Þjóðviljinn - 01.10.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.10.1982, Blaðsíða 2
2 SIÐA,— ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 1. október 1982 Það voru stór- Mamma fór í verkfall Anne Bullington er 36 ára (bara) húsmóðir og fímm barna móðir, búsett í Iowa í Bandaríkj- unum. Fjölskyldan mat störf hennar ekki að verðleikum og gerði, að mati Anne, allt til að þyngja byrð- ar hennar við heimilisstörfín. Hún greip því til sinna ráða. Einn morguninn náði hún í garðstólinn sinn, stillti honum upp úti í garði, kom sér þar fyrir með góða bók og sat sem fastast allan daginn og fram á kvöld. Þannig gekk til næstu daga. Út í garð eldsnemma á morgnana og í rúmið yfir blánóttina. Börnin og eiginmaðurinn gátu séð um sitt. Eftir vikutíma var elsta dóttir- in, Michelle 16 ára gömul, send á fund móður sinnar, og tilkynnti henni uppgjöf fjölskyldunnar. Gengið var til samninga og eigin- maður og börn féllust á að taka að sér hluta hússtarfa og virða störf móður sinnar. Gangið ekki fleiri en tvö samhliða. Gangið fremur í röð þeg- ar þið eruð mörg saman. Sigurður Karlsson um plötu sina „ Veruleika?” „Hlýt að hafa trú á verkum minum Bílprófin „Kg er fyrst að skilja það núna hvers vegna ég er að þéssu. I»að er fyrst og fremst vegna trúar á lífið,“ segir Sigurður Karlsson, tónlistarmaður, cn hann cr um þessar mundir að gcfa út plötu, sem ber heitið „Veruleiki?“. Sig- urður hcfur vcrið í tónlistinni frá sextán ára aldri, eða í ein sextán ár. Of langt mál væri að telja upp allar þær hljómsveitir, sem Sig- urður hefur leikið með. Við skulum því láta okkur nægja að nefna Friðryk. ,.Ég ætla framvegis að helga tónlist mína trú á lífið,“ segir Sig- urður. „Næsta plata nn'n mun fjalla um ástina. Og þá í víð- tækum skilningi, en ekki þeini klámfengna tón, sem alltof marg- ir yrkja og spila um. Ég mun syngja um lífið og fegurð þess, og einnig um hörmungar tilverunn- ar. Það er ekki gaman að velta sér upR úr hörmungum, en það er þó sjálfsagt að benda á þær." Sigurð- ur Karlsson hefur stofnað útgáf- ufyrirtæki, sem ber heitið Veran. Jón Magnússon, eigandi Skalla, styrkir fyrirtækið til helminga. Maður veit aldrei hvernig viðtökur plötur manns fá, scgir Sigurður Karlsson og brosir. (Ljósni. -cik.) „Maður veit aldrei hvernig við- tökur plötur manns fá," segir Sig- urður og brosir. „Ég vona auðvit- að hið besta og hef trú á þessu. Ég hef alla tíð verið mjög leitandi og hef satt að segja farið illa út úr því. En nú hef ég loksins fundið minn grundvöll — minn sama- stað í tilverunni. Og því hlýt ég að hafa trú á verkum mínum." ast Hvað féllu margir? Því er oft haldið fram (af þeim sem þykjast vita) að ökupróf sé það próf sem allir gætu staðist. En er svo í raun? í skýrslu bifreiðaeftirlits ríkis- ins fyrir síðasta ár kemur fram, að af 6.417 sem tóku ökupróf stóð- ust 6.129. Það féllu semsagt 288 nemendur. . Útkoman var þó sýnu verri í fræðilega prófinu (bóknáminu). 7.111 voru spurðir út úr, en aðeins6.085 stóðust prófið. 1.016 manns féll, sem er nær 1/7 þeirra sem tóku prófið. Sýnu verst var þó útkoman í fræðilegu prófi á létt bifhjól. Aðeins rúmlega helmingur, eða 54,6% nemenda, sem stóðst prófið. En hvað þá með ökukennar- ana sjálfa? kynni einhver að spyrja. Jú, mikið rétt. Þar mættu 33 til próftöku. Aðeins fjórir stó- ðust prófið. 100 svipu- högg fyrir kossinn Hin íslamska löggjöf á siðgæð- issviðinu hefur nú vcrið út- víkkuð, segir í fréttum frá Teher- an. Meðal annars hefur nú verið bannað með lögum í Iran að „kyssast af kynferðislegri nautn“. Hin nýja löggjöf bannar bæði kossaflens, áfengisneyslu og kyn- ferðislegt samneyti við sama kyn. Þeir sem dæmdir verða fyrir kossaflens í fyrsta skiptið rnunu fá 100 svipuhögg, og á þessi refs ingaðvera til reynslu þartil ann- að verður ákveðið. Refsingar fyrir „siðgæðisbrot" hafa tíðkast í íran allt frá því klerkaveldið komst lil valda, en refsingar hafa ekki verið skráðar í lögum fyrr en nú. Til þess að hægt sé að fella dóm um kynferðisafbrot samkvæmt hinum nýju lögum, þarf eiðsvar- inn vitnisburð fjögurra karl- manna. Ef aðeins næst til þriggja karlmanna, má í undantekning- artilfellum notast við eitt kven- kynsvitni af fjórum, samkvæmt hinni nýju lagasetningu. Síbrotamönnum á siðferðissvið- inu er refsað mun harðar, segir í fréttinni, t.d. er endurtekið kyn- ferðislegt samneyti við mann- eskju af sama kyni glæpur er kostar dauðadóm, samkvæmt hinum nýju lögum. Þessi löggjöf nær til allra íbúa landsins, hvort sem þeir eru íslamstrúar eða ekki, segir í fréttinni. Enginn söknuður Einhverjir elstu vinnuþjarkar Fasteignamats ríkisins munu láta af störfum ■ haust. Þeir hafa verið í samfelldri notkun í a.m.k. 16 ár og dugað ríkinu betur en margt nýrra tækja. „Þrátt fyrir brottför þeirra ríkir enginn söknuður hjá starfsfólki FMR. Meira að segja hefur heyrst að tölvuriturunum hafi stokkið bros um daginn. Nýja tölvan mun leysa gamla ruslið af hólmi." Þannig segir frá í fréttabréfi Fasteignamatsins. Það er ekki hægt að segja að þeir sýti gamla og góða vinnufélaga á þeirri stofnun. slys Þeir komu hlaupandi þvert yfír Hagatorgið beint í fangið á okkur Þjóðviljamönnum í þann mund sem við ætluðum að halda til fundar við ungt tónlistarfólk sem var að æfa sig í Háskólabíói. — Við vorum að koma úr leikfimi. Hann Lárentíus kennir okkar, hann er íslandsmeistari í blaki, sögðu strákarnir og sveifl- úðu skjóðum sínum í kringi. — Hvað voruð þið að gera í leikfimi? -— Auðvitað í fótbolta, það er langskemmtilegast. — Eru ekki stelpur með ykkur í leikfimi? Nú hlæja strákarnir og verða Frá v. Þórður, Skúli og — Já, það voru tvö slys í gær, stórslys. — Hvað segirðu? — Jú það var einn strákur sem beit hann í handlegginn, segir Haukur og bendir á félaga sinn. Og þessi fékk gat á hausinn, bætti Haukur við og benti á hinn fé- lagann. Síðan voru þeir roknir af stað. — lg- Það er langskemmtilegast í leikfími og sundi, sögðu félagarnir. Haukur. Mynd - eik. um leið hálfskrítnir á svipinn. — Stelpur, nei þær geta ekkerl í fót- bolta. Jæja, hugsa ég, svo stelpur sparka ekki fótbolta í Melaskól- anum. — Annars, eruð þið ekki í Melaskólanum strákar? — Jú, auðvitað, segir Haukur. Ilann hefur orð fyrir þeim fé- lögum. Haukur er Skúlason og 8 ára gamall. Með honum voru á ferð þeir Skúli Brynjólfsson 9 ára og Þórður Magnússon, einnig 9 ára. — Þið passið ykkur á bílunum, er það ekki? spyr blaðamaður og reynir að vera alvarlegur á svipinn. — Jú, við gerum það. Við erum dálítið hræddir við bílana, sérstaklega hérna á Suðurgöt- unni. Þeir keyra svo hratt. — Hefur kannski orðið slys síðan skólinn byrjaði?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.