Þjóðviljinn - 01.10.1982, Side 11
Föstudagur 1. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Þórarínn dugði ÍR
ekki til sigurs
Að viðstöddum 83 áhorfendum, (Hemmi Gunn taldi), sigruðuðu Vals-
menn ÍR með 21 marki gegn 17 í 1. deild karla í handknattlcik í gærkvöldi.
Leikurinn var tilþríf'alítill og fellur væntanlega fljótlega í gleymskunnar dá
en stigin eru dýrmæt og Valsmenn þurftu lengi vel að hafa talsvert fyrir
hlutunum gegn bitlitlu liði ÍR, sem þó skartaði gömlu kempunni Þórarni
Tyrfingssyni.
Það var jafnt á öllum tölum upp að 7-7 en þá tóku Valsmenn við sér og
leiddu 10-8 í leikhléi. Þeir náðu fimm marka forskoti fljótlega í síðari
hálfleik og eftir það var einungis formsatriði að ljúka leiknum.
Varnarleikur beggja var með ágætum en sóknarleikurinn ekki glæsi-
legur. Þó lífgaði Júlíus Jónasson verulega upp á sóknina hjá Val. Lítil
ógnun er í sókninni hjá ÍR en vörnin er ágæt og Júlíus Guðjónsson varði
vel í markinu, meðal annars þrjú vítaköst. Theódór Guðfinnsson 5, Júlíus,
Jón Pétursson og Brynjar Harðarson voru markahæstir hjá Val en Guðjón
Marteinsson og Björn Björnsson 4 hvor og Sighvatur Bjarnason 3 hjá IR
S
Unglingar til Irlands
íslenska unglingalandsliðið í körfuknattlcik fer til íslands síðar í þessum
mánuði, nánar tiltekið dagana 21.-25 október, og leikur þar þrjá landsleiki
við jafnaldra sína, 17-18 ára. í liðinu eru eftirtaldir piltar:
Kristinn Kristinsson, Eyþór Þ. Árnason. Jóhann Bjarnason, Ólafur
Guðmundsson, Páll Kolbeinsson, Þorkell Andrésson, Lárus Thorlasíus,
Björn Ottó Steffensen, Jóhannes Kristbjörnsson, Mattías Einarsson,
Tómas Holton, Einar Ólafsson, Björn Zoéga, Matthías Matthíasson og
Birgir Mikaelsson. Tveir þeir síðarnefndu eru að vísu í Bandaríkjunum
við nám og fara tæplega til írlands. Aðalþjálfari piltanna er Einar Bolla-
son en aðstoðarþjálfarar Jón Sigurðsson og Torfi Magnússon
vs
Biðja stjórnvöld að
stöðva skrílsháttinn
„Stór hluti ágóðans af knattspyrnugetraununum rennur til ríkisins og
stjórnvöld gætu notað eitthvað af honum til að berjast gegn skrílslátum á
knattspyrnuleikjum, þetta er vandamál allrar þjóðarinnar”, segir Ted
Croker, ritari enska knattspyrnusambandsins.
Ólæti og skrílsháttur hafa löngum verið fylgifiskar breskra knattpyrnuá-
hugamanna og oft hafa félagslið og landslið lent í vandræðum þeirra
vegna. Nú síðast voru 100 Englendingar handteknir í Kaupmannahöfn
eftir leik Dana og Englendinga í Evrópukeppni landsliða og enska
knattspyrnusambandinu þykir orðið nóg um. Það hefur snúið sér til
stjórnvalda í leit að aðstoð en hingað til hafa þau litla viðleitni sýnt til
lausnar vandans. Nú er nóg komið, segir Ted Croker, það er kominn tími
til aðgerða. _vs
Handknattleikur á íslandi:
Ungllngastarfið án
heildarmarkmiðs
Unglingaþjálfun á íslandi er
mjög misjöfn. Hjá sumum fé-
lögum hefur verið unnið gott
starf, en yfirleitt er það illa skipu-
lagt og án heildarmarkmiðs. Oft
veljast til starfa menn sem ekki
hafa þekkingu né tíma til þess að
geta þjálfað. Eitt aðalvandamálið
í unglingaþjálfun er það, að of
fljótt cr krafist árangurs, og þjálf-
unar og lið dæmd eftir því hvort
titill vinnst, en ekki eftir því hvort
leikmenn kunna grunnatriði rétt.
Oft ná lið góðum árangri án þess
að kunna mikið, vegna líkam-
legra yfirburða Hvað er til ráða?
Leggja þar meiri vinnu í yngir flokkana. Fá hæfari þjálf-
ara fyrir yngri aldurs f lokkana því lengi býr að fyrstu gerö.
Æskilegt er að hvert félag komi sér upp áætlun, og fái
einhvern til þess að fylgja henni eftir, til dæmis
meistaraflokksþjálfara. HSI gæti hér komið til hjálpar
með því að staðla áætlun, þar sem gerð væru drög að
hvaö kenna ætti í hverjum flokki., Þetta myndi skapa
meiri festu og minni hætta yrði á því að grunnkennslan
yrði út undan.
Það væri mjög æskilegur þáttur í framtíðarupp-
byggingu landsliða að hafa sumarbúðir fyrir bestu leik-
menn í hverjum aldursflokki, t.d. þrír frá hverju félagi.
Það kæmi einnig félögum til góða. HSÍ þarf einnig að nýta
betur sumartímann til uppbyggingar yngri landsliöanna.
Til dæmis ér Noröurlandamót unglinga í nóvember og
enn hefur landsliðshópur ekki verið valinn, þegar þetta er
skrifað.
Þorsteinn
Jóhannes-
son
skrifar
um
unglinga-
mál í íslenskum
handknattleik
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Mich Channon, fyrrum leikmaður
með enska landsliðinu í knatt-
spyrnu, er hættur að leika með 2.
deildarliði Newcastle eftir tæplega
mánaðardvöl hjá félaginu. í stað-
inn hefur Newcastle fengið annan
kunnan kappa og landsliðsmanna,
Terry McDermott, frá Liverpool
en Liverpool keypti hann einmitt
frá Newcastle á sínum tíma.~ VS.
Staðan:
Staðan í 1. deild karla í hand-
knattleik eftir leik ÍR og Vals í gær-
kvöldi:
KR..............2 2 0 0 46-29 4
FH..............3 2 0 1 72-58 4
Valur...........2 2 0 0 42-33 4
Víkingur...... 3 2 0 1 60-60 4
Þróttur.........3 2 0 1 58-59 4
Stjarnan...... 3 0 0 3 56-69 0
Fram............2 0 0 2 33-46 0
|R..............2 0 0 2 31-44
KR og Víkingur leika í kvöld kl
20, Valur og Þróttur á morgun kl
15, Fram og FH á sunnudag kl. 14,
ÍR og Stjarnan á sunnudagskvöld
kl. 20 og KR og Valur á mánudags-
kvöldiðkl. 20. Allirleikirfara fram
í Laugardalshöll.
Erfltt hjá
Alkmaar
Hollenska liðið AZ 67 Alkmaar
lenti í vandræðum með Limerick
frá írlandi í UEFA-bikarnum í
knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið
var í Alkmaar og sigraði heimaliðið
1-0 með marki landsliðsmannsins
Chris Jonker í síðari hálfleik. Fyrri
leiknum á frlandi lauk 1-1 og AZ
67 komst því naumlega áfram. Þá
sigraði Porto frá Portúgal Utrecht
frá Flollandi 2-0 og komast Portú-
galirnir áfram samanlagt 3-0. VS.
Vandræði
í Kólombhi
Háværar raddir eru nú uppi í
Kólombíu um að landiö hætti við
að halda heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu árið 1986 og sæki frek-
ar um hana 1994. Gífurlegt átak
þarf til að koma hlutunum þar í
lag en alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, hefur sett sem skil-
yrði að járnbrautarkerfi milli
-þeirra tólf borga sem leikið yrði í
verði stórlega endurbætt, svo og að
allir vellir uppfylli kröfur um áhorf-
endarými. Sem stendur eru aðeins
þrír vellir af tólf reiðubúnir fyrir
heimsmeistarakeppnina. Fari hún
ekki fram í Kólombíu taka Brasi-
líumenn við henni. vs
VALUR
Valsmenn verða í vetur með op-
ið hús á laugardögum frá 10.30 til
13.00, þar sem menn geta keypt
getraunaseðla og skilað af sér.
Boðið verður uppá kaffi og sýndir
leikir úr þýska boltanum og frá ís-
landsmótinu í sumar á videó. Old
Boys hafa æfingatíma í íþróttahús-
inu frá kl. 9.00 til 10.30 og þangað
eru allir velkomnir. Skorað er á
alla Valsmenn að sameinast í átaki
til að auka sölu getraunaseðla á
vegum félagsins.
Of stórt tap
Fram í Dublln
Allt hrundi í lokin
og Shamrock sigraði 4:0
„Þetta var óþarflega stórt tap hjá strákunum. Framliðið lék vel lengst af
en írarnir skoruðu þrívegis á síðustu átta mínútunum og botninn datt úr
leik liðsins á þeim tíma. Guðmundur Torfason skoraði gott mark eftir 10
mínútur sem illa staðsettur línuvörður dæmdi af, taldi að Árni Arnþórsson
hefði misst knöttinn út fyri hliðarlínu áður en hann sendi á Guðmund”,
sagði Ólafur Orrason hjá knattspyrnudeild Fram þegar Þjóðviljinn ræddi
við hann símleiðis eftir að Fram hafði tapað 4-0 fyrir írska liðinu Sham-
rock Rovers í Evrópukeppni bikarhafa í Dublin í gærkvöldi.
Framarar réðu gangi leiksins fyrsta korterið en síðan komu frarnir
meira inn í myndina og nokkuð jafnræði var með liðunum. Gary O'Carr-
oll skoraði á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og á síðustu átta mínútunum
bættu þeir Liam Buckley. Jim Beglin ogTommy Gaynor þremur mörkum
við. Fram er því úr leik í Evrópukeppni bikarhafa, tapaði samanlagt 7-0
fyrir írunum.
Marteinn Geirsson var besti maður Fram og yfirburðamaður á vellinum
að sögn Ólafs. Þeir Guðmundur Baldursson og Halldór Arason léku með
að nýju eftir meiðslin og stóðu sig ágætlega, svo og Sverrir Einarsson.
Framliðið heldur nú úr Evrópukeppni beint í slaginn í 2. deild næsta sumar
og er ekki ástæða til að ætla að það dvelji lengurþar en nauðsynlegt er.
- VS
íslandsmótið í körfuknattleik:
Stóríeikur strax
í fyrstu umferð
Körfuboltinn er að byrja. Um helgina fer fram
fyrsta umferðin í úrvalsdeildinni og strax eru at-
hyglisverðir leikir á dagskrá. I kvöld leika nýliðar
IBK sinn fyrsta úrvalsdcildarlcik, án efa fyrir fullu
húsi í Keflavík, gegn KR kl. 20. Efstu liðin frá því í
fyrra, Fram og íslandsmeistarar Njarðvíkur lcika í
Hagaskólanum á morgun, laugadag, kl. 14. og á
sama tíma og sama stað leika Valur og ÍR á sunnu-
dag.
Fyrsti leikur 1. deildar verður á morgun f Njarð-
vík en þá mætast Grindavík og Haukar kl. 14. Auk
þeirra leika ÍS, Skállagrímur og Þör Akureyri í 1.
deild. Þar er leikin fjórföld umferð. í 1. deild
kvenna leika einnig fimm lið fjórfalda umferð. Þau
eru ÍR, ÍS, Njarðvík, Haukar og Kr. Keppni þar
hefst um aðra helgi.
Fjórtán lið leika í 2. deild karla og er þeim skipt í
fjóra liði. Esja, Breiðablik, Léttir og Reynir Sand-
gerði leika í Á-riðli, Akranes, Tindastóll og Lauga-
dælir í B-riðli, Bræður, Vík, HK og KFÍ í C-riöli og
ÍME Egilstöðum, SE Eiðaþinghá og Sindri Horna-
firði í D-riðli vs
Fær Thorpe verðlaun-
in eftir 70 ára bið?
Forystumenn í bandarískum íþróttamálum berjast nú fyrir því að ætt-
ingjar Jim Thorpe, stjörnu Ólympíuleikanna í Stokkhólmi 1912, verði
afhent verðlaun hans frá þeim leikum á Ólympíuleikunum í Los Angeles
1984. Thorpe var sviftur verðlaunum sínum sjö mánuðum eftir Stokk-
hómsleikana þar sem upp komst aö liann hafði þegið greiðslur, sem voru
víst sáralitlar, fyrir keppni í „baseball" scm á íslensku útleggst víst horna-
bolti. Til þessa hefur alþjóðlega ólympíunefndin neitað öllum slíkum
beiðnum en þeir bandarísku eru samt vongóðir um að nú taksist þeini að
hafa sitt fram.
-vs
Sveinn Egilsson efst-
ur í firmakeppni GR
Urslit í firmakeppni Golfklúbbs
Reykjavíkur fóru fram laugardag-
inn 25. september. Alls tóku 224
fyriríæki þátt í keppninni en tólf
komust í úrslit. Þar voru leiknar 18
holur án forgjafar og sigraði Sveinn
Egilsson h.f., keppandi Sigurður
Hafsteinsson, á 73 höggurn. Lög-
fræðiskrifstofa Magnúsar Þórðar-
sonar, keppandi Ragnar Ólafsson
varð í örðu sæti á 74 höggum og
Heildverslun S. Guðjónssonar h.f.
keppandi Sigurður Pétursson, í
þriðja sæti á 75 höggum.
Daginn eftir var háður Haust-
leikur unglinga módel 1965 og yng-
ri. Leikfyrirkomulag var „Four-
some“ þar sem tveir leika saman
með einn bolta og slá annað hvert
högg. í efsta sæti urðu Helgi
Eirísksson og Heimir Þorsteinsson
á 67 höggum, Böðvar Bergsson og
Sigtryggur Hilmarsson aðrir á 68
höggum og Heiðar Gunnlaugsson
og Sigurhans Vignir þriðju á 69
höggum.
Um Nýiiðabikarinn léku til úrs-
lita þeir Rósmundur Jónsson og.
Yuzuru Ogino og vann Rósmund-
ur, en þeir þurftu að leika 36 holur
til að fá fram úrslit.