Þjóðviljinn - 13.08.1982, Síða 5
Föstudagur 13. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
,,Síðan hlýtur þróunin að verða sú, að fólkið fari að taka
beinan þátt í stjórnun og ákveða hvaða aðferðum verði
beitt til endurbóta og aukningar á framleiðslu”
M
Sjónarhorn
Guðmundur R.
Jóhannsson
Við skulum
haf a hönd
í bagga
Nú viröast allir vera sammála
um, a& kreppan sé aö koma og
fari þá aö hitna undir mörgum
vinnandi manninum. Fari svo aö
spá þeirra svartsýnustu rætist
munu margir fá uppsagnarbréf
og gæti þá fariö svo aö mesti
hrokinn færi úr verkalýönum.
Myndu svarthöföar landsins ekki
gráta þótt afætur Sóknar og
Dagsbrúnar og annarra breiö-
baka landsins yröu að lúta lágt
eftir vinnu. Jafnvel aö þeir yröu
aö sieikja skósóla þeirra aöila
vinnumarkaöarins sem eiga at-
vinnutækin.
Þetta leiöir hugann aö þvi, aö
fyrir nokkrum árum voru uppi
miklar umræöur um atvinnulýö-
ræði. Ekki virtust menn alls-
kostar vissir um hvaö þaö væri
eöa ætti aö vera. Þó liklega i þá
átt aö þeir sem sköpuöu arö meö
vinnu sinni heföu eitthvað aö
segja um hvernig hann væri
notaöur. Þá virtust flestir hallast
aö þvi, að fyrst og fremst þyrfti
aö kjósa fulltrúa starfsmanna i
stjórnir fyrirtækjanna. Gamli
góöi SIS lögleiddi aö tveir full-
trúar starfsmanna sætu þar i
stjórn meö málfrelsi og tillögu-
rétti og siöan hafa mörg kaup-
félög tekiö það upp. Litiö hefur
farið fyrir fréttum af þesskonar
stjórnbreytingu hjá öðrum fyrir-
tækjum og hafa nú umræður um
atvinnulýöræöi aflagst um sinn.
Stjórnirnar
nafnið eitt
Viö þekkjum flest menn sem
hafa steypt sér i skuldir og keypt
ýmis atvinnutæki og siöan haldið
áfram að pina út lán, þvi ekki sé
hægt aö láta fyrirtæki i fullum
rekstri fara á hausinn, svo ekki sé
talaö um alla þá sem hafa þar
vinnu. I krafti þess hafa þessir
menn svo látiö sem þeir ráöi yfir
lifi og limum fólks er vinnur hjá
þeim. Sinna hvergi sjálfsögðum
öryggisreglum og byrja mikinn
söng um launakröfur verkalýös-
ins. Sjálfir séu þeir ofsóttir, og
ekki hvarflar aö þeim aö lýöur sá
eigi nokkurn þátt i gengi þeirra og
hagsæld.
Þaö hljóta allir aö samþykkja
að þó menn hafi komist yfir fé, á
einhvern hátt skapi það þeim
engan rétt til skilyröslausra yfir-
ráöa yfir starfsmönnum sinum.
Þar viö bætist aö auösæld þeirra
yröi smávægileg án vinnu fólks-
ins og þá er þaö einfalt reiknings-
dæmi aö arðinum yrði skipt jafnt.
Þetta var vist eiiiu sinni kallaður
kommúnismi.
Nú er þaö svo aö stjórnir
islenskra fyrirtækja eru venju-
legast nafniö tómt. Lika er þaö
hæpið að fólki fyndist þaö standa.
nokkru nær fyrirtækinu þótt þaö
kysi viö og viö fulltrúa i stjórn,
sem siöan væri efamál hverju
kæmi til leiðar. Fólk hefur venju-
lega meiri áhuga á þvi sem gerist
þar sem þaö er viö vinnu sina,
heldur en hvaö einhver fulltrúi
þess, sem þaö hefur e.t.v. aldrei
augum litiö, er aö gera i finu
Slagorðift „Máttur hinna
mörgu” á viða við ef við
eigum ekki að týna
sjálfum okkur i breyttri
framtið.”
stjórnarherbergi yfir kaffi og
snittum.
Vinnustaðurinn
sem iélagseining
Þaö þarf aö veröa eitt ai
mikilveröustu baráttumálum
verkalýösfélaga og starfsmanna-
félaga aö allar breytingar á
vinnustaö séu ræddar ýtarlega af
fólkinu sjálfu og þaö geti komið
fram meö hugmyndir sinar þar
um. Þetta er ekki sist mikilsvert
nú, þegar örtölvubyltingin er aö
riða i hlaöiö og fyrirsjáanlegar
eru stökkbreytingar á vinnutil-
högun og vinnuaðstöðu. Ef þessi
bylting á ekki aö kaffæra fólkiö og
skeröa lifskjör þess til muna
veröa starfsmenn aö hafa hönd i
bagga.
Siöan hlýtur þróunin aö veröa
sú, að fólkiö fari aö taka beinan
. þátt I stjórnun og ákveöa hvaöa
aöferöum veröi beitttil endurbóta
og aukningar á framleiðslu og
hvernig f jármagninu sé variö. Nú
segja eflaust ýmsir aö fólk skorti
menntun til þess. Þaö er aö vissu
leyti, rétt, enda þyrfti um leiö aö
breyta kennslu i skólum i þá átt
aö fólk yröi frætt um frumatriöi
þess aö reka fyrirtæki. Það eru
ekki allir forstjórar fyrirtækja
meö langa skólagöngu aö baki i
þeim efnum. Þarna yröi hægt aö
nota fulloröins fræðslu meö
góöum árangri. Kunnáttuleysiö
er þvi frekar fyrirsláttur en rök-
semd. Hér væri um leiö komiö til-
valið tækifæri til aö dusta rykiö af
gömlum samþykktum ASI þinga
um vinnustaðinn sem félagsein-
ingu.
Menntað starfsfólk
með tilfinningu
fyrir vinnunni
Um leiö og verkafólkiö færi aö
ráöa afrakstri vinnunnar og
skilja samhengið I starfinu yröi
framleiöslan sjálfkrafa vandaöri.
Þá myndum viö ekki lengur
heyra kvartanir erlendis frá um
óhæfa vöru. Þegar viö vitum af
hverju við vinnum verkið og fariö
væri aö kenna vinnubrögð og þau
vönduö kæmi hitt aö sjálfu sér.
Þaö er þvi miður of mikið um það
að fólk sé sett til vinnu meö
lágmarks eöa engri fræðslu.
Vel menntaö starfsfólk meö til-
finningu fyrir vinnunni á að vera
markmiö okkar sem teljum okkur
sósialista og félagshyggjumenn.
Þó til séu atvinnurekendur sem
vilja sinu fólki vel og reka fyrir-
tæki sin skynsamlega hlýtur tak-
markiö aö vera áhrif allra vinn-
andi handa. Um þessar mundir
sjáum viö viöa slagoröiö:
„Máttur hinna mörgu”. Þaö slag-
orö á viöa viö ef viö eigum ekki aö
týna sjálfum okkur i breyttri
framtiö. grj-
Starfsfólk á Reykjalundi ályktar um Vesturlandsveg
Oplnberir aðílar
sjái ábyrgð sína
„Við starfsfólk á
Reykjalundi höfum rætt
um hina áhættusömu um-
ferð á Vesturlandsvegi/ og
sendum frá okkur ályktun
um hana. Við teljum okkur
mæla fyrir munn ekki
aðeins starfsfólksins hér,
heldur einnig íbúa í Mos-
fellssveit/ þegar við segj-
umst vonast til þess að
opinberir aðilar sjái
ábyrgð sína í þessum efn-
um og bregðist skjótt við
að koma umferðaröryggis-
málum í viðunandi horf á
Vesturlandsveginum, þar
sem hann liggur um þétt-
býlið hér," sagði Halla
Hallgrfmsdóttir, formaður
Starfsmannaráðsins á
Reykjalundi og íbúi i Mos-
fellssveit i samtali
Starfsmannaráöiö á Reykja-
lundi hefur nýveriö sent frá sér
mjög ákveöna ályktun, þar sem
lögö er áhersla á, aö skjótra úr-
bóta sé þörf i þvi skyni aö draga
úr umferöarhættu á Vesturlands-
vegi I þéttbýli, en þar hafa á
skömmum tima oröiö mörg stór-
slys, sem kostaö hafa mannslif I
sumum tilvikum.
„Þetta mál snertir ekki aöeins
ibúa sveitarfélagsins”, sagöi
Halla, „heldur alla þá, sem um
veginn fara. Vesturlandsvegur-
inn gengur i gegnum byggð
nálægt skólum og þjónustustofn-
unum, umferö gangandi vegfar-
enda, hjólreiðafólks og hesta-
manna skapar hættu, sé ekki var-
lega fariö — og viö, sem störfum á
Reykjalundi, höfum daglega fyrir
augum örkumla fólk eftir um-
ferðaslys, og ég held það sé óhætt
að segja, að viö gerum okkur
grein fyrir þvi, að lif og heilsa
fólks veröur ekki metin til fjár.”
I ályktun þeirri sem send var
dómsmálaráöherra, samgöngu-
ráöherra, vegamálastjóra,
hreppsnefnd Mosfellshrepps og
sýslumanni Kjósarsýslu, er aö
finna tillögur um úrbætur i 6
liöum.
Er þar fyrst og fremst fariö
fram á stóraukna löggæslu á
Vesturlandsvegi, einnig aö komiö
verði upp lýsingu, en skamm-
degismyrkriö hefur orsakað
mörg þung slys á undanförnum
vetrum, aö hámarkshraöi
bifreiöa veröi lækkaöur um 10
km/klst. frá Úlfarsfelli aö Þing-
vallaafleggjara, aö umferöarljós
veröi sett upp á mótum Vestur-
landsvegar og Reykjavegar, aö
gangbraut veröi merkt greinilega
viö Brúarland og aö eftirlit veröi
hert meö vöruflutningabilum.
„Já, þungaflutningarnir eru
okkur sérstaklega mikið
áhyggjuefni. Yfirleitt eru bil-
stjórnarnir i akkoröskeyrslu, sem
hefur i för með sér of mikiö álag á
þá, sem getur aftur orsakað óað-
gæslu, fyrir utan það, aö akkorðs-
keyrslan vill ieiöa til þess aö ef
eitthvaö óvænt gerist, þá geta
þeir alls ekki hemlað nægilega
fljótt.
Þá höfum við einnig tekið eftir
þvi, aö gaflf jöl er ekki alltaf notuö
á malarflutningabilum, og eins ab
steinar vilja festast milli hjóla og
valda slysum, þegar þeir losna.
Þá viljum viö, aö allir vöruflutn-
ingabilar veröi útbúnir með
stuðurum aftan undir palli, sem
koma i veg fyrir aö minni bilar
nái aö rekast i pallbrún viö aftan-
ákeyrslu.”
Auk Höllu hafa aö þessum
málum staöiö af hálfu starfs-
mannafélagsins, þau Maria
Guömundsdóttir og Geir Egils-
son, og tóku þau mjög i sama
streng og Halla um 'þessi mál.
„Þaö er gott aö halda þessum
málum vakandi i fjölmiðlum”,
sögöu þau. „Þau sorglegu slys,
sem hér hafa orðið aö undan-
förnu, hafa ekki oröiö til þess aö
ýta viö yfirvöldum, en okkur
finnst sannarlega kominn timi til
aö hafist sé handa um aö bæta
umferöaröryggiö hér i sveitinni.”
— jsj.
Halla Hallgrimsdóttir, Geir
Egilsson og Maria Siguröardóttir,
starfsfólk á Reykjalundi: Þaö er
kominn timi til aö hafist sé handa
um aö bæta umferöaröryggiö hér
i Mosfellssveit. Stóra myndin
sýnir gangbrautina viö Brúar-
land. Hún er illa merkt, tvö lltíl
gangbrautarskilti hvort sfnum
megin vegarins og engar þvcrlin-
ur, sem þykja þó sjalfsagöar.
Vegurinn báöum megin gang-
brautarinnar hallar aö henni, og
auk þess er beygja öörum megin
Prentvllla í forystugrein
í síðari forystugrein
Þjóðviljans í gær varð
prentvilla svo merking
brenglaðist.
Lokaorð forystu-
greinarinnar áttu að
vera sem hér segir:
Á hitt skal lögð
áhersla hér, að í þeim
efnum verði staðið að
málum með þeim hætti
að fækkun sauðf jár bitni
i fyrsta lagi á þeim, sem
hafa sauðf járbúskap
sem aukagetu og i öðru
lagi á þeim bændum,
sem með góðu móti þola
nokkurn samdrátt í
sínum búskap, eða hafa
möguleika til þess að
taka upp nýjar bú-
greinar. Hins vegar þarf
að tryggja að
óhjákvæmileg fækkun
sauðfjár leiði til sem
allra minnstrar byggða-
röskunar og jafnframt
að litið verði á beitarþol
og skynsamlega land-
nýtingu á hverjum stað.