Þjóðviljinn - 25.06.1982, Síða 15
Hringiö í sima 81333 kl. 9-5 alla
virka daga, eöa skrifiö Þjóöviljanum
Engin aðstaða fyrir
hj ólreiðamenningu
Ekki hægt að tala um umferðarmenningu
í borginni segir Halldór á hjólinu
Hjólreiðamaður kvartar
Lengi er ég búinn að biða eftir
þvi að eitthvað verði gert fyrir
okkur hjólreiöamenn hér i borg-
inni. Það er ekki hægt að tala
um umferðarmenningu islend-
inga meðan ekkert er gert fyrir
hjólreiðafólk hér i borginni. Má
ég benda á þaö aö meðal allra
siðvæddra þjóða eru markaðar
hjólreiðabrautir meðfram ak-
reinum fyrir bifreiðar (sem eru
eiturspúandi um allar götur og
torg i höfuðborginni). Nú fer
hjólreiðafólki mjög fjölgandi
hér i borginni og þvi frekari
ástæða til að marka þvi rými i
umferðinni. En litið sem ekkert
hefur gerst i þeim málum þrátt
fyrir hlýleg orð og „hjólreiða-
daga”. Viðkomandi verða að
átta sig á þvi að meðan ekki er
meira gert fyrir hjólandi al-
menning er verið að bjóða alls
konarhættum heim. Það er ekki
auðvelt að vera hjólreiðamaður
þarsem allt snýst um blikkbelj-
una og hennar ómerkilegu þarf-
ir.
Halldór hjólreiðamaður
Sólbaðsströnd í Reykjavík
— segir Bjössi brúni
Bjössi brúni skrifar
Ekki get ég lengur orða bund-
Daufdumba til
að þóknast
Morgunblaðinu
Halldór hringdi:
I leiðara Morgunblaðsins er
litið mjög „alvarlegum augum”
að starfsmenn útvarps séu með
opin augu og öll skilningarvit
vakandi við lestur auglýsinga
og veðurfrétta. Leiðarahöfundi
blaðsins þykir ekki við hæfi að
minnst sé á striðsglaðar konur
ist vegna veðráttunnar. Ekki er
ég fyrr kominn út i skýli hjá mér
úti'i’heimi. betta eru heiíagar
kýr jafnvel þó að þær stæðu að
fjöldamorðum á Falklandseyj-
um af litlu tilefni. Sennilega
ættu allir starfsmenn útvarps að
vera bæði heyrnarlausir og
mállausir til þess að vera Morg-
unblaðinu þóknanlegir.
Halldór
til að sólbaða á mér kroppinn —
en dregur ský fyrir sólu. Verður
þá litið úr brúnkunni sem ég
ætlaði að verða mér úti um i
sumar. Ekki nóg með það. Ég
verð auðvitað bálreiður, snara
mér i baðsloppinn, skola af mér
moldrykið sem alltaf er i aust-
urbænum og æði inn i hús og
klæði mig. Ekki er ég fyrr búinn
að klæða mig i skyrtuna og
jakkafötin og hnýta á mig háls-
bindið (gult) en ég lit út um
gluggann og hvað sé ég: Glamp-
andi sólskin! Ekki veit ég
hverju þetta sætir, hvort ég er
svona óheppinn, fæddur i vit-
lausu stjörnumerki eða eitthvað
i þá áttina. En hitt veit ég, að ég
er búinn að fá nóg af veðrinu i
Reykjavik. Þvi sting ég upp á að
Reykjavikurborg sjái ibúum
fyrir sérstakri sólbaðsströnd
t.d. i námunda við Korpúlfs-
staði.
Bjössi.
Kattahorn
Of mikill fiskur er ó-
hollur fyrir ketti og getur
orsakaö krampa# lömun
eöa dauða. Það á þvi að
gefa þeim fjölbreyttan
mat.
Reynið að finna
réttu leiðina
Veistu afhvcrju Hafnfirðingar
strá pillunni á götnrnar hjá sér?
Nei.
Þeir viija ekki hafa nein börn
götunni...
Veistu af hverju Hafnfiröingar
standa alltaf kyrrir meðan þeir
tala i simann?
, NeL
Þaö er nebbilega komin skrefa-
talning.
Barnahornid
(Brandararnir eru fengnir að
láni úr Aleggi. bekkjarblaði I
Vesturbæ jarskólanum)
Föstudagur 25. júni 1982 ÞJÓÐVILÍINN — SÍÐA 15
Sigurveig Hjaltested söngkona.
Kvöldvakan
19. öldin í brennidepli
Kvöldvakan er fjölbreytt að
vanda i kvöld. Sigurveig
Hjaltested syngur islensk lög
við undirleik Fritz Weisshapp-
el á pianó. Erlingur Daviðs-
son, fyrrverandi ritstjóri Dags
á Akureyri og frægur endur-
minningaskrásetjari flytur
frumsamdan frásöguþátt, Að
rækta blettinn sinn. Þetta er
vorpistill um gróður og skóg-
rækt. En einsog margir vita er
Erlingur bróðir Ingólfs grasa-
fræðings Daviðssonar. Sigrið-
ur Schiöth les sendibréf frá
löngu liðnu vori, en það er
bréf frá Ragnheiði Daniels-
dóttur prestsdóttur á Hólmum
i Reyðaríirði til frænku henn-
ar á Akureyri. Bréfið er
skemmtilega stilað og skrifað
á hinni öldinni. Þá syngja
norðlenskir karlakórar nokk-
ur lög.
Það er meira nitjándualdar-
efni á kvöldvökunni. Birgir
Sigurðsson les þátt eftir
Magnús Sveinsson frá Hvits-
stöðum um Eyjólf ljóstoll
Magnússon og fer með nokkr-
ar lausavisur eftir ljóstollinn.
Eyjólfur var barnakennari i
Borgarfirði en fluttist siðar til
Reykjavikur þarsem hann
haföi með höndum innheimtu
á ljósmeti (eftir þvi sem næst
Erlingur Daviðsson rithöfund-
ur.
verður komist). Hlaut hann
viðurnefnið af þeim starfa.
„Þorskabitur” Þorbjörn
Björnsson var einnig nitjándu
aldarmaður og Borgliröingur.
Hann flutti til Vesturheims og
birti ljóð undir nafninu
Þorskabitur. Hlaut hann af þvi
viðurnefnið. Baldur Pálmason
les ljóð eftir Þorbjörn Þorska-
bit.
Útvarp
kl. 20.40
Þetta eru engir smá tittir sem sýndir veröa í sjónvarpinu í kvöld.
Risaskepnur í
Kaliforníuflóa
I kvöld kl. 21.20 veröur sýnd
bresk fræðslumynd um sjáv-
arlif, Risarnir i Kaliforniu-
flóa. Hjónin Krov og Ann
Menuhin tóku þessa mynd en
þau eru þekkt fyrir kvik-
myndatökur sinar neðansjáv-
ar. Meðal annars verða sýnd-
ar risaskepnur i sjónum, kvik-
endi nokkurt vegur litil 40
tonn. Þetta er falleg mynd fyr-
ir alla fjölskylduna, sagði
Guðmundur Ingi Kristjánsson
(Róbertssonar prests og þuls)
dagskrárfulltrúi hjá sjónvarp-
inu þegar blaðið leitaði álits
hans á þessari mynd.
Sjónvarp
kl. 21.20
Einvígið
Einvigið fær hvorki meira
né minna en þrjár stjörnur I
kvikmyndahandbókum sem
þykir all - sæmilegt. Kvik-
myndin er það sem kallað er
hörkuspennandi og þykir
mörgum sjálfsagt nóg um.
Söguþráðurinn er nokkuð
einfaldur: Maður nokkur ekur
á bifreið sinni á þjóðvegi i
Kaliforniu. Hann gerir tilraun
til að fara fram úr stórum
vigið án vopnahlés þartil
yfir lýkur. 1 myndinni eru
magnaðar „senur” sem fá
hárin til að risa...
Aðalleikari myndarinnar er
Dennis Weaver (lék McCloud)
en leikstjóri er Steven Spiel-
berg. Myndin var gerð fyrir
sjónvarp i Bandarikjunum ár-
ið 1971.
Sjónvarp
kl. 22.10