Þjóðviljinn - 09.11.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.11.1982, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 9. nóvember 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 5 Bágur hagur Námsgagnastofnunar til umræðu á þingi Stöðvast útgáfa námsefnis? Bágt fjárhagsástand Námsgagn- astofnunar kom til umræðu á alþingi i gær er Árni Gunnarsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og spurði menntamálaráðherra um ástandið hjá stofnuninni. í máli Árna kom fram að Náms- gagnastofnun væri stórskuldug og gæti ekki sinnt útgáfu kennslu- gagna samkvæmt lögum. T.d. hefði útgáfu kennslugagna fyrir börn með sérþarfir ekkert verið sinnt. Þá sagði hann að útgáfa hefði nú verið stöðvuð vegna fjárskorts. Ingvar Gíslason menntamála- ráðherra sagði ekki ástæðu til að mála ástandið of dökkum litum. Námsgagnastofnun hefði við veru- legan fjárhagsvanda að stríða eins- og margar aðrar ríkisstofnanir. Fjárveitinganefnd hefði nú málið til meðferðar og alþingi gæti bætt úr vandanum ef því sýndist svo. -óg Frá Ólympíuskákmótinu í Sviss: Campomanes hefur eytt hálfri miljón dollara í kosninga- baráttu sína Filippseyingurinn Campomanes, sem keppir við Friðrik Olafsson um forseta embætti FIDE hefur ekkert til sparað til að ná kjöri. Hann er sagður hafa eytt hálfri milljón doll- ara í kosningabaráttu sína. Hann notar einnig hin furðulegustu upp- átæki til að kynna sig. Hann hefur um sig hóp manna, einskonar klapplið sem hrópar heyr og húrra, hvenær sem Cam- pomanes opnar munninn og segir eitthvað. Þá er hér hópur manna sem gengur um í bolum með nafni hans á, þar á meðal skákmenn Fil- ippseyja. Þessu svöruðu stuðnings- menn Friðriks með að útbúa boli sem á stendur „Ólafsson“ og geng- ur nú annar hópur í slíkum flíkum. Þannig tekur þessi kosningabar- átta á sig hinar furðulegustu mynd- ir, sumar broslegar, aðrar alvar- legar. - Hól/S.dór GÓð matarkaup KINDAHAKK pr. kg. 38.50 10 KG. NAUTAHAKK pr. kg. 79.00 LAMBAHAKK pr. kg. 49.50 HVALKJÖT pr. kg. 27.00 NAUTAHAMBORGARAR pr. stk. 8.00 1/2 FOLALDASKROKKUR pr. kg. 48.00 1/2 NAUTASKROKKUR pr. kg. 72.00 1/2 SVÍNASKROKKUR pr. kg. 79.00 LAMBASKROKKAR pr. kg. 45.90 Athugið - skrokkar, merktir, pakkaðir og niður- sagaðir. Tilbúnir í frystikistuna KJÖTMIDSTÖÐIN Laugalæk 2 sími 86511 Tap gegn Spánverjum Frá Helga Óiaíssyiii, fréttamanni Fjóðviljans í Sviss: Menn eru ekki beint upplits- djarfir eftir daginn, í karla- sveitinni, því við töpuðum fyrir Spánverjum l'h - 2'h í 9. umferð ÓL-skákmótsins. Það sárasta við tapið er það, að Guðmundur Sig- urjónsson var með mun betri stöðu gegn Bellon, en lék af sér hrók í bullandi tímahraki og hlaut því að tapa. Jón L. Árnason gerði jafntefli við Martin, Helgi tapaði fyrir Sanz og Margeir vann Ochoa. Kvennasveitin tefldi við ensku sveitina. Sigurlaug vann sína skák, en Guðlaug á betri biðskák, en aftur á móti er Ólöf með verri stöðu í sinni biðskák. Á laugardaginn tefldi karla- sveitin við Portúgali og sigraði 2 'h - 1 'h, en Guðmundur og Santos gerðu jafntefli, sömuleiðis Jón L. og Silva og Helgi og Duro en Jó- Guðmundur lék af sér hrók í tímahraki með betri stöðu hann Hjartarson vann A. Santos. Kvennasveitin tefldi við Venesú- ela og sigraði 2 'h - 'h. Guðlaug og Áslaug unnu en Ólöf gerði jafn- tefli. Á sunnudag tefldi karlasveitin við ísrael og varð jafntefli 2:2. Guðmundur og Grúnfeld gerðu jafntefli, Jón L. tapaði fyrir Mur- ey, Margeir vann Birnboim og Jó- hann gerði jafntefli við Greenfeld. Var kæröur fyrir hass- reykingar viö skákborðið sem svo reyndist vera venjuleg sígaretta Rúmenar fóru mjög illa útúr viðureigninni við Indónesíumenn hér á Ól-skákmótinu, töpuðu 1:3. Eitthvað hefur þetta farið í skapið á Rúmen- um, því einn þeirra kærði andstæðing sinn fyrir að reykja marihjúana yfir skákborðinu. Málið var þegar tekið til rannsóknar, tóbakið tekið af þeim indónesíska og rannsakað. Kom þá í ljós að um venjulegt reyktóbak var að ræða, en ekki marihjúana og hafði sá rúmenski ekkert uppúr krafsinu. - Hól/S.dór Guömundur Sigurjónsson _________ Kvennasveitin tefldi þá við Ung- verja og tapaði 0:3, Ólöf, Áslaug og Sigurlaug telfdu. Þessi urðu úrslit í gær: Sovét. - England 2:0 (2) Júgósl. - Holland 2:1 (1) USA - Kanada 2:1 (1) Tékkó - Ungverjal. 1:2 (1) STAÐAN Sovét 24,5 (2) USA 23,5(1) Júgó - Ungverjal. 22,5 (1) hvor Kanada 22 (1) England 21,5 (2) Soffía Guðmundsdóttir Hannes Baldvinsson Nýir þingmenn Soffía Guðmundsdóttir tók í gær sæti Stefáns Jónssonará alþingi, en Stefán er í Finnlandi á vegum Norðurlandaráðsins. Þá tók Hann- es Baldvinsson sæti á þingi í gær fyrir Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra sem er erlendis í opinberum erindagerðum. -óg Líffræði- fyrirlestur Dr. Helgi Guðmundsson flytur í kvöld kl. 20.30 fyrirlestur á vegum Líffræðifélags íslands sem hann nefnir „ Viðkoma hjá nokkrum teg- undum burstaorma af ættinni „Spi- onidae“ “. Helgi skýrir frá rann- sóknum sínum á því hvernig tímg- unarhættir og lífsferill fjögurra mismundandi tegunda tengjast því umhverfi sem þær lifa í. Fyrirlest- urinn er haldinn í stofu 101, Lög- bergi. Opið ALLAN 4 UREVnLL STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^N jf &

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.