Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 11
Helgin 1,— 2. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Geðdeildin á Hvitabandi viö Skólavörðustig. Hin nýja B-álma Borgarspitalans. Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi skrifar: Aldraðir Reykvíkingar og Reykjavíkurborg Hópur hinna öldruðu fer stöðugt vaxandi miðað við aðra aldurshópa hér á landi og á það ekki síst við í Reykjavíkurborg. Árið 1970 voru 5211 Reykvík- ingar sjötugir eða eldri og borgarbúar alls tæplega 82 þúsund. Tíu árum síðar voru 7298 Reykvíkingar búnir að ná sjötugsaldri og borgarbúar alls tæplega 84 þúsund. Á þessu tímabili f jölgar hinum öldruðu um rösklega tvö þúsund manns. Þetta er eðlileg afleiðing af bætfu lifsviðurværi, bættum húsakosti og betri heilbrigðis- þjónustu á siðustu áratugum. Efalaust má fullyrða að heilsa þessa hóps sé einnig yfirleitt betri en þeirra sem voru jafngamlir fyrir nokkrum áratugum. I þessum hópi eru margir sem vilja 'hafa einhver störf með höndum utan veggja heimilis sins og allir vilja að sjálfsögðu lifa sfnu persónulega lifi á eðlilegan hátt eins lengi og unnt er i góðum ! tengslum við fjölskyldur sinar eða aðra. Aldurshámark borgar starfsmanna A kjörtimabili núverandi borgarstjórnar hafa ákvæði um aldurshám'ark borgarstarfs- manna verið endurskoðuð og þeim breytt þeim i hag sem gjarnan vilja vinna lengur en til sjötugs og geta það. Nú gildir sú regla að starfs- maður þarf ekki að fara úr stöðu sinni fyrr en hann hefur náð 71 árs aldri. Þgar borgarstarfsmaður, sem er orðinn sjötugur, fer úr starfi sinu, getur hann sótt um vinnu hálfan eða allan daginn hjá einhverri borgarstofnun og ber að svara umsókn hans innan þriggja mánaða. Sé unnt að verða við ósk hans verður hann ráðinn til 73 ára aldurs og við þau aldursmörk er heimilt að framlengja starfið um eitt ár. Maður sem vinnur hálfan dag- inn eftir sjötugt fær jafnframt allar greiðslur sem hann á rétt á úr lifeyrissjóði borgarstarfs- manna, en sá sem fer i fullt starf þarf að fresta töku lifeyris meðan hann gegnir starfinu. Aðstoð í heimahúsum Að þvi kemur hjá flestum að vinnugetan þverr og þá fer jafn- framt að verða erfitt um vik i öðrum efnum. Margir standa einir uppi i ibúð, sem áður var heimili fjölskyldu, og sjaldnast er reynt að byggja upp aftur einhverskonar samfélag meö ætt- ingjum eða vandalausum, sem mér finnst að ætti að vera mögu- leiki. Einangrun og einmanaleiki verður æðioft hlutskipti hins aldraða. Félags og tómstundastarf fyrir aldraða borgarbúa, sem Félags- málastofnun borgarinnar stendur fyrir er tilraun til að lifga upp á fábreytta daga hinna öldruðu. Þessi starfsemi hófst árið 1969 og hefur náð miklum vinsældum og farið mjög vaxandi siöustu ár. Þarna er um að ræða samkomur af ýmsu tagi, stutt og löng ferða- lög, ýmiss konar handavinnu, sundnámskeið og létta leikfimi. Einnig er veitt þjónusta svo sem hárgreiðsla, fótaaðgerðir og að- stoð við böð. Sjálfboðaliðar hafa veitt mikilvæga aðstoð i þessu starfi. Heimilishjálp og heima- hjúkrun Reykavikurborgar lið- sinna sifellt fleiri ellihrumum einstaklingúm i borginni. Sé litið á tölur frá árinu 1980 kemur i ljós að 1075 heimili aldraðra nutu heimilishjálpar á þvi ári. Rúmlega 350 manns á yngra aldri naut þá einnig heim- ilishjálpar. 1 f járhagsáætlun borgarinnar er gert ráð fyrir 220 stöðum og kostnaður borgarinnar er áætlaður tæpar 18 milljónir á þessu ári (1982). A árinu 1980 veittu hjúkrunarfræðingar eða sjúkraliðar 543 sjúklingum hjálp i heimahúsum og var þar að mestu um gamalt fólk að ræöa. Starfs- menn eru nú 25. Húsnæði fyrir aldraða Hentugt húsnæði og samvistir við annað fólk er hverjum manni nauðsyn og þó býr margt gamalt fólk við einangrun i ófullnægjandi húsnæði, Lengi vel lét Reykja- vikurborg sig húsnæðismál aldraðra litlu máli skipta. Það er fyrst eftir 1965 að borgin byrjar að byggja ibúðir sem sérstaklega voru ætlaðar öldruðum, og það er ekki fyrr en með byggingunum við Dalbraut sem teknar voru i notkun 1979 og 1980 að hugsað er fyrir verulegri þjónustu við þá sem i ibúðunum eiga heima. Eftir tilkomu Dalbrautarhúsanna hefur þjónusta einnig verið aukin i öðrum húsum sem borgin hefur byggt fyrir aldraða. Nú á Reykja- vikurborg 270 ibúðir fyrir aldraða og i næsta mánuði veröur dvalar- heimili við Snorrabraut með 36 ibúðum og sjúkradeild 44 sjúk- linga tekið i notkun. Næsti stór- áfangi i byggingum fyrir aldraða verður i Seljahverfi, en þar er ráðgert að byggja dvalarheimili með ibúðum fyrir 60 manns, hjúkrunardeild fyrir 30 manns og smáhýsi fyrir 40—50 manns. Hönnun þessara mannvirkja lýkur i haust. Merk nýbreyni, sem gefið hefur góða raun, var tekin upp haustið 1981 en það er dagvist fyrir aldraða á Dalbraut 27. Hjúkrunar- stofnanir Skortur á hjúkrunarstofnunum fyrir aldraða langdvalarsjúk- linga hefur verið og er enn til vansa fyrir borgina, og oft hefur verið talað um neyðarástand. Nú Adda Bára Sigfúsdóttir, borgar- fulltrúi. stendur þetta til verulegra bóta sem betur fer. Samkvæmt at- hugun sem heilbrigðisráðuneytið lét gera i fyrravor vantaði tæp- lega 300 sjúkrarúm fyrir lang- legusjúklinga og er þá miðað við að enginn langdvalarsjúklingur þurfi að vistast um lengri tima a almennum sjúkradeildum spital- anna. Nú fyrir skömmu tók til starfa hjúkrunardeild fyrir 19 sjúklinga á Hvitabandinu og innan skamms bætast við rúmin á Snorrabrautarheimilinu sem eru 44. B-álma Borgarspitalans, stór- bygging á sjö hæðum er nú risin, en þar verða 174 rúm og miðað er við aðein hæð með 29 rúmum geti orðið tilbúin fyrir áramót. Þessar framkvæmdir fara langt með að leysa vandann eins og hann var i fyrravor, en auk þess er verið að ljúka byggingu hjúkrunarheim- ilis i Kópavogi fyrir 39 sjúklinga og hjúkrunardeild við Hrafnistu i Hafnarfirði fyrir 79 sjúklinga er langt komin. 1 niðurstöðum talningarinnar sem gerð var á sjúkrahúsunum i Reykjavik i fyrravor var ekki tilgreint hvaðan sjúklingarnir voru en trú- lega hafa einhverjir þeirra verið úr nágrannabyggðum borgarinn- ar. Þannig hefur margvisieg starf- semi fyrir aldraða farið mjög vaxandi á vegum Reykjavikur- borgar, en þessa þjónustu þarf alla að auka, og það þýðir að til hennar þarf að verja meira fé en nú er gert. Gamla fólkið á það fé inni hjá okkur hinum sem erum á vel verkfærum aldri og upp i þá skuld erum við að greiöa i formi gjalda til borgarsjóðs og raunar einnig með þvi að greiða fram- kvæmdasjóði aldraðra 200 krónur nú á þessu ári og vonandi sam- bærilega upphæð næstu ár. Hjúkrunarheimili aldraöra viö Snorrabraut. Dvalarheimili aldraöra viö Lönguhliö. Dvalarheimili aldraöra viö Dalbraut.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.