Þjóðviljinn - 25.06.1982, Síða 1
Vinnumálasamband samvinnufélaganna hóf í gær viðræður við ASÍ á ný
ADt önnur viðhorf en hjá VSÍ
,,A fundi i dag var farið yfir
málið og þrátt fyrir að ekkert hafi
verið leitt til lykta i sjálfu sér er
ljóst að þær visitöiuskerðingar-
kröfur scm Vinnuveitendasam-
bandið gerði að úrslitaatriði i við-
ASÍ/VSÍ:
Fundur
innan
hálfs
mánaðar
segir Guðlaugur
Þorvaldsson
,,Þvi er auðvitað ekki að
neita að talsvert ber í milli
þeirra Alþýðusambands-
manna og Vinnuveitenda-
sambandsins, og þar er
fyrst og fremst um að
ræða ágreining um hvort
miða skuli vísitöluna við
af labrögð eða ekki", sagði
Guðlaugur Þorvaldsson
rikissáttasemjari er Þjóð-
viljinn ræddi við hann i
gær.
En hvenær má búast við að við-
ræöur ASÍ og VSÍ fari aftur af
stað?
„Um það er erfitt að segja. Ef
deiluaðilar báðir eða hvor um sig
óska eftir viðræðum þá stöndum
við i sáttanefnd auðvitað ekki
gegn þvi. Ef sáttanefnd hins veg-
ar telur eitthvað gagn i þvi að
setja viðræður af stað, höfum við
frumkvæði um slikt. Hins vegar
er ljóst að ég verð að kalla deilu-
aðila til fundar i siðasta lagi inn-
an hálfs mánaðar, en ætli menn
verði nú ekki farnir að tala saman
innan þess tima”, sagði Guðlaug-
ur Þorvaldsson rikissáttasemjari
aðlokum. —v
ræðunum við okkur, eru ekki uppi
af hálfu Vinnumálasambands
Samvinnufélaganna”, sagði As-
mundur Stefánsson forseti
Alþýðusambands tslands i sam-
tali við Þjóðviljann i gær.
Fundur fulltrúa ASl og Vinnu-
málasambandsins hófst i hús-
kynnum rikissáttasemjara um kl.
10 i gærmorgun og skömmu eftir
hádegið var fundi frestað til kl. 15
„til þess að menn gætu metið
Mannlífið í borginni hefur tekið á sig sumarsvipinn i
góða veðrinu undanfarna daga. Þessi mynd var tekin i
miðborginni i gær þar sem blómasölumenn höfðu komið
sér fyrir á gangstéttinni. Ljósm. — kv—
stöðu mála i einrúmi” eins og
Guðlaugur Þorvaldsson rikis-
sáttasemjari komst að orði.
Fundinum lauk svo kl. 18 og
var á samninganefndarmönnum
Alþýðusambandsins að heyra að
ástæða væri til einhverrar bjart-
sýni um framhald viðræðnanna.
„Að minu mati er þetta alger
vendipunktur i þeirri samninga-
lotu sem staðið hefur undanfarn-
ar vikur og þeir Vinnumálasam-
bandsmenn gera ekki þær kröfur
að visitala taki mið af aflamagni
eins og VSÍ hefur gert að skil-
yrði”, sagði Björn Þórhallsson
varaforseti Alþýðusambandsins
þegar við hittum hann að loknum
fundi i gær. „Þetta er alger for-
senda fyrir þvi að við sjáum
ástæðu til að ræða við þá aftur á
morgun kl. 14,” sagði Björn enn-
fremur.
1 Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna eru um 20% fólks
á hinum almenna vinnumarkaði,
en þar er um að ræða alla þá sem
vinna hjá Sambandi islenskra
samvinnufélaga. Takist samn-
ingar milli ASl og Vinnumála-
sambandsins, sem þó er of
snemmt að segja til um, hefði það
að sjálfsögðu mikil áhrif á fram-
vindu samningamála næstu vik-
urnar.
Fundur ASl og Vinnumálasam-
bandsins hefur, eins og áður
sagði verið boðaður kl. 14 i dag.
—v.
Verkalýðsfélögin í Vestmannaeyjum:
Yfirvinnubaim
í næstu viku
Sljórn og Irúnaðarniannaráö
Verkaniannafélagsins Snótar og
Verkalýðsfélags Vestmannaey ja
ákvað á fundi sl. mánudagskvöld
að framhalda yl'irvinnubanni i
Vestmannaeyjum Irá og með
næslu lielgi. Yfirvinnubann var i
gildi vikuna 14-20. júni en var
siðan l'restað næstu viku á eftir.
Á þessum lundi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs verkalýðs-
félaganna i Eyjum var jafnframt
ákveðið aö efna til lélagsfundar
til þess að la lram skoöanir al-
mennra félaga. Sá lundur var sl.
miðvikudagskvöld og var svo-
hljóðandi ályktun samþykkt:
„Þar sem ekkert helur komið
fram i samningaviöræðum ASl og
VSl sem réttlætir lengri frestun
eða alnám yfirvinnubanns
Verkakvennafélagsins Snótar og
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
lýsir sameiginlegur lundur lélag-
anna, haldinn 23, júni 1982, sam-
stöðu með þeirri ákvörðun
stjórnar og trúnaðarmannaráöa
lélaganna um framhald ylir-
vinnubanns”.
Eftir félagsfundinn komu
stjórnir og trúnaðarmannaráð
félaganna saman og geröu eltir-
larandi ályktun:
„Þar sem fjölmennur félags-
iundur hel'ur lýst yíir samstöðu
með þeirri ákvöröun stjórnar og
trúnaðarmannaráða félaganna
og með hliðsjón al þvi aö slitnað
helur upp úr samningaviðræðum
ASÍ og VSl, telur fundurinn aö i
engu sé unnt að vikja lrá áður
boðuðum aðgeröum Verka-
kvennaíélagsins Snótar og
Verkalýðslélags Vestmannaeyja.
Jaíníramt skorar lundurinn á
verkafólk um land allt að taka
höndum saman i öflugum að-
gerðum til að knýja atvinnurek-
endur til alvöruviöræðna við
launafólk. Þaö hefur greinilega
komiö i ljós nu siðustu daga aö
raunhæíra aögerða er þörf”.
— gsni.
Kísilmálm-vinnslan:
Egill Skúli
fram-
kvæmdastjóri
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum Þjóðviljans ákvað
stjórn Kisilmálmvinnslunnar á
fundi sinum á Egilsstöðum i gær
að ráða Egil Skúla Ingibergsson,
fyrrverandi borgarstjöra i
Reykjavik i stöðu framkvæmda-
stjóra íyrirtækisins.
Egill Skúli er staddur erlendis
um þessar mundir, en eftir þvi
sem Þjóðviljinn kemst næst, mun
hann hafa þekkst boðið, eftir að
honum hafði verið tilkynnt
ákvörðun stjórnarinnar simleiðis.
Egill Skúli mun eiga að taka við
störfum þegar um næstu mánað-
armót, að þvi er Þjóðviljinn
fregnaði. Þess má geta, að Egill
Skúli er verkfræðingur og starf-
aði sem slikur áður en hann var
ráðinn borgarstjóri i Reykjavik.
—jsj.
Vinna þarf ekki
að stöðvast
segir Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
„Með tilliti til árstima töldum
við það inun áhrifarikara að
gripa til yfirvinnubanns hér i
Vestniannaeyjum en allsherjar-
verklalls”, sagði Jón Kjartans-
son formaöur Verkalýðsfélags-
ins i Vestmannaeyjuin þegar
Þjóöviljinn ræddi við hann i
gær. Sameiginlegur fundur
verkalýösfélaganna i Eyjum
samþykkti nú i vikunni að setja
yfirviniiubann á aftur, en þessi
lclög munu vcra þau einu á
landinu sem þegar hafa gripið
til aðgerða, ef undan eru skildar
vinnustöðvanir dagana lU.og 11.
júni, sem vcrkafólk i Vest-
inannaeyjum tók að sjálfsögðu
fullan þátt i.
„Við ákváðum hvernig standa
skyldi að málum strax i júni-
byrjun og hófst yfirvinnubann
okkar þann 14. júni eins og fram
heíur komið. Siðan afléttum við
banninu i eina viku þar sem
nokkur bjartsýni greip um sig
að samningar væru að lakast
um siðustu helgi. Fundurinn
sem við efndum lil sl. mánu-
dagskvöld var m.a. haldinn
vegna tilmæla lrá atvinnurek-
endum um að fyrri ákvöröun
okkar um yfirvinnubann yröu
endurskoðaðar. En iundurinn
áleit sumsé að ekki væri ástæða
til slikrar endurskoöunar,”
sagði Jón Kjartansson enn-
fremur.
Aðspurður kvaðst Jón ekki
álita aö menn væru hræddir um
að vinna þyrfti að stöðvast i
Eyjum vegna þessara aögerða.
Þessmá geta að togarinn Breki
fór i gær til veiða eftir 4 daga
stopp. Þá landaði togarinn Vest-
mannaey i Reykjavik i gær. Afli
Jón Kjartansson i Eyjum:
Teljum yfirvinnubann sterk-
ara en verkfall.
hefur veriö góður hjá minni bát-
unum i Vestmannaeyjum
undanfarna daga.
— gsm./-v.