Þjóðviljinn - 09.11.1982, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.11.1982, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. nóvember 1982 DJOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson. Auglýsingastjori: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gísláson, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlööversson. iþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elíasson. Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri Thorsson. Auglýsingar: Aslaug Jóhannesdóttir, Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes HaröarSon. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Utkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6 Reykjavik, simi 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaöaprent h.f. 536 faldar miljónir • Fyrir 12 dögum greindi iðnaðarráðherra frá því á Alþingi, að samkvæmt fyrirvaralausum lokaniðurstöðum hins virta endurskoðunarfyrirtækis Coopers & Lybrand í London, þá hafi auðhringurinn Alusuise stungið 536 miljónum króna undan skatti úr rekstri sínum hér á árunum 1975 til 1981. • Fetta er að sjálfsjögðu margfalt hærri upphæð en nokkru sinni hefur komið við sögu áður í skattsvikamálum á landi hér, og þessi duldi hagnaður hjá Alusuisse reynist hafa veriö meiri á árunum 1975 til 1980, heldur en nemur heildar- greiðslum fyrir öll orkukaup þeirra hér á sama tímabili!! Útibússtjóri auðhringsins hér, sem einnig er formaður Verslunarráðs íslands, ritar grein í Morgunblaðið s.l. föstu- dag þar sem hann gerir eymdarlega tilraun til að klóra yfir skömmina. • Ragnar Halldórsson reynir ekki að vefengja, að þessar lokaniðurstöður hins virta endurskoðunarfyrirtækis séu fyrirvaralausar, hvað varðar heildarupphæð hins falda hagn- aðar, -en hann dregur fram í grein sinni, að engu að síður er endurskoðunarfyrirtækið með nokkra fyrirvara í sambandi við einstök atriði. • Þarna var útibússtjórinn heldur betur seinheppinn, - því hvað þýðir þetta? Einfaldlega það, að þótt Coopers & Lyb- rand hafi í einstaka tilvikum ekki getað dregið fram fyllstu upplýsingar um hið dulda fjárstreymi frá Straumsvík, þá er endurskoðunarfyrirtækið engu að síður reiðubúið að standa við þá tölú sem fram kemur í lokaniðurstöðunni án allra fyrirvara og fyrir hvaða dómstóli sem er. Talan 536 miljónir í falinn hagnað er sem sagt lágmarkstala! • Reyndar er það svo, að iðnaðarráðuneytið hefur undir höndum gild sérfræðiálit um Iangtum hærra yfirverð, á bæði súráli og rafskautum frá Alusuisse til dótturfyrirtækisins hér, heldur en þeir hjá Coopers & Lybrand hafa taliðsiggeta sannað með ótvíræðum hætti. Alveg sérstaklega á þetta við um yfirverð á rafskautum, sem að mati fjögurra óháðra sérfræðinga er talið vera yfir tvöfalt hærra en Coopers & Lybrand hafa ákvarðað í sinni endurskoðun. Á meðan Co- opers & Lybrand telja þannig yfirverðið á rafskautum hafa numið „aðeins“ lOmiljónum dollara á árunum 1975 til 1979, þá nefna aðrir 26 miljónir dollara. - Allar þær ýtarlegu rannsóknir, sem unnar hafa verið af færustu sérfræðingum vítt um heim fyrir íslenska iðnaðarráðuneytið, benda til þess, að niðursjtöður Coopers & Lybrands, endurskoðúnafyrirtækisins í London, sem sýna 536 miljón króna dulinn hagnað séu ákaflega varfærnar, og síst af öllu sé lokatalan of há. • Útibússtjóri Alusuisse segir í grein sinni, að auðhringur- inn hafi viljað vísa þessum deilumálum fyrir gerðardóm. í þeim efnum hefur aldrei skort vilja hjá íslenskum stjórn- völdum, en hér er þess að gæta, að samkvæmt ákvæðum aðalsamnings milli Alusuisse og íslenska ríkisins, þá eru þær niðurstöður, sem fram koma í skýrslu Coopers & Lybrand lokadómur, sem annar hvor málsaðila vilji kæra til dóm- stóla. Islensk stjórnvöld geta eftir atvikum vel unað við niður- stöður Coopers & Lybrand, sem endanlegan dóm, en fróð- legt verður að sjá, hvort forráðamenn Alusuisse reyna að hafa uppi tilburði til að skjóta málum undir innlendan eða erlendan dómstól. Þá verður þeim mætt á þeim vettvangi og .allur réttur áskilinn til að halda uppi ýtrustu kröfum. • Formaður Verslunarráðsins segir í grein sinni, að Alu- suisse hafi sagst vilja ræða um hækkun orkuverðs, ef iðnaðarráðherra dragi allar ásakanir um yfirverð á aðföng- um og falinn hagnað til baka! - Jú, mikið rétt. • En hvers konar verknaður hefði það verið hjá einum íslenskum iðnaðarráðherra, að stinga máli sem þessu undir stól í veikri von um að fá þá e.t.v. einhverju öðru framgengt í staðinn? • Er það þannig sem Verslunarráð íslands vill láta taka á hinum stærstu svikamálum, að hinn ákærði geti keypt sig undan allri ábyrgð með því einu að bjóða stjórnvöldum viðræður um þetta eða hitt í staðinn? • Við skulum vona að svo illa sé ekki komið. - k. klippt Og sjá! Svona fer fyrir hægri krötum. Orð Staksteinars rætast í fyilingu tímans, lambið mitt. Kratar skulda Sjálfstœðis- flokknum skýringu Morgunblaðið er fúllynt og harðort við vesalings kratana nú um helgina. Bæði er það, að Kjartan Jóhannsson heldur á- fram að tala við ríkisstjórnina og svo hitt að Alþýðuflokkurinn vill kallast vinstri flokkur. Morgun- blaðið og Sjálfstæðisflokkurinn þykjast hafa öll ráð í sinni hendi og fyrirskipa krötum hvernig þeir eiga að sitja og standa. „Það er nauðsynlegt að kratar geri það upp við sig á þessu flokksþingi, hvort þeir ætli að stefna til hægri eða vinstri. Öll tiltrú til flokksins hefur dvínað á undanförnum misserum, ekki síst vegna vinstra daðurs hans. Krat- ar skulda þeim hópi kjósenda sem gengur á milli Alþýðuflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins skýra afstöðu í þessu efni“. Velvilji til endurskoðunar Sumt í þessum skrifum Morg- unblaðsins er ekki hægt að skilja öðruvísi en sem hótanir. Og les- endur hljóta að spyrja hvernig samband Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins hafi verið hing- að til fyrst Morgunblaðið sér á- ■ stæðu til að skrifa í þessum dúr: „í Staksteinum hefur verið á það bent, að liklega sé rétt fyrir sjálfstæðismenn að taka velvilja sinn í garð Alþýðuflokksins til endurmats, því að kratar notfæri sér þennan velvilja í atkvæða- veiðum en hugur forvígismanna þeirra stefni í raun í átt til Al- þýðubandalagsins. Með þetta í huga verður fróðlegt að meta samþykktir flokksþings krata og val manna í trúnaðarstöður.“ Rétta leiðin Síðan segir Stakstéinar: „Andróður fcrata gegn sjálf- stæðismönnum í sveitarstjórn- arkosningunum í vor og áþreif- ingar milli krata og kommúnista eftir að báðir höfðu tapað í kosn- ingunum sýna, að sjálfstæðis- menn eiga ekki að vísa krötum hina réttu leið þegar þeir standa nú á krossgötum. Hitt er ljóst, að vilji kratar gera flokk sinn að engu með vinstra brölti væri hreinlegast fyrir þá sem vilja að ganga í Alþýðubandalagið.“ Gleymist íhaldinu það í afbrýði sinni, að allir krataflokkar heimsins hafa hingað til að forð- ast einsog heitan eldinn að lenda á mála hjá erkihægrisinnuðum borgaraflokkum einsog Sjálf- stæðisflokkurinn er. Alþýðu- flokkurinn brenndi sig á þessu í viðreisnarstjórninni og þess er að vænta að brennt barn forðist eldinn. Einrœði íhaldsins Hvers vegna hefur Mogginn svona mikið við að þessu sinni? Staksteinar segir: „Verði Kjartan ekki sviptur umboði til frekari viðræðna á flokksþinginu má líta svo á, að verulegur vilji sé til þess innan Alþýðuflokksins að ganga til samstarfs við ríkisstjórnina". Með öðrum orðum kratar, að ef þið gerið ekki einsog við viljum, þá stefnum við á alræði Sjálf- stæðisflokksins. í sunnudagsleiðara er þessu lýðræðislega viðhorfi fylgt eftir, „Aðeins ein leið“, segir þar. „Nú þarf að brjótast út úr vítahring vinstrimennskunnar. Alþýðu- flokkurinn vill ekki Ieggja því lið, hann langar í nýja vinstri stjórn". Eftir þessar hamfarir Morgun- blaðsins fer Alþýðuflokkurinn að verða all-virðingarverður flokk- ur. Kjartan Jóhannsson formað- ur Alþýðuflokksins heldur um- boði sínu óskertu til að ræða við ríkisstjórnina, - og ekki hafa bor- ist spurnir af því af flokksþingi kratanna, að farið verði fram á leiðsögn íhaldsins í pólitíkinni. En Sjálfstæðisflokkurinn stefnir á að ráða einn ríkjum á löggjafar- samkomunni. -óg „Gamla blaðið mitt(( Jón Baldvin hefur ekki getað setið lengur þegjandi undir ávít- um og uppskurði Kjartans Ottós- sonar á pólitík Alþýðublaðsins undir ritstjórn Jóns. Ekki svarar hann þó gagnrýninni beint, held- ur dustar rykið af gömlu erindi og biður blaðkálfinn sinn að birta. „Áður en Kjartan skrifar lengra mál til að rangtúlka ritstjórnar- skrif Alþýðublaðsins og gera mér upp skoðanir, vil ég biðja mitt gamla blað að birta þetta erindi“, segir Jón Baldvin af lítillæti sínu og saknaðartónninn leynir sér ekki. Það var munur í þann tíð að sitja í ritstjórastól á Alþýðu- blaðinu heldur en að púla á al- þingi. Dollari og kók Það er mikil kúnst að bera saman verðlag og kaup frá einu tímabili til annars. Mogginn og Verslunarráðið gera þetta gjarnan með línuritum. Það hef- ur greinilega farið fyrir brjóstið á húmoristanum sem skrifar vís- indalega grein „Græddur er geymdur eyrir“ í laugardags- mogga. Húmoristinn sem er verkfræðingur tekur gosdrukk- inn kóka kóla og bandarískan dollar og kannar hvernig hefur farnast í verðbólgunni: „Kaupmáttur tímakaupsins 1945 var 13 kók. Nú er hann 9 kók á klst. Tímakaup var um doll- ari 1945. Nú er það 2,4 dollarar, en dollarinn er bara svipur hjá sjón, fallinn um 2/3; lof sé leið- togum fólksins!" Gullið er ekki nóg viðmiðun frekar en dollar. Ekki verður um annað séð en greinarhöfundur hafi fundið ágætis viðmiðun í kaupum og sölu, - kók. -óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.