Þjóðviljinn - 03.11.1982, Qupperneq 16
Miðvikudagur 3. nóvember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til fóstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482og81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðámenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 KvöÍdsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Albert Guðmundsson:
l
Olympíu-
skákmótið
í Sviss
Frá Helga Ólafssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í Sviss:
íslensku sveitinni gekk vel í 4.
umferð Ólympíuskákmótsins í
Sviss í dag, sigraði sveit Nýja Sjá-
lands 3:1. Að vísu fór skák Guð-
mundar Sigurjónssonar á 1. borði
gegn Small í bið en hún er
steindautt jafntefli. Jón L. Árna-
son sigraði Sarapu á 2. borði, Helgi
Ólafsson sigraði Nokes á 3. borði
en Jóhann Hjartarson gerði jafn-
tefli gegn Smith á 4. borði.
Kvennasveitin íslenska tefldi við
skosku sveitina, Ólöf Þráinsdóttir
og Sigurlaug Friðþjófsdóttir gerðu
báðar jafntefli, en Áslaug Kristins-
dóttir á óljósa biðskák.
Eftir 4. umferð eru Tékkar efstir
með 13 vinninga, en þeir sigruðu
Svía 3V2-V2 í dag. Allar skákir So-
vétmanna og Júgóslava í dag fóru í
bið, og vekur athygli að Karpov
stendur verr gegn Ljubojevic.
Annars er röðin afar óljós vegna
fjölda biðskáka.
Þess má geta að fyrir umferðina í
dag voru Sovétmenn efstir með
10,5 v. af 12 mögulegum, en ís-
lenska sveitin var í 17. til 21. sæti
með 11 vinninga. Eftir sigurinn í
dag gæti ég trúað við værum nærri
10. sætinu.
í kvennaflokki var kínverska
sveitin efst fyrir 4. umferð og hefur
frammistaða hennar vakið
verðskuldaða athygli, en Kínverjar
leggja nú ofurkapp á að ná á topp-
inn í skák. A morgun (í dag) er
frídagur á mótinu en 5. umferð
verður tefld á fimmtudag.
- Hól/S.dór.
Síðustu fréttir
Guðmundur gerði jafntefli eins
og við var búist og Áslaug einnig í
kvennaflokki. Islendingar og
Skotar gerðu því jafntefli í kvenna-
flokki IV2-.IV2.
Hækkun hita og
rafmagns
Afgreiðslu
frestað
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær-
morgun var frestað að taka afstöðu
til hækkunarbeiðna rafmagns-
veitna og hitaveitna og málinu vís-
að aftur til gjaldskrárnefndar. Nið-
urstöðu er að vænta síðar í vikunni.
- v.
Framkvæmdir við fræsingu slitlagsins á Ártúnsbrekkunni hafa gengið mjög illa og verður að fara þrjár
umferðir vegna þess hve steinsteypan er hörð. Ljósm. - eik.
Ekki ætlunin að
malbika yfir
„Nei, það cr ekki ætlunin að mal-
bika þar sem fræsarinn hefur farið
yfir, því að þessi nýja aðferð kemur
í rauninni í staðinn fyrir að mal-
bika í hjólförin sem myndast í mal-
bikið eftir nagladekkin", sagði
Guttormur Þormar yfirverk-
fræðingur umferðardeildar
Reykjavíkurborgar í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Vegagerð ríkisins og Reykjavík-
urborg hafa í surnar staðið fyrir
fræsingu á slitlagi vega víðs vegar í
borginni og nágrenni hennar. Var
leigð til verksins heljarmikil véla-
samstæða frá Bandaríkjunum og
verkið boðið út. Þar sem slitlag
hefur verið lagt margsinnis hefur
það smám saman náð upp fyrir
gangstéttarbrúnir, auk þess sem
vatn myndast og ísing hefur safnast
í hjólför sem myndast í slitlagið
vegna notkunar nagladekkja. Við
spurðum Guttorm hvort ekki væri
hætta á að bílar „flytu“ í vatni sem
safnaðist í götunum, og hvort ekki
væri hætta á að mikil ísing mynd-
aðist þar.
„Við teljum að þetta sé betri að-
ferð en hingað til hefur verið not-
uð, og mér sýnist að hið hrufótta
yfirborð eftir fræsarann hljóti að
vera betra í vatnsveðri og hálku,
heldur en slétt yfirborð malbiksins.
Ég hef nýlega verið á ferð úti í Evr-
ópu og þar er mikið farið að nota
þessa aðferð þar sem slitlög hafa
oft verið lögð og þar er þetta talið
gefast vel. Hitt er svo annað mál að
þegar hálka er, verða menn auðvit-
að að vera á varðbergi og slysa-
hættan hlýtur að stóraukast“.
Guttormur sagði að fram-
kvæmdir við fræsingu slitlags í Ár-
túnsbrekku í Reykjavík gengju illa
og að verkið tæki mun lengri tíma
en áður hafði verið reiknað með.
Ástæðan væri sú að steinsteypan
væri afar hörð og tennur í fræsaran-
um vildu brotna. Tæki verkið því
12-14 daga í stað 4ra daga eins og
búist hafði verið við. Sömu erfið-
leikar komu upp við fræsingu
Reykjanesbrautar í sumar. - v.
Valdarán Seðlabankans
„Seðlabankinn á ekki að fjarstýra
ríkisstjórn landsins - þetta kalla ég
valdatöku.“ Á þessa leið mælti AI-
bert Guðmundsson í framhaldsum-
ræðum í gær um vaxtaákvörðun
Seðlabankans.
Gagnrýndi Albert Seðlabank-
ann harðlega fyrir aðgangshörku
við viðskiptabankana. Seðlabank-
inn hefði ætlað sér hærri vexti en
hann gæfi innlánsstofnunum.
Valdataka Seðlabankans í banka-
kerfinu væri ekkert ný, en
valdataka hans í pólitíkinni væri ný
af nálinni. Harmaði Albert ráðstaf-
anir Seðlabankans og lýsti allri
ábyrgð af þeim til Seðlabankans.
Samkvæmt lögum ætti Seðlabank-
inn að framkvæma stefnu ríkis-
stjórnarinnar þegar um ágreining
væri að ræða, enda hefði þá verið
búið að gera grein fyrir ágreiningi
opinberlega. Sagðist hann ekki sjá
annað en bankamálaráðherrann
hefði beðið stjórn Seðlabankans á
hnjánum, en engu að síður hefði
stjórn Seðlabankans látið við ríkis-
stjórnina einsog hún segði: Pið
ntegið sitja í stólunum, en við höf-
um völdin.
Þarna hefði átt sér stað valdarán,
og hann væri sammála félagsmála-
ráðherra um að ný lagasetning
þyrfti að koma til um þessi mál.
Á þingsíðu í dag er sagt frá um-
ræðum um vaxtamál á alþingi í umræðan í gær birtingar þar til á
fyrradag, en að öðru leyti bíður næstunni. -óg
Geir Hallgrímsson:
Ekki fétt hjá Albert
„Það er fjarri lagi að mínu mati”, sagði Geir Hallgrímsson í gær-
kveldi á þingi, „að Seðlabankinn hafi verið að taka ráðin af ríkisstjórn-
inni.”
Þar með lýsti hann sig ósammála Albert Guðmundssyni, þannig að
fleiri en eitt sjónarmið virðast uppi innan Sjálfstæðisflokksins um
vaxtahækkun Seðlabankans.
Þá sagði Geir að ríkisstjórninni hafði verið í lófa lagið að stöðva
vaxtahækkunina. -úg
Tímabundið
atvinnuleysi á
Ólafsfirði:
„Bjartara
framundan”
segir Björn Þór
Ólafsson formaður
atvinnumálanefndar
á Ólafsfirði
„Vandinn er sá að einungis einn
togari af þremur sem gerðir eru út
frá Ólafsfirði er á veiðum, auk þess
sem nú fara fram viðgerðir á
vinnslusal annars frystihúss á
staðnum“, sagði Björn Þór Ólafs-
son formaður atvinnmálanefndar
Ólafsfjarðar í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Nú eru 10 manns á atvinnuleysis-
skrá á Ólafsfirði, en eftir daginn í
dag mun fjöldinn verða á milli 140
og 160 að sögn Björns Þórs. Þar er
þó að mestu um tímabundið
atvinnuleysi að ræða, því að eftir
helgina kemur togarinn Sigurbjörn
af veiðunt og mun leggja aflann
uppáÓlafsfirði. Þeir lOsemnú eru
á atvinnuleysisskrá eru skipverjar
af Ólafi Bekk, sem bilaði fyrir
skömmu. Sólberg hefur hins vegar
verið í slipp, en vonir standa til, að
það komist á veiðar í næstu viku.
„Hér eru fleiri vinnslustöðvar og
engum hefur verið sagt upp í salt-
húsunum til dæmis. Þessi vandi
hefur verið blásinn út og hann er að
mestu leyti tímabundinn sem betur
fer. Hins vegar er gert ráð fyrir að
viðgerðir á vinnslusal Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar taki hálfan mán-
uð til þrjár vikur og þar mun hópur
af konum missa atvinnuna á með-
an“, sagði Björn Þór Ólafsson for-
maður atvinnumálanefndar Ólafs-
fjarðar að lokum.
Næg atvinna hefur verið á Olafs-
firði það sem af er ársins og gera
menn nyrðra sér góðar vonir um að
togarinn Sigurbjörn komi með
vænan afla að landi nú fljótlega
eftir helgina.
Björn Þór Ólafsson
Vaxtamálin:
Bankastjóra-
og ráðherra-
fundur
A ríkisstjórnarfundi í gær var á-
kveðið að boða til fundar með
bankastjórum Seðlabankans og
ráðherrum atvinnumála innan
skamms tínra um vaxtakjör afurða-
lána.
Þetta mun vera gert samkvæmt
tillögu Tómasar Árnasonar
viðskiptaráðherra, að því er hann
sagði í umræðum á Alþingi í gær.