Þjóðviljinn - 20.04.1982, Qupperneq 9
Þriðjudagur 20. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Salvör Héðinsdóttir við dokkuvélina: „Við erum 6 I gengi og skiptum
mcð okkur verkum...”
Fritz Jörgensen i prjónadeildinni: „Ullarklæðin eru unnin eftir pöntun
fyrir islenskar saumastofur, sem vinna úr þessu tlskuvarning....”
1/2 tonn af
ullarklæðum
1 prjónadeildinni ganga margar
vélar meö talsveröum hávaða og
prjóna fagurlega mynstruð
ullarklæöi af mikilli ákefð. Þar
hittum við Fritz Jörgensen. Hann
segir að þeir prjóni um hálft tonn
af ullarklæðum á sólarhring.
Mynstrið i klæðunum er gert af
klæðahönnuöum Alafoss, en klæði
þessi eru prjónuð eftir pöntunum
frá saumastofum út um allt land
og send þangað tilsniðin, en
sniðaverkstæðið er siðasti áfangi
framleiðslunnar áður en hún er
send út úr verksmiðjunni.
Prjónaklæðin eru notuð i þann
fræga tiskufatnað úr ull, sem á
siðari árum hefur orðið æ mikil-
vægari i iðnaðarútflutningi okkar
Islendinga.
Sex í gengi
á dokkuvél
Salvör Héöinsdóttir vinnur á
dokkuvél, sem tekur við prjóna-
garninu eftir að það hefur veriö
spunnið, þvegið og þurrkað, og
vefur það upp i dokkur, sem hún
pakkar siðan i umbúöir, tilbúnar
á markað. Allt gerist þetta sjálf-
virkt, og vélin vigtar hverja
dokku og kastar af sér þeim sem
eru of þungar eða of léttar.
Salvör sagði aö þær ynnu 6
saman i gengi við dokkuvélina og
skiptu með sér verkum. Það gerir
starfið ekki eins einhæft og þreyt-
andi. Hún sagði aö þær heföu hóp-
bónus, sem væri yfirleitt um 140
kr. á dag, þannig aö kaupiö með
vaktaálagi og bónus gerði á milli
9 og 10 þúsund á mánuði.
Salvör sagðist kunna vel við
þetta starf og verkaskiptin innan
gengisins gerði vinnuna auöveld-
ari.
100 krónur í bónus á dag
Þær Halldóra Jónsdóttir, 25
ára, og Jenný Magnúsdóttir 17
ára höföu snör handtök á spuna-
vélinni þegar okkur bar að, enda
unnið i akkorði við þær eins og
flest önnur störf hjá Alafossi.
Þær sögðust vinna á vöktum,
kl. 8—16 eða 16—24.
Er þetta ekki erfið vinna og ein-
hæf?
Jú vinnan er nokkuð erfið,
eins og öll önnur vinna væntan-
lega er, sögðu þær. Við vinnum
alltaf á þessari sömu spunavél og
framleiðum hespulopa.
Hvernig er kaupiö?
Við vinnum samkvæmt
Iðju-taxta og höfum vaktaálag og
bónus, en hann gerir að meðaltali
um 100 kr. á dag.
Hvernig er bónusinn reiknaður
út?
Þaö er flókið mál, sem við
höfum ekki sett okkur inn i ennþá,
en hins vegar fáum við alltaf að
vita bónusupphæðina frá deg-
inum áður á hverjum morgni.
Þær Halldóra og Jenný mega
ekki vera að því að sinna okkur
blaðamönnum lengur, þvi vélin
æpir á fleiri hespur og hér þarf
hröð handtök...
Halldóra Jónsdóttir og Jenný Magnúsdóttir: „Vaktavinnan er erfið, en bónusinn gefur okkur 100 krónur
á dag...”
Bændasamtökin:
Ferðaþjónusta
A vegum bændasamtakanna
hefur verið opnuð skrifstofa,
sem mun m.a. og fyrst og
fremst veita upplýsingar og
annast fyrirgreiðslu vegna
þeirrar margvíslegu þjónustu,
sem er á stefnuskrá Landssam-
taka f erða þjónus tub ænda.
Upplýsingar veröa veittar um
heimili I sveit, sem vilja taka
ferðamcnn til lengri eöa
skemmri dvalar, hvar hægt er
að fá leigt herbergi með fullu
fæði og hvar sumarbústaöir eru,
sem leigðir eru út á vegum
bænda.
Gefnar verða upplýsingar um
heimili i sveit, sem vilja taka
börn til sumardvalar, gegn
greiðslu. Þá veröur almenn
vinnumiðlun á sveitastörfum
einnig á skrifstofunni.
Skrifstofan mun útvega fólki,
18 ára og eldra, störf á sveita-
býlum á hinum Norðurlönd-
unum og væntanlega einnig i
Frakklandi. Veröur eingöngu
tekiö við umsóknum frá fólki,
sem hefur nokkrar reynslu af
sveitastörfum. Þá mun skrif-
stofan og veita upplýsingar um
möguleika á gistingu i sumar-
bústööum, sem bændur á hinum
Noröurlöndunum eiga og hvar
hægt er þar að fá gistingu á
sveitaheimilum. Skrifstofan
nun ánnast fyrirgreiðslu fyrir
bændafólk, sem vill ferðast i
skipulegum hópferðum, innan-
lands og utan. Einnig verður
erlendum hópum, sem áhuga
hafa á að kynnast Islenskum
landbúnaði veitt fyrirgreiösla,
hvort sem þeir eru á eigin
vegum eða ferðaskrifstofa, er-
lendra sem innlendra.
Ekki er svo til ætlast að þessi
þjónustuskrifstofa starfi sem
almenn feröaskrifstofa. Hún
mun á hinn bóginn hafa gott
samstarf við allar innlendar og
erlendar feröaskrifstofur.
Til að byrja með verður skrif-
stofan opin frá kl. 8—12 en hún
erá 3. hæð i Bændahöllinni, simi
19200. Oddný Björgvinsdóttir
veitir skrifstofunni forstöðu.
—mhg
Ólafur Þ. Jónsson
Listi vinstri
manna
á Þingeyri
Akveðinn hefur verið listi
vinstri manna við hreppsnefndar-
kosningarnar á Þingeyri.
Listannskipa:
1. Ölafur Þ. Jónsson, kennari
2. Ingibjörg Halldórsdóttir,
verkamaður
3. Guðmundur Friðgeir Magnús-
son, formaður Verkalýðsfé-
lagsins Brynju
4. Hermann Guðmundsson, vél-
gæslumaður
5. Davið H. Kristjánsson, flug-
vallarvörður
6. Málfriður Vagnsdóttir, verka-
maður
7. Edda Þóröardóttir, skrifstofu-
maður
8. Gunnar Benedikt Guðmunds-
son, veghefilsstjóri
9. Höskuldur Ragnarsson,
verkamaður
10. Elias Þórarinsson, bóndi
Sveinseyri
Til sýslunefndar: Davið H.
Kristjánsson og til vara Guð-
mundur Friðgeir Magnússon