Þjóðviljinn - 03.11.1982, Blaðsíða 11
Gunnar
og Ómar
í Þrótt?
Líkur eru á að Þróttur Reykja-
vík, sem vann sig upp í 1. deildina í
knattspyrnu á dögunum, fái tvo
framlínumenn til liðs við sig fyrir
næsta sumar. Þeir eru Gunnar
Jónsson, aðaldriffjöðrin hjá Skall-
agrími sem einnig hefur leikið með
Skagamönnum í 1. deildinni, og
Sandgerðingurinn Ómar Björns-
son sem hefur verið með sterkustu
mönnum Reynis í 2. deild undan-
farin ár. -VS
Snúið
heim!
Víkingar úr Ólafsvík ætla sér
stærri hlut í 3. deildinni í knatt-
spyrnu næsta sumar en þeir náðu á
nýloknu keppnistímabili. Þó nokk-
uð af Ólafsvíkingum hefur leikið á
höfuðborgarsvæðinu undanfarin
ár og líkur eru á að þrír þeirra snúi
nú aftur. Þeir eru Magnús Stefáns-
son, FH, Logi Úlfljótsson, Þrótti R.
og Guðmundur Kristjánsson,
Grindavík. _VS
KR mætir
Njarðvik
í kvöld
Þýðingarmikill leikur er á dag-
skrá úrvalsdeildarinnar í körfu-
knattleik í kvöld. KR og Njarðvík
leika í íþróttahúsi Hagaskóla kl. 20.
Islandsmeistarar Njarðvíkur hafa
4 stig úr 4 leikjum og mega ekki við
því að tapa fleiri stigum ef þeir ætla
að vera með í haráttunni um
meistaratitilinn. Þeir leika án Kana
þar sem Alex Gilbert var látinn fara
og hann yfirgaf landið strax síðasta
föstudag. Nýr leikmaður er vænt-
anlegur en hann er ekki kominn
enn. KR hefur 4 stig úr þremur
leikjum og kæmist upp að hlið
Valsmanna í 2.-3. sæti með sigri í
kvöld.
Að loknum þessum leik fer fram
úrslitaleikur Reykjavíkurmóts
kvenna og mætast þar ÍS og KR.
Tveir með
12 rétta
í 10. Icikviku Gctrauna komu
fram tveir seðlar með 12 rétta og
var vinningur fyrir hvora röð kr.
132.015.- Alls reyndust 64 raðir
vera með 11 rétta leiki og vinningur
fyrir hverja röð kr. 1.768.-. Báðir
„tólfararnir" voru frá Reykjavík,
en annar með að auki 4 raðir með
11 rétta og heildarvinningur fyrir
seðilinn því kr. 139.087.-.
Þátttaka í getraunum hefur vax- .
ið jafnt og þétt í haust og s.l. laugar-
dag seldust í fyrsta sinn yfir hálf
milljón raða.
Liverpool
vann létt
Ensku meistararnir Liverpooi
tryggðu sér í gærkvöldi sæti í 8 liða
úrslitum Evrópukeppni meistara-
liða í knattspyrnu. Þeir léku við
finnska liðið HJK Helsinki og sigr-
uðu 5:0. IUK vann fyrri leikinn 1:0
■ og hélt út í 26 mínútur en átti ekki
möguleika eftir það.
Miðvikudagur 3. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Umsjón:
Viðir Sigurðsson
J:* 'i
1 -'Mp ';í ' r. " "" ^ . ’fl
f
Fyrsta umferðin í vngri flokkum Islandsmótsins í handknattleik fór fram um helgina en þar er leikið í svonefndum „turneringum”. Alls voru leiknir um
350 leikir víðs vegar um land og meðfylgjandi mynd tók -eik- í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði á laugardaginn en þar fór fram keppni
í 2. flokki kvenna.
Fréttir frá Englandi:
Fær Ashiey Grimes
langt Leikbann?
Ashley Grimes, írski lands-
liðsmaðurinn hjá Manchester Un-
ited í ensku knattspyrnunni, gæti
átt langt leikbann yfir höfði sér.
Grimes var rekinn af leikvelli gegn
West Ham á laugardaginn fyrir
mótmæli við dómarann. Hann kom
ískyggilega nærri þeim svartklædda
og sjónvarpsstöðin ITV sýndi
atvikið aftur og aftur. Þar kom
greinilega fram að Grimes dangl
aði í höfuð dómarans með hend-
inni. Grimes fer sjálfkrafa í tveggja
leikja bann, og fari svo að dómstóll
Ekkert
gekk hjá
Birtles!
Dvöl Garry Birtles hjá Manc-
hester United var að mestu leyti
misheppnuð. Hann skoraði ekki
mark fyrir félagið fyrr en eftir
langan tíma og er nú kominn á ný
til Nottingham Forest.
Hjá United fékk hann glæsilegan
sportbíl til umráða og fékk að taka
hann með sér til Nottingham í
haust og hafa hann þar til hann
fengi sér nýjan. I síðustu viku ók
hann lánsbílnum aftur til Manc-
hester, og lenti í árekstri á
leiðinni.... -VS
Garry Birtles
knattspyrnusambandsins komist
að þeirri niðurstöðu að hann hafi
með þessu handapati sínu sett
svartan blett á knattspyrnuíþrótt-
ina verður hann dæmdur í langt
bann.
-VS
Luton
græddi á
Simonsen
Hin óvæntu kaup enska 2.
deildarliðsins Charlton Athletic á
danska knattspyrnusnillingnum
Allan Simonsen koma fleirum til
góða en reiknað hafði verið með.
1. deildarlið Luton Town skuldaði
Xharlton 200,000 pund sem voru
eftirstöðvar af kaupunum á Paul
Walsh í sumar.
Charlton vantaði reiðufé í snar-
hasti til að geta greitt Barcelor.a
fyrir Simonsen og bauð Luton að
helmingur skuldarinnar yrði látinn
niður falla ef þeir gætu greitt hinn
helminginn strax. Gjaldkeri Luton (
var að sjálfsögðu himinlifandi og '
sendi kollega sínum hjá Charlton
ávísun strax næsta dag.
Simonsen missti af leik Charlton
gegn Blackburn á laugardaginn þar
sem enn er eftir að ganga frá smá-
atriðum í kaupunum frá Barcelona
en nú eru allar líkur á að hann nái
næsta leik, gegn Leeds á útivelii á
laugardaginn kemur. _vs
Fer Einar
frá Forest?
Norski landsliðsmaðurinn hjá
Nottingham Forest, Einar Aas, er
enn ekki búinn að ná sér fyllilega
eftir að hafa meiðst illa á ökkla í
leik gegn Sunderland fyrir ári. Lík-
legt þykir nú að hann fari frá fé-
laginu en óvíst er hvert.
Bobby Robson.
Robson
neitað
Forráöamenn ensku deildakeppn
innar l.afa daufheyrst við þeirri
ósk Bobby Robson, einvalds enska
landsliðsins í knattspyrnu, að
leikjum 1. deildar dagana 13. nó-
vember og 11. desember verði
frestað. England mætir Grikklandi
og Luxemburg í Evrópukeppni
landsliða miðvikudagana 17. nó-
vember og 15. desember og Rob-
son vonaðist eftir því að fá með
þessum frestunum aukinn tíma til
landsliðsæfinga og um leið minni
hættu á meiðslum leikmanna.
„Of seint, of erfitt í fram-
kvæmd”, segja forráðamenn
deildakeppninnar um ósk Robson.
Hann hefur í staðinn farið fram á
samskonar tilhliðranir síðar í vetur
fyrir leiki gegn Grikkjum og Ung-
verjum. _ys
Epllðog
eikin???
Tveir efnilegir piltar, Michael
Giles og John Stiles, hafa gengið til
liðs við írska knattspyrnuliðið
Shamrock Rovers, andstæðinga
Framara í UEFA-bikarnum á dög-
unum. Þetta væri tæpast frétt ef
Michael væri ekki sonur Johnny
Giles, sem lengi lék með Manc-
hester United, Leeds og WBA
ásamt írska landsliðinu, og John
ekki sonur Nobby Stiles, miðvall-
aspilarans litla og eitilharða sem
lék með Manchester United og
varð heimsmeistari með enska
landsliðinu 1966. Enn frekar,
Nobby Stiles er mágur Johnny Gi-
les svo piltarnir eru náfrændur í
þokkabót!
-VS
Wíllie
Young
aftur tfl
Arsenal?
Willie Young, rauðhærði
Skotinn sem leikur með Notting-
ham forest í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar, hefur verið settur á
sölulista hjá félaginu og talið er lík-
legt að hann fari aftur til Arsenal
sem seldi hann til Forest fyrir
tveimur árum á 150,000 pund.
Malcolm Allison, hinn nýi stjóri
Middlesboro, hefur einnig áhuga á
miðverðinum hávaxna. Forest er
skuldum vafið þessa dagana og
þegar liðið fór tii Saudi-Arabíu í
æfingaferð á mánudaginn var Yo-
ung skilinn eftir heima í þeirri von
að hann yrði kevptur.
-VS
Willie Young.