Þjóðviljinn - 12.10.1982, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 12.10.1982, Qupperneq 11
Þriðjudagur 12. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Umsjón: Víðir Sigurðsson Kristján Arason sendir þrumufleyg framhjá hinum hávöxnu varnarmönnum sovéska liðsins og í netið. Mynd: -gel ilSr ■' f sC-: • Evrópukeppni í handknattleik: Stórkostleg byrjun FH dugðl ekkl tfl Fimm marka tap gegn sovéska liðinu Zaporozhje Áhorfendur í Laugardalshöll á sunnudagskvöldið ætl- uðu varla að trúa sínum eigin augum á upphafsmínútum leiks FH og sovéska liðsins Zaporozhje í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik. Eftir aðeins tíu mínútur var stað- an orðin 8—3, FH í hag og stemmningin í Höllinni var gífurleg. En þrátt fyrir þessa frábæru byrjun Hafnarfjarðar- liðsins tókst Sovétmönnum að snúa leiknum sér í hag og vinna öruggan sigur, fimm mörk skildu liðin að í leikslok, 30—25 fyrir Zaporozhje og það er afar ólíklegt annað en sovéska liðið komist í aðra umferð keppninnar. „Það kom þeim sovésku greini- lega mjög á óvart í upphaii leiksins þegar við tókum tvo leik- menn þeirra úr umiérð. Allur sóknarleikur þeirra riðlaðist en að leika þannig vörn, tjórir gegn fjóruni, gekk ekki til lengdar hjá okkur því þeir eru mikið sneggri en við", sagði línumaðurinn snjalli, Óttar Mathicscn í samtali við Þjóðviljann eftir leikinn. „Annars er ég nokkuð ánægður með leik okkar og sóknarleikur- inn var góður enda skoruðum við 25 mörk. Það verður erfitt að fara til Sovétríkjanna með fimm mörk á hakinu en þetta vcrður heilmikið ævintýri fyrir okkur“, sagði Óttar. Byrjunin var glæsilcg hjá FH. Sovétmenn voru lengi að átta sig á leikaðferð liðsins en þegar það tókst fór að draga saman með lið- unum. F11 komst í 11—7 og 13— 10 en Zaporozhje jafnaði fyrst 13—13. Sovctmenn skoruðu síð- an þrjú síðustu mörkin í fyrri hálfleik, 18—15 í leikhléi, og sá munur reyndist of mikill fyrir hið unga lið FH. Þriggja til fjögurra marka munur hélst lengi vel í síðari hálf- leik en undir lokin komst sovéska liðið í 29—22 og 30—23 en Krist- ján Arason skoraði tvö síðustu nrörk leiksins, 30—25. Virkilega góður leikur hjá FH lengst af en sovéska liöið var ein- faldlega of sterkt. Óttar Mathie- sen var besti maður FH og skoraði glæsileg nrörk af línunni þrátt fyrir stranga gæslu. Kristján Arason var fljótlega tekinn úr unrferð en skoraði góð nrörk og átti fallegar línusendingar. Guö- jón Guðnrundsson var afar frísk- ur í fyrri hálfleik og Sveinn Braga son í þeim síöari og þá komust þeir Hans Guðmundsson og Pálnri Jónsson ágætlcga frá leiknum. Pálnri þóóheppinn með skot. Kristján skoraði 6 nrörk, Óttar 5, Sveinn og Hans 4 hvor, Guöjón og Pálnri 3 hvor. Mark- verðirnir, Sverrir og Haraldur áttu erfitt uppdráttar þar senr So- vétnrenn skoruðu nrikið af línu og eftir hraðaupphlaup. Ekkert unr langskot vegna varnaraöferðar FI1. Sovéska liöið er geysisterkt og gæti konrist langt í Evrópukeppn- inni. Línunraðurinn stóri, Kus- lrniriuk, var vörn FH erfiðastur og skoraði 6 nrörk eins og Didus- henko. Zubkov konr næstur nreö 5. Annars var góð breidd lrjá So- vétnrönnum. og nrarkvöröurinn Voiik sem lék síðari hálfleikinn gaf landsliðsmarkverðinum Sliip- enko ekkert eftir. Dómarar voru norskir og konr- ust þokkaiega frá lciknum.—VS Varnarleikur í fyrirrúmi þegar Keflavík vann IR Ekki var mikið skorað þegar ÍR og Ketlavík mættust í úrvals- dcildinni í körfuknattleik á sunnu- dagskvöldið. I.cikið var í llaga- skóla og sigruðu nýliðar Keflvík- inga með 70 stigum gegn 64 og eru þar með á toppi dcildarinnar eftir tvær umferðir. Bæði lið léku góðan varnarleik en í hálfleik var staðan 35-31 Kefla- vík í hag. Leikurinn var hnífjafn allt til leiksloka en Keflvíkingar tryggðu sér sigur á lokamínút- unum. Tim Higgins skoraði helming stiga Keflvíkinga, 35. en Jón Kr. Gíslason 13. Gylfi Þorkclsson var stigahæstur ÍR-inga með 14 stig og Kristinn Jörundsson kom næstur með 13. -VS Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Valur hirti bæði stigin í Njarðvík Það var jöfn og hörð barátta í Njarðvík á laugardaginn þegar heima- menn mættu þar Val í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Kftir hnífjafnan leik sigu Valsmenn framúr undir lokin og sigruðu með linun stiga mun, 88-83. Sigur sejn gæti reynst geysilega þýðingarmikill þar sem líklegt er að þessi tvö lið berjist um íslandsmeistaratitilinn í vctur. 1 hálflcik var staðan jöfn, 43-4.3, og jafnræðið hélst þar til skammt var tii leiksloka. Njarðvíkingar misstu Val Ingimundarson, sem hafði átt stórleik og skorað 28 stig. útaf með 5 villur og rétt á et'tir fór Gunnar Þorvarðarson sömu leið. Valur breytti stöðunni úr 75-77 í 82-77 og þar með var sigurinn nánast kom- inn í höfn. Alex Gilbert átti stórleik í vörn Njarðvíkinga en var mistækur í sókninni. Hann skoraði þó 26 stig, tveimur færri en Valur Ingimund- arson. Gunnar Þorvarðarson kom næstur með 13. Torfi Magnússon átti mjög góðan leik og skoraði 25 stig fyrir Val. Tim Dwver 20 og Kristján Agústsson 16. -VS Góður kafli hjá KR gerði útsiagið Góður kafli KK um miðbik síð- ari hálfleiks tryggði liðinu sigur gegn Fram og dýrmæt tvö stig í úrv- alsdeildinni í körfuknattlcik á sunnudagskvöldið. Lcikurinn hafði verið í járnum allan tímann en þarna komst KR 12 stigum ylir og vann sanngjarnan sigur. í hálf- leik var staðan 47-43 KR í hag. Eftir að KR breýtti stöðunni úr 61-61 í 77-65 var ekki lengur spurn- ing um sigurvegara. Átta til tíu stig- um munaði þaö sem eftir var og lið Fram sem vantar tilfinnanlega breidd um þessar mundir. sérstak- lega án Símonar Ólafssonar, virtist aldrei líklegt til að brúa það bil. Stewart Johnson var góöa stund í gang hjá KR en skoraði drjúgt, 41 stig. Páll Kolbeinsson átti mjöggó- ðan fyrri hálfleik og skoraði 15 stig. Ágúst Líndal kom næstur með 10 en þeir Jón Sigurðsson og Stefán Jóhannsson áttu einnig góöan dag. Þrír menn bera Framliðið uppi, þeir Doug Kintzinger, Þorvaldur Geirsson og Ómar Þráinsson. Kintzinger og Þorvaldur skoruðu 29 stig lwor en Ómar 12. -VS Staðan: Staðan í urvalsdeiidinni í körfu- knattleik: Keflavík................220181-1584 Valur...................220170-1514 Njarðvik..............21 1 163-1592 KR ....................21 1 187-1942 Fram...................20 2154-1730 ÍR .....................202132-1520 Um næstu helgi mætast Valur- Fram, Keflavík-Njarðvík og ÍR- KR. Tim Higgins var í nyiklum ham þeg ar Keflavík sigraði IR í fyrrakvöld. Mynd: -gel

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.