Þjóðviljinn - 01.10.1982, Side 15

Þjóðviljinn - 01.10.1982, Side 15
Föstudagur 1. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV Ö 7.00 Veðurfregnir Fréttir. Bæn. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Ólafs Oddsonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð: Guð- mundur Hallgrímsson flytur. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Nýju fötin keisarans” ævintýri H.C. Andersens Þýðandi: Steingrímur Thorsteinsson. Eyvindur Erlendsson les. 9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tónleikar. 10.30 Morguntónleikar: Létt lög eftir Ro- bert Stolz Hljómsveit Roberts Stqlz leikur; höfundurinn stj. 11.00 „Það er svo margt að minnast á” Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.30 Létt tónlist „Nýja kompaníið”, Jó- hann Helgason, Vangelis o.fl. syngja og leika. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Á frívdktinni Sigrún Sigurð- ardóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.10 „Kæri herra Guð, þetta er Anna”, eftir Fynn Sverrir Páll Erlendsson les þýðingu sína (15). 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Litli barnatíminn Heiðdís Norðfjörð stjórnar barnatíma á Akureyri. Talað við Arnar Stefánsson, sem er búsettur í Svíþjóð, lesið úr bókum Astrid Lind- gren um börnin í Ólátagarði í þýðingu Eiríks Sigurðssonar. Umsjónarmaður- inn talar einnig um afann, sem var afi allra barna í Ólátagarði. 16.40 Hefurðu heyrt þetta? Þáttur fyrir börn og unglinga um tónlist og ýmislegt fleira í umsjá Sigrúnar Björnsdóttur. 17.00 Síðdegistónleikar Cino Ghedin og I Musici hljóðfæraflokkurinn leika Víól- ukonsert í G-dúr eftir Georg Philipp Telemann / Lola Bobesco og Kammer- sveitin í Heidelberg leika „Arstíðirnar” eftir Antonio Vivaldi. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 20.00 Lög unga fólksins. Hildur Eiríksdótt- ir kynnir. 20.40 Sumarvaka a. Einsöngur: Elísabet Erlingsdóttir syngur lög eftir Sigvalda Kaldalóns og Arna Björnsson. Guðrún Kristinsdóttir leikur á píanó. b. Við eina mestu gullkistu jarðar Þorsteinn Matt- híasson flytur síðari hluta æviminninga, sem hann skráði eftir Kolbeini Guð- mundssyni á Auðnum á Vatnsleysu- strönd. c. „Mörg er vist í vonheimi” Gunnar Stefánsson les ljóð eftir bræð- urna Sveinbjörn og Pétur Beinteinssyni. d. Seglskipið Grána Guðmundur Sæm- undsson frá Neðra-Haganesi flytur frá- söguþátt um farkost Gránufélagsins fyrir u.þ.b. öld. e. Sannkallað útgerðar- basl Guðjón B. Jónsson bifreiðastjóri segir frá veru sinni á fiskibát fyrir 50 árum. f. Kórsöngur: Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði syngur íslcnsk lög Söng- stjóri: Egill Friðleifsson. 22.35 „ísland”, eftir IivariLeiviská Þýð- andi: Kristín Mántylá. Arnar Jónsson leikari byrjar Iesturinn. 23.00 Danslög. ■; RUV Mikiö og gott efni á boðstólum segir Tage Ammendrup í Lista- og skemmtideild 'age Ammendrup og Bryndis Schram á góöri stund niörl sjónvarpi. Bryndis veröur meö Stundina okkar a.m.k. part úr vetri. Vetrardagskrá sjónvarpsins hefst í dag Sjónvarpið tekur nýja stefnu i kvöld, þvi formlega séð hefst vetrardagskráin 1. október ár hvert. Ætla mætti að starf sjónvarpsins breytt- ist nokkuö með vetrardag- skránni og þvi hringdi Þjóö- viljinn til Tage Ammendrups sem nú gegnir stööu for- stöðumanns Lista- og slemmtideildar sjónvarps- ins. „Ætli það veröi svo miklar breytingar á starfsháttum hér. Sannleikurinn er sá að yfir sumarmánuðina er allt- af verið að undirbúa vetrar- dagskrána og helsta breyt- ingin er sú, að nú fá menn að sjá það sem þeir hafa verið að vinna að. „Efnið hefur verið kynnt talsvert i blöðum en þó eru ýmsir athyglis- verðir þættir sem litla pressu hafa fengið. Eins og kunnugt er byrjar á sunnudags- kvöldum þáttur sem á að leysa Vöku af hólmi og mun þessi þáttur bera yfirskrift- ina Glugginn. Umsjónar- menn fjögurra fyrstu þátt- anna verða þau Áslaug Guöný Halldórsdóttir hefur samiö fyrsta þáttinn af sex i framhaldsmyndarööinni Fé- lagsheimiliö. Ragnarsog Sveinbjörn Bald- vinsson. Nýr framhaldsmynda- flokkur sem heitir Private Schiilzbyrjar nú i haust og er ansi athyglisverður. Hann fjallar um þá ráöagerð Þjóð- verja i Heimsstyrjöldinni Seinni, að dreifa fölskum enskum pundum vitt og breitt um heiminn i þvi augnamiði að veikja stöðu þess gjaldmiðils. Schillz. slyngur sölumaður, hefur með þetta hlutverk að gera og fjalla þættirnir um sam- skipti hans við yfirmanninn, sem vill taka til sin allan heiðurinn af starfi Schillz, en kenna honum hinsvegar um það sem miöur fer. Að Derrick liðnum kemur sænskur gamanþáttur Sinkadusog fjallar hann um mann sem verður þess var að bilnúmeri hans hefur verið stolið. Hann fer á stúf- ana og kemur á daginn að glæpaflokkur hefur stolið númerinu. Kemst hann i kynni við höfuðpaura flokks- ins og áður en varir er hann kominn i hringiðu vafa- samra atburöa. Félagsheimiliö byrjar I haust og mun fyrsti þáttur- inn heita Sigvaldi og sænska lina, saminn af Guðnýju Halldórsdóttur. Hún hefur stundað nám i leikstjórn i Sviþjóð og Englandi. Tage sagði að kvikmyndir þær sem sjónvarpið myndi bjóða uppá i vetur væru hreint frábærar. Þar væru margar verðlaunamyndir, bæði gamlar og nýjar. Margt er enn á huldu með jóladagskrá t.a.m. er ekki ákveðið hvert jólaleikrit sjónvarpsins verður, en Tage sagði að nú væri gælt við þá hugmynd að það yrði leikrit Guðmundar Steins- sonar, Stundarfriður. Hann sagði ennfremur að beinar útsendingar frá áhugaverðum atburðum yrðu auknar og ekki einasta sýnt frá knattspyrnuleikjum. A aðfangadag jóla verður sýnt beint. frá degi Samein- uðu þjóðanna, en um aðrar beinar útsendingar allt óvist. Útvarp kl. 20.40 Síðasta sumarvakan Sumarvaka verður á dag- skrá Otvarps i kvöld og er þetta siðasta sumarvakan i ár. Sumarvakan er alllöng i flutningi, tekur röskan einn og hálfan tima og skiptist i sex liði. Fyrst á dagskránni er ein- söngur Elisabetar Erlings- dóttur á lögum eftir Sigvalda Kaldalóns og Arna Björns- son, en undirleik annast Guðrún Kristinsdóttir. Þá flytur Þorsteinn Matthiasson siðari hluta æviminninga sem hann hefur skráð eftir Kolbeini Guð- mundssyni á Auðnum á Vatnsleysuströnd. Gunnar Stefánsson mun lesa ljós eftir bræðurna Pétur og Sveinbjörn Bein- teinssyni. Mörg er vist i von- heimi er titillinn á upplestri Gunnars. Guðmundur Sæmundsson frá Neðra-Haganesi flytur frásöguþátt um skip Gránu- félagsins frá öldinni sem leið. Bifreiðastjórinn Guðjón B. Jónsson mun flytja erindi um veru sina á fiskibátum fyrir u.þ.b. hálfri öld óg gera samanburö á þvi sem þá gerðist og nú. Að lokum er kórsöngur. Það er kór öldutúnskólans i Hafnarfirði sem mun syngja islensk lög. Stjórnandi er Egill Friðleifsson. Sumarvöku lýkur um kl. 22.15. 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Þáttur um listir og menningarviðburði. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. 20.50 Prúðuleikararnir Gestur þáttarins er Jean Pierre Rampal. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.15 Singapore fellur Bresk heimildar- mynd um einn mesta ósigur Breta í síð- ari heimsstyrjöld þegar borgin Singa- pore á Malakkaskaga féll í hendur Jap- önum í febrúar 1942. þýðandi Bogi Arn- ar Finnbogason. 22.05 Þrír bærður (Tre fratelli) ítölsk bíó- mynd frá 1981. Leikstjóri Francesceo Rosi. Aðalhlutverk Philippe Noiret, Michele Pla Placido, Vittorio Mezzogi- orno og Charles Vanel. Giuranna- bræðurnir hafa hreppt ólíkt hlutskipti í lífinu og greinir á urn margt þegar þeir hittast eftir langan aðskilnað við útför móður sinnar. Þýðandi Jón Gunn- arsson. 23.55 Dagskrárlok frá lesendum Byrjun fátæka mannsins Eins og velflestir islend- ingar aðrir, hef ég mikinn áhuga á skák, og fylgist grannt með skrifum um þá góðu iþrótt og er það tilefni þessara orða. Það er aldeilis furðulegt hvað þeir sem um skákina skrifa eru fastir i sömu klisj- unum. Sem dæmi um þetta vil ég nefna Karó-kann vörnina. Ef skák með þeirri byrjun birt- ist i islenskum blöðum, er það nokkurn veginn undan- tekningalaust, að skákskýr- andinn lætur þess getið að oft sé þessi byrjun kölluð byrjun „fátæka mannsins”. Það var svo sem allt i lagi, að lesa þetta fyrir 20 árum, en að lesa þetta aftur og aftur getur verið nokkuð mikið Þetta er aðeins eitt dæmi, og vildi ég biðja skákskýr- endur um örlitið frjórri hugsun og meiri frumleik, þegar þessi atriði eru á dag- skrá. Helgi ólafsson svarar: Þakka bréfritara skrifið, en vil þó benda honum á að byrjun fátæka mannsins, Caro-Kann vörnin er vitlaust skrifuð. Nafnið er dregið af indverskum skákjöfri Sultan Khan sem gerði garðinn frægan i byrjun þessarar aldar. Hvaö frumleik áhrærir, þá verður það að játast að oft kýs maður meiri tima til að geta unnið verk sin og hygg ég að það eigi við um vel- flesta blaðamenn. Hitt er svo augljóst að þótt menn remb- ist við að halda i frumlega hugsun hlýtur að fara svo að sömu orðin og orðatiltækin skjóti upp kollinum, öðru hvoru a.m.k. Ég er mér fullkomlega meðvitaður um notkun mina á þessum frasa, Byrjun fá- tæka mannsins, en finnst hann skemmtilegur, þvi glöggir menn hafa fundið það út að þeir sem notist við þessa byrjun séu nægjusam- ari en aðrir, hvað sem fátækt og skorti líður.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.