Þjóðviljinn - 01.10.1982, Page 3
Föstudagur 1. október 1982 þjóÐVILJINN — SIÐA 3
Maður gæti haldið að þetta væri karlakór, sem Kolbrún S. Kjarval krýpur
þarna hjá. Mynd: - eik.
Kolbrún Kjarval
sýnir leirmuni í
Listmunahúsinu
Á morgun, laugardaginn 2. okt.
verður opnuð í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2, leirmunasýning
Kolbrúnar S. Kjarval.
Kolbrún er 37 ára gömul,
Reykvíkingur, sonardóttir Jóhann-
esar S. Kjarval, listmálara. Hún
stundaði nám í leirmunagerð í
Kaupmannahöfn og síðan í tvö ár
við listaskóla í Edinborg. Eftir að
námi lauk í Edinborg dvaldi hún
eitt ár á íslandi en flutti þá til Dan-
merkur og hefur verið búsett þar
síðan. Kolbrún rekur nú eigið
leirmunaverkstæði á Jótlandi.
Velkomin
Um þessi mánaðamót rann
út ókeypis kynningaráskrift á
blaðinu. Þjóðviljinn býður á
annað þúsund áskrifendur
velkomna í lesendahópinn.
Kolbrún S. Kjarval hélt einka-
sýningu í Reykjavík 1968 og hefur
einnig tekið þátt í samsýningum
bæði hér heima og erlendis. Sýn-
ingargripir Kolbrúnar í Listmuna-
húsinu eru um 100 talsins.
Nú hefur Kolbrún S. Kjarval bú-
ið í Danmörku samfleytt í 13 ár og
við spurðum hana hvort hún væri
orðin rótföst þar ytra?
- Já,hugsaðuþérbara,þettaeru
orðin 13 ár og þó finnst mér þetta
enginn tími þegar ég lít til baka. Og
núna fer ég aftur út eftir tvo
mánúði. Jú, auðvitað er maður all-
taf á heimleið. Spurningin er bara
hvað leiðin verður löng.
Sýning Kolbrúnar S. Kjarval í
Listmunahúsinu er sölusýning.
Hún er opin virka daga frá kl. 10 -
18 en laúgardaga og sunnudaga frá
kl. '14 - 22. Lokað á mánudögum.
Sýningunni lýkurþann 24. októ-
ber.
- mhg.
Deila undirmanna á kaupskipunum:
Miðar í átt að
samkomulagi
Fimm skip stöðvast eftir helgi
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari bjóst við löngum og
ströngum fundarhöldum í far-
mannadeiiunni en að sögn kunnug-
ra virðist eitthvað miða í samkom-
ulagsátt. „Menn cru þó farnir að
ræða pappírinn“, eins og einn við-
mælenda blaðsins sagði í gær.
Fundur viðsemjenda stóð til kl. 3
í fyrrinótt og hófst aftur eftir há-
degið í gær. Var búist við fundi
frarn á nótt.
Sjómannafélagið hefur engar
undanþágur veitt í þessari deilu,
enda hefur verið veitt heimild til að
losa öll þau 13 skip, sem nú hafa
stöðvast í höfnum. Framkvæmda-
stjóri Sjómannafélagsins sagði í
gær að næstu skip sem stöðvuðust
vegna verkfalls undirmanna væru
Irafoss 3. október og Eyrarfoss og
Selá 4. október. Þá væru tvö erlend
leiguskip væntanleg, Barok 5. okt-
óber og Berit 7. október.
Þau skip sem Hafskip leigir
verða ekki lestuð vegna samúðar-
vinnustöðvunar Verkamannafél-
agsins Dagsbrúnar frá 7. október
sem þýðir að engin leiguskip skip-
afélaganna verða lestuð eftir þánn
tíma.
Samdráttur
í fataiðnaði
Samdrátturinn er staðreynd í
fataiðnaðinum og við erum hrædd-
ir um að frekari samdráttur sé
yfirvofandi, sagði Björn Bjarnason
hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks, er
blaðið lcitaði álits á tilkynningum
um fækkun starfsmanna hjá nokk-
rum fyrirtækjum í fataiðnaðinum.
- Þegar hefur verkafólki verið
sagt upp hjá Sportveri um 20
manns og Pólar-prjóni 18 manns.
Þá hefur saumastofa Karnabæjar
ekki ráðið í stað þeirra sem hafa
hætt að undanförnu.
Astæðan er alltaf sú sama, versn-
andi samkeppnisstaða fataiðnað-
arins og óhagstæð gengisþróun.
Þessar saumastoíur hafa töluvert
framleitt til útflutnings og fyrir
nokkru var sá útflutningur blóm-
legur.
- Nei, það hefur ekki mikið bor-
ið á því að fólkið leiti hingað. Bæði
er það að uppsagnirnar eru fyrst að
korna til framkvæmda nú eftir
mánaðarmótin og svo hitt að rnarg-
ir hafa lengri uppsagnarfrest, 2-3
mánuði. En ef svo heldur áfram er
ég hræddur um að fari að þrengjast
um á vinnumarkaðinum og geti
orðið atvinnuleysi.
- Sem betur fer mun ástandið
ekki vera eins slærnt í öðrum grein-
um iðnaðarins en menn verða að
hafa gát á gangi mála, sagði Björn
Bjarnason starfsmaður Iðju. - óg.
Samið um leiðréttingu á launum fóstra
Starfsmannafélag Reykjavíkur
og launamálanefnd Reykjavíkur-
borgar gerðu í gærmorgun með sér
samkomulag um að byrjunarlaun
fóstra hjá borginni verði 12. launa-
flokkur, 2. þrep en í nýgerðum sér-
kjarasamningi höfðu fóstrur vcrið
lækkaðar í 1. þrep flokksins, eins
og skýrt var frá í Þjóðviljanum í
gær.
Talsverð óánægja hafði komið
fram á fundi fóstra hjá borginni,
sem haldinn var í fyrrakvöld, með
þessa skerðingu á byrjunarlaunun-
um en jafnframt íá fyrir bókun
launamálanefndar Reykjavíkur-
borgar um að leitast við að
leiðrétta þessa skerðingu. Það hef-
ur nú verið gert.
Þessi nýi sérkjarasamningur
verður borinn undir atkvæði í starf-
smannafélaginu í dag og á morgun
og liggja úrslit í málinu fyrir eftir
helgi. - v.
AHS?>'
nn ENn
vöru1^1
verði fra 5am M
__ ^/aipur.P^' ■
all>"ar'
tfið <'‘> '‘“09 barnafatn
5°kka' * „ kjóla- P||S 9
. KvenkáPur' ,
ew"‘9=Kar uii. qiuggatiö d’
***** éklæðiSefb' 9' 9
^naeH ^ppi * «a
SUllf Garni. loðWndl
»8 ógleynld ' „;„nahúðir.
i og i°Pa
Nýiut'^
m°
: TePP^fiitir’
s
- V.