Þjóðviljinn - 29.06.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.06.1982, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 29. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5 Innrásin í Líbanon: A hverri stundu mega menn búast við þvi að ísraeiski herinn geri loka- áhlaup á Vestur-Beirút. Þar með hefðu ráðamenn þar í landi náð því megin- markmiði sinu með inn- rásinni í Líbanon, að ganga milli bols og höf- uðs á PLO, Frelsissam- tökum Palestínumanna — eða að minnsta kosti eyði- leggja hernaðarstyrk þeirra. En þótt hernaðarlegur sigur blasi viö er ekki þar með sagt, að allir Israelar og þaðan af siö- ur allir Gyðingar séu hrifnir af þessari styrjöld þeirra Begins og Sharons hermálaráðherra. Það er meira að segja haft fyrir satt, að þessi styrjöld við ara- biska nágranna sem er nú orðin íengri en allar aðrar nema sjálf- stæðisstriðið, hafi komið fleiri Israelum til að endurskoða hug sinn til Palestinumálsins en hin- ar fyrri. Ýmsar ástæður Sú gagnrýni sem fram hefur Beirút er i rústum: og þeim fjölgar sem segja: nú er nóg komið Gyðíngleg gagnrýni á stjóm Israels n ■ > ■ komið i Israel á sér ýmislegar forsendur. Aðalblökkin i stjórn- arandstöðu, Verkamannaflokk- urinn og Mapam, flokkur vinstrisionista, heldur þvi fram að logið hafi verið að henni um tilgang og umfang innrásarinn- ar — hafi hún verið látin standa i þeirri meiningu að einungis ætti að „friða” um 40 km. belti norðan landamæranna. Þess i stað heyi Israelsher nú útrým- ingarstrið gegn PLO og kosti það bæði mannfórnir miklar og eyðileggingu libanskra borga og hafi hvorutveggja gert stöðu Is- raels i heiminum lakari en nokkru sinni fyrr. Þá eru og þeir til sem malda I móinn þegar þeir eftir sigur- vimu fyrstu dagana gera sér grein fyrir þvi að styrjöldin i Li- banon kostar mikið fé — ekki minna en miljarð dollara nú þegar. Begin hefur þegar hækk- að virðisaukaskatt og boðaðar eru harkalegar efnahagsráð- stafanir i þessu mikla verð- bólgulandi til að hafa upp i striðskostnaðinn. Deig andstaða Stjórnarandstöðublökkin þyk- ir reyndar hafa staðið sig illa i afstöðu til striðsins. Hún hefur verið mjög lin i gagnrýni yfir- leitt og látið Begin og Sharon flækja sér æ rækilegar i mark- mið, sem fóru langt út fyrir það sem i fyrstu var látið i veðri vaka að til stæði. Fyrrgreindur hluti hennar, Mapam, sem og kibbútshreyfingin, hafa þó mannað sig uppl að mótmæla á- hlaupi á Vestur-Beirút, og vilja að diplómatiskrar lausnir séu teknar fram yfir hernaðarlegar. Nóg! Engu að siður fer gagnrýnin i Israel sjálfu vaxandi á þá stefnu sem hægristjórnin fylgir og Verkamannaflokkurinn styður að verulegu leyti. 1 frjálslyndari blöðum, einkum Haarez, hefur veriö farin mikil auglýsingaher- ferð, þar sem þekktir og óþekkt- ir ísraelar setja nöfn sin undir mótmæli á borð við þetta: „Nóg er komið! Við undirrit- uö krefjumst þess að Israels- stjórn stöðvi styrjöldina og láti herinn hverfa frá Libanon. Palestinumálið verður ekki leyst af Israelsher, hve sterkur sem hann er. Stefna Israels- stjórnar leiöir til eilifðarstriðs á öllu svæðinu: þúsundir manna munu láta llfið, hundruð þús- unda veröa flóttamenn.” Alþjóðleg friðarhreyfing Þau tiðindi hafa og gerst og þykja merkileg, að vikuna eftir innrásina komu fulltrúar ým- issa Gyðingahópa saman I Par- Is. Þar stofnuðu Gyðingar frá Bandarikjunum, Frakklandi, Bretlandi og Hollandi Alþjóðleg friðarsamtök Gyðinga. Þar er tekin sú stefna að sambúðarmál tsraela og Araba verði þá að- eins leyst að Palestinumenn fái tækifæri til að stofna eigið riki á vesturbakka Jórdanar og á Gazasvæðinu. Þetta er sú stefna sem ýmsir minnihlutahópar i tsrael sjálfu hafa mælt með, meðal annarra hinn kunni rit- stjóri Haolam Haze, Ori Avneri. Tími til kominn Einn þeirra sem áttu aðild að stofnun hinna nýju alþjóðlegu Gyðingasamtaka, blaðamaður- inn Ori Jaari segir i viðtali við Information að það sé Iöngu kominn timi til að Gyðingar og aðrir vinir ísraels láti til sin heyra og samþykki ekki hvað það sem stjórnvöld i Israel vilja að þeim rétta. Hann viöurkennir að þaö hafi veriö erfitt tilfinn- ingamál fyrir ýmsa Gyðinga að hreyfa þeirri gagnrýni opinber- lega, sem þeir stundum höfðu uppi „inn á við” af ótta við að „óvinurinn notfærði sér það”. En nú sé komið að þeim þátta- skilum að margir telji að það þurfi að koma á samtökum Gyð- inga viöa um heim, sem geti, ef þau ná styrk, haft áhrif á stefnu israelskra stjórnvalda. Menn fá ekki áhrif, segir Jaari meö þvi að jánka öllu sem gert er. Bandarikin Ýmsir draga það fram, að samstaða Bandarikjastjórnar meö ráðamönnum i Israel geri friðaröflum meðal Gyðinga sjálfra erfitt fyrir. Ritstjóri blaðs Mapam, A1 Hamisjmar Marek Gefen, segir i nýlegri grein, að áform Begins og Shar- ons um að útrýma PLO, reka Sýrlendinga frá Libanon og koma þar upp hægristjórn, vin- samlegri Israel hafi verið sam- ræmd meö stjórn Bandarikj- anna. „Enda þótt Bandarikin sýni vissa gagnrýni, segir Gef- en, hvetja þau Begin og Sharon til að koma PLO og Sýrlending- um á brott úr Libanon svo að hægt sé að koma á þeirri „nýju skipan” sem Washington ósk- Haig skellir hurðum Rcafian forseti kom á skerminn hálfklökkur og kvaddi trúan þén- ara sem hann kailaöi svo, Alex- ander Haig utanrikisráðherra, sem hafði sagt af sér. Og Haig kom.á eftir og leit heiminn sinum alvarlegum augum og sagðist farinn úrHvita húsinu vegna þess að ekki hefði verið fylgt eftir þeirri „mannúðlegu og sjálfri sér samkvæmu stefnu” i utanrikis- málum, sem þeir forsetinn hefðu komið sér saman um i upphafi. Siðan hefur ekki linnt athuga- semdum við þessi óvæntu tiðindi og véfréttarlegu útskýringar. Tvö islensk dagblöð eru búin að skrifa leiðara um afsögn Haigs. Og þar er sem óg viða annarsstaðar, minnt á ýmisleg ágreiningsmál innan þess hóps sem fer með æöstu vöid I Bandarikjunum. Það er tekið fram, að Haig hafi með þvi að taka eftir nokkra bið ein- dregna afstöðu með Bretum i Falklandseyjadeilunni, spillt sambúð við áhrifaaðila eins og Jeane Kirkpatrick sendiherra Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. En hún hafði fundið upp formúlu sem Reagan var mjög hrifinn af: formúlu sem réttlætti vinsamleg samskipti við „hefðbundnar einræðisstjórnir” eins og stjórnir á borð við herfor- ingjaklikur Rómönsku Ameriku voru kallaðar. Það er tekið fram, að Haig hafi viljað veita Israels- mönnum skilmálalausari stuðn- ing i Libanon en kappinautur hans um að ná eyrum forsetans, Weinberger landvarnarráðherra. ' Og svo er sagt að Haig hafi skilið Evrópumenn betur en ýmsir aðr- ir i stjórn Reagans. Allt má þetta vel vera rétt. Það er til dæmis ljóst, að sú ákvörðun stjórnar Reagans, að herða á við- leitni sinni til að koma i veg fyrir lagningu gasleiðslu frá Sovétrikj- unum til Vestur-Evrópu vakti upp mikla gremju I Þýskalandi. Lambsdorf efnahagsmálaráö- herra Bonnstjórnarinnar lýsti þvi m.a. yfir að hér væri um að ræða svik við samkomulag það sem æðstu menn Vestur-Evrópurikja töldu sig hafa náð á nýlegum fundum i Versölum og Bonn. Það má vel hugsa sér að einmitt utan- rikisráðherrann telji sig i klemmu staddaan við slika uppá- komu. Betri eða verri? En þegar menn velta þessum dæmum fyrir sér fram og aftur er erfitt að sjá, að Haig hafi verið ,betri” eöa „verri” en aörir á- hrifamenn stjórnar Reagans. Þar á bæ skiptast menn ekki i dúfur eða hauka sem svo eru nefndir — þar virðast allir herskáir haukar. Munurinná þeim getur hinsvegar verið sá að þeir raða verkefnum i heimsmálum hver með sinum hætti. Haig studdi Breta ekki af ást til lýðræðis i Argentinu, held- ur vegna þess að hann setur Nató- sambandið öðru ofar. Sama ástæða fær hann til að skilja að þótt hann sjálfur sé þess mjög hvetjandi að beita Sovétrikin ým- islegum refsiaðgerðum, þá er það ekki viturlegt fyrir þann sem vill veg Nató mikinn, að reyna aö skipa Vestur-Evrópu fyrir um það i stóru og smáu hvernig hún hagar sér i viðskiptum við aust- urblökkina. Kannski er munurinn fyrst og fremst sá að Haig er, vegna fyrri ferils, lífsreyndari maöur en ýmsir þeir græningjar sem Reagan hefur leitt inn I Hvita húsið og láta eins og pólitisk stór- mál séu privatmál þeirra fyrir- tækja sem þeir hafa átt eöa ráöið. Haig sem yfirmaður herafla Nató; liklega var hann heimsvan- ari en hinir. Afsögn Haigs er að einu leyti skyld afsögn Williams Rodgers sem vék i tið Nixons fyrir Kiss- inger þáverandi öryggismálaráð- gjafa. I þeim tilfellum og reyndar fleiri var um að ræða átök milli hinna ýmsu stofnana utanrikis- ráðuneytis, varnarmálaráöu- neytis og öryggismálaráðs eða réttara sagt milli æðstu manna þeirra, um mótun utanrikisstefn- unnar. Hitt getur svo reynst erfið- ara að skýra hverju mannaskipti ráða svo i raun um bandariska ut- anrikisstefnu. Að minnsta kosti sýnist ekki feitan gölt að flá til valkosta þar sem lið Reagans er. Það væri helst hjá foringjum demókrata og I sambandi þeirra við bandariska friðarhreyfingu að einhverra nýrra leiða væri að leita. áb. FRÁ FLÓRIDA feeröu í mjólkurkælinum! Floridana safar og þykkni bestu kaupin!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.