Þjóðviljinn - 09.11.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 09.11.1982, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 9. nóvember 1982 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 19 RUV Ö 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund.7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orð: Sólveig Óskarsdóttir talar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Kysstu stjörnurnar“ eftir Bjarne Reuter Ólafur Haukur Símonarson les þýðingu sína (8). Olga Guðrún Árnadóttir syngur. 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir 10.30 „Man ég það sem löngu leið“ „Austurvöllur og útiskemmtanir Reykvíkinga um aldamótin". Umsjón- armaður: Ragnheiður Viggósdóttir. Lesari með henni: Þórunn Hafstein. 11.00 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja 11.30 Völd og áhrif embættismanna í ráðu- neytum. Þáttur í umsjá Önundar Björnssonar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor- steinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 14.30 „Móðir mín í kví kví“ eftir Adrian Johansen Benedikt Arnkelsson þýddi. Helgi Elíasson lýkur lestrinum (15). 15.00 Miðdegistónleikar William Masselos leikur á píanó „Þrjár Gymnopedíur“/Cristoph Eschenbach, Eduard Drolc og Gerd Seifert leika Tríó í Es-dúr op. 40 fyrir píanó, fiðlu og horn eftir Johannes Brahms. 16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís- indanna Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónar- maður: Ólafur Torfason. (RÚVÁK). 19.00 Kvöldfréttir 20.00 Samnorrænir tónleikar'danska út- varpsins í maí s.l. Sinfóníuhfjómsveit danska útvarpsins leikur; einleikari: Manuela Wiesler; Gunnar Staern stj. a. „Aladdin", forleikur eftir C.F.E. Horn- emann. b. Sinfónía breve nr. 2 eftir Ragnar Söderlindh. c. „Euridice" eftir Þorkel Sigurbjörnsson. d. „Andante festivo" eftir Jean Sibelius. e. Sinfónía í Es-dúr eftir Franz Berwald. - Kynnir: Jón Örn Marinósson. 21.25 „Gloria“ eftir Atla Heimi Sveinsson Anna Málfríður Sigurðardóttir leikur á píanó. 21.45 Útvarpssagan: „Brúðarkyrtillinn“ eftir Kristmann Guðmundsson Ragn- heiður Sveinbjörnsdóttir les (15). 22.35 Níundi nóvember 1932 Pétur Péturs- son tekur saman dagskrá. 23.15 Oní kjölinn Umsjónarmenn: Krist- ján Jóhann Jónsson og Dagný Kristjáns- dóttir. RUV 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sögur úr Snæfjöllum Nýr tékknesk- ur barnamyndaflokkur um lítinn snjó- karl og vetrarævintýri hans. Þýðandi Jón Gunnarsson. 20.45 Þróunarbraut mannsins Sjötti þátt- ur. Föst búseta Rakin er saga þeirrar byltingar, sem hófst fyrir um það bil 10.000 árum, þegar forfeður okkar tóku sér fasta bústaði og gerðust bændur. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 21.40 Lífið er iotterí Annar þáttur. Sænsk- ur sakamálamyndaflokkur. f fyrsta þætti sagði frá bíræfnu gullráni og hvernig þýfið lenti í höndum hrakfalla- bálksins John Hissings. þýðandi er Hall- veig Thorlacius. 22.30 Rýmkun útvarpsréttar Umræðuþátt- ur í beinni útsendingu um mál, sem hef- ur borið hátt í opinberri umræðu og manna í milli, síðan álit útvarpslaga- nefndar var gert heyrinkunnugt. Um- ræðum stjórnar Magnús Bjarnfreðsson. 23.30 Dagskrárlok Útvarp kl. 22.35 Níundi nóvember 1932 Pétur Pétursson útvarps- þulur, hefur tekið saman þátt um atburðina 9. nóvember 1932 þegar til eftirminnilegra átaka dró milli lögreglu og verkamanna, vcgna kauplækkunaráforma þáver- andi bæjaryfirvalda í Reykja- vík. Þáttur Péturs verður á dagskrá útvarpsins kl. 22.35 í kvöld. Pétur Pétursson kvaðst telja viðeigandi að þessara at- burða yrði að nokkru minnst nú þar sem hálf öld væri liðin frá því að þeir gerðust. Þá andæfðu verkamenn krepp- unni með eftirminnilegum og áhrifaríkum hætti. Þeir neituðu að fallast á að tekið væri af þeim, sem ekkert áttu og lögðu líf og limi í hættu til að verja þann málstað. Pétur var sjálfur, þá kornungur, vitni að þessum átökum „og það er hið styttsta en áhrifa- ríkasta félagsmálanámskeið sem ég hef sótt um ævina", sagði hann. Þátt sinn byggir Pétur á við- tölum, sem hann hefur átt við ^XM* Pélur Pétursson ýmsa þá úr báðum fylkingum, sem ýmist tóku beinan þátt í slagnum eða voru vitni að honum og fær fram álit þeirra á atburðunum. - mhg Sjónvarp kl. 22.30 Á að rýmka um útvarps- réttinn? Engan þarf að undra þótt tekið sé til umræðu í Sjón- varpinu hvort ríkið cigi áfram að hafa einkarétt á útvarps- rekstri eða hvort gefa eigi hann frjálsan að einhverju eða öllu leyti. Um það hefur mikið verið rætt að undanförnu, ekki hvað síst síðan útvarps- laganefndin kvað upp úr með sitt eða sín álit - og falla skoðanir manna á ýmsan veg. Nú verður þetta mál, „Rýmkun útvarpsréttar", eins og það er orðað í dagskránni, rætt í Sjónvarpinu kl. 22.30 í kvöld. Þátttakendur í um- ræðunum eru: Eiður Guðna- son, alþingismaður, Friðrik Sófusson, alþingismaður, Markús Á. Einarsson veður- fræðingur og Þorbjörn Broddason, lektor. Umræð- um stjórnar Magnús Bjarn- freðsson. - mhg frá I Útvarp kl. 10.30 Hvernig skemmtu menn sér á Austurvelli um alda- mótin? Núna kl. 10.30 er á dagskrá Útvarpsins þátturinn „Man ég það, sem löngu leið.“ Að þessu sinni er hann í umsjá Ragn- hciðar Viggósdóttur en lesari með henni er Þórunn Haf- stein. Efni þáttarins er „Austurvöllur og útiskemmt- anir Reykvíkinga um alda- mótin.“ Austurvöllur má rnuna tímana tvenna, eins og aðrir, sem komnir eru til ára sinna. Fram að árinu 1874 var hann í raun og veru ekkert annað en óræktarmóar og forarpollar. En þegarThorvaldsensstyttan var gefin hingað þjóðhátíðar- árið 1874 þótti hún ekki ann- arsstaðar eiga betur heima en á Austurvelli. Var þá hafist handa um að búa henni þar sómasamlegt umhverfi. Völl- urinn var sléttaður, ekið á hann heljarmiklum öskuhaug, sem var neðan við Landakotshæðina og gang- stígar lagðir út frá styttunni. Þannig varð Thorvaldssens- styttan kveikjan að því að setja smám saman á Áustur- völl það svipmót, sem hann ber nú. Efnið í þátt sinn hefur Ragnheiður tínt saman hér og þar en byggir hann þó einkum Austurvöllur frá þeim tíma er Thorvaldsen rikti þar (1874-1931). í baksýn er kvennaskólahúsið sem Þóra og Páll Melsted reistu 1878. Til vinstri er hús Bjarna Thorsteinssonar, amtmanns, og síðar Steingríms skálds, sonar hans. Þanrng kann Austurvöllur að hafa litð út um aldamótin. Thorvaldsen horfir af stalli sínum á tvö aldin og virðuleg hus, Dómkirkjuna, sem þarna var reist 1794, en breytt nokkuð og stækkuð 1847, og Alþingishusið, sem byggt var 1880-1881, í kálgarði HaUdórs Kr. Friðrikssonar, yfirkennara. á tveimur heimildum: Endur- minningum Knuds Zimsen, fyrrverandi borgarstjóra, Úr bæ og borg og .grein, eftir Thoru Friðriksson þar sem hún rekur ýmsar bernsku- minningar sínar, en Thora var alin upp við Austurvöll - mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.