Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 17
16 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Helgin 1,— 2. mai 1982
Helgin 1,—2. mal 1982ÞJÓÐVIIJINN — SÍÐA 17
Helgi Guðmundsson, Akureyri:___
Það er verið að
leita nýrra leiða
í atvinnumálum Akureyrar og nágrennis
Atvinnumálin á Akureyri og
nágrenni hafa veriö a 11 nokkuð i
sviðsljósinu i vetur, ekki síst eftir
merkilega atvinnumálaráð-
stefnu, sem Norðlendingar geng-
ust fyrir á Akureyri. Helgi Guð-
mundsson bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins á Akureyri hefur
fylgst náið með þessum málum
undanfarin ár. Fyrst sem leiðtogi
byggingamanna á stáðnum og
siöan sem bæjarfulltrúi og nú sem
formaður iðnþróun arnefndar
fyrir Eyjafjörö. Viö spurðum
hann fyrst um atvinnuástandið
eins og það er i dag.
— Þaö er ekki slæmt eins og er,
en það verður að segjast eins og
er að framtiðarhorfurnar eru
ekki bjartar, vegna þess að nú
rikir kyrrstaöa i atvinnulifinu á
Akureyri. A undanförnum árum
hefur átt sér stað mikil uppbygg-
ing i fiskiðnaöi á Akureyri, en
segja má að nú sé þar toppi náð
og þvi þarf átak á nýjum sviðum
atvinnulifsins. Þvi miöur hefur
bæjarstjörn Akureyrar of litiö um
þessi mál fjallað, en hefur frekar
hlúð aö þvi sem fyrir er á
svæðinu. Akureyrarbær er
eignaraðili að nokkrum stærstu
atvinnufyrirtækjum bæjarins
fyrir utan Sambandsverk-
smiðjurnar, eins og títgerðar-
félagi Akureyrar, Krossanes-
verksmiðjunni, sem bærinn er
aöal eigandi aö, og svo á hann
hluta i Slippstöðinni.
— Nú ert þú formaður iön-
þróunamefndar i Eyjafirðit að
hverju eruð þið að vinna um þess-
ar mundir?
— Okkar verk er að ganga úr
skugga um hvaða leiðir eru til úr-
bóta, raunhæfar leiðir. Það er
enginn vandi að segja sem svo:
Stækkum Sam ba nd sverk-
smiðjurnar, en ef á sama tima er
verið að draga úr landbúnaði, þá
eru það ekki raunhæfar tillögur.
Eins er hægt að leggja til að
stækka Slippstöðina en varla er
það raunhæft ef ekki á að byggja
fleiri fiskiskip i bráð. í þessum
málum dugar engin draumsýn,
tillögurnar verða að vera raun-
hæfar. Ég tel það til að mynda
vera raunhæft, að leggja til að
fariö verði út i frekari nýtingu og
vinnslu sjávarafurða, þviþareig-
um við vissulega möguleika. Þá
höfum við einnig lagt til að hafist
verði handa um endurnýjun
togaraflota Akureyrar og að
skipin verði smiðuð i Slippstöð-
inni á Akureyri. Eins og er á út-
gerðarfélagið 5 skip, þar af eitt
gamalt og lúið en 4 sæmileg, og
það kemurað þvi að huga þarf að
endurnýjun þeirra.
— Ef ef við snúum okkur að
kosningunum i vor, er kosninga-
baráttan hafin og hvernig eru
horfurnar hjá Alþýðubandalag-
inu?
— Já, kosningabaráttan er haf-
in hjá okkur og ekkertgefið eftir á
þeim vigstöðvum. ÞU spyrð um
útlit.þaðeru að minum dómi eng-.
in málefrialeg rök fyrir öðru en að
Alþýðubandalagið fari vel útúr
kosningunum á Akureyri. Við
höfum nú i 8 ár veriö i meirihluta-
samstarfi og enda þótt það hafi á
stundum verið stormasamt, þá
hefur þetta timabil einkennst af
framkvæmdum og uppbyggingu á
félagslegum grundvelli. Hita-
veituframkvæmdirnar eru á
lokastigi en þær hafa veriö lang
viðamesta framkvæmdin hjá
okkur sl. 8 ár. Dagvistunarstofn-
anir höfum við byggt upp og þær
eru orönar margar á Akureyri,
tvær hafa verið teknar i notkun á
þessu tímabili sem nú er aö liða
og sú 3ja fer i útboö á þessu ári.
Þá höfum viö veriö að velta fyrir
okkur nýjungum á þessu sviöi,
auka fjölbreytnina. Byggð hefur
veriö viöbótarbygging viö elli-
heimilið Hlin,og i'þróttahúsiö sem
er feiknarlegt mannvirki, er á
lokastigi. Loks ber aö nefna verk-
menntaskóla sem verður geiri i
framhaldsskólastiginu á móti
menntaskólanum. Og nú i vor
veröur 1. áfangi skólahússins fok-
heldur. Þarna er um að ræða 6
þúsund fermetra byggingu. Loks
Helgi Guðmundsson á Akureyri.
má svo benda á nýbyggingu við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri, en þótt við séum aðeins
hlutaaðili aö þvi sjúkrahúsi, þá er
það okkur kappsmál að drifa
byggingarframkvæmdir við ný-
bygginguna áfram og höfum þess
vegna veitt meira fé til fram-
kvæmdannaenokkur hefur borið.
Þannig hefur verið um mikiö
framkvæmdatimabil aö ræða hjá
núverandi meirihluta bæjar-
stjórnar Akureyrar og þvi vil ég
segja það við kjósendur á Akur-
eyri, að þeir sem vilja lækkun
skatta og stöðvun framkvæmda
eiga að kjósa ihaldið. En þeir sem
vilja framkvæmdir og framfarir,
sem kosta peninga og þar af
leiöandi skatta, eiga að kjósa Al-
þýðubandalagið. Við höfum nýtt
alla okkar tekjustofna til að geta
haldið uppi framkvæmdum og
munum gera það áfram ef við fá-
um tilþess umboð frá kjósendum,
sagði Helgi Guðmundsson að lok-
um. —S.dór
Torfi Sigtryggsson trésmiður á Akureyri:
Skapa verður ný störf
í iðnaði á næstu árum
Torfi Sigtryggsson trésmiöur á
Akureyri er ritari Sambands
byggingamanna og um 10 ára
skeiö starfsmaöur Trésmiöafé-
lags Akureyrar. Viö króuöum
hann af úti i liorni á aöalfundi
Verkalýösmálaráös Alþýöu-
bandalagsins og spuröum hann
fyrst hvernig atvinnuásland væri
nú i hans grcin fyrir noröan:
„Atvinnuástand i byggingar-
iðnaði er gott núna á Akureyri og i
Eyjafirði yfirleitt. Það hefur ver-
ið svo i allan vetur að eftirspurn
eftir vinnuafli hefur verið meiri
en viö höfum getaö annaö þannig
að það er engin ástæða til bar-
lóms. Hins vegar er þvi miður
ekki hægt aö segja að útlitið sé
jafnbjart framundan. Það er allt
of litið byggt núna i Eyjafiröi og
viö berum ugg i brjósti um að það
leiði til samdráttar og ef til vill
atvinnuleysis hjá okkur i vetur”.
Hvaö veldur þessum sam-
drætti, Torfi?
„Það eru auðvitað margir þætt-
ir sem hér koma til. Hin mikla
uppbygging liðinna ára hefur
mikið stafað af þvi að menn hafa
verið að stækka við sig, en nú má
segja að þvi skeiði sé að ljúka.
Fólksfjölgunin er ekki meiri en
svo aðhún ein beri uppi jafn mikl-
ar byggingaframkvæmdir. Svo er
annað atriði sem verður að nefna
og það er samdráttur i fram-
kvæmdum við verkamannabú-
staði. Sú mikla aukning sem varð
á sl. ári virðist ekki ætla að halda
áfram og þaö leiðir einnig til
samdráttar i vinnu ’.
En hvað meö lóðaframboð? Er
það nægt á Akureyri?
„Það er allt öðru visi staðiö að
lóðaúthlutunum hér en t.d. á höf-
uðborgarsvæðinu. Hér hefur tiök-
ast að byggingafélög fái úthlutað
lóðum til nokkurra ára i senn.
Þetta hefur gert það að verkum
að fyrirtækin hafa getað skipu-
lagt sinar framkvæmdir mun bet-
ur og nýtt allt efni þannig að i-
búðaverð nyrðra er lægra en fyrir
sunnan”.
Hvað með svokölluö eininga-
hús. Með þeim styttist verulega
byggingatiminn og hefur þetta
ekki einnig áhrif á ykkar atvinnu-
möguleika til hins verra?
„Það sem fyrst og fremst er
okkur þyrnir i augum er hinn si-
vaxandi innflutningur eininga-
húsa og húshluta. Þarna er um að
ræða verulega styrkta fram-
leiðslu frá hinu opinbera i við-
komandi löndum og viö erum i
raun að flytja inn þeirra atvinnu-
leysi. Hvað islensku húsin varðar
fá auðvitað byggingamenn vinn-
una við framleiðslu þeirra svo að
einungis verður breyting á vinnu-
aðstæðum og ekki til hins verra.
Við trésmiðir erum alls ekki á
móti einingahúsum sem slikum,
einfaldlega vegna þess að þau
geta lækkað byggingakostnaðinn
verulega.”
Hvað cr til ráða, Torfi, þegar
framboö á störfum minnkar frá
þvi sem nú er?
„Það er deginum ljósara að
störfum i iönaði verður að fjölga
og það verulega. Við eigum
marga ónýtta möguleika i full-
nýtingu sjávarafurða en hér á
Akureyrier kraftmikil útgerð Út-
gerðarfélags Akureyringa og
glæsilegt frystihús á staðnum,
sem vonir eru bundnar við”.
Hvernig list þér á samningana
sem framundan eru?
„Mér list nokkuð vel á þá,enda
þótt atvinnurekendur séu að
vanda með hótanir. Við bygg-
ingamenn teljum auövitað vor-
timann góðan til að knýja á um
góða samninga og við viljum þess
vegna ekki að þeir dragist um of.
Þess vegna höfum við skorað á
okkar félög að afla sér verkfalls-
heimilda og ég reikna með að við
verðum tilbúnir i slaginn^um
miöjan næsta mánuð
Torfi Sigtryggsson Akureyri:
hætta á atvinnuleysi i byggingar-
iönaði nyröra.
Niðurstöður Kjararannsóknar-
nefndarsýnir ljóslega að atvinnu-
rekendur greiða I raun hærri laun
en taxtar segja til um. Hins vegar
má það ekki gleymast að i þess-
um samanburði nefndarinnar
koma fjölmennir láglaunahópar
alls ekki inn i þá mynd, hópar
sem enga aðstöðu hafa til að ná
fram betri kjörum en samningar
segja til um.
i þessum samningum sem
framundan eru tel ég allar for-
sendurfyrir henditilað bæta laun
þeirra sem lægst hafa launin.
Hins vegar vill svona hækkun, ef
næst fram, ganga upp allan stig-
ann og það er engum til hagsbóta
nú. Grundvallarspurningin er
auðvitað að halda þeim kaup-
mætti sem við höfum og i þvi
sambandi verður að gera marg-
háttaðar breytingar á visitölu-
reikningi þannig að hann mæli
betur en nú er breytingar á kaup-
mætti og þau atriði sem áhrif
hafa á hann”, sagði Torfi Sig-
tryggsson trésmiður á Akureyri
,aö lokum. _v
Eyjólfur Eyjólfsson, Hvammstanga:
Atvinnulífið
stendur tæpt
vandinn verður ekki leystur
nema á félagslegum grundvelli
Eyjólfur R. Eyjólfsson,
Hvammstanga.
Ilvammstangi er i hópi
nokkurra smáþorpa, sem hvaö
mest hafa vaxiö á siöustu árum,
frá þvi að vera litil þjónustumið-
stöð fyrir nærliggjandi sveitir og
uppi þaö aö veröa hiö myndarleg-
asta útgeröarpláss. En hvernig er
atvinnuástandiö þar núna? Þessi
spurning var lögö fyrir Eyjólf R.
Eyjólfsson, verkamann á
Hvammstanga.
— Nú siðustu árin hefur verið
mikil og góð atvinna á Hvamms-
tanga, eöa siðan rækjuveiðarnar
byrjuðu, en nú i fyrsta sinn i mörg
ár hefur boriö á atvinnuleysi.
Hægt hefur á húsbyggingum, sem
hafa verið miklar undanfarin ár,
enda hefur fólksfjölgun verið
mjög mikil á Hvammstanga
siðustu árin. Þá er kvóti rækju-
bátanna orðinn fullur og þeir þvi
hættir veiðum og þvi fylgir tima-
bundiö atvinnuleysi, þegar þeir
stöðvast. I vetur hafa 3 bátar
verið gerðir út á rækju, en 2 á linu
og hafa þeir aflað vel, þegar gefið
hefur. En svo gerðist það að
annar linubáturinn hætti og fór
suður og rær nú þaöan með net.
Allt þetta veldur þvi að aðeins ber
á atvinnuleysi.
— Hvenær byrja rækjubátarnir
aftur veiöar?
— Þeir munu fara til úthafs-
rækjuveiða þegar nær dregur
sumri og þá strax batnar atvinnu-
ástandið.
— Hvaða hugmyndir eru mcnn
með til að koma i veg fyrir svona
sveiflur i atvinnulifinu?
— Við litum að sjálfsögðu á það
sem alvarlegt mál þegar annar af
tveimur vertiðarbátum okkar
hættir veiðum á heimaslóðum og
heldur suður fyrir land, eins og nú
hefur gerst. Og þetta sýnir að
sjálfsögðu það öryggisleysi, sem
fylgir einkarekstrinum. Þess
vegna höfum við Alþýðubanda-
lagsmenn bent á nauðsyn þess að
byggja atvinnulifið upp á félags-
legum grundvelli til að koma i
veg fyrir svona nokkuö. Við telj-
um þetta orðiö svo aðkallandi að
við ákváðum að bjóöa fram lista
með óháðu fólki svið sveitar-
stjórnarkosningarnar i vor.
Fram til þess hefur alltaf verið
kosið óhlutbundinni kosningu á
Hvammstanga, en listinn okkar
varð til þess að hinir flokkarnir
gátu ekki eftir setið og bjóða lika
fram. Framsóknarflokkurinn
náði að berja saman lista með
erfiðismunum en kratar og
ihaldið bjóða fram sameiginlegan
lista. Að sjálfsögöu renna menn
blint i sjóinn með þetta þar sem
listakosning hefur ekki áður farið
fram á staðnum og enginn er ég
spámaður i þessum efnum, en
nokkuð bjartsýnn.
— Er ekkert fleira scm kemur
til greina til eflingar atvinnulifinu
á Hvammstanga?
— Sjálfsagt er það nú, en eins
og allir vita hefur Hvammstangi
um áratuga skeið verið þjónustu-
miðstöð fyrir sveitirnar i kring,
en svo kom rækjan og varð mikil
vitaminsprauta fyrir atvinnulifið.
Ég er viss um að hægt er að halda
uppi nægri atvinnu á staðnum ef
málin eru leyst á félagslegum
grundvelli eins og ég sagði og það
er einmitt sú lausn sem við
Alþýðubandalagsmenn leggjum
til og ég veit að þessi skoðun á
hljómgrunn meðal fólks á
Hvammstanga og það eykur
manni bjartsýni i komandi kosn-
ingum.
— Hvernig er staöan i verka-
lýösinálunum á Hvammstanga?
— Heldur hefur nú verið dauft
yfir verkalýðsfélaginu á liðnum
árum, en nú hefur ungur maður
tekið við sem formaður og við
bindum miklar vonir við að hon-
um takist að rifa það uppúr þeim
öldudal, sem það hefur verið i.
— Að lokum, Eyjólfur, er kosn-
ingabaráttan liafin hjá ykkur?
— Varla get ég sagt það.hún er ^
svona rétt að byrja, við erum að ‘
opna kosningaskrifstofu og þegar
við erum búin aö þvi, hefst kosn-
ingastarfiö af fullum krafti, þá er
ekki eftir neinu að biða, — S.dór.
Auður Guðbrandsdóttir, Hveragerði:
■
I—
Sy kurverksmiðj an
leysir mikinn vanda
\
Þvi er ekki aö leyna aö viö
horfum til umtalaðrar sykur-
verksmiöju vonaraugum, enda er
staðreyndin sú aö atvinnulif hjá
okkur i Hveragerði er alltof ein-
hæft. Þvi fer fjarri að atvinnu-
málin standi nógu vei. Ég segi
ekki aö það sé atvinnuleysi, en
margir þurfa aö sækja sér at-
vinnu út fyrir þorpið, enda hefur
atvinna nokkuö dregist saman,
sagöi Auöur Guöbrandsdóttir,
varaformaður Verkalýösfélags
Hvcragerðis og nágrennis og
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins i Hvcragerði, er Þjóöviljinn
átti viö hana samtal um ástand
mála þar cystra.
— Hvaöer þaðhelst sem or-
sakar þennan samdrátt i atvinnu-
lifinu i Hverageröi, Auður?
— Fyrst og fremst það, að hús-
byggingar hafa dregist saman
hjá okkur en all stór hópur
fólks hefur haft atvinnu af þeim á
liðnum árum. Helstu atvinnu-
tækin i bænum eru á sviði iön-
aöar, svo sem trésmiöja, ofna-
smiðja, isgerð og svo hressingar-
hælið og elliheimilið, en stór
hópur fólks hefur atvinnu á þess-
um tveimur stööum. Svo er auð-
vitaö nokkur atvinna við gróður-
stöðvarnar, en ekki eins mikil og
margur heldur. Þvi er það aö við
horfum vonaraugum til sykur-
verksmiðjunnar þvi ljóst er að
eitthvaö verður aö koma til ef
tryggja á fulla atvinnu. Oft er
minnst á það að jaröhitinn sé
okkar stóra auölind hér á Islandi
og eins og allir vita eigum við I
Hveragerði ótakmarkaðan jarð-
hita ónýttan, meira að segja
eigum við tilbúna borholu inni
Auöur Guöbrandsdóttir frá
Hverageröi.
Dal og við viljum umfram allt
nýta þessa auðlind okkar. Og slikt
yrði hagstætt, ekki bara fyrir
okkur, heldur þjóðina alla. Þá er
ljóst að við Hvergeröingar eigum
ónýtta möguleika á sviði ferða-
mannaiðnaðarins. Ég hef ein-
hversstaðar séð að 98% allra er-
lendra feröamanna, sem til
landsins koma, komi viö i Hvera-
gerði og i sannleika sagt höfum
viö gert alltof litið afþvi að sinna
þessari þjónustu; eigum þar
óplægðan akur.
— Eftir upphlaup krata úr
meirihlutasamstarfi vinstri
flokkanna, hefur ekki verið neinn
ákveöinn meirihluti i bæjar-
stjórn. Hefur þaö ekki skapaö erf-
iöleika ?
— Vissulega hefur það gert það,
það er erfiðara að koma málum
fram þegar svona háttar til.
Samt er þaö svo, að ýmis góð mál
hafa þokast fram. Þannig hefur á
kjörtimabilinu verið byggður
leikskóli, sem tekur til starfa 1.
ágúst nkv heilsugæslustöðin er
komin i betra og varanlegt
húsnæði, tannlæknir er kominn i
bæinn og nýr vatnstankur hefur
verið byggður fyrir bæinn og ný
vatnsveita lögð.Margt fleira væri
hægt að nefna, en þetta er svona
það helsta af stórum málum.
Ekki má heldur gleyma þvi að
ráðist hefur veri i byggingu 2.
áfanga iþróttahúss, sem ég er þó
andvig og var á móti þvi þegar
það var ákveðið i bæjarstjórn. Ég
vildi að ráðist yrði i byggingu
grunnskólahúss, sem mjög mikil
þörf er á og að ég tel okkar
brýnasta verkefni að leysa á
næstunni.
— Nú ert þú varaformaður
Verkalýösfélags Hveragerðis og
nágrennis; hvaö er að frétta af
ykkar málum i komandi kjara-
samningum?
— Við höfum verið og erum
fylgjandi samfloti innan ASI og
munum standa að þvi i komandi
samningum. Formaður félagsins
á sæti i miðstjórn ASl og mun
vinna að þessum málum þar.
Hvað sérkröfum okkar viðkemur,
þá gerum við samninga við
hressingarhælið og elliheimilið,
en höfum ekki I smáatriðum
mótað okkar sérkröfur, sem þó
hlýtur að verða.
— Ertu bjartsýn á úrslit
sveitarstjórnarkosninganna i vor
fyrir hönd Alþýðubandalagsins i
llverageröi?
— Já, ég er sæmilega bjartsýn,
annars er dálitið erfitt aö segja
neitt um málin á þessu stigi, þar
sem varla er hægt að segja að
kosningabaráttan sé hafin fyrir
alvöru, en samt er ekkert sem
bendir til annars en að við getum
verið bjartsýn. — S.dór.
I
Þorbjörg Samúelsdóttir verkakona:_
„Hefur aldrei verið
hægt að hrópa húrra
fyrir Sóknartaxtanum”
Þorbjörg Sain úelsdóttir er
vökukona á Hrafnistu I
Hafnarfirði og skipar auk þess
baráttusæti G-listans i Firðinum
við bæjarstjórnarkosningarnar I
vor. Við hittum hana á aöalfundi
Verkamálaráðs Alþýðubanda-
lagsins og spurðum fyrst hvernig
gengi að lifa á Sóknartaxtanum:
„Þaö lifir auövitaö enginn af
þeim launum einn og svo hefur
verið alla tiö. Við erum hins
vegar tvö sem vinnum fyrir
heimilinu og meö þvi móti ná
endar saman. Viö búum hér I
verkamannabústatt en ef við
þyrftum aö greiða háa húsaleigu
eða reka stórt hús eins og margir
láta eftir sér, veit ég ekki hvernig
við færum að.”
Atvinnuástandið i Hafnarfirði
er gott eða hvað?
„Það veröur aö teljast sæmi-
legt. Okkar stærsta fyrirtæki hér I
Hafnarfiröi varðandi sjávarút-
veginn, er Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar. Ef þessa fyrirtækis nyti
ekki viö væri hér atvinnuleysi,
enda kom það best i ljós þegar
Bæjarútgeröinni var lokað i
vetur. thaldið hér i bænum og
óháðir, sem etv. er enn verra
ihald, hafa alla tið viljaö drepa
þetta félagslega rekna fyrirtæki I
dróma, enda fulltrúar afla sem
alla tið hafa haft ofnæmi fýrir
fyrirtæki i eigu fólksins.”
Það er mikil ásókn i lóðir 1
Haf narfiröi?
„JU, hún er talsverö en hins
vegar er framboð á lóöum frá
bæjaryfirvöldum langt fyrir
neöan öll velsæmismörk. Það
hefur verið algjört lóðasvelti allt
þetta kjörtimabil og hafa allt að
200 manns sótt um tæplega 30
lóðir hérna nýlega. Aftur á móti
eru svo pólitisku fulltrúar meiri-
hlutans að Uthluta einni og einni
lóð til þeirra sem duglegastir eru
að ota sinum tota. Einhvers konar
punktakerfi, eins og tiökast t.d i
Reykjavfk og Kópavogi hefur
aldrei mátt heyra nefnt hérna i
Hafnarfirði.
Min fjölskylda hefur mátt sUpa
Þorbjörg Samdelsdóttir: lóða-
svelti verið i Hafnarfiröi allt þetta
kjörtimabil. Ljósm. — eik.
seyðið af lóðaskortinum þvi aö
þrjU af okkar börnum eru nú að
stofna heimili og sjá ekki fram á
annað en aö þurfa að flýja bæinn.
Einn sona okkar er t.d. að flytja
upp á Akranes, ekki vegna þess
aö hugur hans stóö endilega
þangað, heldur einfaldlega vegna
þess að hann sér enga möguleika
á þvi að koma sér upp ibúð eða
húsi hér i Firðinum. Ibúðir hjá
Verkamannabústööum eru þvi
miður ekki fleirien svo að hægt sé
aö anna nema broti af þeim sem
sækja um.”
Verkamannabústaöir voru ný-
lega aö úthluta?
„Það voru aöeins 9 ibúðir sem
var verið aö úthluta og hvorki
meira né minna en 147 sóttu um
þær! Við fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins höfum margsinnis bent á
þa leiö aö gefa Verkamanna-
bústööum kost á lágreistri byggð
suöur á Hvaleyrarholti og settum
þákröfu einmitt fram i umræðum
-um þessi mál alveg nýverið. A
þetta mátti Ihaldsmeirihlutinn
ekki heyra minnst en þó tókst að
fá vilyrði fyrir einni lóð undir
félagslegar ibúðabyggingar.
Hafnfirðingar hafa orðið sér til
skammar i þessum efnum og
fylgjast engan veginnmeð i þeirri
stórfelldu uppbyggingu Verka-
mannabústaða um land ailt.”
Þiö Alþýðubandala gsmenn
eruð komnir á fullt með allan
kosningaundirbúning?
„Starfið er óðum aö komast i
gang. Viö erum nýbúin aö opna
skrifstofu i okkar aöalstöövum i
Skálanum og þar er opiö milli kl.
3 og 7 en svo eru alltaf einhverjir
aö starfa þar á kvöldin. Við erum
búin að innrétta Skálann á vist-
legan hátt og þar er nú hin
ákjósanlegasta aðstaða til starfa.
Auk þess hafa svo Vegamót, mál-
gagn Alþýðubandalagsins i
Hafnarfirði, veriö gefin út af
myndarskap i vetur og dreift i
hvert einasta hús i bænum”.
Félagið hefur starfað mjög vel i
vetur og okkar tveir bæjarfuli-
trúar unnið afar gott starf. Það
hefur veriö stór hópur i' gerð
stefnuskrár fyrir kosningarnar
nú I vor. Alþýöubandalagið er
fyrsti flokkurinn i Hafnarfiröi
sem gerir sér fullmótaða stefnu-!
skrá og dreifir henni I hvert ein-1
asta hús i bænum. Þar afmörkum
viö alla helstupunkta og ieggjum
fyrir kjósendur hvað það er sem
við ætlum okkur að starfa aö.
Siðan er þeirra aö dæma um
hvort þar sé eitthvað af viti og sá
dómur fellur i kjörklefanum i
vor.”
Nú eru samningaviðræður að
komast i fullan gang. Hvernig
list þér á ástandið?
„Mérfinnst alveg einsýnt að at-
vinnurekendur telja sig standa
vel að vigi til að knýja á um að
sem minnst hafist upp úr samn-
ingunum fyrir launafólk. Auð-
vitað veröur láglaunafólkiö að fá
verulega bót sinna tekna þvi það
hefur aldrei verið hægt að lifa af
Sóknartaxtanum. Yfirborganir
atvinnurekenda sýna svo ekki er
um að villast að þeir eru tilbúnir
aö greiða mun hærri laun en
taxtarnir segja til um, og launa-
fólk getur á engan hátt gert sig
ánægt með lægri taxta eftir
samningana en raunveruleg laun
segja til um,” sagði Þorbjörg
Samúelsdóttir verkakona I
Hafnarfirði aö lokum. —v.
Sigrún Gunnlaugsdóttir kennari á Akranesi:__
Grunnlaun veröa að hækka
„Auðvitaö er ástæöan fyrir þvi
að kvenfólk cr svo mikiö I
kennslustörfum sú að þaö er ver
launaö en flest störf önnur sem
cðlilegt er að miða viö”, sagði
Sigrún Gunnlaugsdóttir kennari i
Brekkubæjarskóla á Akranesi er
Þjóðviljinn hitti hana að máli
fyrir skömmu.
„Það verður að segjast eins og
er aö samningarnir i nóvember
ullu vonbrigðum. Viö vorum al-
búin til átaka þegar ákveðið var
skyndiíega aö fresta átakapunkt-
inum núna fram á vorið. Menn
hafa á oröi aö fái þeir aðra at-
vinnu gegni þeir ekki kennara-
starfinu deginum lengur. Enda er
það svo aö kennarar eru flestir
kvenkyns vegna þess aö karl-
mennirnir eru löngu komnir á
sjóinn eöa i önnur arðbærari
störf”.
Nú hafa atvinnurekendur fariö
fram á frestun samninga?
„Frestun nú er auðvitað út i
hött aö nefna nú,þvi það verður
að bæta kjörin og það strax. Ég
vil minna á að félagslegar um-
bætur af ýmsu tagi eru mikils
virði en menn lifa ekki á þeim
einum saman. Það sem veröur nú
til að koma er myndarleg hækkun
þeirra launa sem við notum til að
framfæra okkur. Grunnlaunin
sjálf verða að hækka”.
Sigrún Gunnlaugsdóttir:
baráttuhugur I Alþýðubandalags-
fólki á Akranesi.
Nú starfar þú aö öðrum málum
en beinni kennslu?
„Já, en þó i tengslum við hana.
Ég hef með höndum hlutastarf á
vegum Skólarannsóknardeildar
Menntamálaráðuneytisins og
annast ráögjöf til kennara i
islensku. Ég feröast vitt og breitt
uni skólaumdæmi Vesturlands og
gef kennurum leiðbeiningar og
kynni þá hluti sem skólarann-
soknadeildin er að vinna með.
Þetta starf kom þannig til að
þegar ekki fékkst maöur I starf
námsráðgjafa i umdæminu hér
vestra, var brugðið á þaö ráð að
fá kennara i hverri grein til aö
annast ráðgjöfina og sjá um upp-
lýsingastreymið milli ráðuneytis-
ins og skólanna”.
Að lokum, Sigrún. Hvað er þér
efst i huga nú þegar kosningar
fara i hönd?
„Ég er þeirrar skoðunar að
staða Alþýðubandalagsins á
Akranesi fyrir þessar kosningar
sé mjög sterk. Viö erum með
ungt og kraftmikiö fólk i framboöi
til bæjarstjórnar og ætlum okkur
að halda okkar hlut og vel það.
Við unnum eitt sæti i siöustu
kosningum og hver veit nema viö
leikum þann leik aftur. Sjálft
kosningastarfið er komið i gang
þvi kosningaskrifstofan var opn-
uð um siöustu helgi og það er
greinilegt á öllu aö það er bar-
áttuhugur i Alþýöubandalagsfólki
á Skaganum nú”, sagöi Sigrún
Gunnlaugsdóttir kennari á Akra-
nesi að lokum.
—v.