Þjóðviljinn - 16.11.1982, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.11.1982, Blaðsíða 16
DJOÐV/Um Þriðjudagur 16. nóvember 1982 ASalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Aðalsími Kvöidsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Framsóknarþingið: Stefnan tapaðlst Uppákoma varð á 18. flokks þingi Framsóknarmanna síðdegis í gær, þegar t Ijós kom að drög að stjórnmálaályktun þingsins höfðu tapast á leiðinni frá flokksskrifstof unni við Rauðarárstíg að Hótel Sögu. Framkvæmdastjóri, ráðherrar, starfsmenn þingsins og aðrir þing- fulltrúar hófu víðtæka leit í þing- salnum, undir borðum og stólum en allt kom fyrir ekki. Formaður flokksins lýsti því þá yfir að prenta yrði drögin upp aftur, þetta væri allt í lagi, stefnan hefði ekki tápast því hann væri með hana á hreinu í kollinum. -•g- Framsóknarmenn ræddu þjóðmálin og stjórnmálin á 18. þingi flokksins um helgina og létu sér í léttu rúmi liggja þótt stefnan hefði tapast um tíma. Þeir voru þó alltént í Bændahöllinni. Mynd - eik. Ráðstefna um friðar- og afvopnunarmál Efnahags- lögsagan verði friðuð Á ráðstefnu um friðar- og af- vopnunarmál sem haldin vár á Hó- tel Loftleiðum sl. laugardag var einróma samþykkt að heita á ríkis- stjórn og Alþingi að beita sér fyrir að kjarnórkuvopn verði aldrei leyfð á íslandi, að Álandseyjar, Danmörk, Finnland, Færeyjar, Grænland, ísland, Noregur og Sví- þjóð verði lýst kjarnorkuvopna- laust svæði, sem njóti alþjóðlegrar viðurkenningar, og að íslensk efna- hagslögsaga verði friðuð fyrir kjarnorkuvopnum, umferð kjarn- orkuknúinna skipa og losun kjarn- orkuúrgangs. - ekh Löndunarbið og sfld in ígúanó Afli tveggja báta í Vestmannaeyjum fór í gúanó í gær Afli tveggja reknetabáta fór í gú- anó í Vestmannaeyjum í gær. Þess- ir bátar komu að landi á fimmtu- daginn var, en fengu ekki löndun fyrr en í mánudag, og þá var síldin orðin ónothæf til annars en bræðslu. Þjóðviljinn hefur öruggar hcimildir fyrir því að víðar hafi orðið að setja síld í bræðslu vegna þess að ekki var hægt að taka við henni, þegar bátarnir komu að landi, en hér er um að ræða síld sem fara á í frystingu eða flökun, þar sem söltun er fyrir nokkru hætt. Helsta síldarveiðisvæðið er út af Austfjörðum, en síðan sigla bát- arnir með hana til Faxaflóahafna og allt vestur á Snæfellsnes og til Norðurlandshafna. Þegar til þess- ara hafna kemur er síldin orðin 2ja til 3ja sólarhringa gömul og þar sem ekki er skylda að ísa hana í kassa geta menn ímyndað sér hvernig hún lítur út eftir að hafa velst í lestum skipanna. Markús Guðmundsson, hjá veiðieftirliti sj ávarútvegsráðuney t- isins sagði að það væri svolítið gloppótt hjá síldveiðibátunum, þegar svo langt væri siglt með farm- inn. Hann sagði ennfremur að ein- ungis þrír bátar ísuðu sfld í kassa. Nokkrir ísa í bala eða trog, en al- gengast væri að bátarnir flyttu sfld- ina bara í lestum. Hann sagði enn- fremur að hann vissi af tveimur sfldarförmum, sem fóru í bræðslu, vegna þess að of mikil áta var í sfldinni og hún því ónothæf þegar að landi kom. Hér er greinilega brotalöm í kerfinu, þar sem bannað er að veiða sfld í bræðslu og greinilegt að taka þarf upp stjórnun á löndun, líkt og gert var á loðnuveiðunum, því löndunarbið getur eyðilagt heilu skipsfarmana. - S.dór Lokaumferð Olympíuskákmótsius í Sviss: íslensku sveitirnar sigruðu báðar í gær Lokaumferð Ólympíumótsins í skák var tefld í gær og gekk vel hjá acker. í allt hlaut sveitin 30.5 vinn- íslensku sveitunum. Karlasveitin sigraði Belgíumenn og kvenna- inga af 56 mögulegum og hafnar í sveitin sigraði Sviss-B sveit 2:1. kringum 20. sæti en það var óljóst í gær vegna biðskáka. Útkoma ís- Guðmundur Sigurjónsson sigr- ize, Helgi og Bonuycker gerðu lensku skákmannanna er þessi: aði Weemaez, Jón L. sigraði Def- jafntefli og Margeir sigraði Schum- Guðmundur hlaut 4 vinninga af 9, Jón L. 7 af 11, Margeir 8 af 12, Helgi 572 af 10 og Ingi R. 'h af 3. Eins og áður hefur komið fram sigruðu Sovétmenn bæði í karla og kvennaflokki. í karlaflokki hlutu þeir 42 vinning og áttu í gær eina biðskák. Bandaríkjamenn og Tékkar berjast um 2. sætið, Tékkar hafa 3572 vinning og 1 biðskák en Bandríkjamenn 34 og 2 biðskákir. íslenska kvennasveitin hlaut 21 vinning af 42 mögulegum, en óljóst var í hvaða sæti þær lenda vegna biðskáka. Sovéska sveitin sigraði, hlaut 31 vinning^ átti 2 biðskákir. hól/S.dór Forsætisráðherra undrandi á viðræðuslitunum Veðrabrigði í Alþýðuflokknum en ekki í viðrœðunum sjálfum - Mér hefur ekki borist nein formleg tilkynning um viðræðu- slit af hálfu Alþýðuflokksins, aðeins heyrt um þau í fjölmiðlum, sagði Gunnar Thoroddsen for- sætisráðherra í samtali við blaðið í gær. Ég vil sjá það svart á hvítu áður en ég trúi því að Alþýðu- flokkurinn hafi slitið viðræðun- um. Fari svo að það sé staðreynd hefur þó enginn vábrestur orðið. Mitt viðhorf er óbreytt og við munum reyna allar leiðir til þess að koma brýnustu málum þings og þjóðar í höfn. Forsætisráðherra var spurður hvort ríkisstjórnin hefði verið bú- in að fallast á skilyrði Alþýðu- flokksins, sem samþykkt voru á flokksþingi hans, fyrir áfram- haldandi viðræðum. - Bráðabirgðalögin voru lögð fram s.l. miðvikudag, degi eftir að Alþýðuflokkurinn hafði sett fram skilyrði þar um. Stjórnar- skrárnefnd hraðar störfum eftir mætti og er að ganga frá greinar- gerðum til þingflokkanna. Varðandi kjördag eru uppi á- kaflega mörg álitamál sem þarf að skoða áður en hann verður ná- kvæmlega dagsettur. Ég hafði gert ráð fyrir að um þau mál yrði rætt sérstaklega. Af þeim fundi gat ekki orðið fyrr en nú eftir helgina m.a. vegna fjarveru fé- lagsmálaráðherra sem sótt hefur norræna ráðherrafundi. Kjartan Jóhannsson hreyfði engum mót- mælum við því að svona yrði.stað- ið að málum og mér er kunnugt um að Svavar Gestsson átti von á því að viðræðum yrði haldið áfram eftir helgina að loknu sam- taii við formann Alþýðuflokksins í s.l. viku. Hér hafa því orðið ein- hver veðrabrigði í Alþýðuflokkn- um en ekki í viðræðunum sjálfum. Aðspurður um framvindu næstu vikna kvaðst forsætisráð- herra ávallt hafa gert ráð fyrir því að eftir að bráðabirgðalögin kæmu frá efri deild upp úr næstu mánaðamótum, þegar öll helstu ákvæði þeirra væru i raun komin til framkvæmda, myndu viðhorf- in breytast og kyrrast. „Ég geri ekki ráð fyrir að bráðabirgðalög- in verði felld á þingi síðar í vetur komi þau til framkvæmda 1. des- ember og býst við að mál komist meira á lygnan sjó þegar þar að kemur.“ -ekh Fargjöld SVR: 22% hækkun Verðlagsráð samþykkti í gær 22% hækkun á fargjöldum Stætis- vagna Reykjavíkur, en ráðið felldi í síðustu viku beiðni um 40% hækkun á fargjöldunum. Borgar- ráð fjallar um þessa ákvörðun á fundi sínum í dag en ekki er búist við einhliða hækkun fargjaldanna eftir þessa ákvörðun. Gunnar Thoroddsen f orsætisráðherra: Tekur ekld þátt í prófkjörmu Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra hefur neitað að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, en það á að fara fram 28. og 29. nóvember n.k. í bréfi sem hann ritaði formanni kjörnefndar sl. laugardag lýsir hann þeirri skoðun á þrengdum prófkjörsreglum, að þær séu „einn liður af mörgum til að þrengja val- frelsi, lýðræði og auka fámennis- veldi og flokksræði. Ég er andvígur slíkum vinnubrögðum, tel þau andstæð hugsjónum sjálfstæðis- stefnunnar og flokknum skaðleg,“ segir í bréfinu. „Ég munekki ver$a í framboði í prófkjöri sem þannig er til stofnað." Er Alþýðuflokk- urinn að kiofna? Vilmundur sér á báti Það er auðvitað heljarmikill missir fyrir flokkinn ef Vilmundur yfirgefur hann, en hann er nú ekki farinn úr honum ennþá svo ég vil engu spá um framhaldið, sagði Bjarni P. Magnússon, formaður framkvæmdastjórnar Alþýðu- flokksins í gær. Um helgina varð endanlega ljóst að VilmundUr ætlar ekki að taka þátt í prófkjöri Alþýðuflokksins. Hugðist hann halda blaðamanna- fund í gær ásamt stuðningsmönn- um sínum en honum var frestað á síðustu stundu. Vilmundur hefur ekki staðfest fregnir um að hann hyggist fara í framboð á eigin vegum. -ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.