Þjóðviljinn - 01.10.1982, Page 8

Þjóðviljinn - 01.10.1982, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. október 1982 Það cr ekki að sjá að krakkarnir í „Litla sótaranum" séu neinir viðvaningar á óperusviðinu. Mynd: - gel Litli sótarinn Fjórða verkefni íslensku óper- unnar er „Búum til óperu“ og vcrð- ur frumsýningin í Gamla bíói laugardaginn 2. okt. kl. 17 „Búum til óperu“ er söngleikur í tveimur þáttum, eftir þá Benjamín Britten og Eric Crozier. Fyrri þátt- ur leiksins lýsir þvf uppátæki vina- hóps barna og fullorðinna að koma saman óperu og öllu, sem til þess þarf að setj a hana á svið. Efni óper- unnar er einföld saga, sem sótt er í tvö kvæði enska skáldsins Williams Blake, um lítinn sótarastrák. í síð- asta þætti söngleiksins er óperan síðan flutt og heitir hún „Litli sót- arinn“. Þeir, sem koma fram í sýn- ingunni, einsöngvarar, kórfólk og leikarar eru: Elísabet Erlingsdótt- ir, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Ás- rún Davíðsdóttir, John Speigth. Stefán Guðmundsson, Sólveig Arnarsdóttir, Guðný Helgadóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þorbjörn Rúnarsson, Halldór Örn Ólafsson, Hrafnhildur Björnsdótt- ir, Gísli Guðmundsson, Elísabet Waage, Signý Sæmundsdóttir, Marta Halldórsdóttir, Sigurður Bragason, Árni Sighvatsson, Gunnar Freyr Árnason, Steinunn Þórhallsdóttir, Ragnheiður Þór- hallsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Arnar Kristjánsson og Guðbjörg Ingólfsdóttir. I kórnum er ætlast til að áhorfendur syngi vegna mann- fæðar á sviðinu. Eitt af því, sefn fram fer í fyrra þætti, er að hljóm- sveitarstjórinn kynnir áhorfendum kórsöngvana, sem á þarf að halda í óperunni. Verk Dieters Roth í Nýlis safnin Tómas Guðmundsson skáld hef- ur þýtt „Litla sótarann“ á íslensku, en fyrri þátt leiksins hefur Þórhild- ur Þorleifsdóttir staðfært til þess að hann hæfi íslenskum aðstæðum. Flún er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Sviðsmynd er eftir Jón Þórisson., en hljómsveitarstjóri er Jón Stefánsson. Æfingar byrj- uðu í vor, en lágu niðri í sumar og hófust á ný 1. sept. Benjamín Britten, sem lést árið 1976, var í hópi kunnustu tón- skálda 20. aldar. Hann er einn um það meðal tónskálda á síðustu ára- tugum, að hafa samið fjölmargar óperur, sem sýndar hafa verið og náð vinsældum víða um heim. Meðal hugðarefna Brittens var að stuðla að síauknum óperuflutningi og sem víðast og í því skyni samdi hann óperur, sem flytja mætti við hinar fjölbreytilegustu aðstæður, t.a.m. í kirkjum. í sama skyni samdi hann einnig óperur handa börnum, og er söngleikurinn „Bú- um til óperu“ lang-kunnast þeirra verka. Hann var fyrst sviðsettur 1949 óg hefur síðan verið fluttur um allan heim við bestu undirtekt- ir. Söngleikurinn hefur verið flutt- ur í Ríkisútvarpinu, en er nú svið- settur í fyrsta sinn á íslandi. „Búum til óperu“ er fjölskyldu- skemmtun öllu öðru fremur, enda lýsir leikurinn því hvernig börn og fullorðnir geta tekið höndum saman um að skemmta sjálfum sér og öðrum. -mhg Sýning á listaverkum eftir Dieter Roth verður opnuð í Nýlistasafninu við Vatnsstíg föstudaginn 1. október og verður hún opin til 17. október. Hér eru um að ræða grafík- myndir, bókverk, skáldverk, teikningar, póstkort, plaköt og margt fleira, en Dieter Roth hcfur undanfarið safnað saman verkum sínum héðan og þaðan úr heiminum og gefur hann safninu þau á sýninguna. Þá eru á sýn- ingunni um 50 listaverk sem Ragnar Kjart- ansson gaf Nýlistasafninu árið 1978, og cru flest þcirra aðeins til í einu eða tvcimur ein- tökum. Hér er ekki um sölusýningu að ræða, en hægt er að panta ýmis verk Dieters Roth eftir skrám sem þarna verða, sagði Niels Hafstein, hjá Nýlistasafninu, þar sem hann var aö ganga frá sýningunni. Dieter Roth, sem nú er búsettur í Sviss, hefur um langt árabil verið í fremstu röð framsækinna listamanna og hefur haldið sýn- ingar nánast um allan heim. Innan skamms taka þau Guðjón B. Ketils- son, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og Sigríð- ur Guðjónsdóttir við rekstri Gallerísins hjá Nýlistásafnínu, og sýna þau Guðjón og Guð- rún Hrönn verk sín í október. Mikil aðsókn er að þessu húsnæði, og má Niels Hafstein raðar verkum Dieters á sýning- unni. Ljósm.-eik segja að það sé bókað meira og minna allt næsta ár. Meðal þeirra sem sýna á næstunni er danski múrarinn og ljóðskáldið Jörgen Bruun Hansen, sern margir fslendingar kannast við. - þs Rúna barnfóstra (Elísabet Erlingsdóttir) og Litli sótarinn (Gísli Guðmundsson). Mynd: -gel Sinf óníuhlj óm- sveit Islands berst höfð- ingleg gjöf Sinfóníuhljómsveit íslands hefur borist höfðingleg gjöf úr dánarbúi hjónanna Páls Hallbjörnssonar og Sólveigar Jóhannsdóttur, Leifsgötu 32, Reykjavík. í arfleiðsluskrá er þess sérstak- lega getið að gjöfin sé þakklætis- vottur fyrir störf hljómsveitar- innar, sem þau mátu mikils og virtu. Ennfremur er þess óskað, að framangreind gjöf renni til eflingar tónlistarflutnings Sinfóníuhljóm- sveitar íslands út um land. Stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís- lands vill koma á framfæri ínnilegu þakklæti fyrir þessa gjöf og þá vel- vild og hlýhug, sem henni fylgir. -mhg íbúðalán tfl bænda miðfst víð 7 manna fjölskyldu Það liggur í augum uppi að ekki eru möguleikar á því í sveitum að skipta um húsnæði þó að breyting- ar verði á stærð fjölskyuldunnar, svo sem unnt er að gera í þéttbýl- inu. Er eðlilegt að til þessa aðstöðu- munar sé litið við lánveitingar til íbúðarhúsbygginga og fyrir því var samþykkt svolátandi ályktun á síð- asta aðalfundi Stéttarsambands bænda: Fundurinn „leggur áherslu á að tekið verði tillit til sérþarfa á bú- jörðum varðandi stærð íbúðar- húsnæðis og einnig þess, að ekki er fyrir hendi í sveitum möguleiki á að skipta um húsnæði eftir fjölskyldu- stærð svo sem í þéttbýlinu. Fundurinn beinir því til stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins að lán til fbúðarhúsa í sveitum miðist jafn- an við 7 manna fjölskyldu og verði þannig staðið við fyrirheit, sem gefið' var varðandi þessi mál við yfirtöku húsnæðislána til Húsnæðisstofnunar 1978“. -mhg Emma fnim- sýnd í kvöld í kvöld verður frumsýnd í Regn- boganum franska kvikmyndin „Madamc Emma“ í leikstjórn Francic Girod. Það er menningar- deild franska sendiráðsins sem haft hefur miiligöngu um að fá kvik- myndina hingað til lands, en í titil- hlutverkinu er hin nýlátna leik- kona, Romy Schneider. Myndin byggir á sönnum viðburð- um um hugrakka fjármálakonu sem varð hálfgerð þjóðsaga í París á þriðja tug aldarinnar. Hún var af fátækum komin, ómenntuð en hafði frábærar gáfur, sérstaklega varðandi kaupsýslu. Hún einsetti sér að reyna að hjálpa hinum efna- minni gegn voldugu bankaveldinu og tókst það að nokkru leyti - en ekki átakalaust.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.