Þjóðviljinn - 29.06.1982, Síða 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. júni 1982
Þriðjudagur 29. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
IVIeð eiiifölduin iiieðuluni fær Ituben áhorfendur á sitt band. Ljósni.: —eik—
Sirkusskólinn var ekki siður skóli fyrir fullorðna fólkið
aö taka ekki siöur þátt I sýningunni. Ljósm.: — jsj.
en börnin —
Ruben braut niöur skynsemismúrinn, og fékk það til
„Þá fyrst þorir fullorðna fólkið að hlæja”
— trúðurinn Ruben í viðtali eftir sýningu
Trúðurinn Ruben var i hópi
þeirra listamanna, sem tróðu upp
á nýafstaðinni Listahátið, og
flutti hefðbundinn trúðleik, eins
og hann gerist einlægastur og þar
með bestur og var með trúða-
skóla að auki; hvort tveggja varð
þetta vinsælt, og það svo, að sýn-
ingum hans hér fjölgaði verulega,
og margir urðu að hverfa frá
sirkusskólanum.
Undirritaður sá fyrstu trúða-
sýningu Rubens i Norræna húsinu
og átti þess kost að hitta hann að
lokinni sýningunni til viðtals-
tektar; og það viðtal birtist nú þó
Listahátið sé lokið. Ruben
stendur fyrir sinu þrátt fyrir það,
og á vonandi eftir að koma hingað
til lands oftar. Vist er, að þá
verður þaö dálitil listahátið út af
fyrir sig.
Að lokinni sýningu
Eftir aö trúðnum hefur verið
klappað lof i lófa af þakklátum
áhorfendum, ungum sem öldnum,
er mér visað inn i annað gesta-
herbergi Norræna hússins. Þar
situr hann beinn i baki, búinn að
taka af sér hárkolluna og trúðs-
nefið og kominn úr jakkanum.
Ennþá er faröinn smurður á and-
litið; þó farinn að láta á sjá af
svita. Og hann er þreytulegur.
Trúður í tíu ár
Ég spyr hann fyrst, hve lengi
hann hafi verið trúður, og hvers
vegna hann hafi lagt trúðleikinn
fyrir sig.
,,Ég hef verið trúður i tiu ár”,
svarar Ruben trúður — hann er
Madsen að eftirnafni — ,,og ég
byrjaði á þvi einfaldlega af þvi ég
fékk tækifærið til þess. örlögin
höguðu þvi þannig, að ég gat oröið
trúður, ef mig langaði til, og ég
sló til. Og það gekk ágætiega, og
hefur gengið ágætlega. Aö
minnsta kosti fram aö þessu”.
Hann treystir enda mjög á
samband sitt við áhorfendur, eins
og þeir hafa án efa orðiö varir við.
,,Já, það er ef svo má segja,
min aðferð. Hugmynd min er sú
að nota mjög einföld meðul, en i
afar nánu sambandi við áhorf-
endur. Þeir kunna að meta það.
Reynslan hefur sýnt það, svo ekki
verður um villst. Og nú skai ég
sýna þér dálitið....”
,/Þér búiö yfir dásam-
legum eiginleika"
Ruben sprettur á fætur og rótar
dágóða stund i plöggum og skjöl-
um, sem liggja i bunkum á borö-
inu. A meðan segir hann mér, að
hann sé nýkominn frá Sovétrikj-
unum...
„Hérna er það,” segir hann og
lesúr bréfi úr bunkanum: „Agæti
Ruben Madsen. Leiklistarfélag
Lettlands lætur i ljósi hjartans-
þakkir fyrir sýningu yðar i Rikis-
íeikhúsinu i Riga fyrir lettnesk
börn og leikhúsfólk, Viö sann-
færöumst um að þér búið yfir
dásamlegum, iistrænum eigin-
leika; að ná áhorfendum fljótt og
vel á yðar band”...
Ruben snögghættir lestrinum
og litur til min. „Það er ao'segja,
að ná sambandi viö áhorfendur”,
útskýrir hann. Og það tekst
Ruben.
Um sama Ieyti kom Ruben
fram á Sovéska trúðamótinu, sem
haldiðer árlega, en þangaö sækja
trúðar frá öllum Sovétrikjunum
og austantjaldslöndunum.
Sérstakur heiðurstrúður
„Það er heill heimur út af fyrir
sig”, segir Ruben. „Og það var
núna sem trúður frá Vesturlönd-
um kom fram á þessu móti i
fyrsta sinni. Og þetta skjal
hérna”.. Ruben leitar aftur i
bunkanum... „Hér hefur, sko ekki
verið tekið til”... og sýnir mér
innbundiö skjal, skrifaö á rúss-
nesku. „Hérna stendur að ég hef
komið fram sem sérstakur
„Hámarksgróði, ógeðslegt orð”
I — Mgh ræðir
Ivið Einar
Petersea Kleif
■ ————————————
IEinar Petersen í Kleif
sat á tali við Sigríði síma-
, konu einn morguninn
Iþegar ég kom hér inn á
blaðið. Mér sýndist hann
vilja hafa tal af mér þótt
Ihann nefndi það ekki. En
ég var að hraða mér á 10-
fundinn uppi í kaffi-
J stofunni og lét þess getið,
að ég kæmi kannski niður
eftir svona hálftíma.
■ Einar lét það gott heita og
Iþau Sigríður héldu áfram
að skrafa saman.
, En næsti hálftími varð
þrjú /,korter" eins og hjá
Sigurjóni á Álafossi, þegar
hann var að selja inn á
danspallinn.
Og Einar beið, nýkominn frá
Danmörku. Brá sér þangað að
baki páskum og var ytra i 9 vikur.
— Hvaö var annars orðið langt
siðan þú hafðir vitjað fööurlands-
ins, Einar?
— Þrjátiu og fimm ár, hafði
framtið þjóöarinnar. Mér er sagt
að fólkinu fækki. Ef þrengt er
ekki komiö til Danmerkur i 35 ár
þar til nú, var þar seinast 1947. Og
þá sá ég raunar litið af Danmörku
þótt ekki sé hún ýkja stór. En að
sjá Danmörk er aö vera út i sveit.
Og ég hef ekki verið þar úti i sveit
siðan 1939 þar til nú. En nú var ég
úti i 9 vikur og endurnýjaöi kynn-
in við sveitalifið.
— Og margt hefur liklega tekið
stakkaskiptum siöan?
— Blessaöur vertu, fyrir mig
var þetta alveg nýtt land. Ég
þekkti það ekki aftur. Svefnbæ-
irnir eru nú aö teyja sig út um
allt. Danskir bændur eru að
flosna upp, einkum i góðsveit-
unum. Allt er orðið vélvætt.
Aðeins á sjöunda hverjum sveita-
bæ i Danmörku fvrirfinnst ennbá
vinnutólk. Penningshúsin standa
tóm og grotna niður, ónotaöar og
úr sér gengnar vélar liggja i
haugum. Það er ekkert nýtt að
konur I þéttbýli vinni utan heim-
ilis. En nú eru bændakonurnar
farnar til þess lika. Þaö finnst
méróhugnaniegt.
Verksmiöjubú
Búin eru að breytast i verk-
smiðjubú. Hinn venjulegi bóndi er
að hverfa. Þetta er rökrétt afleiö-
ing af stefnu þeirra, sem fara
með völdin. Danmörk er fyrst og
fremst landbúnaðarland aö öllu
eöli. Hvaða vit er i að gera hana
aö verksmiðjulandi?
Og ég er beinlinis hræddur um
með rányrkju eða öörum hætti að
undirstööu dansks þjóðlifs, sem
er landiö sjálft, þá hrynur öll
byggingin. Menn verða að hafa
jörð undir fótunum, menn ganga
ekki á vatninu.
Og svo sá ég ekki betur en
margar þessar verksmiðjur, sem
öllu áttu aö bjarga, standi uppi
verkefnalausar. Smærri bændum
er útrýmt til þess að gera landiö
aö verksmiöjuverum, eftir
kokkabókum einhverra verk-
fræöinga, sem enga hagnýta
reynslu hafa, bara eitthvert „vit”
úr bókum.
Gengiö á höfuöstólinn
Þetta svokallaða framleiðslu-
hámark, hámarksgróði heitir þaö
vist lika, — ógeðslegt orð, — næst
aðeins með rányrkju. Viö erum
allsstaðar að ganga á þau verö-
mæti, sem mannkynið þarf að
vernda til þess aö geta lifaö.
Þetta á ekki bara við um Dan-
mörk, þetta gerist allsstaðar. Viö
tökum nefnilega meira en viö
gefum. Hvar endar þaö? Það er
spurning, sem mér finnst menn
vilji ekki horfast i augu við.
1 Danmörku sýnast mér þeir
bændur búa best, sem eru á lé-
legustu jöröunum. Þeir sniðá sér
stakk eítir vexti og eftir þeim
jörðum sælast gróöabraskararnir
ekki. Þeim linnst ekki eftir nógu
að slægjast. þar.
Eins og ég sagði áðan næst
hámarksgróöi ekki nema meö
rányrkju, sem aftur felur i sér að
gróöinn fer smátt og smátt
minnkandi vegna þess að undir-
staðan visnar. Ég er hræddur um
að Danir séu aö glata þessari
undirstöðu, þaö er það, sem mér
fannst verst aö veröa vitni að i
minu gamla landi.
Verksmiöjubúin hafa sýnt, að
þau eru engin lausn á vanda-
málum landbúnaöarins. Þau
bre^ta engu til batnaðar en skapa
ný vandamál. Og verksmiðjubú-
in, sem nú eru að gefast upp, selj-
ast ekki nema fyrir 1/4 af þvi sem
það kostaöi aö koma þeim á fót.
Það getur enginn keypt þetta.
Yfirborðiö á þessu öllu er kannski
nógu fallegt en annaö kemur i ljós
þegar betur er að gáö og litiö á
bakhliðina.
Er hiö sama að gerast hér?
Þvi miöur er ég ákaflega
hræddur um að viö séum að lenda
i sama farinu hér. Bændur, og
raunar allur almenningur, ræður I
alltaf minna og minna en
þjóðfélagið er i siauknum mæli
rekið af einhverjum „sérfræð-
ingum”, sem eru i engri snert-
ingu við raunveruleikann. Is- 1
lenskir bændur ættu ekki að
treysta of mikiö á innfluttan
fóðurbæti, hann veröur bráðum
ófáanlegur. A þvi sviði þurfum J
við að vera sjálfum okkur nógir.
Islenskur landbúnaður má ekki
verða verksmiðjubúskapur. Þaö
þýöir útrýmingu bændastéttar-
innar. En bændur þurfa aö leggja
meiri áherslu á samvinnu, t.d.
um vélanotkun og heyskap.
— Mér heyrist á þvi sem þú
hefur hér sagt, aö hugur þinn
standi ekki beinlinis til þess að
hverfa aftur til Danmerkur til
langdvalar.
— Nei, en mér list nú ekki alltof
vel á þróunina hér heima heldur.
Það er sifellt meira og meira J
þrengt aö bændum. Gróðurlendiö
er i æ meira mæli kaffært i stór-
iöjuvötnum. Við stelnum óðfluga
að þvi að góma siðustu þorsk- ,
brönduna i sjónum. Og hvernig
fer þá um þennan þjóðarstofn?
Það litur ekki út fyrir að neina
kjarnorkusprengju þurfi til að
eyða honum, ef svo fer fram sem ■
horfir.
Og þar meö var Einar farinn
noröur i Kleif. —mhg
heiðurstrúður á sýningu, sem
þarna var haldin, ein af mörgum.
Þetta er eina skjalið sinnar teg-
undar”, segir Ruben, „og þaö er
mikil viðurkenning fólgin i þvi,
þegar þess er gætt, að Sovétrikin
standa fremst allra rikja i sirkus-
listinni”.
Ruben leggur skjalið til hliðar,
sest og biður fleiri spurninga. Og
ég nefni sirkusskólann, sem all-
mörg börn og foreldrar hafa nú
kynnst.
Einfaidar listir sterk áhrif
,,Já, i sirkusskólanum kenni ég
nokkrar afskaplega einfaldar
listir, og reyni siðan, þegar börn-
in sýna það sem þau hafa lært, að
skapa mikil og sterk áhrif, þvi
það skiptir máli, að börnin fái það
á tilfinninguna, að þau séu að
sýna i raunverulegum sirkus.”
Hvað varð til þess að Ruben
stofnaði sirkusskólann? spyr ég.
„Það var einu sinni sett upp
sýning i heimabæ minum, þar
sem sýndir voru sirkusmunir og
ýmislegt tengt sirkusnum. Þá var
þess farið á leit við mig, að ég
gerði eitthvað meö börnum og
mér datt i hug að notast viö það,
sem var á sýningunni og láta
börnin nota það. Úr varö sirkus-
skóli, sem ég bjó svo sjálfur til, og
ferðast nú með út um allar
trissur”.
Sirkusskólinn ætti að vera
Ruben kærkominn tilbreyting frá
hinu heföbundna trúöastandi, þar
sem hann hefur aragrúa barna i
kringum sin i stað þess aö standa
einn á sviöinu. Og ég spyr hann
um það.
Sambandið við áhorfendur
„Ég vil alls ekki segja, að það
sé erfitt aö vera trúður. Það segja
allir, að það sé erfitt aö standa
einn i sirkushringnum. Trúður
inn þarf að gefa áhorfendum
sinum rikulega af þvi, sem hann á
til, með eins einföldum meðulum
og hann frekast getur. Það krefst
auðvitað tækni, en þaö má ekki
verða tæknin tóm. Trúðurinn má
ekki sýna tæknina sem slika, þótt
hann færi sér hana i nyt. Mestu
máli skiptir sambandiö viö áhorf-
endur.”
Ósjálfrátt hvarflar hugurinn að
þeim sirkusþáttum, sem viö
Islendingar höfum mátt sjá á
sjónvarpsskerminum, a.m.k. um
hver jól. Hvaö ætli veröi um sam-
bandiö við áhorfendur i sliku til-
viki?
Eitt barn i salnum
„Það er gifurlega kostnaðar-
samt aö ferðast meö sirkus-
sýningar, hvar sem er i heim-
inum. Það hefur orðiö til þess, að
sirkussýningar eru teknar upp i
sjónvarp, sem verður aftur til
þess að sambandið viö áhorf-
endur tapast. t sjónvarpinu
sjáum við þvi aðeins þá lista-
menn, sem eru tæknilega mjög
færir”, segir Ruben.
„Hins vegar sjást aldrei á
skerminum þeir sirkuslistamenn,
sem ná raunverulegu, beinu sam-
bandi við áhorfendur sina. Þeir
troða upp i sirkusnum sjálfum.”
Að þvi er Ruben segir, er eng-
inn vandi að troða upp sem
trúður, „svo fremi að a.m.k. eitt
barn sé i salnum. Börnin auð-
velda mér aö ná sambandinu við
fullorðna fólkið”.
Þessi orð Rubens stangast á við
það, sem flestir myndu kannski
ætla; að það væri auðveldara að
leika fyrir fullorðna.
„Nei,” segir Ruben, „þvi i
flestum tilvikum vill fullorðið fólk
láta höfða til skynsemi sinnar.
Við fullorðna fólkið erum nefni-
lega svo skynsamt. En þessi
krafa hefur drepið niður allt, sem
heitir að höfða til tilfinninganna á
persónulegan hátt. Þetta er
meira aö segja bundið i okkar
gildismati. Karlmaöur, sem lætur
stjórnast af tilíinningasemi, er
enginn alvöru karlmaöur.
Tilfinningar i skynsemis
stað
En ég hins vegar geng út frá til-
finningunni og notfæri mér hið
beina samband við áhorfendur og
tala til þeirra kannski fyrst og
fremst með hreyfingum minum
og látbragði. Og þá verð ég að
höfða til þess fólks, sem beitir
sömuleiöis tilfinningum sinum til
að tjá sig. Barniö grætur, ef það
fær ekki karamelluna, sem þaö
langar I, en fullorðinn maöur
temur sig með skynseminni. Þess
vegna verð ég aö ráðast á skyn-
semismúrinn, þegar ég kem fram
og nog fá fullorðna fólkið til að
gleyma „réttri” féiagslegri
hegðun. Þá fyrst þorir það að
hlæja og taka þátt i sýningunni”.
Þökk fyrir
Þetta tekst Ruben, með þvi aö
ná til fulloröna fólksins gegnum
börnin — og þess vegna segir
hann, að mikilvægt sé, að a.m.k.
eitt barn sé meðal áhorfenda.
Ekki svo aö skilja að vonlaust sé
fyrir Ruben aö koma fram fyrir
eingöngu fullorðna — en hann
segir það mun erfiöara viðfangs,
fullorðna fólkið eitt og sér.
En það er sannarlega kominn
timi til að slá botninn i spjallið við
Ruben, þótt freistandi væri að
kyrrsetja hann enn lengur; öðlast
innsyn i fleiri leyndarmál trúðs
ins. En það verður að biða um
sinn — aö minnsta kosti þar til
hann kemur aftur hingaö. Von-
andi verður þess þó ekki lengi að
biöa. Hafi hann þökk fyrir stans
sinn hér. _ ísí
Sameiginleg yfirlýsing friðarhreyfinga
Pétur Reimarsson t.h. og Guðmund ur Georgsson
á Mikiatúni um næstu helgi.
rhreyfingunum og útihátið friðarsinna
Stefnt gegn vígbún-
aðarkapphlaupínu
A blaðamannafundi hjá Sam-
tökum herslöðvaandstæðinga i
gær var afhent sameiginleg
yfirlýsing evrópskra og banda-
riskra friðarhreyfinga sem birt
var I Bonn 9. júni sl. sama dag
og Ronald Reagan kom til V -
Þýskalands til að taka þált i
fundi forystumanna Nató-rikja
þetta er i fyrsta sinn sem friðar-
hreyfingar austan og vestan
Atlansála setja saman sam-
eiginlega stefnu gegn vig-
búnaðarkapphlaupi stórveld-
anua.
1 yfirlýsingunni, sem birt
verður i heild sinni siðar hér i
blaðinu, segir m.a. að „aukinn
fjárauslur til vigbúnaðar,
vaxandi alvinnuleysi og örbirgð
samstiga ielagslegu og pólitisku
oibeldi og einstrengislegri þjóð-
ernishyggju sem blossaö helur
upp að nýju, allt þetta gæti
saman skapaö þær aðstæöur
sem grafa undan lýöræði og
stefna i styrjöld.”
1 yfirlýsingunrii er tekin ai'-
staða gegn kalda striðinu og
skiptingu heimsins i áhrií'a-
svæði stórveldanna. Bent er á
fánýti lalnaleikja slorveldanna i
vigbúnaðarmálum. oa svnl
fram á það hvernig slikur
samanburður getur orðið eldi-
viður á vigbúnaðarbálið. Mót-
mælt er skiplingu Evrópu i tvær
blokkir, skiptingu heimsins i
ljandsamlegar fylkingar. Og
fjallað er um það hvernig al-
menningur i löndunum á aö
bregðast viö. Lýst er lanýti
gagnkvæmra viöræöna stór-
veldanna og bent á kosti og
kröfur íriðarhreyíinganna i
þeim efnum. A blaðamanna-
lundinum var bent á þaö að hver
hreinsaði lil i eigin landi. Hal't
var el'tir Eppler hinum þýska að
við gætum gert krölur til okkar
eigin stjórnvaida sem viö hölum
sjáli' kosið. Það væri byrjunin.
— óg
ísland með í kröfu
um kjamorkuvopna-
laus Norðurlönd
A blaöa mannafundi meö full-
trúuin Samtaka herstöövaand-
stæöinga á föstudaginn koin
fram aö Iriöarhreyfingar á
Norðurlöndum hafa til skamins
tima verið tregar til að viður-
kenna island sem eitt þeirra
landa sem friöarhreyfingar
krefjast aö veröi kjarnorku-
vopnalaus. A sainráðsfundi
samtakanna sem haldinn var
fyrr i þcssum mánuöi, varö hins
vegar breyting þar á og viður-
kenndu viökomandi samtök rétt
islands til aö vcra mcö i þessari
kröfu um Kjarnorkuvopnalaus
Noröurlönd.
A fundinum var einnig Ijallað
um aukin lengsl bandarisku
friöarhreyfinganna við þær
evifepsku og þess m.a. getiö að
vænta mættilulltrúa lrá Banda-
rikjunum i heimsókn hingað til
lands næsta haust. Einnig kom
fram að margs konar fundir og
íriðarráðsteínur eru fyrir-
hugaðar á næslunni m.a. af-
vopnunarráðstelna i Brussel i
júlimánuði næstkomandi.
— óg
Sauðfjáreign Reykvíkinga
Fjárbúskapur síminnkandi
783 rollur í eign tómstundabænda í borgarlandinu síðasta vetur
Fjárbúskapur innan borgar-
markanna fcr siminnkandi ár frá
ári. Samkvæmt samningi borgar-
yfirvalda og félags fjárræktar-
inanna er þciin heimilt aö vera
meö 1000 fjár innan borgarmark-
anna en viö talningu siðasta
vctur voru 783 kindur i cigu ein-
staklinga i Rcykjavik, auk þess
sem 120 kindur cru innan borgar-
marka á vegum opinberra aöila
aöallega llannsóknarstofnunar
Landbúnaöarins.
Að sögn Jóns G. Kristjánssonar
skrifstofustjóra borgarverkfræð-
ings rennur leigusamningur
borgarinnar og fjáreigenda um
afnot á svonefndu „Fjárholti” út
árið 1985. Það eru einkum eldri
menn sem eru með fjárbúskap i
borgarlandinu og allir i hjá-
verkum. Þessum tómstunda-fjár-
bændum hefur fækkað mikiö á
siöustu árum, og hestamenn tekiö
ýfir i æ rikari mæli á Fjárholti.
Jón sagði að engar kærur hefðu
borist frá borgarbúum vegna
ágangs fjár á einkalóðum nú
siðustu árin, en þaö sem af væri
þessu ári hefði ein slik kæra
borist ofan úr Breiöholti. Helst
væru brögð á þvi að fé gengi laust
á svæðinu milli Breiöholts og
Vatnsenda og eins viö Ulfarsfells-
veginn.
Samtök islenskra sveitarfélaga
eru nú að vinna aö samræmdri
stefnu i fjárbúskap i bæjarlönd-
um auk þess sem Skipulagsstofa
höfuðborgarsvæðisins hefur lagt
fram tillögur um að reist verði
fjárheld girðing að sunnan frá
Hafnarfiröi, austur og yfir um að
Kjalarnesi, og veröur höfuð-
borgarsvæöiö þannig allt girt af
fyrir sauðfénaöi.
-lg