsmenn þurfa að gangast undir
námskeið sem haldin verða á vegum Vinnu-
eftirlits ríkisins.
Launakjör verða samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsreynslu skulu sendar Vinnueftirliti
ríkisins, Síðumúla 13, Reykjavík, eigi síðar en
1. maí nk.
Aðalfundur
Stýrimannafélags
íslands
verður haldinn i Borgartúni 18 laugardag-
inn 3. april kl. 14.00.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin