Þjóðviljinn - 14.05.1982, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 13. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Upp
með
Braga
og
Sjöfn!
Ég er nú góöur krati og hefi
alltaf veriö siöan Jón Baldvins-
son var og hét. Og þaö hryggir
mig sannarlega aö minn gamli
flokkur skuli ekki geta haldiö
sér saman f borgarstjórnar-
spursmálum eins og þeim meö
hverjum vinna skal.
Siguröur Gunnarsson, sem er
af bestu krataætt landsins, hann
vill endilega vinna meö komm-
um. Þaö tel ég mjög vafasamt,
enda vitaö mál, aö kommar
vilja ekki styöja okkur nema
eins og snaran styöur hengdan
mann (V.l. Lenin, Ritsafn, 29.
bindi bls. 336). Miklu betur list
mér á hana Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur, sem vill gera allt til aö
takmarka áhrif komma, hvort
sem hún vinnur meö þeim eöa á
móti þeim i meirihluta. Hún
hefur þá iréttu taktik sem segir,
aö maöur skuli vera meö meiri-
hlutanum, hver sem hann er, en
alltaf á móti kommum. Þetta
þarf Siguröur aö læra og ætti aö
vera búinn aö þvi fyrir löngu.
Bestur þykir mér sem dr.
Bragi Jósefsson. Sá tók nú
kommana á klofbragöi meö
hnykk og keyröi þá niöur meö
miklum dynki! Bragi sýndi
fram á þaö meö ótvlræöum rök-
um, aö kommar eru á móti
Kvennaskólanum og gáfuöum
börnum og ungum börnum og
mörgum fleiri börnum og skól-
um enda vilja þeir helst fá aö af-
vegaleiöa börn i friöi fyrir góö-
um og traustum skólamönnum,
viösýnum, langsýnum og rétt-
sýnum eins og dr. Bragi er. Mér
Hst eiginlega betur á hann en
Jón Baldvin, hann er einhvern-
veginn fastari i rásinni og hefur
ekki flækst eins vlöa.
Upp meö Sjöfn og Braga! Og
hinir athugi sinn gang.
Hannes.
Kjósum D I Reykjavfk segir
Gunnar Thor. Refsum Gunnari
Thor. og kjósum D i Reykjavík,
segir Markús örn. Sjálfspfning i
sáluhjálparskyni var mjög
stunduð á miðöldum og kvaia-
lostinn er klassiskur.
‘ Fjölskyldufjör
í Lau^srdalshöl!
Se»ur hann helmnmet?
Hetjuandi
í höllinni
Mér líst vel á fjölskylduhátið
okkar Sjálfstæðismanna I kvöld
og hvet alla eindregið til að fara
þangað.
Sjálfstæðisflokkurinn sýnir
meö þessari dagskrá aö hann er
flokkur nýrra tima, sem ekki
vill þreyta menn meö pólitlsk-
um ræöum sem viö Sjálfstæöis-
menn kunnum hvort sem er.
Þess I staö syngur blandaöur
kór frambjóöenda Hraustir
mennog Buldi við brestur, til aö
minna menn bæöi á þá Njáls-
brennu sem Flosar kommúnista
hafa efnt til hér I borginni og svo
á þaö, aö flokkur okkar á sér
j Söngur
,j D- listans
i í Höllinni
harösnúiö liö, sem hvorki lætur
sér bregða viö sár né bana, né
Gunnar Thoroddsen.
I sama hraustleika- og forn-
söguandanum (sem mér er svo
kær) er lika það höfuönúmer, aö
láta Jón Pál lyftingarkappa
reyna aö lyfta meiri þunga en
nokkur maöur hefur reynt I rétt-
stööu. Takiö eftir þessu: I rétt-
stööu. Ekki i vinstristööu eöa
svoleiöis. Þetta er táknræn afl-
raun fyrir þaö þrekvirki sem
okkar menn ætla sér aö vinna
meö þvi aö lyfta fylginu hér i
Reykjavik. Þaö er þung byröi á
þessum timum andvaraleysis
og allskonar rauöbleiks félags-
málagutls. En lyftingamaður-
inn mun gefa okkur gott for-
dæmi, og viö megum llka reyna
okkar krafta á lóöunum og i
allskonar fimleikum og pústr-
um stjörnuliða og fleiri Iþrótt-
um fornmanna.
Þaö er aöeins eitt sem ég hefi
áhyggjur af og þaö er aö Daviö
hefur látiö klippa sig. Þaö geng-
ur þvert á lærdóma fornra
sagna, þvl krafturinn til aö slá
Filistea býr I hárinu. Þaö var
þegar garpurinn Samson haföi
veriö klipptur, aö hann missti
kraftinn til aö berja þúsund
manns meö einum asnakjálka.
Lát hár aftur vaxa, kæri Davlð!
Skaði
i gœr
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
tóku lagið í gærkvöldi og sungu m.a. þennan söng
undir laginu Göngum upp i gilið í Höllinni.... Glímu-
_ kappar, lyftingamenn og aðrir viðstaddir gerðu
J góðan róm að sönglist frambjóðenda.
Sprungur, sprungur, taka mann á taugum,
I* til þess ekki hugsa má.
Byggjum, byggjum, byggjum, heim á haugum,
hrekjum mávageriðfrá.
■
Fýlan, f ýlan, venst á einum vetri,
verum ekki að tala um það.
Davíð, öllum borgarstjórum betri,
býður þennan Ijúfa stað.
J
Hlöðver
Slgurðsson
er látinn
Hlöðver Sigurðsson, fyrrver-
andi skólastjóri á Siglufirði
andaðist á Landakotsspitala i gær
76 ára að aldri. Hlöðver var
fæddur 29. april 1906 á Reyðará I
Lóni I Austur-Skaftafellssýslu.
Hann lauk kennaraprófi árið 1928,
og hafði siðan kennslu og skóla-
stjórn að ævistarfi. Hlööver var
skólastjóri á Stokkseyri 1933-1943,
en þá gerðist hann skólastjóri
barnaskólans á Siglufirði og
gegndi þvi starfi uns hann lét af
störfum fyrir aldurssakir.
Hlööver tók lengi mjög virkan
þátt i störfum stjórnmálasam-
taka islenskra sósialista og
gegndi þar mörgum trúnaöar-
störfum. Hann lét önnur félags-
mál einnig verulega til sin taka og
var jafnan einn traustasti liös-
maöurinn i baráttu herstööva-
andstæöinga.
Kona Hlööves var Kristln
Pálsdóttir, en hún andaöist fyrir
fáum vikum. Börn þeirra fjögur
lifa.
Hlööver Sigurösson var til
hinsta dags umboösmaöur Þjóö-
MUNIÐ
kosninga-
sjóðinn
viljans á Siglufiröi og haföi gegnt
þvi starfi meö miklum sóma
lengur en flestir aörir. Þjóöviljinn
áHlöövemikiö aö þakka og vottar
aöstandendum hans samúö nú viö
andlát hans.
Eftirfarandi yfirlýsing
hefur borist blaöinu:
,,1 tilefni af grein, sem
birtist I Þjóöviljanum 8. mal
s.l. um biöskýli, sem SVR.
keypti frá Danmörku og setti
upp i Lækjargötu, skal tekiö
fram aö Birgir Þorvaldsson
stjórnarmaður I SVR er ekki
umboðsmaður framleiöenda
eða seljenda fyrrnefndra
biöskýla.”
Eiríkur Asgeirsson.
Sumarbústaður
Félags bifreiðasmiða
á orlofsbúðasvæði að Svignaskarði,
Borgarfirði, er til sölu. Forkaupsrétt hafa
sambönd og félög innan A.S.l. Upplýs-
ingar hjá formanni i sima 83011 og 41153.
UTBOÐ
Stjórn verkamannabústaða i Kópavogi
óskar eftir tilboðum i lokafrágang 36 ibúða
i tveimur sambýlishúsum við Ástún 12 og
14 i Kópavogi.
Áætlað er að verkframkvæmdir á Staðn-
um geti hafist 15. ágúst 1982 og að þeim sé
lokið 20.febr.1983.
Verkið skiptisti:
D. Málun og lökkun
E. Gólfefni
F. Járnverk innanhúss
G. Ýmisbúnaður
H. Innréttingar og smiði innanhúss
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofunni
Röðli, Ármúla 36 3. hæð, Reykjavik frá og
með föstudeginum 14. mai 1982.
Tilboðum skal skila til stjórnar verka-
mannabústaða, Fannborg 2, Kópavogi 3.
hæð (suðurenda) eigi siðar en mánudag-
inn 31. mai 1982 kl. 17:00 og verða þau þá
opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Stjórn VBK.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Hlöðver Sigurðsson
fyrrverandi skólastjóri andaöist á Landakotsspitala i gær
þann 13. mai.
Páll Hlöövesson Hannveig Valtýsdóttir
Anna M. Hlöövesdóttir
Siguröur Hlöðvesson Sigurleif Þorsteinsdóttir
Þorgeröur H. H lööv esdóttir
ogbarnabörn