Þjóðviljinn - 01.07.1982, Page 15
Fimmtudagur 1. júlí 1982 ÞJóÐVILjINN — SIÐA 15
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 qlla
virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
Teiknimynd úr pönk-
blaðinu Neista
Halldór Sigurðsson skrifar i
Þjv. 11. júni s.l. Þar kvartar
hann undan auglýsingu frd
hljómplötuversluninni STUÐI.
„Kond’i STUД heitir auglýs-
ingin og hún hefur tvisvar birst i
Þjv.
1 auglýsingunni er teiknimynd
af dæmigerðum viðskiptavini
STUÐs. Þetta er hress anarki-
pönkari i ætt við Sigga Pönkara
og Bjarna Móhikana. Halldór
fullyrðir að þessi dæmigerði
viðskiptavinur STUÐs sé i raun
Lenin sálugi! Svona „afskræm-
ing” á „virtasta leiötoga sósial-
isma, verkalýðshreyfingar og
þjóðfrelsis” finnst Halldóri af-
spyrnu vond. Það finnst fleir-
um. M.a. hélt ónefndum
marx-lenin-stalin-hoxha-isti þvi
fram á dögunum að umrædd
mynd sé ihaldssöm. Hún sé
„lágkúrulegur stuðningur við
afturhaldsöflin i landinu”. Gott
ef ekki bara fasistisk, boðberi
einræðis, heimsvaldastefnu og
kynþáttakúgunar.
Til að forðast ennþá langsótt-
ari bollaleggingar finnst mér
sjálfsagt að upplýsa tilurð
myndarinnar. Þannig er að mér
var falið að finna symbol fyrir
nýbylgjuverslunina STUÐ. Þá
var auðvitað nærtækast að
fletta upp i pönkblaðinu Neista.
Og viti menn: Þar blasir við
Marx-Lenin-Sta-
lín-Hoxa-isti
segir myndina
íhaldssama
teiknimynd af anarkipönkara
með nælu i gegnum skallann.
Undir myndinni stóð nafnið
Vladimir Rotten. Með smávægi-
legri snyrtingu tókst mér að
gera Vladimir Rotten að þess-
um dæmigerða viðskiptavini
STUÐs. Einar Karl ritstj. Þjv.
hafði þvi margt til sins máls
þegar hann sagði að ekki væri
ljóst að myndin sé af Lenin.
En Halldór finnur fleira að
auglýsingunni frá STUÐi. Hann
efast t.d. um að STUÐi sé stætt
á að auglýsa að verslunin selji
bcstu kassetturnar. Og mikið
rétt: Þaö er nánast smekksatr-
iði hvort bestu kassetturnar
heita Sony eða TDK. Þess vegna
selur STUÐ bæði Sony og TDK.
Þá segir Halldor það skrum
að Last-vökvinn geri plötuna
betri en nýja. Fátt er auðveld-
ara en að ganga úr skugga um
þetta, t.d. með þvi að bera vökv-
ann aðeins á annan helming
plötuhliðarinnar og heyra mun-
inn. Það er ekki aðeins aö Last-
vökvinn styrki hljóminn og
dragi úr bjögun, heldur hindrar
hann einig rykmyndun, eykur
endingu nálarinnar og verndar
plötuna svo vel að Halldór getur
spilað söngvana hans Roberts
Wyatt um Stalin 200 sinnum án
þess að greina slit á plötunni.
Last-vökvinn er þvi prýðisgott
framlag til sósialismans, verka-
lýðshreyfingarinnar og þjóð-
frelsisins þegar öllu er á botninn
hvolft.
Jens Kr. Guð,
auglýsingateiknari
Aróður gegn forstjórum
Segir Kristófer og vill að almenningur
sætti sig við rýrnandi kaupmátt
Kristófer forstjóri skrifar:
„Ekki finnst mér lengur hægt
að sitja þegjandi undir þeim
gengdarlausa áróðri sem er
gegn okkur forstjórum og for-
svarsmönnum fyrirtækja. Það
er sama hvert litið er i öll blöð
og aðra fjölmiðla, alltaf skal
ráðistá okkur sem stöndum fyr-
ir atvinnuvegunum. Ljóst er að
á þessu ári dregst þjóðarfram-
leiðslan saman og allir veröa að
axla byrðarnar. Þetta þýðir að
launþegar verða að draga sam-
an seglin — og lækka i launum
(kaupmætti).
Þáð er ljóst að á slikum tim-
um þljóta forstjórar að vera lif-
ankeri atvinnulifsins með frjóu
hugarflugi og athafnasemi
sinni. Það má ekki þrengja kost
fyrirtækjanna. Þvi hlýt ég að
skora á fjöimiðlana að sýna nú
örlitinn skilning á mikilvægi
okkar i atvinnulifinu — og hætta
stöðugum árásum á okkur. Að-
eins einn leiðarahöfundur dag-
blaða virðist skilja mikilvægi
okkar — það er i Alþýðublaðinu,
en það sé ég stundum á elli-
heimilinu þarsem konan min
dvelur.
Fólk verður að sætta sig við
þau hin mögru ár. Almenningi
hefði verið nær að fara eftir
bibliusögunum og fordæmi okk-
ar hjóna við undirbúning mögru
áranna þegar beturgekk á und-
anförnum árum. Þetta höfum
við hjónin t.d. gert með þvi aö
byggja þrjú einbýlishús. Eitt
þarsem ég bý ásamt vinnukonu
og annað sem ég leigi ónefndu
sendiráði en hið þriðja stendur
autt af þvi ég treysti ekki leigj-
endum einsog málin standa.
Þetta gátum við af þvi við spör-
uðum og fórum ekki i alltof
margar sólarlandaferðir á
hverju ári — einsog almenning-
ur gerir. Nóg að sinni i komma-
blaðið. Ykkar
Kristófer forstjóri”
Brandarar
Brandari: llvaö geröi lillinn
þegar hann var búinn aö klil'ra
upp i hæsta tré skógarins? V!
SVAR: Hann beiö eftir vorinu
og lét sig svila niöur á laufblaöi.
Hvað sagöi Tarsan þegar hann
sá lilana koma úl úr skóginum'!
SVAR: Hann sagöi „þarna
koma íilarnir”
En hvað sagði Tarsan þegar
hannsá lilana koma út úr skóg-
inum meösólgleraugu '
SVAR: Hann sagöi ekkert þvi
hann þekkti þá ekki.
(Bangsi)
ANNAR: Einu sinni voru lilarn-
irog skordýrin aö keppa vináttu
leik i fótbolta og i hálfleik var
staðan 103:0 íyrir lilunum en
eftir hallleik var þúsundfætlan
sett inn á og hun skoraöi 3058
mörk og úrslitin uröu 103:3858
fyrir skordýrunum. En svo
sagði þjállari filanna viö þjáll-
ara skordýranna, þvi settirðu
ekki þúsundfætluna ekki strax
inná? Þá svaraði þjálfari skor-
dýranna: sko hún var svo lengi
að klæða sig i skóna.
Vitiö þiö al hverju tilarnir
ganga á lánum þegar þeir
ganga f ram hjá apótekum ?
SVAR: Svo aö þeir veki ekki
svelnpillurnar.
Vitið þið af hverju þaö er bann-
aö aö fara inn i skóginn milli
klukkan 6og 6?
SVAR: Þvi þá æfa íilarnir l'all-
hlifarstökk.
En vitið þið al hverju krókódil-
arnirerp flatir?
SVAR: Þaö er vegna þess að
þeir fóru inn i skóginn milli kl. 5
og 6. ■
Skólinn er byr jaóur
KENNARI: Hvernig likar þér
við skólann, væni minn ?
DRENGURINN: Ágætlega á
sumrin, þegar skólinn er lokaö-
ur.
Uiigi niaðurinn á myndinni
gcngur undir skáldanafninu
Bangsi og er aöalbrandara
smiður Barnahornsins þessa
dagana.
Barnahornið
Leikrit vikunnar
TONASPIL
í KVÖLD
Bjarni Ingvarsson, leikari hjá Alþýðuleikhúsinu, leikur vininn sem
keniur i heimsókn.
Arni Blandon og Tinna Gunnlaugsdóttir i hlutverkum sínum i
Snialastúlkunni. Þau lcika bæði i lcikriti vikunnar i kvöld.
1 kvöld 1. júli kl. 20.30 veröur
flutt leikritiö „Tónaspil” eítir
Peter Shalfer. Þýðandi er
Kristin Magnúss en leikstjórn
annast Herdis Þorvaldsdóttir.
Með hlutverkin iara Árni
Blandon, Bjarni Ingvarsson
og Tinna Gunnlaugsdóttir.
Flutningur leiksins tekur
rúma klukkuslund. Tækni-
maður: Hreinn Valdimarsson.
Bob býr i leiguherbergi i
Lundúnum. Hann hefur boöið
stúlku i kvöldmal, og Ted vin-
ur hans kemur til aö matreiöa
fyrir þau. Ted er veraldarvan-
ur, ekki sist þegar kvennamál
eru annars vegar og er alltaf
tilbúinn aö gela góö ráö og
leiðbeiningar.
Peter Shaffer fæddist i
Liverpool 1926 og er tvibura-
bróðir leikritahöíundarins
Anthonys Shaffers. Hann
skrifaði lyrst sjónvarpsleikrit,
en fór siðan aö skrifa fyrir
leiksvið.
„Tónaspil” (The Private
Ear) er annar ai tveimur ein-
þáttungum, sem hann skriíaði
1962. Hann var „Einkaspæjar-
inn” sem útvarpið flutti 1978.
Af öðrum leikritum Peters
Shaffers má nefna „The Royal
Hunt og the Sun” (um
Pizarro), „Black Comedy”,
sem Leikfélag Reykjavikur
sýndi 1973—74 undir nafninu
„Svörtkómedia” og „Equus”,
einnig tekið til sýningar hjá
Leikfélaginu.
Ilerdis Þorvaldsdóttir
Útvarp
kl. 20.30
Sjónvarpið
í sumarleyfi
Sjónvarpið er komiö i fri.
Sumarleyli helst hjá sjónvarp-
inu i dagogeru margir sjálfsagt
hvildinni fegnir. Sumarleyfi
hefst i dagog þvi lýkur 1. ágúst.
Einhver starfsemi fer þó fram
hjá sjónvarpinu þrátt fyrir aö
útsendingarnar hætti.