Þjóðviljinn - 11.05.1982, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 11. mal 1982 ÞJÓÖVlLJINN — SIÐA 3
j Eðvarð Sigurðs-
j son lætur af
I störfum í Dags-
: brún eftir 21 árs
formennsku og
: 40 ára setu í
I stjóm
„Mér hefur alltaf veriö ljóst
aö formennska I verkamanna-
félaginu Dagsbrún, er eitt erfiö-
asta og vandasamasta starf
sem hægt er aö sér aö taka.
Ekki sist fyrir þaö, aö þeir sem
hafa gegnt þvi hafa I starfi sinu
notiö viröinar langt út fyrir raö-
ir félagsins”, sagöi Guömundur
J. Guömundsson nýkjörinn
formaður Dagsbrúnar þegar
Fyrir röskum tuttugu árum tók Eövarö viö formennsku I Dagsbrún af Hannesi Stephensen
Heiðraður fyrir lífsstarf í
þágu Dagsbrúnar og alþýðu
Guðmundur J. Guðmundsson tekur við sem formaður Dagsbrúnar
Eðvarö Sigurösson fráfarandi
formaður félagsins afhenti hon-
um stjórnartaumana á fjölsótt-
um aöaifundi Dagsbrúnar I Iönó
sl. laugardag.
Eðvarð Sigurðsson lét form-
lega af störfum, sem formaður
Dagsbrúnar á aðalfundinum,
eftir 21 árs samfellda for-
mennsku og 40 ára setu i stjórn
félagsins. A aðalfundinum var
Eðvarð heiðraður með æðsta
heiðursmerki Dagsbrúnar fyrir
lifsstarf sitt i þágu Dagsbrúnar
og alls verkaiýðs i landinu.
Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Dagsbrúnar
sagði i ræðu sem hann hélt Eð-
varð. til heiðurs, að „siðustu 40
ár væri erfitt að skýra frá Dags-
brún án þess að skýra um leið
frá Eðvarð, og ákaflega erfitt að
segja eitthvað frá Eövarð án
þess að skýra frá Dagsbrún.
Hann hefði variö lifi sinu fyrir
þettafélag.”
Eðvarð þakkaði af heilum
hug) þann heiður sem sér væri
sýndur og þau orð sem um hann
voru látin falla. Hann rifjaði
upp fyrstu ár sin i starfi Dags-
brúnar. „Fjóröi áratugurinn i
verkalýðsbaráttunni var bæði
harður og lærdómsrikur og ég
hef stundum kallað hann min
háskólaár.” Eðvarð minnti á að
i söguna skyldu menn sækja
lærdóminn til úrlausnar þeim
verkefnum sem þeir ættu við að
etja hverju sinni. „En árangur-
inn i okkar baráttu er fyrst og
fremst ykkur að þakka, félagar
góðir, Dagsbrúnarmenn. Stétt-
visi, einhugur og fórnfýsi, hefur
fært sigur i höfn á úrslitastund”.
1 lokaorðum sagði Eðvarð:
„Eg biðst ekki afsökunar á
neinu sem ég hef unnið i þágu
þessafélags. Ég vona mér verði
fyrirgefið það sem ég hef látið
ógert.”
Verkamenn hylltu Eðvarð vel
og lengi og fjölmargir þeirra
tóku til máls og þökkuðu Eð-
varð fórnfúst starf hans i þágu
Dagsbrúnar og um leið allrar
alþýðuilandinu.
1 nýkjörinni stjórn Dags-
brúnar eiga sæti auk Guðmund-
ar J. Guðmundssonar for-
manns, þeir Halldór Björnsson
varaformaður, Úskar Ólafsson
ritari, Jóhann Geirharðsson
gjaldkeri, Garðar Steinþórsson,
fjármálaritari, Olafur Ólafsson
og Kristvin Kristinsson með-
stjórnendur.
Auk Eðvarðs fór úr stjórn
Gunnar Hákonarson og Ragnar
Geirdal. t varastjórn eiga sæti
þau Asgeir Kristinsson Gunnar
Asgeirsson og Hjálmfriöur
Þórðardóttir.
-lg
Hlíta ekki framlengingu uppsagnarfrests:
„300-400 hjúkrunarfræðlng
ar hafa flúið þessi kjör”
Minni
fiskafli
en í
fyrra
Ljóst er aö fiskafli fyrstu 4
mánuöi ársins er mun minni en
Ívará sama tima I fyrra. Heildar-
aflinn þessa fjóra fyrstu mánuöi
varö 308.489 lestir en varifyrrá á
sama tima 486.193 lestir. Þarna
Imunar mest um loönuna, sem er
11.676 lestir I ár en var I fyrra
157.821 lest.
Botnfiskaflinn i ár varð 289.773
Ilestir en i fyrra 319.255 lestir. Þar
af var þorskur i ár 192.856 lestir
en i fyrra 229.604 lestir. Hér spilar
inni sjómannaverkfallið sem stóð
Iallan jánúarmánuö á stóru tog-
urunum.
Afli hefur viðast hvar veriö
tregur eftir páska stoppið, þannig
Iað ljóst er aö vertiðaraflinn i ár
verður heldur minni en var i
fyrra. — S.dór.
Mestur
hitf var í
Vopnafirði
í gærdag
IHin mesta veöurbliöa var um
land allt I gær og um helgina.
Sunnanátt var rikjandi og hita-
stigiö náöi hæst í Vopnafiröi á há-
Idegi I gær, 14 stiga hiti var I
Reykjavik og var biiist við þvl aö
þetta veöur héldist allan daginn I
dag. A hinn bóginn þóttust veður-
J fræöingar greina noröanátt fyrir
miðvikudaginn og ætti þá aö
kólna nokkuö I veöri, þó ekki eins
mikiö og verst var I siðustu viku.
1 framhjáhlaupi má svo geta
þess að krian ku vera komin til
landsins, þ.e. nokkrir könnunar-
fuglar hafa sést á stangli. Alkom-
m in verður hún á landinu i dag.
— hól.
V ortónleikar
Tónlistarskóla
Hjúkrunarfræðingar ætla ekki að hlita þvi, eins og
fram hefur komið i fréttum, að uppsagnarfrestur
þeirra sem á rikisspitölum vinna verði framlengdur
um þr já mánuði. Það er vegna óánægju með kjörin
og vegna þess hvernig kjaramál þeirra hafa verið
afgreidd á undanförnum árum.
Svo fórust orð Brynhildi Ingi-
mundardóttur einni af tals-
mönnum hjúkrunarfræðinga i
viðtali við Þjv. Hjúkrunar-
fræðingar hafa fengið tveggja
launaflokka hækkun skv. úr-
skurði kjaranefndar og eiga nú að
byrja i 13. launaflokki (8460 kr.
á mán). En þær vilja byrja i 16
launaflokki (nú 9832 kr. á mán) og
Breytingar á
sérkröfum VMSÍ
Sambandsstjórnarfundur
Verkamannasambands tslands
ákvaö á fundi sl. föstudag breyt-
ingar á sérkröfum VMSÍ. Þær eru
helstar að fariö er fram á 3ja
launaflokkahækkun frá 6. til 15.
flokks og nemur sú hækkun 6.1%
til 7.4% kauphækkunar. Aður
hafði verið gerð krafa um eins
flokks hækkun á þessu sama
launaflokkabili.
Þá færist hjólbarðaviðgerðar-
menn, borunarmenn og
fleygunarmenn úr 12. i 17. launa-
flokk. Vinna við borvagna og fall-
hamra úr 13. i 17. flokk og
aöstoðarfólk i mötuneytum úr 8.
flokki i 12. flokk, nema þessar
launaflokkahækkanir 8,2% til
11,7% launahækkunar.
Aldurshækkanir verði aldrei
lægri en 2% frá byrjunarlaunum
eftir 1 ár, 5% frá byrjunarlaunum
eftir 3 ár og 9% frá byrjunar-
launum eftir 5 ár. Þá verði
ákvæði samninga um kauptrygg-
ingu endurskoðuð. Tillagan um
13.% alrhenna grunnkaups-
hækkun verði endurskoðuð i ljósi
taxtatilfærslna.
— S.dór
fá hraðari starfsaldurshækkanir
en til þessa.
Hjúkrunarfræðingar, sagði
Brynhildur, hafa áður sagt upp.
En 1977 dæmdi kjaradeilunefnd
þá alla i vinnu, þrátt fyrir vel
skipulagt neyðarplan sem við
höfum gert. Það sama gerðist i
febrúar leið þegar hjúkrunar-
fræðingar hjá Reykjavikurborg
höfnuðu samningi BSRB og borg-
arinnar.
Við erum mjög óánægðar með
að viðsemjendur okkar hafa haft
um þrjá mánuði til viðræðna en
enginn samningafundur hefur
verið haldinn, aðeins óformlegir
fundir siðustu daga. Þá teljum við
að það sé einungis verið að brjóta
niður samstöðu okkar með þvi að
framlengja uppsagnarfrest, þvi
það gildir aðeins um þá sem
starfa á rikisspitölum, það þarf
samt sem áður að semja nú þegar
við þá sem vinna á Landakoti og
Borgarspitala.
Gleymum þvi heldur ekki að nú
stunda 300-400 hjúkrunar-
fræðingar önnur störf vegna
lélegra launakjara og takist ekki
samningar nú verður þessi flótti
enn meiri, sagði Brynhildur enn-
fremur og taldi að stjórnvöld
hefðu sýnt mikið ábyrgðarleysi í
þessu máli.
Þegar hefur verið gengið frá
neyðaráætlun hjúkrunarfræðinga
og kemur hún til framkvæmda
um helgina ef ekki semst. Spital-
arnir eru að senda heim alla
sjúklinga sem hægt er, að þvi er
fregnir hermdu i gær.
— áb.
Ámessýslu
Tónlistarskóli Arnessýslu er nú
aö ljúka vetrarstarfi slnu. 1 vetur
voru 385 nemendur iskólanum, en
kennsla fór fram á 13 stööum viös
vegar I sýslunni. Kennarar viö
skólann voru 19, þar af 10 fast-
ráðnir.
Tónlistarskólinn hefur vortón-
leika sina um þessar mundir.
Þriðjudaginn 11. mai eru tón-
leikar i Félagsheimili Þorláks-
hafnar kl. 20.30. Söngnemendur
haida tónleika í Selfosskirkju
fimmtjdaginn 13. mai kl. 20. Þar
verða á efnisskrá gamlar italskar
ariur og islensk lög, m.a. eftir
núiifandi tónskáld. Siðustu tón-
leikarnir og skólaslit verða i Sel-
fosskirkju laugardaginn 15. mai
kl. 17.00.
50 10 (d 9 ) 8 JLS 8
Krossgátumistök
Mjög slæm mistök urðu I sambandi við krossgátuna I Sunnu-
dagsblaði Þjóöviljans. Vitlausir reitir voru birtir en þeir áttu aö
mynda nafn á götu í Reykjavik. Mistök þessi urðu I prentsmiðju
og er beðist velvirðingar á þeim. Hér koma réttu reitirnir.