Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 24. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Sveitarstjóraarmenn á ráðstefnu: ,Atvinnumálm í brennidepli segir Margrét Frímannsdóttir, oddviti á Stokkseyri „Ég er þeirrar skoðunar að eitt brýnasta verkefni sveitarfélaganna hér á Suðurströndinni sé að renna traustari stoðum undir atvinnulífið, sem auðvitað er alltof einhæft og byggist algjörlega á útgerð og fisk- vinnslu,“ sagði Margrét Frímannsdóttir oddviti á Stokkseyri, en hún var einn þátttakenda á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga, sem lauk í gær. „Viö höfum fullan hug á því að lögin hér í kring. Hitt er svo jafn- reisa hér iðngarða þar sem hægt ljóst að til þess að það verði unnt yrði að koma upp margvíslegum þarf sem allra fyrst að koma brú á smáiðnaði í samvinnu við sveitarfé- Ölfusárósa, sem er algjör forsenda samtengingar atvinnustarf- seminnar á þessu svæði,“ sagði Margrét ennfremur. Með tilkomu nýs bæjarstjórn- armeirihluta á Stokkseyri s.l. sum- ar hefur orðið gjörbreyting í félags- legum efnum á Stoickseyri. Við báðum Margréti að segja okkur nokkuð frá því: „Það er rétt, við höfum reynt að Ieggja áherslu á framgang mála í þeim málaflokki. Þar mætti nefna fjölmargt, en ég minnist aðeins á fátt eitt. Við erum með í undirbún- ingi byggingu leikskóla á Stokks- eyri, sem ekki hefur verið hér til staðar áður. Gagngerar endurbæt- Margrét Frímannsdóttir: Erum að gera átak í félagslegum málum á Stokkseyri. Ljósm. eik. ur fara nú fram á Grunnskólanum og aukið verður við kennslu- húsnæðið á næstunni. Sundlaug er hér í byggingu og vonumst við til að hún komist í gagnið á næsta sumri. Þá höfum við unnið að málefnum aldraðra með nokkuð öðrum hætti en áður var og núna sér nefnd á vegum hreppsins um þá starfsemi. í tengslum við opið hús fyrir aldr- aða erum við með föndurkennslu, sem hreppurinn stendur straum af kostnaði við, og ýmis önnur ný- breytni hefur komið til.“ Hvað með byggingar verka- mannabústaða? „Það hafa ekki verið byggðir verkamannabústaðir hér á Stokks- eyri um margra ára skeið, en nú verður vonandi breyting þar á. Við höfum lagt inn beiðni til Húsnæðis- stofnunar um byggingu 4 íbúða, og Framhald á bls. 12 „Það er mikill misskilningur ýmissa blaða- og fréttamanna, að nærvera þeirra ein tryggi þeim aðgang að sannleikanum. Hún getur þvert á móti orðið til þess að hefta sannleikann, hefta lýðrœðið. “ Sýndarmennska, fjölmiðlun og lýðræði Nokkrir menn úr stjórn Blaðamannafélags íslands sam- þykktu á fundi 18. nóvember á- lyktun vegna þeirrar tillögu minnar á flokksþingi Framsókn- armanna fyrir skemmstu, að sami háttur skyldi á hafður um al- mennar umræður á þinginu og gerist um nefndastörf, það er, að þar skyldu aðeins eiga rétt til fundasetu flokksbundnir Fram- sóknarmenn. Ég hafði ekki hugsað mér að standa í opinberum deilum um þetta og hafði raunar haldið, að ég mætti hafa á þessu skoðun, en þar sem þessir stjórnarmenn BÍ hafa nú kosið að láta frá sér fara í nafni félagsins sérstaka ályktun, hlýt ég að benda á nokkur atriði í þessu sambandi. Er þetta heiðarleg blaðamennska? í fyrsta lagi hlýt ég að spyrja varðandi málsmeðferðina: Hvernig stendur á því, að sam- þykkt er í nafni Blaðamannafé- lags íslands slík ályktun, án þess að haft sé fyrir því að spyrja mig um þau rök sem ég hef uppi? Teljast það heiðarleg vinnubrögð af hálfu blaðamanna? Svari hver fyrir sig. í annarri ályktun, sem sam- þykkt var á þessum sama fundi, segir meðal annars: „Blaða- og fréttamennska er vandasamt á- byrgðarstarf, sem krefst víðtækr- ar þekkingar og reynslu.“ Ég tek eindregið undir þessi orð, en get ekki neitað því, að í huga mér hafa vaknað efasemdir um, áð allir stjórnarmenn BÍ rísi undir þessu. í ályktuninni segir, að ég „hafi haft í frammi dylgjur um störf og heiður blaðamannastéttarinnar með órökstuddum sleggjudóm- um“ og, að ég hafi „orðið til að ýta undir vantraust á störfum atvinnublaðamanna í landinu'*. Þessu vísa ég eindregið á bug og heim til föðurhúsanna. Hitt er annað mál, þótt einhverjir stjórn- armanna BI kjósi kannski að láta sem þeir viti það ekki, að sumum íslensku blaðannd hættir á stund- um til þess að sjá atburði í gegn- um pólitískt sjóngler - ég tala nú ekki um atburiði á borð við flokks- þing annarra flokka"en þess sem viðkomandi blað styður. Við þessu er auðvitað út af fyrir sig ekkert að segja - ef menn viður- kenna þetta fyrir sjálfum sér og öðrum, og þykjast ekki vera ann- að en þeir eru. Sýndarmennska eða raunveruleg fjölmiðlun Sem kunnugt er vísaði flokks- þingið tillögu minni á bug. Stjórnarmennirnir í Bl segjast í ályktun sinni telja, að með því „hafi verið staðfest að störf stjórnmálaflokka eigi ekki að vera einkamál útvaldra (sic!) hópa heldur eigi þau fullt erindi til almennings í landinu - þess al- mennings sem flokkarnir grund- vallast á. Lýðræðinu í landinu" - segir ennfremur - „hlýtur að vera best þjónað með því að sem mest af störfum stjórnmálaflokkanna fari fram fyrir opnum tjöldum“. Þetta get ég að ýmsu leyti fallist á. En hugum nánar að þessu, því að þarna er komið að kjarna málsins og því sem tillaga mín og málflutningur í þessu sambandi snerist um - það er hvernig lýðræðinu verði best þjónað. Á þingum stjórnmálaflokka koma saman til þess kjörnir full- trúar hvaðanæva. Þessi þing eru æðsta vaid fiokkanna og þar er stefna þeirra mótuð. Ég tel, að miklu skipti fyrir lýðræðið, að þetta gerist óhindrað. Þarna eiga menn að geta lofað og lastað eftir efnum og ástæðum. Óbreyttir flokksmenn eiga að geta gagn- rýnt forystumenn, ef þeim býður svo við að horfa, án þess að eiga á hættu, að setningar séu slitnar úr samhengi jafnvel og rangtúlkað- ar, viljandi eða óviljandi. Segja má, að þing af þessu tagi séu einn hornsteina þessfulltrúa- lýðræðis sem við höfum skapað okkur. Því skiptir að mínu viti miklu, að þar gefist mönnum færi á að tala opinskátt í almennum umræðum sem ná til alls þing- heims. Þvert gegn því sem títt- nefndir stjórnarmenn BÍ virðast ætla, hlýtur það fremur að teljast ógnun við lýðræðið, ef menn bíta í sig gagnrýni á slíkum þingum og forystumenn sleppa við nauðsyn- legar ádrepur, af hugsanlegum ótta manna við að verða affluttir í málgögnum pólitískra and- stæðinga. Ef allar umræður á þessum þingum eiga að vera öllum opnar, eykst hættan á því, að menn fari beinlínis að miða málflutning sinn við fjölmiðlana, fari að iðka yfirborðsmennsku, sem einungis miðast við frásagnir blaðanna. Mér finnst nú, að síst vanti okkur meiri yfirborðsmennsku á þessu landi. Hin hættan er líka fyrir hendi, að menn láti liggja í lág- inni þá gagnrýni sem þeim kann að vera í hug. Þar með væri stór- lega dregið úr því aðhaldi sem slíkum þingum er öðrum þræði ætlað að veita forystumönnum flokkanna, sem auðvitað eiga ekki að fara sínu fram án tillits til almenns vilja flokksmanna. Á að drepa gagnrýninni á dreif? Ég vil nefna dæmi um þetta. Á flokksþingi Framsóknarmanna kom fram í umræðum sú skoðun hjá einum forystumanna flokks- ins, að almennu umræðurnar ættu að vera öllum opnar - menn gætu bara sagt sína meiningu í nefndum, þar sem blaða- og frétt- amenn hefðu hvort eð væri ekki aðgang! í þessum orðum foryst- umannsins er auðvitað fólginn mikill tvískinnungur, því að hann var jafnframt, eða lét sem hann væri, hneykslaður á tillöguflutn- ingi mínum. En auðvitað dylst engum, að með því að flytja alla opinskáa umræðu inn í nefndirn- ar er drepið á dreif þeirri gagn- rýni, sem hugsanlega kann að vera á seyði og forystumenn taka misvel eins og gengur. Þá tala menn í smáum hópum í stað þess að ná til alls þingheims í einu. Gagnrýnin verður ekki jafn beinskeytt og áhrifamikil. Það er ennfremur mikill mis- skilningur ýmissa blaða-og frétta- manna, að nærvera þeirra ein tryggi þeim aðgang að sann- leikanum. Hún getur þvert á móti orðið til þess að hefta sann- leikann, hefta lýðræðið. Þetta er að mínum dómi mergurinn máls- ins, og þetta er kjarninn í mál- flutningi mínum. Aðhald fjöl- miðla og leitin að sannleikanum Hlutverk fjölmiðla er vissulega Helgi H. Jónsson fréttamaður skrifar. mikið. Því skiptir miklu, að vel sé með farið og rétt á haldið. Og menn verða að ætla sér af. Auðvitað eiga blaða- og frétta- menn hvergi að gefa eftir í skiptum við stjórnmálamenn. En stjórnmálaflokkarnir eiga líka að koma til móts við fjölmiðlana eftir því sem við verður komið - á flokksþingum og annars staðar. En það verður að mínu áliti betur gert með öðrum hætti en þeim að draga úr líkum á opinskáum og málefnalegum umræðum með sem mestri þátttöku óbreyttra flokksmanna með því að opna flokksþingin eins og gert hefur verið. Og auðvitað hljóta menn í þessu efni að miða við aðstæður eins og þær eru nú. Hér er því þannig farið, að eini fjölmiðillinn, sem hefur til þess bolmagn, mannafla og áhuga, að láta menn sína sitja öllum stund- um á þingum sem því sem hér hefur verið gert að umræðuefni, virðist vera Morgunblaðið. Menn lrá öðrum fjölmiðlum skjótast stund og stund inn á flokksþingin - ef þeir þá yfirleitt koma - og þá helst til þess að taka viðtal við einhvern forystumanninn - svona til þess að geta sagt, að málinu hafi verið sinnt. Ellegar þá, að látið er við það sitja að fjalla um upphlaupsmál, sem auðvitað er fyrirhafnarminna en að setja sig inn í málefnalega umræðu. - Og tæpast fer hjá því, að einhverjum detti í hug, að áhugi Morgun- blaðsins á umræðum pólitískra. andstæðinga eigi sér hugsanlega fleiri orsakir en þá eina að flytja af þeim hlutlausar og málefna- legar fréttir. Eða hvað? Hvernig væri að spara nú ályktanir, en auka málefna- lega umrœðu? Mér er ljóst, að auðvitað eru á þessum málum eins og flestum öðrum margar hliðar og færa má rök gegn mínum. Ég tel mönnum það til hróss, hafi þeir það hug- rekki sem stundum þarf til þess að skipta um skoðun, en ég er líka á því, að menn eigi ekki að hvika frá skoðun sinni, sé hún studd gildum rökum, þótt hún falli ekki öllum í geð og menn hljóti jafnvel aðkast fyrir. Það verður þá svo að vera. í þessu máli tel ég mig ekki hafa séð eða heyrt þau rök sem nægi til þess að fá mig ofan af þeirri skoðun sem ég hef nú gert stuttlega grein fyrir. Og ég læt ekki kúga af mér réttinn til að hafa skoðanir. Telji einhver úr stétt blaða- og fréttamanna, að ég vilji þrengja kost þeirrar stéttar eða gera henni erfiðara um vik við mál- efnalega frétta- og upplýsinga- öflun, þykir mér það miður, því að það er ekki rétt. Allt slíkt sé mér fjarri, enda sæti síst á mér að gera það, sjálfur fréttamaður og sonur manns, sem alla ævi starf- aði sem blaðamaður. Hér ræður einungis sú sannfær- ing mín, að lýðræðislegri stefnu- mótun hvaða flokks sent er sé betur þjónað með þeim hætti sem ég lagði til. Hvað svo sem stétt líður, erum við, sem við fjölmiðla vinnum, þó fyrst og fremst þegn- ar samfélagsins, sem við hrær- umst í. Við eigum skyldur að rækja við þetta samfélag. Allt þetta vona ég, að þeir íhugi, félagar mínir í stjórn Blaðamannafélags íslands, sem nú um sinn hafa gerst mjög álykt- anaglaðir. Ég beini því til þeirra, hvort ekki væri betra að spara pappír undir illa grundaðar álykt- anir og halda heldur fundi í BÍ, þar sem ræða mætti þessi mál - og kannski fleiri - af stillingu og hóf- semd. Við blaða- og fréttamenn mættum setjast niður í eigin hóp oftar en gert er og ræða ýmislegt sem betur má fara í starfi okkar. Þá væri vel. Helgi H. Jónsson starfar á frétta- stofu útvarpsins, en var áður á Tímanum. Hann er cinn af framá- mönnum Framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.