Þjóðviljinn - 29.06.1982, Síða 3
Þriöjudagur 29. jdni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Bjöm Dagbjartsson formaður hringormanefndar:
Störf okkar hafa
ekki farið leynt
,, Hringormanefnd hefur
ekki tekiö afstööu til bréfs-
ins sem barst frá Land-
vernd í lok síðustu viku.
Þaö kemur mér ekkert á ó-
vart að Landvernd skuli
láta sig þessi mál
einhverju skipta", sagði
Björn Dagbjartsson for-
maður hringormanefndar
aðspurður um viðbrögð
nefndarmanna við bréf-
inu.
Skipan hringormanefndar hef-
ur veriö gagnrýnd en i henni eiga
Jakob Jakobsson fiskifræðingur um selveiðamar:
Ber undarlega að
Undirnefnd í Náttúru-
verndarráði hélt i gær f und
með tveim fulltrúum
hringormanefndar. Voru
þar kynnt sjónarmið
beggja aðila,en fram hefur
komið að Náttúruverndar-
ráð er andvígt verðlauna-
veitingum fyrir seladráp
við Island og ekki sist með
hvaða hætti til þessara
veiða var boðað. Fyrir
liggur bréf frá stjórn
Landverndar þar sem
hringormanefnd er beðin
að endurskoða ákvörðun
sína um selaveiðarnar.
Jakob Jakobsson fiskifræöing-
ur sem er varamaöur i Náttúru-
verndarráöi sagöi i samtali viö
Þjóöviljann i gær aö hinar boöuöu
selveiöar hringormanefndar
sæti hagsmunaaöilar i sjávarút-
vegi einvöröungu. Um þá gagn-
rýni sagöi Björn: „Ég vona aö
engum detti i hug aö nefndar-
menn kaupi niöurstööur islenskra
visindamanna. Annars má benda
á aö sjávarútvegsmálaráöuneyt-
iö skipaöi þessa nefnd, þess efnis
aö niöurstööur rannsókna sem
hringormanefnd grundvalli sel-
veiðarnar á, hafi ekki veriö nægi-
lega vel kynntar”. Sagöi Björn aö
störf hringormanefndar hefðu
ekki fariö leynt og rannsóknir á
selastofninum og háttum selsins
hafi staöiö i 2 ár. Hann sagöi aö
þeir sem sæti ættu i hringorma-
nefnd hefðu ekki gert sér far um
aö halda niðurstöðum rannsókna
leyndum.
— hól.
bæri undarlega aö ekki stst meÓ
tilliti til þess aö þær væru einhliöa
ákveönar af hagsmunaaöilum i
sjávarútvegi, án þess aö tillit
væri tekiö til náttúruverndarsjón-
armiöa. Jakob staöfesti þaö aö
þær rannsóknir sem lægu til
grundvallar selveiöunum heföu
ekki veriö kynnt nægilega og vist
væri að almenningur ætti ekki
nokkra möguleika á aö nálgast
gögn um þetta mál: „Þetta kem-
ur ýmsum spánskt fyrir sjónir”,
sagöi Jakob.
Jakob sagöi aö Náttúruvernd-
arráö ætti enn eftir aö taka form-
lega afstööu til selveiðanna.
Veröur þaö væntanlega gert i
upphafi næstu viku. —hól.
j Iönaðarráðuneytið
| með nýtt verkefni
| /
j A að örva
! myndun
I smáiyrlr-
j tækja
j í iðnaði
I lönaöarráðuneytiö hefur
■ ákveöið aö hrinda af staö
verkefni til að örva myndun
smáfyrirtækja I iönaði og ný-
sköpun i starfandi iðnfyrir-
tækjum. 1 verkefnið er ráöist
i framhaldi af setningu laga
um iðnráögjafa og má iita á
það sem einn þátt af mörg-
um til aö stuöla að iönþróun i
landinu, segir i fréttatil-
kynningu frá iðnaðarráðu-
neytinu.
Viða um land er fólk að
velta fyrir sér hugmyndum
um smáiönað, en skortir oft
þekkingu og aðstoð til að fá
úr þvi skorið, hvort um raun-
hæfa kosti sé að ræða. Þetta
verkefni byggist jöfnum
höndum á miðlun þekkingar
og sjálfsnámi. Leitaö verður
eftir þátttakendum frá öllum
landshlutum og fyrst og
fremst skirskotað til þeirra
sem búa yfir hugmyndum
um ný viðfangsefni i iðnaði
eða nýsköpun i starfandi
fyrirtækjum. Þátttakendur
eiga siðan að glima við að
kanna tæknilegar og hagræn
ar forsendur fyrir rekstri
smáfyrirtækja. Hér er ekki
um að ræða námskeið i
venjulegum skilningi heldur
þekkingaröflun, sem fram
fer bæði á sameiginlegum
vinnufundum og með sjálf-
stæöu starfi þátttakenda.
Undirbúningur að þessu
verkefni hófst haustið 1981. 1
sumar fer fram þjálfun leið-
beinanda en verkefnið verð-
ur siðan kynnt rækilega i
fjölmiðlum og á ýmsan ann-
an hátt siðar i sumar og þá
jafnframt auglýst eftir þátt-
takendum.
Norska ráðgjafafyrirtækið
Indevo a/s mun aðstoða við
framkvæmd verkefnisins en
þaö fyrirtæki hefur tekið þátt
i hliðstæðum verkefnum á
öörum Norðurlöndum, m.a. i
Norður-Noregi.
Iðnaðarráðuneytið hefur
falið nýskipaðri Samstarfs-
nefnd um iðnráðgjöf i lands-
hlutunum að hafa umsjón
með verkefninu i samvinnu
við iðnráðgjafa er þar starfa.
Þeir Siguröur Þórarinsson og Kristján Eldjárn fylgjast meö Jónasi Kristjánssyni fara höndum um
„Eldinn”. Mynd: —eik.
Afmælisrit dr. Sigurðar Þórarinssonar:
„Eldur er í norðri”
I tilefni af sjötugsaf mæli
dr. Siguröar Þórarinsson-
ar, jarðfræöings, hinn 8.
jan. sl., gengust ýmis félög
fyrir útgáfu afmælisrits
honum til heiðurs. Tók
Sögufélagið að sér að sjá
um útgáfuna en önnur fé-
lög sem að henni standa
eru: Hið islenska náttúru-
fræðifélag, Jarðfræðafé-
lag Islands, Landfræðifé-
lagið, Hið islenska forn-
leifafélag, Jöklarann-
sóknafélag Islands, Nor-
ræna félagið og Vísindafé-
lag islendinga. Það er
löngu alkunna að Sigurður
er maður ekki einhamur,
enda hefur hann tekið
verulegan þátt i starfi
allra þessara félaga.
Ritnefnd bókarinnar skipuöu:
Helga Þórarinsdóttir, ólafur H.
Óskarsson, Siguröur Steinþórsson
og Þorleifur Einarsson.
Sföastliöinn föstudag afhenti
svo Siguröur Steinþórsson nafna
sinum bókina meö nokkrum vel
völdum oröum, aö viöstöddum
ýmsum aöstandendum hennar.
Dr. Siguröur Þórarinsson þakk-
aöi auösýndan heiöur og vináttu.
— Þaö besta viö svona bók, sagöi
hann, — er aö hún hvetur menn til
aö skrifa um þessi mál á islensku
en ekki erlendum tungum. Og
voru orð aö sönnu.
Bókinni var valiö hiö táknræna
nafn: „Eldur er i norðri” Visar
það til erindis úr kvæði Jónasar
Hallgrimssonar, Kveöju til Upp-
salafundarins 1843:
„Eldur er i noröri,
ey hefur reista
móöir yfir mar,
beltaö bláfjöllum,
blómgaö grasdölum,
faldaö hvitri fönn”.
„Eldur er i noröri” er 520 bls. i
stóru broti og hefur aö geyma 47
ritgeröir um hin margvislegustu
efni sem öll tengjast þó ævistarfi
Siguröar. Hann hefur ekki einasta
sinnt jaröfræöi og landafræöi
„sem er mitt fag” eins og
Marka-Leifi sagöi þegar hann lá
inni I tjaldi á Alþingishátiöinni á
Þingvöllum 1930 og notaði timann
til þess að kynna sér Markaskrá
Arnessýslu en létsér fátt um finn-
ast dýrðina utan dyra, — heldur
er hans og getib I sambandi viö
bókmenntir og sögu fornleifa-
fræöi og jöklafræöi félagsfræöi og
náttúruverndarmál og hvergi aö
litlu. Auk ritgeröanna geymir
bókin ritaskrá Siguröar frá 1931-
1981, ýmsar myndir úr ævi hans
og starfi grein um afmælisbarniö
eftir Þorleif Einarsson og tvö
kort, sem Gylfi Már Guöbergsson
hefur gert. Sýna þau annarsvegar
þá staöi á tslandi, sem Siguröur
hefur rannsakaö og ritað um og
hinsvegar þá háskóla og borgir,
vitt og breitt um veröldina, þar
sem hann hefur flutt fyrirlestra.
Loks er svo aö finna i bókinni þá
lengstu „Tabúlu gratúlatóriu”
sem vitað er um á voru landi til
þessa. Eru þar nöfn 1900 áskrif-
enda sem meö þessum hætti vildu
heiöra Sigurð á sjötugsafmælinu.
„Eldur er I norbri” liggur
frammi hjá Sögufélaginu aö
Garöastræti 13-B, gengiö inn frá
Fischersundi og biöur þar þess að
verða vitjað af áskrifendum.
Dr. Sigurður Þórarinsson er
einn okkar mikilhæfassti og mik-
ilvirkasti visindamaöur. Hann er
þvi manna best kominn aö fimm
hundruö og tuttugu blaösiöna bók
meö fjörutíu og sjö ritgeröum. En
svo segja mér vinir hans aö vænst
þyki þeim um hann fyrir þaö, hve
elskulega mannlegur hann er.
— mhg.
Björn Dagbjartsson formaöur
hringormanefndar.
Jakob Jakobsson fiskifræöingur
Grænmetis-.
kynning
verðlækkun
á papriku
og tómötum
Sýnt þykir nú aö ágæt uppskera
veröi á ýmsu grænmeti og gróö-
urhúsaafurðum aö þessu sinni.
Sölufélag garöyrkjumanna hef-
ur þvi ákveðið að efna til sér-
stakrar kynningingar á tómötum
og paprikum. Hófst hún i gær og
stendur næstu daga. Kynningin
fer fram i öllum matvörubúöum
landsins. Jafnframt munu þessar
vörutegundir seldar á mun lægra
verði en áður, svo aö nema mun
allt aö helmingi. — mhg.
Bflastuldur
og fleira
á Akureyri
Maöur var handtekinn I Skaga-
firöi á sunnudag, sterklega grun-
aður um að hafa stolið bifreið frá
Akureyri fyrr um daginn.
Vegna fréttar I Dagblaðinu &
Visi i gær þar sem látið var aö þvi
liggja aö þarna færi e.t.v. stórinn-
brotamaður haföi Þjóöviljinn
samband viö Ófeig Baldursson
hjá rannsóknardeild lögreglunn-
ar á Akureyri. Sagði hann aö
þessi tiltekni maöur heföi ekki
játað á sig bilstuldinn, en bilnum
hafði veriö keyrt út I skurö og
skemmst talsvert.
Sagöi Ófeigur aö þó beindust öll
bönd aö þessum manni og reynd-
ar lægi grunur á aö hann stæöi að
ýmsum nýlegum innbrotum á Ak-
ureyri og nágrenni. Ófeigur sagöi
að ekkert benti þó til þess aö
þarna væri kominn aöili aö inn-
brotunum tveim I Bilaleigu Akur-
eyrar sem framin voru á liönu
ári.
Útiskákmót
í miðbænum
Skáksamband tslands hyggst
gangast fyrir útiskákmóti I byrj-
un júli. Skákmót þetta mun veröa
með svipuðu sniði og útimót þau
er skákfélagið Mjöinir hélt á sin-
um tima. Þóttu mót þessi heppn-
ast prýðilega, a.m.k. frá sjónar-
hóli Þjóðviljans sem sigraði i
þeim I þrem skiptum af fjórum.
Aætlaö er aö allir bestu skák-
menn þjóöarinnar veröi meö i
móti þessu en ekki er búiö aö dag-
setja mótiö. Mun þaö veröa gert
meö hliðsjón af spádómum veö-
urfræðinga. — hól.