Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 23
Helgin 1,— 2. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23 Fræðslustarfsemi verkalýðshreyfingarinnar: „Aukin fræðsla kjarabarátu” í er hluti fræíslustarf BSRB -----------wi^aK/ard-anir um framkv$mcii ir /sfarf hja ymjum' V r°9ífrn og skn' f x ' Asgard /S HmsJ' uí9f& Handfeókaíí V°9 ‘-eshrinqa F f-asds/ufullt^ annast < fm«í adstod skrif- stofu BSRB) e-fms Samvinnu' M hfa m.a.v,dl \qerð úívarps- Jpát-fa ERINDI S*ti í Sipn G>Féfaskólans) fJámsstjóm'. Namsefnisgerd) JJtvegun nW Saana / f Skif>ulaqn^\ „ , . . Ing<cl„narnsfe,*') U'thringingar ) N;SÍ£Bt'rKjup Tcngsl vid SamsfarfjA Hefndrr. Adslod fætiir frædslust RAÐSTEFNUR arísins USTKYNNINGAR WHSKEIÐ tfúnadarmenn XARF . Vld ý^sa adili fyrir NAMSKEíÐ r KYNNINtARFUNDIR v ' ^rasamn inga UPPLYS/A/G/A hJÖNUSTA UTm mmÖMTpmALEsimm Fræöslustarf verkalýðs- samtakanna fer vaxandi meö ári hverju og er fyrir löngu orðinn hefðbundinn jþáttur í starfi þeirra. Við gengum á fund Kristínar H. T ryggvadóttur, fræðslufulltrúa BSRB og spurðum hana fyrst hvern- ig fræðslustarf þeirra væri upp byggt: „Stjórn BSRB kýs 7 manna fræöslunefnd og er Haraldur Steinþórsson formaöur hennar nú, en ég er svo starfsmaöur nefndarinnar. Viö vinnum i mjög nánum tengslum viö skrifstofu sambandsins og aöra aöila t.d. Menningar og fræöslusamband alþýöu og fleiri.” En hverjir cru helstu þættir fræöslustarfsins? „Þar má nefna félagsmála- námskeiö sem haldin eru fyrir alla félagsmenn sem vilja vera meö, en þau hafa veriö mjög fjöl- sótt. Trúnaöarmannanámskeiö eru haldin ööru hvoru, en þau eru sniöin fyrir þá sérstaklega sem þurfa aö veita upplýsingar um kjaramál. Viö erum meö fundi um kjaramál þegar þau eru sér staklega á döfinni og var sá siöasti haldinn i október 1981. Þá má nefna ráöstefnur en sl. haust héldum viö eina sllka um llfeyris- mál I Munaöarnesi og starfs- matskráö stefnan var haldin einnig hér i aöalstöövum BSRB aö Grettisgötu 89”. En þið kynnið fleira en kjara- málin i þrengsta skilningi þess orös? „Listkynningar eru orönar snar þattur i fræöslustarfsemi BSRB. Viö nutum samvinnu Þjóöleik- hússins og skipulögöum upp- setningar á leikritinu Uppgjörinu á vinnustööum mjög vlöa á siöasta ári i tilefni Ars fatlaöra. Verkið fékk afar góöar undir- tektir og viö erum þess fullviss aö meira mætti gera af slíku. Viö höfum fengið hingaö á Grettisgötuna góöskáld og rithöf- unda og verk þeirra veriö kynnt. Baldvin Halldórsson leikari hefur verið okkur til aöstoöar viö þaö verk. Sá háttur er hafður á aö skáldin koma og lesa upp úr verk- um sinum en siöan eru umræöur á eftir. Frá þvi 1979 höfum viö fengiö 6 rithöfunda I heimsókn og skemmst er frá þvi aö segja aö fullt hús hefur veriö I öll skiptin. 'S. Kristin H. Tryggvadóttir fræöslu- fulltrúi BSRB: hyggjum á frekari útgáfu leshringa. Ljósm. —eik. Rætt við Kristínu H. Tryggvadóttur fræðslu- fulltrúa BSRB Þá hefur Björn Th. Björnsson tvi- vegis staðið fyrir kynningu á myndlist og áhugi félagsmanna verið mikill á þvi framtaki einn- ig”. Þú minntist áöan á samstarf viö aöra aöila utan bandalagsins? „I þvi sambandi má nefna aö við höfum siöan 1975 veriö aöilar aö Bréfaskólanum en þvi miöur , er ekki útlitiö bjart varöandi fjár- ! hagsstööu skólans og þvi ekki vlst ' hvort við verðum þar aöilar á- fram nema fjárhagsgrundvöllur hans sé treystur. Fræöslunefnd hefur hvatt til , stofnunar samstarfsnefnda opin- berra starfsmanna úti á lands- byggöinni, þar sem starfi saman fulltrúar viökomandi bæjar- starfsmannafélaga og rikis- starfsmannafélaga á staönum. Formlegar nefndir hafa veriö stofnaöar á Isafiröi og á Akureyri en viöa annars staöar er samstarf um fundi og námskeiö ýmiss konar. Samstarf hefur veriö viö MFA um fræöslumálefni stéttarfélag- anna, einkum um réttindi og skyldur launafólks og höfum viö Tryggvi Þór Aöalsteinsson fram- kvæmdastjóri MFA annast út- varpsþátt um þau mál siöan sumariö 1980. Siöast en ekki sist höfum viö auðvitaö staöiö aö útgáfu As- garös, félagsblaös BSRB og héldum m.a. blaöamannanám- skeiö fyrir þá sem standa beint aö útgáfu blaðsins svo og annarra félagsblaöa innan BSRB.” Nú hefur fræðslunefndin nýlega gefiö út leshring? „Viö gáfum út fyrsta leshringa- efni fræöslunefndar núna 1. mars sl. og heitir bókin Vinnustaöurinn I brennidepli. Þaö er jú sérstakt átak I vinnuverndarmálum um þessar mundir og má segja aö viö höfum viljaö leggja nokkuö þar að mörkum. Tilgangurinn meö svona Ies- hringaformi er aö ná til sem flestra sem þess óska og er þess aö vænta aö þegar leshringurinn er kominn i umferö af krafti, veröi hann til aö örva hópa á vinnustöðum til aö hugsa um sin mál og koma meö tillögur til úr- bóta. Meö efninu er hægt aö fá handbókarkaflann Lög um aö- búnaö og hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980 og einnig reglur um starfsmannaráð rlkisstofnana.” Hvernig hefur reynslan veriö af leshringnum? „Hún er ekki mikil ennþá en viö I fræöslunefndinni höfum fariö i gegnum hann allan og okkur sýnist að mjög mikiö gagn megi hafa af þessu formi. Viö höfum einnig lagt drög að myndun hóps sem fari yfir leshringinn þar sem sitja saman starfsmenn frá óllk- um vinnustööum til aö treysta enn betur þá þætti sem hann er samsettur úr. Siöan er ætlunin aö koma honum I dreifingu”. Hafiö þiö gengi undirtektir viö þetta framtak? „Viö höfum kynnt hann I Ás- garöi sem allir félagsmenn i BSRB fá. Slðan hafa stjórnir félaga fengiö hann til aflestrar og einstakir trúnaöarmenn vinnu- staða hafa komið til okkar og fengiö eintak af bókinni til kynningar á slnum staö. Þá mun bandalagsþing I sumar kynna sér efni leshringsins og fjallaö veröur um hann þar”. Fieira á döginni i þessum efn- um? „Það hafa komið fram margar hugmyndir um aöra leshringi. Viö erum nú meö I smlöum efni um efnahagsmál sem veröur gef- ið út ef undirtektir viö þennan les- hring verða góöar”. Nú mætti etv. spyrja hvers vegna verkalýðsfélögin standi fyrir fræöslustarfsemi um ólik niái. Hvers vegna sinnir hiö opin- bera fræðslukerfi þessu ekki? „Já, þaö er von aö spurt sé. Þaö er alveg ljóst aö upplýsingamiöl- un um eöli og störf verkalýös- samtakanna er stórlega vanrækt I skólakerfinu, sérstaklega á grunnskólastigi. Ef við litum til Noröurlandanna I þessu tilliti er mikill munur á. 011 umræöa um verkalýössamtökin I grunnskóla- kerfinu þar er mun Itarlegri en hér og menn þora kinnroöalaust að fjalla um þau mál. Þaö hlýtur aö vera nauösynlegur undir- búningur hvers væntanlegs laun- þega aö kynnast samtökum sin- um og vinnumarkaönum i heild, strax iskóla. Það má því segja aö verkalýðssamtökin hér leggi mikla áherslu á aukiö fræöslu- starf, einmitt vegna vöntunar á sliku I skólakerfinu. Hins vegar er þessum málum mun betur farið þegar 1 efri bekki skólanna kemur og það er sifellt aö aukast aö hingaö komi kennarar og nem- endur til aö afla sér upplýsinga um starfsemi okkar til notkunar á ritgeröum og almennri kennslu.” Aö lokum, Kristin? Hver cr svo tiigangurinn meö fræöslustarfi BSRB? „Verkalýössamtökin hafa lengi litiö svo á aö aukin fræösla um málefni verkafólks væri hluti af kjarabaráttunni á hverjum tima. Markmiðiö hlýtur alltaf aö vera það að gera launafólk betur undir þaö búiö aö berjast fyrir kjörum sinum og auknum rétti. Ef þau markmið nást aö einhverju leyti, er tilganginum meö fræöslustarf- inu svo sannarlega náö”, sagöi Kristin H. Tryggvadóttir fræðslu- fulltrúi BSRB aö lokum. —v. Haustið 1979 var haidin sameiginleg námsstefna leiöbeinenda á félagsmálanámskeiðum BSRBogMFA. Frá ráöstefnu BSRB um lifeyrismál I Munaöarnesi sl. haust. Þátttakendur þar voru alls 270 talsins. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.