Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 24. nóvember 1982 t ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 B MWT Umsjón: tiL H Viðir Sigurðsson Ísland-Frakkland í kvöld: Stund hefndar- innar er komin Frakkar unnu síðast með 8 marka mun í B-keppninni í fyrra Það er skammt stórra högga á milli hjá landsliðinu okkar í handknattleik þessa dagana. Tveir erfiðir leikir gegn Vestur- Þjóðverjum um síðustu helgi og í kvöld og annað kvöld verður leikið við Frakka í Laugardalshöllinni. Þessir leikir koma í kjölfar mikilla samæfinga hjá liðinu en hiéið sem gert var á keppni 1. deildar frá og með 26. október sl. var einmitt ætlað fyrst og f remst til undirbúnings liðsins sem tekur þátt í B-keppninni síðar í vetur. Leikurinn annað kvöld hefst kl. 20 og er þrettánda viðureign ís- lands og Frakklands. Hvor þjóð hefur unnið sex leiki hingað til og hefur oft verið um mikla baráttu að ræða, en einnig hafa stórar tölur sést á hvorn veginn sem er. Þar er skemmst að minnast útreiðarinnar sem við fengum á þeirra heimavelli í síðustu B-keppni en þá unnu Frakkar 23-15 í afar þýðingarmikl- um leik. Það var í febrúar 1981 en fyrr þann vetur komu Frakkar hingað og léku þrjá leiki. Þeir unnu fyrsta leikinn 22-21 en ísland hina tvo, 27-19 og 19-16. Bestu minn- ingar úr viðureignum þjóðanna eru hins vegar frá árinu 1973. Þá lékum við í riðli með ítölum og Frökkum í undankeppni HM og fyrri leikur- inn í Frakklandi tapaðist 13-16. Sá síðari fór fram í Reykjavík hálfum mánuði síðar og þá skildi aðeins eitt mark liðin í hálfleik, fslandi í hag. Síðari hálfleikurinn var eitt það besta sem íslenskt landslið hef- ur sýnt og leikurinn vannst 28-15. Þátttaka í lokakeppninni var tryggð. í leikjunum gegn Vestur-Þjóð- verjum brá fyrir ágætum hlutum hjá íslenska liðinu, sérstaklega í varnarleiknum, en villurnar voru margar og slæmar. Markvarslan var léleg og sóknarleikurinn ansi tilviljanakenndur. En það getur margt átt eftir að breytast þar til að sjálfri B-keppninni í Hollandi kem- ur, alla vega leikur liðið fjölda landsleikja í millitíðinni. íslenskir handknattleiksunnend- ur hafa alltaf verið kröfuharðir varðandi Iandsliðið en þeir styðja líka vel við bakið á því þegar vel gengur. Það sást vel gegn Vestur- Þjóðverjum. Stuðningur þeirra er ómetanlegur, flestir krefjast þess örugglega að Frakkar verði lagðir að velli en þá er líka unt að gera að mæta í Höllina og leggja sitt af mörkum til þess að svo megi verða. Áfram fsland. - VS Ljósmyndari Þjóðviljans, -gel-, leit við á Reykjavíkurmóti fatlaðra í íþróttum um síðustu helgi og tók þar talsvert af myndum. Við munum birta þær hér á íþróttasíðunni eftir efnum og ástæðum og í dag gefur að líta tvær þær fyrstu, frá keppni í sundi og borðtennis. Hvað skeður gegn Frökkum í Höllinni í kvöld? Derby fékk ekki að ræða við McFarland og hann sagði strax upp störfum Roy McFariand, fyrrum miðvörður Derby County og enska landsliðsins í knattspyrnu, sagði af sér í gær sem framkvæmdastjóri 3. deildarliðsins Bradford City. Af- sögnin er tilkomin vegna þess að stjórn félagsins bannaði Derby að ræða við McFarland um að koma og gerast aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá liðinu. Málið þykir allt hið gruggugasta og enska knatt- spyrnusambandið hcfur farið fram á rannsókn til að komast að því hvað hafl eiginlega verið um að vera. McFarland er 35 ára gamall og kom Bradford City uppúr 4. deild í fyrstu tilraun í fyrra en liðið er nú ofarlega í 3. deild. Ken Craggs er hættur sem fram- kvæmdastjóri 2. deildarliðsins Charlton Athletic í kjölfar deilna vegna kaupanna á Dananum Allan Simonsen. Charlie George, sá kunni kappi sem síðast lék með Southampton, er nú kominn til Dundee United í Skotlandi og hefur reyndar þegar verið þar í nokkrar vikur. Hann meiddist strax eftir komuna þang- að, er rétt að byrja að æfa að nýju svo hann hefur enn ekki leikið með liðinu. Arsenal hefur mikinn áhuga á að fá til sín írska miðherjann Mike Robinson frá Brighton og er reiðu- búið að láta Lee Chapman, sem var keyptur frá Stoke í sumar, fara til Brighton í staðinn. Chapman mun ekki vera sérlega spenntur. 4. deildarliðið Tranmere Ro- vers, sem átti að leysa upp á laugar- daginn kemur hefur fengið gálga- frest til 18. desember til að losa' sig úr hinurn gífurlegu fjárhag- skröggum sem ógna lífi félagsins. .-VS Tómas vann fyrsta mótið á Húsavík Tómas Sölvason, KE, bar sigur úr býtum á fyrsta punktamótl vetrarins í borðtennis sem fram for á Húsavík um helgina. Keppt var saman í meistaraflokki og 1. flokki karla og sigraði Tómas Friðrik Berndsen, Víkingi í úrslitaleik, 21- 15,21-14, 21-14. Þriðji varð Krist- ján Viðar Haraldsson, HSÞ. Bjarni Bjarnason varð sigurveg- ÍME er á ÍME, íþróttafélag Mennta- skólans á Egilsstöðum, hefur for- ystu í Austfjarðariðli 2. deildar karla í körfuknattleik en fyrri um- ferð riðilsins fór fram á Höfn í Hornafirði um helgina. ÍME hefur ari í 2. flokki karla. Hann vann Kjartan Briem, KR, í úrslitaleik 21-15, 13-21, 21-19. Þriðji varð Sigurbjörn Bragason, KR. Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla borðtennis í síðustu viku. Víkingur-a vann KR-b 6-4 og Örninn-a sigraði Víking-a 6-4. Þá vann KR Örninn-b 3-0 í 1. deild kvenna. toppnum 4 stig, vann Sindra 73-52 og SE, Samvirkjafélag Eiðaþinghár, 85- 44. Sindri hefur 2 stig, vann SE 75-56. Síðari umferðin fer fram í janúar. -VS HK hafði betur í Kópavogsuppgiöri í fyrrakvöld fór fram einn leikur í 2. deild karla í handknattleik. Kópavogsliðin HK og Breiðablik léku að Varmá í Mosfellssveit, þau eiga nefnilega engan heimavöll, og sigraði HK, sem fyrir leikinn var á botni deildarinnar, 23-21. Mikil barátta virðist vera framundan í topp- og fallbaráttu 2. deildar en að 14 umferðum loknum fara fjögur efstu liðin í fjórfalda úrslitakeppni um 1. deildarsætin tvö en hin fjög- ur í samskonar keppni við fallið. Öll liðin taka með sér stigin úr um- ferðunum 14 í úrslitakeppnina. Staðan er nú þessi í 2. deild: Grótta.............7 6 0 1 179-173 12 KA.................7 5 1 1 182-154 11 Breiðabiik.........7 3 1 3 139-138 7 Haukar.............7 3 0 4 157-153 6 ÞórVe..............7 2 2 3 143-148 6 HK.................7 2 1 4 143-150 5 Ármann.............7 1 3 3 148-156 5 Afturelding........7 1 2 4 133-150 4 -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.