Þjóðviljinn - 01.10.1982, Blaðsíða 7
Föstudagur 1. október 1982 ÞJÓÐVÍCjINN - SIÐA 7
Kjördæmisráð AB á Austurlandi:
Kosningar
undirbúnar í
- I
félagsdefldum
Á aðalfundi kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins á Austur-
landi, sem haldinn var á Djúpavogi
um síðustu helgi, var Einar Már
Sigurðsson, Neskaupsstað, endur-
kjörinn formaður þess. Auk for-
manna Alþýðubandalagsins á
Austurlandi voru kjörnir í stjorn:
Jórunn Bjarnadóttir, Eskifirði, og
Hæsta einkunn, sem þar er gefin, er
15 stig. Sá ostur íslenskur, sem
hæsta einkunn hlaut, var kúmen-
maribo ostur frá Sauðárkróki, 12,5
stig. Einkunn besta danska ostsins
var 13,8 stig.
Fast á hæla kúmen-ostsins kom
annar maribo-ostur frá Sauðár-
króki og svo Gáda-ostur frá Akur-
eyri. Kynntar voru og dæmdar 36
gerðir íslenskra osta, og sagði Ósk-
ar Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Osta- og smjörsölunnar, að við
mættum mjög vel við una þá dóma,
sem íslenska framleiðslan fékk. ís-
lensku ostarnir, sem voru á sér-
stöku borði, vöktu mikla athygli
Kristinn Árnason, Egilsstöðum.
10 flokksfélög á Austurlandi
sendu fulltrúa á aðalfundinn, alls
milli 30 og 40 manns. Meginefni
fundarins, auk aðalfundarstarfa,
voru umræður um stjórnmálavið-
horfin og kjördæmismál, þar á
meðal undirbúningur næstu alþing-
iskosninga.
viss viðburður í Danmörku, og þar
mæta öll dönsk mjólkurbú með
sína framleiðslu. Sérstakir dómar-
ar dæma ostana, gefa þeim ein-
kunn fyrir bragð, útlit o.s.frv., og
síðan er reiknuð út aðaleinkunn.
Að því búnu er sýningin opnuð
fyrir almenning.
-Við ákváðum að taka þátt í
þessari sýningu til þess að fá óhlut-
drægan samanburð á ostafram-
leiðslu okkar og Dana, sem þykja
standa þjóða fremstir í ostagerð,
og megum sannarlega vel una úr-
slitunum. En jafnframt eru þau
hvati til þess að gera enn betur,
sagði Óskar Gunnarsson. -mhg
Einar Már Sigurðsson, Neskaups-
stað, var endurkjörinn formaður
kjördæmisráðsins.
Fundarmenn skoðuðu hið nýja
frystihús Búlandstinds h.f. undir
leiðsögn Gunnlaugs Ingvarssonar
framkvæmdastjóra, sem síðan
bauð til kaffisamsætis fyrir hönd
Kaupfélags Berufjarðar, sem hann
veitir því einnig forstöðu.
Togari var keyptur til Djúpavogs
í byrjun þessa árs og hefur tilkoma
hans ásamt frystihúsinu gjörbreytt
þar atvinnuhorfum til batnaðar.
Á vegum kjördæmisráðsins hef-
ur verið líflegt starf að undanförnu,
m.a. var haldin vorráðstefna í júní
sl. um sveitarstjórnarmál og þar
voru kosnar nefndir til að undirbúa
tillögur til aðalfundarins á Djúpa-
vogi. Einnig var í ágúst sl. haldin
ráðstefna á Hallormsstað um skó-
lamál. Kjördæmisráðið beitti sér
einnig fyrir sumarferð að Snæfelli í
samvinnu við Alþýðubandalag
Héraðsmanna og tóku þátt í henni
um 70 manns.
Kjördæmisfundurinn á Djúpa-
vogi fjalláði um og samþykkti ýtar-
lega stjórnmála ályktun, svo og ál-
yktanir um atvinnumál, orkumál,
félags- og menningarmál, sjálf-
stæðismál o.fl. Er stjórnmálaálykt-
un fundarins birt hér í blaðinu í
dag.
Varðandi undirbúning næstu
alþingiskosninga samþykkti’ kjör-
dæmisráð m.a. að fela
framkvæmdastjórn og stjórn ráðs-
ins að hafa forystu um undirbúning
að tillögum um framboð og efna til
funda í sem flestum Alþýðubanda-
lagsfélögum á svæðinu til að ræða
kosningastarfið og framboðsmálin
og kynna sér viðhorf sem flestra.
Kjördæmisráðið mun síðan fjalla
um tillögur varðandi skipan fram-
boðslista í alþingiskosningunum og
taka ákvörðun um framboð.
Ostamir hlutu
góða dóma
í Danmörku
I M
Islensku ostarnir, sem gengu meðalsýningargesta,ogþóttum.a.
undir dóm hjá Dönum á ostakynn- umbúðir og frágangur þeirra mjög
ingu í Herning í Danmörku nú ný- smekklegur.
Jega, fengu góðan vitnisburð. Ostakynningin í Herning er ár-
Auglýsing um aðalskoðun
í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur
í októbermánuði
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
1. okt. R-62501 til R-63000
4. okt. R-63001 til R-63500
5. okt. R-63501 til R-64000
6. okt. R-64001 til R-64500
7. okt. R-64501 til R-65000
8. okt. R-65001 til R-65500
11. okt. R-65501 til R-66000
12. okt. R-66001 til R-66500
13. okt. R-66501 til R-67000
14. okt. R-67001 til R-67500
15. okt. R-67501 til R-68000
18. okt. R-68001 til R-68500
19. okt. R-68501 til R-69000
20. okt. R-69001 til R-69500
21. okt. R-69501 til R-70000
22. okt. R-70001 til R-70500
25. okt. R-70501 til R-71100
26. okt. R-71101 til R-71700
27. okt. R-71701 til R-72300
28. okt. R-72301 til R-72900
29. okt. R-72901 til R-73500
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Föstudagur
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar
sínar til Bifreiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8
og verður skoðun framkvæmd þar alla virka
daga kl. 08:00 til 16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber
skilríki fyrir því að bifreiðaskattur sé greiddur
og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer
skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjald-
mælir í leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald
á hverjum tíma. Á leigubifreiðum til mann-
flutninga, allt að 8 farþegum, skal vera sér-
stakt merki með bókstafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tíma verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
iögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
í skráningarskírteini skal vera áritun um
það að aðalljós bifreiðarinnar hafi verið
stillt eftir 31. júlí 1982.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
28. september 1982.
Hiti og
rafmagn
hækkar
um 30%
Borgarráð og stjórn veitustofn-
ana hafa samþykkt að hækka gjald-
skrár rafmagns og hitaveitu um 30
og 30,8% um næstu mánaðamót.
■ í samþykktinni er ákveðin 5%
hækkun umfram hækkun verðlags
1. nóvember til rafmagnsveitu og
12% umframhækkun til hita-
veitunnar. Er þetta gert vegna
rekstrarhalla fyrirtækjanna, en
hann hefur einkum verið mikill hjá
hitaveitunni.
Á síðasta verðbótatímabili fékk
hitaveitan 5% umframhækkun, en
það hefur dugað skammt í verð-
bólgunni að mati borgaryfirvalda.
Gerir samþykktin ráð fyrir því að
hitaveitan fái 12% umframhækkun
á öllum verðbótatímabilum næsta
árs, svo endar nái saman.
-ÁI
«11111
■:
■
: :
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^N