Þjóðviljinn - 05.08.1982, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. ágúst 1982
Auglýsing um aðalskoðun
bifreiða í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í ágústmánuði
1982.
Mánudagur 9. ágúst R-42401 til R-43000
Þriðjudagur 10. ágúst R-43001 til R-43500
Miðvikudagur 11. ágúst R-43501 til R-44000
Fimmtudagur 12. ágúst R-44001 til R-44500
Föstudagur 13. ágúst R-44501 til R-45000
Mánudagur 16. ágúst R-45001 til R-45500
Þriðjudagur 17. ágúst R45501 tii R-46000
Miðvikudagur 18. ágúst R-46001 til R-46500
Fimmtudagur 19. ágúst R-46501 til R-47000
Föstudagur 20. ágúst R-47001 til R-47500
Mánudagur 23. ágúst R-47501 til R-48000
Þriðjudagur 24. ágúst R-48001 til R-48500
Miðvikudagur 25. ágúst R-48501 til R-49000
Fimmtudagur 26. ágúst R-49001 til R-49500
Föstudagur 27. ágúst R-49501 til R-50000
Mánudagur 30. ágúst R-50001 til R-50500
Þriðjudagur 31. ágúst R-50501 til R-51000
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sínar til Bifreiðaeftirlits ríkisins, Bílds-
höfða 8 og verður skoðun framkvæmd þar
alla virka daga kl. 8.00 til 16.00.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber
skilríki fyrir því að bifreiðaskattur sé greidd-
ur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer
skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera
gjaldmælir í leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tíma. Á leigubifreiðum
til mannflutninga, allt að 8 farþegum, skal
vera sérstakt merki með bókstafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tíma verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum
og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til
hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
I skráningarskírteini skal vera áritun um það
að aðalljós bifreiðarinnar hafl verið stillt eftir
31. júlí 1981.
Lögreglustjórinn I Reykjavík,
3. ágúst 1982.
• SPENNUM
gá BELTIN
... alltaf
Salmonellu-
sýklng ávallt
varhugaverð
Saimonella sýkilinn getur viða
verið að finna, t.d. i saur manna
og gæludýra, í matvælum, sér-
stakiega hráu kjöti, ennfremur 1
frárennsli, I fjörunni I grennd viö
frárennslisop, I máfum og rottum
svo nokkuö sé nefnt.
Stundumheyristspurt: Er sýk-
ing af salmonella ndckuð annað
en magakveisasem svo tilallir fá
i sólarlandaferðum og engum
verður meint af? Þvi miður er
það ekki svo. Salmonellu sýking
er ávallt varhugaverð, jafnvel
hættuleg. Þeir sem sýkjast verða
oft smitberar vikum saman, þvi
salmonella sest að I þörmum og
berst þaðan með saur. Eitt sýk-
ingartilfelli þarf e.t.v. ekki að
vera mjög alvarlegt, nema fyrir
þann einstakling sem fyrir þvi
verður. En komist salmonella i
matvæli ogfái þar hagstæð vaxt-
arskilyrði, geta hundruð eða jafn-
vel þUsundir manna sýkst eins og
dæmi sanna.
Það er því ekki a ð ástæðulausu,
að það valdi jafnan áhyggjum
fyrir þá sem vinna við fram-
leiðslu og dreifingu matvæla eða
eftirlitsaðilum þeirrar varu, þeg-
ar fréttist af salmonella i neyslu-
vörum eða sýkingu af hennar
völdum. Er skemmst að minnast
fregna af stórfelldri salmonella
sýkingu i Noregi nií fýrir nokkru
og ennfremur upplýsinga um að
salmonella hafi orðiö vart I kjUk-
lingum hér á landi nýlega. Sam-
kvæmt rannsóknum undanfar-
inna ára bendir allt til þess að
sýkill þessi sé orðinn landlægur
hér á landi. Það er þvi nauðsyn-
legt að ofangreindir aðilar og
einnig neytendur taki tillit til
þessarar vitneskju og hagi sér
samkvæmt þvi.
En hvað er þaö sem menn geta
gert til aö draga Ur smithættu af
völdum salmonella?
Fyrsta boðorðiöer hreinlæti og
aftur hreinlæti, ekki sist persónu-
legt hreinlæti.
Framleiðendur og dreifingar-
aöilar bera ábyrgi á þvi að öll
meðferð hrávöru sé vönduð við
slátrun, við vinnslu, við geymslu
o.s.frv. Ennfremur að gildandi
lög og reglugeröarákvæði hér að
lútandi séu i heiðri höfð.
Þá þurfa opinberir eftirlitsaðil-
ar að sjálfsögðu einnig að vera
vel á verði.
Hvað varðar neytandann sjálf-
an þá getur hann spillt góðri vöru
með rangri meðferö á sama hátt
oghann getur vemdaðheilsu sina
og sinna nánustu með réttri
geymslu matvæla og matreiðslu.
Hafið þvi hugfast:
Ilaldiö viðkvæmum matvælum
vel kældum.
Látið ekki sósur, salöt, kjötálegg,
mjólk o.þ.h. vöru standa á eld-
húsborðinu nema sem allra styst-
an tíma.
Geymiðhrávörur I isskápnum vel
pakkaðar og aöskildar fráannarri
vöru.
Notið ekki sömu tæki og áhöld
jöfnum höndum viðósoðinog soð-
inmatvæli, nema eftir vandlegan
þvott, strax að lokinni notkun.
Forðist að nota sprungin kjöt-
bretti eða gallaða hnífa og notið
pappirsþurrkur sem mest I stað
borðtuskunnar.
Látið bióðvatn frá kjöti við þiðnun
ekki menga aðrar vörur.
Þiðið kjötvörur, einkum fugla-og
svinakjöt, við lágt hitastig (t.d. I
isskáp) og hefjiö ekki matseld
fyrr en kjötið er orðið vel þitt.
Gjaldskráin 1 Reykjavík:
Barnabætur
nema röskum
100 mfljónum
Alls nemur frádráttur vegna
barna innan við 16 ára aldur rösk-
um 100 milljónum króna. Alls
njóta 22.003 barnabóta sam-
kvæmt nýútkominni gjaldskrá.
Persónuafsláttur til greiðslu út-
svars er i kringum 32 miljónir og
persónuafsláttur til greiðslu eign-
arskatts er um 12 miljónir.
Þau börn sem greiða opinber
gjöld eru 2509 og skiptast greiðsl-
ur þeirra i tekjuskatt, útsvar og
kirkjugarðsgjald. Tekjuskattur
vegur þyngst á metunum, alls um
1.4 miljónir króna, en alls nemur
álagningin tæpum tveimur
miljónum króna, eða 1.851.479. Er
það eilitið meira en Ingólfi i tJt-
sýn er gert að greiða i opinber
gjöld. —hól.
Ingvar Gíslason tíl Kanada
Menntamálaráöherra Alberta-
fylkis i Kanada, frú Mary Le
Messurier hefur boðið mennta-
inálaráðherra, Ingvari Gislasyni,
og konu hans, ólöfu Auði Erlings-
dóttur, að vera heiöursgestir við
hátlðahöld er fram eiga að fara
i Markcrville i Albertafylki 7.
þ.m., þegar vigt verður minning-
arsafn um Stephan G. Stephans-
son skáld i húsi hans, sem nú hef-
ur verið endurnýjað og fært i upp-
runalegt horf.
Þá hefur menntamálaráðherra
þegið boð Kanadastjórnar i Ott-
awa að heimsækja höfuðborgina i
þessari ferð og mun eiga viðræð-
ur við Francis Fox, menningar-
málaráðherra Kanadastjórnar.
Með ráðherra i för þessari
verður Bjarni Gunnarsson,
stjórnarráðsfulltrúi. Mennta-
málaráðherra er væntanlegur
■heirn 13. þ.m.
BLAÐBERI
Blaðberi óskast í miðbæ.
Vinsamlegast hafið samband við
afgreiðslu Þjóðviljans
WMMk
Síðumúla 6 s. 81333
erlendar
bækur
Philip Thompson & Peter
Davenport: The Diction-
ary of Visual Language.
Penguin Books 1982.
Höfundar þessarar bókar, tóku
að safna efni i hana fyrir átta
árum. Þeir þóttust sjá gap milli
þeirra „symbóla”, sem notuð
hafa verið i myndmáli aldanna og
þess „lifandi sjónræna máls”,
sem listamenn nútfmans og aug-
lýsingateiknarar hafa þróað með
sér á rúmri hálfri öld.
Ef til vill er þörf á riti sem
þessu og hentar hún likast til
þeim sem vinna á einhvern hátt
við uppsetningu og/eða útlit alls-
lags plagga. Bókin er i stóru broti
og um 250 siður, þær eru þriggja
dálka og er ógrynni mynda i
bókinni. Lokuð bók, segja
höfundar, hefur sömu sálfræði-
áhrif og lokuð askja, þ.e.a.s.
gefur til kynna ókunna auðlegð og
furður.
Þvi hæfir að ljúka upp leyndar-
'dómnum.
j Anatoli Rybakov:
. Heavy Sand
j Penguin Books 1982.
Saga þessi birtist fyrst i tima-
• ritinu „Oktober” i Moskvu, 1978.
J Seinna var sagan gefin út i einu
| lagi og hlaut fádæma góðar
j undirtektir.
Höfundurinn, Anatoli Rybakov,
J fæddist i Chernigov 1911. Hann
| flutti til Moskvu 1919 og starfaði
j þar við flutninga. 1 seinna striði
1 var hann i Rauða hernum og gat
J sér góðan orðstir þar.
Fyrstu sögu sina birti hann 1948
| og siðan þá, hefur hann skrifað
J allmargar bækur og flestar
■ þeirra verið kvikmyndaðar.
| Heavy Sand er saga gyðingafjöl-
| skyldu nokkurrar i Okrainu frá
I aldamótum fram til seinni heims-
■ styrjaldar.
Titill bókarinnar er sóttur i
| Jobsbók 6:2-3.
I Persónulýsingar i bókinni eru
• glettilegar og tragik og drama
| skemmtilega fléttað.
I G.B. Edwards:
J The Book of Ebenezer Le
| page
| Penguin Books 1982.
• í formála, að þessari skemmti-
I legu bók segir John Fowles, að
| breytingar á eynni Guernsey,
| eftir seinni heimsstyrjöld, hafi
■ verið með þvilikum ósköpum, að
I hefðir hafi meö öllu týnst og i stað
| rólegheitanna, hafi eyjan orðið
| miðstöð fyrir miklum ágangi túr-
ista. Er það vel sennilegt.
Ef til vill er þaö skritið en á sið-
| ast liðnu sumri, skaut einum
I merkishöfundi upp i Banda-
■ rikjunum. Sá var þá þegar
I safnaður til feöra sinna. Hann
| haföi ekki annaö skilið eftir sig en
I hroðvirknislega frágengið hand-
■ rit þeirrar bókar, sem olli miklu
| fjaðrafoki i bókmennta-
| heiminum. Bók, þessa höfundar
I er Concederacy of Dunces.
■ Og nú er sagan um Ebenezer Le
| Page lesin um viða veröld.
G.B. Edwards er látinn fyrir
I sex árum. Hann skildi ekkert
• annað eftir sig i rituðu máli en
| þessa kostulegu sögu einfara og
| einbúa á Guernsey. Þó er sagan
I ekki einasta saga hans, heldur -
• „siðmenningarinnar” sem fylgdi
| i kjölfar striðanna tveggja sem
| hryggt hafa jarðarbúa á þessari
I öld.
• Höfundurinn hafði skrifað fleiri
| bækur, en vegna þess hve illa
j honum gekk að fá gef nar út eftir
I sig bækur, þá tók hann til bragðs,
1 að láta vini sina eyðileggja öll
| bréf og önnur skjöl, hann sjálfur
| kastaði handritum á eldinn.
• Handrit sögunnar um Le Page,
I' hafði Edvards gefið góðkunningja
sinum eftir að hann sjálfur hafði
fengið synjun hjá forlagi nokkru.
En þó Edwards sé horfinn, geta
J eftirlifendur glaðst yfir þvi, að
] eldinum varð ekki allt að bráð.