Þjóðviljinn - 13.08.1982, Page 11
Föstudagur 13. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir
Knattspyrna
um helgina:
Úrslita-
liðin
mætast á
Skaga
Heil umferð verður i hinni æsi-
spennandi 1. deildarkeppni i
knattspyrnu um helgina. Fjórir
leikir verða á laugardag: IA og
ÍBK leika á Akranesi kl. 14.30 en
þessi lið leika einmitt til úrslita i
bikarkeppninni eftir hálfan mán-
uð. KA og ÍBÍ mætast á Akureyri
kl. 14, Valur og ÍBV á sama tima
á Laugardaisvellinum. og kl. 16
eigast Breiðablik og Vikingur viö
á Kópavogsvellinum. A mánu-
dagskvöldið kl. 19 leika svo Fram
og KR á Laugardalsvelli.
í 2. deild leika á laugardag
Vöslungur-Skaliagrimur, FH -
Þróttur R, Þróttur N-Njarðvik og
Reynir S-Þór A. A sunnudag mæt-
ast Fylkir og Einherji og hefjast
allir leikirnir kl. 14.
13. deild leika i kvöld kl. 19 Við-
ir-Selfoss og IK-Haukar. A morg-
un Snæfell-Vikingur 0, Austri -
Tindastóll, Magni-Huginn,
HSÞb-Sindri og Arroðinn-KS.
Grindavik og HV mætast svo á
sunnudag en þetta er lokaumferð-
Það verða án efa margir knettir á
lofti um helgina.
Mynd: —gel
in i deiidinni.
Tveir leikir verða i úrslita-
keppni 4. deildar á sunnudag.
Stjarnan og Þór Þorlákshöfn
leika i Garðabæ og Valur-Leiftur
frá Ólafsfirði á Reyðarfirði.
—VS
3. deild B;
Strákamir úr Sindra
úr neðsta sætinu
Ungu strákarnir i Sindra frá
Iiornafirði eiga nú alla mögulei’ia
á að halda sæti sínu i B-riðli 3.
deiidar í knattspyrnu eftir að hafa
átt á brattann að sækja i sumar. A
þriðjudagskvöldið fengu þeir
HSÞ-b i heimsókn og sigruðu 2:0
með mörkum Halldórs Árnasonar
og Elvars.
KS fékk dýrmætt stig i riðlinum
sama kvöld á Eskifirði gegn
Austra i 1:1 jafntefli. Ólafur Agn-
arsson skoraði mark KS en Sigur-
jón Kristjánsson fyrir Austra.
Blikadagur á morgun
Blikadagurinn ’82 verður á
morgun, laugardaginn 14. ágúst, i
umsjá knattspyrnudeildar
Breiðabliks i Kópavogi. Dagskrá-
in verður mjög fjölbreytt og
stendur linnulitið frá 11 um morg-
uninn til kl. 2 um nóttina. Að
„Blikastöðum” verður kaffisala
og fleira frá 11 til 14.45, á Smára-
hvammsvelli knattspyrnudag-
skrá frá 11.30 til 14.30 og hún fær-
ist siðan yfir á aðalleikvanginn kl.
15. Kl. 16 hefst þar leikur Breiða-
bliks og Vikings i 1. deild. Um
kvöldið verður svo dansleikur i
Félagsheimili Kópavogs frá 21 til
kl. 2.
Landsmótið i golfi:
Sólveig komm upp
að hlið Asgerðar
1. deild ... 1. deild ... 1. deild ... 1. deild ... 1. deild ...
Breiðablik meistari
/
eftir sigur gegn IA
— en Skagastúlkumar skomðu þó þrivegis
Breiðablik tryggði sér íslands-
meistaratitilinn i 1. deild kvenna i
knattspyrnu i gærkvöldi. Blika-
stúlkurnar lcku þá gegn ÍA á
Kópavogsvelli og nægði jafntefli
til að hljóta meistaratitilinn en
hið sigursæla lið þeirra lék til
vinnings og sigraöi Skagastúlk-
urnar 4:3 i mjög skemmtilegum
leik. Þetta cr f jórða árið i röð sem
Breiðablik verður tslandsmeist-
ari. Hitt er svo annað mái að
þetta var i fyrsta skipti siðan 27.
júli 1978 scm Breiðablik hefur
fengið á sig þrjú mörk i leik á ts-
landsmóti.
Strax á fyrstu minútunum
fengu Blikastúlkurnar gott tæki-
færi en laust skot Magneu Magn-
úsdóttur fór beint á markvörðinn.
Stuttu seinna skoraði Asta B.
Gunnlaugsdóttir fyrir Breiðablik
eftir skemmtilegan samleik.
Bæði lið léku vel og sóttu til skipt-
is. Eftir eina af mörgum sóknar-
lotum skoraði Breiðablik annað
mark og aftur var Asta B. á ferð-
inni. Staðan 2:0 i hálfleik.
Bæði lið mættu mjög ákveðin til
leiks i siðari hálfleik. Fljótlega lá
knötturinn i Skagamarkinu i
þriðja sinn og enn var markavélin
Asta B. á ferðinni.
Skagastúlkurnar hresstust
bara viö þetta og skoruðu
skömmu siðar eftir góða skyndi-
sókn og var þar Laufey Siguröar-
dóttir að verki. Blikastúlkur voru
þó ekkert á þvi að gefa eftir, held-
ur bættu við fjórða markinu, 4:1,
og skoraöi þaö Bryndis Einars-
dóttir.
En eftir fimm minútur var 1A
búið að skora tvivegis. Það fyrra
var gull al' marki. Laufey lékk
sendingu inn i vitateig og skaut
viðstöðulaust i hornið fjær: óverj-
andi skot. Þaö siðara gerði Kari-
tas Jónsdóttir og staðan var orðin
4:3.
Breiðablik sótti stanslaust eftir
þetta en tókst ekki að finna leið-
ina aö marki lA og 4:3 uröu þvi
lokatölurnar.
Staöan i 1. deild:
Breiðablik.........9 8 1 0 32:7 17
Valur..............8 4 3 1 9:4 11
KR.................9 3 4 2 10:10 10
IA.................9 3 2 4 15:16 8
Vikingur...........8 0 3 5 3:12 3
FH.................7 0 15 0:20 1
Markahæstar:
Asta B. Gunnlaugsdóttir, UBK . 15
Bryndis Einarsdóttir, UBK....7
Kolbrún Jóhannsdóttir, KR....5
Laufey Sigurðardóttir, IA.....5
—MHM
r»iO«ve<'
lHMiLr Í
ifc ’ Jffik. ■■ ,r’- |
islandsmeistarar Breiðabliks i knattspyrnu kvenna 1982 — Breiðablik úr Kópavogi. Aftari röð frá
vinstri: Karl Steingrimsson formaður knattspyrnudeildar, Siguröur Hanncsson þjálfari, Margrét Sig-
urðardóttir, Sigriöur Tryggvadóttir, Sigriður Jóhannsdóttir, Svava Tryggvadóttir, Dagný Halldórsdótt-
ir, Ilalldóra Gylfadóttir, Heiðrún Þorbjörnsdóttir, Ragnheiður Þorgilsdóttir og Pétur ómar Agústsson
úr meistaraflokksráði kvenna. Fremri röð: Magnea Magnúsdóttir, Asta Maria Reynisdóttir, Erla
Rafnsdóttir, Guðriöur Guðjónsdóttir, Rósa Valdimarsdóttir fyrirliði, Asta óskarsdóttir, Asta B. Gunn-
laugsdóttir og Bryndis Einarsdóttir. Mynd: —gel .
Aðgangseyrir hækkar
áhorfendum fækkar
Slgurður áfram efstur af körlum
Sólveig Þorsteinsdóttir, GR,
islandsineistarinn i golfi frá þvi i
fyrra, hcfur nú unnið upp 7 högga
forskot Asgcrðar Sverrisdóttur,
GR, þegar tveimur keppnis-
dögum af fjórum er lokið i
meistaraflokki kvenna á Lands-
mótinu i golfi. Asgerður og Sól-
veig liafa hvor um sig leikið 36
holurnar á 175 höggum. Þórdis
Gcirsdóttir, GK, er þriðja ineð
178 högg.
Sigurður Pétursson, GR, er
áfram efstur i meistaraflokki
karla. Þegar keppnin er hálfnuð
er hann kominn meö 146 högg.
Ragnar ólafsson, GR, er annar
með 148 högg og Björgvin
Þorsteinsson, GA, þriðji með 150
högg. Næstir koma Jón Haukur
Guðlaugsson, NK, og Hilmar
Björgvinsson, GS, með 156 högg
hvor.
Ómar Kristjánsson, GR,
tryggði sér sigur i 2. flokki karla i
gærkvöldi með 346 högg. Jón Ó.
Carlsson GR varð annar með 356
og Bergur Guðnason, GR, þriðji,
einnig með 356 högg. Arnar Guð-
laugsson, GR, sigraði i 3. flokki
karla á 378 höggum. Sveinn J.
Sveinsson, GOS, varö annar með
379 og Ólafur Guöjónsson þriðji
með 380 högg. Keppni er hálfnuð i
1. flokki kvenna og þar er Agústa
Guðmundsdóttir, GR, nú efst með
178 högg, Jónina Pálsdóttir, GA,
önnur meö 179 og Agústa Dúa
Jónsdóttir, GR, þriðja með 184
högg.
—VS
Fækkun áhorfenda á knatt-
spyrnuleikjum i sumar er höfuð-
verkur sem þjakar hérlenda
knattspyrnuforystu um þessar
mundir. Ahorfendur á leikjum 1.
deildar hafa sjaldan eða aldrei
verið færri þrátt fyrir þá staö-
reynd að keppnin hefur aldrei
veriö jaínari og óútreiknanlegri
en einmitt nú. Margir hafa bent á
að sýningar sjónvarpsins frá
heimsmeistarakeppninni i sumar
hafi mettað knattspyrnuáhuga-
menn i bili og munurinn á knatt-
spyrnunni sem þar var sýnd og
þeirri islensku sé svo gifurlegur,
okkur i óhag, aö menn nenni
hreinlega ekki lengur á völlinn af
þessum sökum.
Það má vera aö i þessu leynist
sannleikskorn og vitað mál er aö i
samanburði við þaö besta i heim-
inum á knattspyrnan hér i 1.
deildinni ekki mikla möguleika.
Aðalorsökin er þó vafalitið
önnur, sem sé sú, að á
knattspyrnuleik i dag kostar heil-
ar 60 krónur, eða 6000 gamlar. I
fyrra kostaöi 35 krónur á völlinn
og þótti mikið en nú hefur svo
sannarlega verið skotið yfir
markiö. Margir knattspyrnu-
áhugamenn vilja gjarnan sjá tvo
leiki i 1. deild sömu helgina en nú
kostar slik skemmtun 120 krónur
og það er einum of mikið fyrir
flesta.
Ef allt væri með felldu, ætti
áhorfendafjöldi á 1. deildarleikj-
um á höfuöborgarsvæðinu að
vera á annað þúsund aö jafnaði en
i staðinn, með alla þá spennu sem
rikir i 1. deildinni, mæta aöeins
allra hörðustu stuðningsmennirn-
ir og losa nokkur hundruð.
Sifellt fjölgar þeim sem fara á
dómarar.ámskeið til að ná sér i
knattspyrnudómararéttindi. Þvi
fylgir nefnilega ókeypis aðgangur
að öllum innlendum knattspyrnu-
leikjum og slikt sparar mörgum
mikil fjárútlát.
Það er óvist aö knattspyrnan
hagnist á þeirri fjölgun dómara,
þar sem menn komast upp með
aö vera meö dómaraskirteini upp
á vasann ár eftir ár án þess að
dæma einn einasta leik. Lái þess-
um mönnum hver sem vill, en hér
er einungis um eölileg viðbrögö
við sihækkandi aögangseyri að
ræöa.
Þessi mál verður að taka til
gagngerrar endurskoðunar þegar
keppnistimabilinu lýkur og sjá til
þess að slikt endurtaki sig ekki.
Það kæmi sennilega meira i kass-
ann þó ekki kostaöi nema 35 krón-
ur á völlinn i dag þar sem sú
lækkun myndi skila sér i stórauk-
inni aðsókn.
—VS