Þjóðviljinn - 14.05.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 14.05.1982, Qupperneq 16
DIOÐVIUINN Föstudagur 14. mai 1982 Abalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins t sima 81663. Blaðaprent hefur sfma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. a Aðalsími 81333 Kvöltlsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Kosningamiðstöðin sunnudag kl. 16: / Arni Bergmann les úr óbirtri skáldsögu Arni Bergmann ritstjóri og rit- höfundur les kafla úr óbirtri skáidsögu sinni i opnu húsi I Kosningamiðstöö Alþýðubanda- lagsins ki. 16.00 á sunnudaginn. Þessi saga Arna heitir Geirfugl- arnir, og hefur verið I smiðum I tvö ár. Kaflinn sem Arni les ber yfirskriftina Framboðsfundur og fjallar um framboðsfund fyrir bæjarstjórnarkosningar. Miö- vikudagar f Moskvu eftir Arna Bergmann kom út árið 1979. Við snerum okkur tii Arna og spurð- um: Um hvað fjallar Geirfuglarnir? — Ýmislegt sem að getur gerst i litlu plássi suður með sjó i ástar- málum, áfengismálum, leiklist og pólitik. Og síðast en ekki síst um Arni Bergmann ritstjóri og rit- höfundur. það hvernig þetta samfélag gerir úlfalda úr mýflugu^nú og mýflugu úr úlfaldanum. — Kaflinn sem ég les heitir Framboðsfundur og segir frá slikum fundi fyrir bæjarstjórnar- kosningar fyrir 30 til 40 árum. Jamm — eigum viö ekki aö láta þetta duga i bili. —óg Hverju spáði íhaldið? Alfreð Þorsteinsson iét af störfum borgarfulltrúa fyrir kosningar 1978 og ieiddi Morgunbiaðið hann til vitnis 23. mai undir fyrirsögninni „Til efs að samstarf minnihiutaflokka i meirihluta undir forystu Alþýðubandalags mundiblessast. 1 viðtalinu sagði Alfreð m.a.: „Persónulega hef ég ekkert á móti borgarfulltrúum Alþýðubanda- lagsins frekar en öðrum borgarfulltrúum, þetta er prýðisfólk I daglegri umgengni, en sú tilhneiging Alþýðubandalagsmanna að vilja koma öll- um einstaklingum frá vöggu til grafar á einhverjar stofnanir myndi fljótlega gera Reykjavlkurborg gjaldþrota.” Fundur hjúkrunarfræðinga með fjármálaráðuneyti: Erum tilneyddlr að fara varlega — Ekkert afgerandi geröist á þessum fundi sögðu fulltrúar hjúkrunar- fræðinga eftir viðræður þeirra við fulltrúa fjármálaráöuneytisins. Ljósm. eik. Sjáum ekki fram á lausn í bili, segir Ragnar — Þaö gerðist ekkert af- gerandiá þessum fundi, en það var ákveðið að við myndum talast við aftur, sagði Ingibjörg Gunnars- dóttir hjá Hjúkrunarfélag- inu er við hringdum í hana í gær eftir fundinn sem fé- lagið átti með fjármála- ráðuneytinu. Hún sagði að næsti fundartími hefði enn ekki verið ákveðinn. Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra sagði að ekkert hefði gerst á fundinum, enn bæri mikiö á milli aðila, og útlitiö væri heldur svart. — Formlega séö eigum við ekki i deilu við hjúkrunarfræðinga, sagði Ragnar, þar sem við erum nýbúnir að gera út um þeirra mál eftir þeim leiöum sem samningar við BSRB segja til um. Sam- kvæmt þeim úrskurði um sér- kjarasamning fengu hjúkrunar- fræðingar 6-7% hækkun á meðan aörir hópar fengu um 1.5%. Það segir sig sjálft, sagði Ragnar, að þótt þesssi hópur hafi sterka stöðu, þá verður að lita á kjaramál hans I samhengi við kjaramál launþegahreyfingar- innar I heild. Ef menn gripa til hópuppsagna og úrræða sem alls ekki tlðkast innan launþegasam- takanna bara vegna þess að læknar hafa gert slikt hið sama er verið að kippa grundvellinum undan samnings- og verkfallsrétti opinberra starfsmanna. Upp- sagnir hjúkrunarfræðinganna eru þvi ekki bara alvarlegt mál gagn- vart heilbrigðisþjónustunni, heldur ekki slður gagnvart Iaun- þegasamtökunum. Mér finnst öll umræða um launa- og kjaramál hafa um of einkennst af þvi að einstakir hópar innan launþega- samtakanna kvarta undan þvi að hafa dregist aftur úr einhverjum öðrum hópi þannig að innbyrðis sundurlyndis gætir meöal ein- stakra hópa. Kröfur hjúkrunar- fræðinga eru til þess fallnar að koma af stað keðjusprengingu og kalla á illindi meðal annarra hópa launbega. Þetta er ástæðan til þess aö við sjáum okkur tilneydda til að fara varlega I sakirnar I þessu máli og sjáum ekki fram á lausn þess I bili, sagði Ragnar Arnalds að lokum. ólg Látum ævintýrið frá 1978 lifa Baráttugleði Alþýðubandalagsins í Laugardalshöll miðvikudaginn 19. maí kl. 21.00 Leikur — söngur — ræður — rokk Höldum gleði hátt á loft í Höllinni

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.