Þjóðviljinn - 13.08.1982, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. ágúst 1982
Meðf erð agavandamála í skólum:
Kveðið er á
við heimðm
Fyrir alinokkru skrifaði
foreldri unglings í heima-
vistarskóla tvöopin bréf til
menntamála- og dóms-
málayf irvalda, vegna
máls, sem upp kom í sam-
skiptum unglingsins og
fleiri og skólastjóra þess
skóla, þar sem unglingarn-
ir voru við nám. Það, sem
gerðist var í stuttu máli
þetta: skólastjórinn vísaði
börnunum úr skóla vegna
meintrar fíkniefnaneyslu
og foreldrið, sem reit hin
opnu bréf i Þjóðvjljann dró
í efa réttmæti ásökunar
skólastjórans og réttmæti
brottrekstrarins, og spurði
áöurnefnd yfirvöld nokk-
urra spurninga á þeim
grundvelli. Þessi skóli,
sem um ræðir, var Skóga-
skóli. Bréf foreldrisins
voru skrifuð í desember i
fyrra og í júní á þessu ári.
Þetta mál verður ekki rakið
nánar hér, en Þjóöviljinn vill hins
vegar fjalla um þetta mál al-
menntútfrá þeim lögum og reglu-
gerðum, sem i gildi eru, ef það
mætti verða til þess aö varpa ljósi
á skyldur og réttindi þeirra aðila,
sem i hliðstæðum málum lenda:
skólanemenda, og foreldra eða
forráðamanna
Agareglugerð
er til
r>egar reynt er aö grafast fyrir
um gang ágreiningsmála i grunn-
skólum, liggur beinast viö aö leita
i þau lög og þær reglugerðir, sem
i gildi eru um grunnskóla. Það
verður hins vegar fljótlega ljóst,
að þvi næst ekkert er fjallað um
meðferð ágreiningsmála og aga-
brota i grunnskólalögunum. En
aftur á móti er til sérstök Reglu-
gerð um skólareglur o.fl. i grunn-
skóla, og þar er kveðið býsna
ákveðið á um meðferð allra
þeirra vandamála, sem orsakast
af hegðun nemenda (um vanda-
mál vegna hegðunar kennara eða
skólastjóra er ekki fjallað i þess-
ari reglugerð)
Segja má, að aðalatriöi reglu-
gerðarinnar séu fjögur: kostað
skal kapps um að heilbrigður
samstarfsandi riki i skólum, hver
skóli skal setja sér skólareglur og
skulu skólayfirvöld hafa um þær
samráð við nemendur, þegar ald-
ur og þroski þeirra leyfir (sbr. 22.
gr. grunnskólalaga, þar sem
fjallað er um nemendaráð i 7.—9.
bekk grunnskólalaga) nemendum
ber aö fara eftir skólareglum og
hlita fyrirmælum skólastjóra,
kennara og starfsfóiks skóla um
það, er skólann varðar, og ef
nemandi veldur vandræðum með
hegðun sinni, skal umsjónarkenn-
ari leita orsaka og reyna að ráða
bot á, m.a. með viðtölum við
nemandann og forráðamenn
hans. Beri sú viðleitni ekki árang-
ur, skal málinu visað til skóla-
stjóra, sem á að kanna málið frá
Við þökkum vinum og vandamönnum nær
og íjær kveðjur og hlýhug i tilefni af sextiu
ára brúðkaupsafmæli okkar.
Guð blessi ykkur
Ingibjörg Jónsdóttir
/\ðalsteinn Jónsson
Lagarási 23
Kgilsstööum.
©St. Jósefsspítali
Landakoti
Starfsfólk:
nokkrar stöður lausar f.o.m. 1. okt. á
barnaheimili spitalans (aldur barna 1—3
ára).
Hjúkrunarfræðingar:
lausar stöður á barnadéild, gjörg'æslu,
skurðstoiu, iyflækninga- og handlækn-
ingaúeildum.
Fastar næturvaktir koma til greina.
Sjúkraliðar:
lausar stöður á barnadeild, lyflækninga-
og handlækningadeildum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i
sima 19600 ki. 11-12 og 13-15.
Þroskaþjálfar — Fóstrur
Dagheimilið Hamraborg vantar starfs-
mann til að vinna með blind börn frá 1.
september.
Upplýsingar hjá forstöðumanni simi
36905.
um samráð
Ef upp koma agavandamál, sem orsakast af hegðun nemenda i skólum,
segja reglugerð og erindisbréf skólastjóra og kennara, aö skólayfirvöld
skuli hafa samráð við heimili um lausn þeirra mála. Tekið skalfram
að þessi mynd er ekki tekin vegna þessarar greinar.
lega i erindisbréfum bæði skóla-
stjóra og kennara. Erindisbréf,
sem og reglugerðir eru opinber
plögg og er sjálfsagt, að allir for-
eldrar og forráðamenn barna og
unglinga i skólum kynni sér þau
vandlega, og verði sér jafnvel úti
um þau. Það hlýtur enda að telj-
ast bæði eðlilegt og rétt að for-
eldrar og forráðamenn þekki til
skólastarfsins og þeirra reglna
sem um það gilda. Þeirra er hag-
urinn — og þá ekki sist barna
þeirra.
Barnaverndar-
nefnd endanleg
ur úrskurðaraðili
En hér i upphafi var vikið að
einu sérstöku máli, sem viröist
hafa gengið býsna langt i kerfinu,
og það svo, aö lögregluyfirvöld
hafa fengið það inn á borð til sin. I
þvi tilviki telur foreldriö, að rétt-
ur barns þess hafi verið fyrir borö
borinn — og hvaö er þá til ráða?
Skólastjóri má, ef hann telur
nauðsynlegt, visa máli viðkom-
andi nemanda til fræðsluyfir-
valda i umdæmi skólans. Hafi
ákvörðun um það ekki verið til-
kynnt forráðamönnum nemand-
ans, ber skólastjóra að tilkynna
þeim hana tafarlaust, og forráða-
menn barns eiga einnig að fá að
vita af þvi, ef skólastjóri telur
nauðsynlegt að nemanda sé vis-
að úr skóla meðan mál hans er til
meðferðar. Um það á fræðslu-
stjóri einnig að vita, eins og kem-
ur fram i 6. grein reglugerðarinn-
ar héraöofan.
En ef ágreiningurinn milli for-
eldra og skólayfirvalda er dýpri
en það, kemur það fram i 7. grein,
að barnaverndarnefnd er sá úr-
skuröaraðili, sem hvor um sig
getur visað máli áfram til. Og
gilda þá væntanlega þær reglur,
er segja til um meðferð mála i
barnaverndarnefndum
öllum hliðum i samráði við heim-
ili nemandans.
Samráð
við heimilin
Sérstök ástæða er til að birta
hér orðréttar 5., 6. og 7. greinar
reglugerðar um skólareglur o.fl.,
enda er i þeim lögð mikil áhersla
á hvers kyns samráð við heimili
nemenda i öllum þeim agavanda-
málum, sem upp kunna að koma:
5. gr.
í einstökum tilvikum má vikja
nemanda úr kennslustund, ef
hann hefur valdið verulegri trufl-
un og ekki látið skipast við
áminningu kennara. Nemanda
skal þá jafnan visað á ákveðinn
stað i skólanum, svo sem skrif-
stofu skólastjóra eða yfirkenn-
ara, skrifstofu skólans eða kenn-
arastofu, allt eftir aðstæðum.
Skal kennari jafnan ræöa málið
einslega við nemanda.
Við endurtekna brottvikningu
nemanda úr kennslustund skal
kennari ræða málið við skóla-
stjóra og forráðamenn nemand-
ans. Skólastjóri skal leitast við að
ljúka málinu. Takist það ekki vis-
ar hann þvi til fræðslustjóra, sem
hlutast til um sérfræöilega með-
ferð þess.
6. gr.
Nú veldur nemandi vandræðum
i skóla meö hegöun sinni. Ber þá
umsjónarkennara að leita orsaka
og reyna aö ráða bót á, m.a. með
viðtölum við nemandann og for-
ráöamenn hans. Ef viðleitni
kennarans ber ekki árangur, skal
hann visa málinu til skólastjóra,
sem kannar það frá öllum hliðum.
Geti skóli og heimili ekki i sam-
einingu leyst vandann, visar
skólastjóri málinu til fræðslu-
stjóra til sérfræöilegrar meðferö-
ar. Forráðamönnum nemandans
skal tilkynnt sú ákvöröun án taf-
ar, hafi hún ekki verið tekin i
samráði viö þá.
Meðan málið er óútkljffð getur
skólastjóri visað nemendum úr
skóla um stundarsakir, enda hafi
hann tilkynnt forráöamönnum
nemandans og fræðslustjóra þá
ákvörðun.
Akvaröanir samkvæmt þessari
grein skulu teknar i samráði við
kennararáð (kennarafund) og
kennara þess nemanda, sem hlut
á að máli.
7. gr.
Þegar máli nemanda er visað
til fræðslustjóra samkvæmt 5. eða
6. gr. gr. tekur hann málið til
meðferðar og beitir sér fyrir
skjótum úrbótum i samráði við
skólanefnd og sálfræðiþjónustu.
Til þess að einstaklings-
rannsókn á nemanda og högum
hans fari fram skal samþykki for-
ráðamanna nemandans að jafn-
aði ásKÍlið. Réttur foráðamanna
til að hafna slikri sérfræðilegri
meðferð takmarkast þó við það
sem leiðir af ákvæðum laga sbr.
6. gr. grunnskólalaga og lög nr.
53/1966, með áorðnum breyting-
um, um vernd barna og ung-
menna.
Fræðslustjóri sker úr málum
nemenda, sem visað er til
hans samkvæmt þessari reglu-
gerð. Vilji forráðamenn nemanda
ekki hlita úrskurði fræðslustjóra
getur hvor aðili um sig visað mál-
inu til barnaverndarnefndar.
Hagur nemenda
Þetta er hin lögformlega leið,
að þvi er best verður séð, og er
hún meira að segja itrekuð vand-
Má ekki kynna
reglumar betur?
Hér hefur verið stiklað á stóru
um mál, sem vitað er, að hefur
valdiö mörgu foreldri og forráða-
manni barns eða unglings
áhyggjum, liklega fyrst og fremst
vegna ókunnugleika um þær regl-
ur, sem i gildi eru um þessi mál
öll. Og trúlega er það ærið oft,
sem skólayfirvöld sjá ekki ástæðu
til þess að gefa foreldrum allar
upplýsingar um þessar reglur og
hvaða leið mál af þessu tagi eiga
að fara til þess að allra réttur sé i
heiðri hafður —og er þá ekki ver-
ið að ýja að þvi máli, sem er
kveikja þessarar umfjöllunar,
öðrum fremur, heldur aðeins ver-
ið að vitna til heimildarmanna
blaðamanns héðan og þaðan af
landinu.
Það mætti að endingu beina
þeirri áskorun til skólayfirvalda,
að þau láti öllum skólabörnum i té
eintök af þeim reglugerðum, sem
i gildi eru um agamál, svo og önn-
ur mál, er skólann varða, og
hvetji þau og foreldra þeirra til aö
kynna sér efni þeirra plagga. Slik
aðgerð væri án efa i þágu allra
aðila.
—jsj.
Lausar stöður
Tvær kennarastöður lausar við gagn-
íræðaskólann i Mosfellssveit.
1. Staða smiðakennara
2. Staða bóknamskennara.
Kennslugreinar saga og danska.
Upplýsingar gefa Helga Richter formaður
skólaneíndar simi 66718, Gylfi Pálsson
skólastjóri simi 66153 66186 og Árni
Magnússon yfirkennari simi 66575 og
66186.
Auglýsið í
Þjóðviljanum