Þjóðviljinn - 03.11.1982, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 3. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
RUV Ö
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi. Morgunorð:
Gunnar J. Gunnarsson talar.
8.30 Forystugr. dagbl. (útdr.).
9.05 Morgunstund barnanna: „Kysstu
stjörnurnar“ eftir Bjarne Reuter Ólafur
Haukur Símonarson les þýðingu sina
(2). Olga Guðrún Árnadóttir syngur.
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir
10.30 Sjávarútvegur og siglingar Umsjón-
armaður: Ingólfur Arnarson. Fjallað
um 13. þing Sjómannasambands lsl.
10.45 íslenskt mál. Endurtekinn þáttur
Jóns Hilmars Jónssonar frá laugardegi.
11.05 Lag og Ijóð. Þáttur um vísnatónlist í
umsjá Hreins Valdimarssonar.
11.45 Ur byggðum Umsjónarmaður: Rafn
Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Dagstund í dúr og moll - Knútur R.
Magnússon.
14.30 „Móðir mín í kví kví eftir Adrian Jo-
hansen Benedikt Arnkelsson þýddi.
Helgi Elíasson les (11).
15.00 Miðdegistónleikar: íslensk tónlist
Sinfóníuhljónsveit íslands leikur.
Stjórnendur: Páll P. Pálsson, Karsten
Andersen og Olav Kielland. a. „Kans-
óna og vals“ eftir Helga Pálsson. b.
„Sólnætti", forleikur eftir Skúla Hall-
dórsson. c. „Á krossgötum", svíta eftir
Karl O. Runólfsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Leifur
heppni” eftir Ármann Kr. Einarsson
Höfundurinn les (2).
16.40 Litli barnatíminn Stjórnendur: Sess-
elja Hauksdóttir og Selma Dóra Por-
steinsdóttir. Þátturinn fjallarum vináttu
og hjálpsemi. M.a. verður lesið úr bók-
inni „Herra Hroki“ eftir Roger Har-
greaves. Þýðandi: Þrándur Thoroddsen
og „Hver bjargar Einari Áskeli" eftir
Gunnillu Bergström. Þýðandi: Sigrún
Árnadóttir.
17.00 Djassþáttur í umsjón Jóns Múla
Árnasonar.
17.45 Neytendamál Umsjónarmaður: Jón
Ásgeir Sigurðsson.
17.55 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.45 Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur
19.50 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmund-
ur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson.
20.40 Samleikur í útvarpssal Howard
Leyton-Brown leikur á fiðlu lög eftir
Hallgrím Helgason; höfundurinn leikur
á píanó.
21.10 Frá tónlistarhátíðinni í Vínarborg í
sumar Kontrapunkt-kammersveitin,
Georg Sumpik og Rainer Keuschnig
leika tónverk eftir Igor Stravinsky. a.
Pastorale. b. Tango og Piano-rag. c.
Duo concertante.
21.45 Útvarpssagan: „Brúðarkyrtillinn“
eftir Kristmann Guðmundsson Ragn-
heiður Sveinbjörnsdóttir les (13).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 íþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar.
23.00 Kammertónlist Leifur Þórarinsson
kynnir.
RUV
TT
18.00 Stikilsberja-Finnur og vinir hans
Fimmti þáttur. Sjóræningjarnir
18.25 Svona gerum við Fimmti þáttur. Raf-
magnið
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Lífið við mér leikur Anne Marie
Antonsen, Ágústa Ingimarsdóttir og
Garðar Sigurgeirsson syngja lög af
hljómplötunni „Kristur, konungur
minn”. Útsetning: Magnús Kjartans-
son. Stjórn upptöku: Andrés Ind-
riðason.
21 05DalIas Bandarískur framhaldsflokkur
um Ewing fjölskylduna íTexas. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.05 Yfir og undir jökul Endursýning Úr
myndaflokknum Náttúra íslands.
Skyggnst er um í Kverkfjöllum þar sem
flest fyrirbrigði íslensks jöklaríkis er að
finna á litlu svæði, allt frá hverasvæði til
íshellis sem jarðhitinn hefur myndað
undir jökli. Einnig er flogið yfir Vatna-
jökul og Langjökul. Umsjónarmaðurer
Ómar Ragnarsson.
Sjónvarp kl. 21.50
Ofan-
jarðar og
neðan
með
r
Omari
Froöieg mynd og falleg
verður í sjónvarpinu kl. 21.50
í kvöld. Nefnist hún Yfir og
undir jökli og er úr mynda-
flokknum Náttúra íslands.
Litast er um í Kverkfjöllum
en þar er að finna, á litlu
svæði, flest fyrirbrigði íslensks
jöklaríkis allt frá hverasvæði
til íshellis, sem jarðhitinn hef-
ur myndað undir jökli. Þá er
flogið yfir Vatnajökul og
Langjökul.
Ómar Ragnarsson er um-
sjónarmaður þáttarins og
leiðsögumaður okkar í þessu
ferðalagi. Og bregst ekki bog-
alistin fremur en fyrr.
Þessi þáttur var áður á dag-
skrá sjónvarpsins 18. apríl
1981.
-mhg
Ætla má af svipnum á Ómari að hann hafi fundið þarna ein-
hvern forláta skó.
Útvarp kl. 16.20:
95
Leifur heppni
Ný barna- og unglingasaga
11
Xlukkan 16.20 í dag byrjar
lestur nýrrar barna- og ung-
lingasögu í útvarpinu. Er það
Ármann Kr. Einarsson.rithöf-
úndur, sem þá hefur að lesa
sögu sína „Leifur heppni“.
Þetta er söguleg skáldsaga
fyÚr börn og unglinga, byggð
á sögu Eiríks rauða og Græn -
lendingasögu, að því er höí-
undur tjáði okkur. Sögusviðið
er ísland, Grænland og Vín-
landið góða og aðalpersón-
urnar Eiríkur rauði, Leifur
heppni, Þorfinnur karlsefni
og Guðríður Þorbjarnardótt-
ir. Fjallarsaganöðrum þræði,
um ástir þeirra Þorfinns og
Guðríðar og lýkur er þau,
eftir umbrotasamt líf á stund-
um, setjast í helgan stein að
Glaumbæ í Skagafirði.
„Leifur heppni" kom út
fyrir 10 árum síðan. Varætlun
höfundarins að fara til Græn-
lands á meðan hann vann að
samningu bókarinnar, til að
kynna sér þar staðhætti en af
því gat ekki orðið þá. Aftur á
móti heimsótti hann Græn-
land á sl. sumri og fannst
landið fagurt en svipmikið og
hrikalegt. Einna búsældar-
legast sýndist honunt í Eiríks-
firði og Brattahlíð af þeim
stöðum, sem hann sá og bótti
Ijóst, að Eiríkur rauði hafi
kunnað að veija sér bústað.
Ármann Kr. Einarsson hef-
ur verið mikil- og velvirkur
barna- og unglingabókahöf-
undur. Munu bækur hans
vera orðnar einar 32. Fyrsta
saga hans kom út í Unga ís-
landi árið 1932.
„Leifur heppni" verður alls
12 lestrar, þrír í viku og endist
mánuðinn út. -mhg
Sjónvarp kl. 20.35:
Sungið
af Sam-
hjálpar-
plötu
Meðal efnis á dagskrá sjón-
varpsins í kvöld er þáttur, sem
nefnist „Lífið við mig leikur
nú“. Verður hann fluttur kl.
20.35.
í þættinum syngja þau
Anne Marie Antonsen, Ág-
ústa Ingimarsdóttir og Garðar
Sigurgeirsson lög af hljóm-
plötunni „Kristur, konungur
minn", sem kom út í maínián-
uði sl Útsetningu laganna á
plötu.ini annaðist Magnús
Kjartansson en Andrés Ind-
riðason stjórnaði upptökunni.
Á plötunni koma einnig
fram nokkrir hljóðfæraleikar-
ar svo sem Þórður og Ásgeir í
Þursaflokknum, Haraldur
Þorsteinsson í Brimkló, Gra-
ham Smith og fleiri strengja-
hljóðfæraleikarar úr Sifóníu-
hljómsveitinni, Björgvin
Halldórsson, söngvari, auk
Magnúsar Kjartanssonar
sjálfs.
Garðar Sigurgeirsson sagði
okkur að það væru samtökin
Samhjálp, sem stæðu að út-
gáfu plötunnar og rennur á-
góðiaf sölunni til starfsemi
Vistheimilins að Skálatúni og
til innréttinga í félagsmiðstöð
Santhjálpar að Hverfisgötu
42.
Hljómplatan verður ekki til
sölu í verslunum en hinsvegar
verður hvert heimili á landinu
heimsótt og fólki þannig gef-
inn kostur á að kaupa plöt-
una. Þegar hafa 5000 plötur
verið seldar. Hljómplötur
hafa áður komið út á vegum
Samhjálpar og verið tekið
með ágætum, selst í 10 - 12
þús. eintökum. -Við vonum
að þessi hljóti ekki lakari við-
tökur en hinar fyrri, sagði
Garðar Sigurgeirsson. - Og
svo skulum við hlusta í kvöld.
-mhg
Útvarp kl. 17.45:
Anna Bjarnason spjallar við neytendur
Neytendamál verða á dag-
skrá útvarpsins kl. 17.45 í dag.
Um þennan þátt sjá þau til
skiptis Anna Bjarnason, Jó-
hannes Gunnarsson og Jón
Ásgeir Sigurðsson.
Anna Bjarnason annast
þáttinn í dag og fjallar hann
að mestu um kjötkaup fólks.
Eins og neytendur vita eiga
þeir bæði kost á því að fá kjöt
keypt í hálfum eða heilum
skrokkum ogsundurtekið. En
hvort er fjárhagslega hag-
kvæmara þegar allt kemur til
alls? Þarna grípa óefað ýmsir
þættir inn í og þá mun Anna
Bjarnason rekja og greiða
sundur í spjalli sínu við
neytendur í dag.
Oft berast Neytendamála-
þættinum spurningar, sem
lúta að ýmsu því, sem þar er
fjallað um. Áð þessu sinni
svarar Anna Bjarnason
spurningu um meðfevðar-
mcrkinguá fatnaðiogJóhannes
Gu.nnarsson um skyldu mynd-
bandaleiga til að hafa á boð-
stólum góðar vörur og rétt
leigutakans telji hann sig hafa
keypt köttinn í sekknum.
-mbg
frá lesendum
Alls góðs
maklegur,
en...
Kópavogsbúi hringdi:
Nýlega var birt lesendabréf
í Þjóðviljanum þar sem
skorað var á Svavar Gestsson,
heilbrigðisráðherra að sjá til
þess að einsetumaðurinn
ágæti, Gísli á Uppsölum vestra
fengi ókeypis rafmagn og
Auðvitað er Gísli á Uppsöl-
um alls góðs maklegur og sitt
hvað það, sem bréfritarinn
segir um hann og hans dyggðir
aldrei nema satt og rétt. En
mér dettur nú í hug hvort
þetta sé ekki frekar innanrík-
ismál þeirra þarna vestra. Þar
sem rafmagn og sínti er lagt
uin sveitir eru ntenn sjálfráðir
að því hvort þeir vilja notfæra
sér það eða ekki. Einhvers-
staðar minnir mig að hafa les-
ið að Gísli kærði sig nú ekki
mikið um rafljósin nema hvað
gott gæti kannski verið að
hafa smáperu yfir orgelinu.
Það er best að fólk fái að lifa
eins og því sýnist, geri það
engum mein, og til þess er
Gísli á Uppsölum allra manna
ólíklegastur.
En mér sýnist hæpið að ætl-
ast til að ráðherrann geti stað-
ið í svona málum, hann hefur
víst nóg á sinni könnu fyrir
því. Og gæti ekki víðar staðið
svo á í afskekktum byggðum,
að ástæða þætti til að fólk þar
fengi ókeypis þessi lífsþæg-
indi? Síst er ég að andmæla
því að svo yrði en hvort það er
beint í verkahring ráðherra að
ganga í það er annað mál. Og
veita svo nokkur hvort Gísli á
Uppsölum kærir sig nokkuð
um svona gjafir?